Tíminn - 26.11.1988, Side 24

Tíminn - 26.11.1988, Side 24
 Átján mán. binding 1 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu, 0 7,5% S 28822 1 SAMVINNUBANKINN | iBlLASr, ÞRÖSTIIR 685060 VANIR MENN Iimimi Staða atvinnuveganna rædd ásérstökum ríkisstjórnarfundi í gær: Staðan verri en talið ar við stjórnarskipti „Það voru iagðar fram mjög ítarlegar upplýsingar um stöðu atvinnulífsins,\ fyrst og fremst sjávarútvegsins,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í sam- tali við Tímann að afloknum sérstökum ríkisstjórnarfundi sem boðað var til vegna stöðu atvinnuveganna. Upplýs- ingarnar sem fram voru lagðar komu frá Þjóðhagsstofnun og Byggðastofnun. Einnig var lögð fram samantekt á því hvernig horfir með fyrirtæki sem leita til Atvinnutrygg- ingarsjóðs. Þetta voru ekki upplýsingar um einstök fyrirtæki, heldur heildarmynd af ástandinu, og auk þess komu upplýsingar frá bönkum og fleiri aðilum. „Ég held að allir hafi verið hagnað til að greiða þennan óhóf- sammála um að þessar upplýsing- ar séu mjög gagnlegar, en menn eiga eftir að átta sig betur á þeim. Það kemur m.a. fram að eigin- fjárstaða fyrirtækjanna hefur al- gerlega snúist við á þessu ári. Hjá afar mörgum er hún orðin nei- kvæð, hagnaðurinn hefur minnk- að og þeir hafa hvergi nærri haft lega fjármagnskostnað. Fjár- magnskostnaðurinn er þeim of- viða, það er ekki hægt að segja annað. Þetta er miklu verri staða heldur en menn töldu við stjórn- arskiptin," sagði Steingrímur. Tapið á frystingunni er, sam- kvæmt þeim upplýsingum sem fram voru lagðar, að meðaltali 4 til 5%, með 5% uppbótinni. „Við héldum að þetta yrði nokkurn veginn í núlli, svo þessi niður- staða er miklu verri en búist var við, en meðaltölin segja svo lítið. Það eru sem betur fer stór og öflug fyrirtæki sem standa vel, eru kannski ekki með gróða en standa við núllið, en svo er mikill fjöldi sem er langt fyrir neðan og þar geta heil byggðarlög verið undirlögð. Það eru svona hlutir sem valda mönnum miklum áhyggjum, auk þess sem tap upp á fimm til sex af hundraði að meðaltali í lengri tíma, er gífur- lega mikið,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að á þessu stigi væri ekki búið að taka ákvarðanir um frekari aðgerðir en þegar væri verið að framkvæma. Hvort þær upplýsingar sem lagðar voru fram breyttu í ein- hverju afstöðu hans til gengisfell- ingar sagði Steingrímur að svo væri ekki. „Ég vil undirstrika það að í raun, þá sýna þessar tölur að gengisfelling er ekki aðstoð nema við sum fyrirtæki og við önnur fyrirtæki hefði gengisfelling öfug formerki," sagði Steingrímur. Aðspurður sagði hann að í framhaldi af þessum sérstaka ríkisstjórnarfundi mundu tveir ráðherrar auk hans, þeir Ólafur Ragnar Grímsson fjárntálaráð- herra og Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra skoða þessar upp- lýsingar á mánudag, þá með sín- um trúnaðarmönnum. Beðið er eftir skýrslum endurskoðenda á vegum sjávarútvegsráðuneytisins sem vænst er að komi í fyrri hluta vikunnar. „Ég mun síðan ræða þetta við fulltrúa fyrirtækjanna og fleiri, þannig að það verður unnið í þessu máli áfram til að hægt sé að meta stöðuna sem allra best,“ sagði Steingrímur. Varðandi ummæli Þorsteins Pálssonar fyrir skömmu, þar sem fram kom að óeðlilegt væri að gögn frá fyrirtækjum, sem sækja til Atvinnutryggingarsjóðs, bær- ust inn á borð ráðherra, sagðist Steingrímur aðspurður hafa orð- ið afar undrandi á þeim. „Ég fæ að sj álfsögðu ekki umsóknir fyrir- tækjanna beint inn á borð hjá mér. Ég hef hins vegar fengið að sjá hvernig þessi mál standa og tel afar mikilvægt að hafa hendina betur á púlsinum en gert var. Það er einmitt þess vegna sem við höfum hrokkið við og eru nú að vinna svo mikið í þessum málum, þar sem við höfum fengið að fylgjast með,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. - ABÓ Tollfrelsi ógnar garðyrkjubændum Unnur Stefánsdóttir mælti fyrir tillögu í sameinuðu þingi í gær um könnun á rekstrarskilyrðum garð- yrkju og ylræktíjr. Þar er þeim tilmælum beint til ríkisstjórnarinn- ar að hún láti gera úttekt á rekstrar- skilyrðum þessara tveggja bú- greina og að í þvf sambandi skuli sérstaklega könnuð áhrif skatt- breytinga sem urðu f byrjun þessa árs. Hún gerði að umtalsefni að þrátt fyrir mikla aukningu í framleiðslu á innlendu grænmeti stæði þessi búgrein frammi fyrir miklum vanda vegna mjög aukinnar samkeppni frá innfluttri vöru. Á undanförnum árum hefðu tollar á innfluttu græn- meti verið lækkaðir úr 70% í 30% og jafnhliða því hefði verið lagður 25% söluskattur á allt grænmeti um síðustu áramót. Hann hefði ekki fengist endurgreiddur líkt og gert er með aðrar matvörur. Með þessari þingsályktunartil- lögu væri lagt til að rekstrarstaða og þróunarmöguleikar garðyrkju Unnur Stefánsdóttir. og ylræktar verði könnuð, m.a. verði rekstrarskilyrði borin saman við þá aðstöðu sem þessum grein- um sé búin í nálægum löndum. í framhaldi af því verði kannað á hvern hátt megi styrkja stöðu bú- greinarinnar svo sem með lækkun gjalda af aðföngum og fjárfesting- arvörum, lækkun orkuverðs og fleiru. -ág Jóhann með erfiða biðskák íslenska skáksveitin tefldi við skáksveit Kólumbíu á 11. umferð ólympíuskákmótsins sem fram fór í gær. Skák Jóhanns Hjartarsonar á fyrsta borði fór í bið og er hún sögð erfið fyrir hann. Á öðru borði tefldi Jón L. Árnason og vann hann skák- ina, á þriðja borði tefldi Margeir Pétursson og vann hann skákina sem var mikil sóknarskák. Á fjórða borði tapaði Helgi Ólafsson með svörtu mönnunum. Niðurstaðan varð því sú að ísland er með tvo vinninga gegn einum og verður biðskákin tefld í dag. -ABÓ Tillaga Árna Gunnarssonar um að vísindaveiðum verði hætt tímabundið veldur lítilli hrifningu hjá samflokksmönnum hans: Kratar deila hart Það voru skiptar skoðanir manna á milli þegar þingsályktunartillaga Árna Gunnarssonar um endurskoð- un á hvalveiðistefnu íslendinga var til umræðu í sameinuðu þingi f gær. Afstaða manna var ekki flokkspóli- tísk og sérlega áberandi var að Árni fékk ekki stuðning neinna sinna flokksbræðra, þvert á móti. Eins og komið hefur fram leggur Árni til í þessari tillögu að við tökum upp samstarf við grænfriðunga og reynum þannig að fá þá til að skilja okkar sjónarmið. Um þetta sagði flokksbróðir hans Eiður Guðnason. „Við getum ekki, eigum ekki og megum ekki taka undir með þessum samtökum, þegar þau afflytja okkar málstað, þegar þau breiða út um íslensku þjóðina ósannindi, rangar fullyrðingar, óhróður og lygi.“ Hann bætti við að þessi samtök kynnu því miður hvorki að umgangast sann- leikann né staðreyndir þegar hval- veiðar væru annars vegar. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra sagði að það hefði verið reynt að tala við þessa menn og sjálfsagt væri að halda því áfram. Hann vitnaði til þess sem hann hefði áður sagt að við værum í fullum rétti til að stunda okkar vísindaveiðar og hefðum farið eftir ályktun Alþjóða hvalveiðiráðsins frá 1986. Um álykt- un ráðsins frá árinu 1987 um for- dæmingu vísindaveiða íslendinga sagði Halldór að hún væri ómarktæk Jrar sem hún bryti gegn stofnskrá Alþjóða hvalveiðiráðsins. Árni Gunnarsson tók það skýrt fram að hann væri ekki talsmaður grænfriðunga og að hann teldi að íslendingar ættu að halda áfram hvalveiðum sínum í samráði og sam- starfi við Alþjóða hvalveiðiráðið. Við værum hins vegar búnir að tapa áróðursstríðinu við Greenpeace og þyrftum að horfast í augu við þá staðreynd. Það væri mikil skamm- sýni að halda að milljóna samtök fólks, með ógrynni fjár á bak við sig, vel skipulögð fjöldahreyfing, yrði brotin á bak aftur með sendinefnd- um stjórnarerindreka. Trúlega hefur Jóni Sæmundi Sigurjónssyni flokks- bróður hans fundist þarna að sér vegið, en hann átti einmitt í kapp- ræðum við talsmenn Greenpeace- samtakanna í Þýskalandi í síðustu viku og fór þar með sigur af hólmi. Hann sagði að samtökin hefðu staðið fyrir víðtækri áróðursherferð í Þýskalandi um síðustu helgi, við litlar undirtektir. Sem dæmi nefndi hann að meðlimir þessa samtaka hefðu staðið fyrir mótmælum fyrir utan skrifstofu ræðismanns okkar í Hamborg. Einhversstaðar hefði þetta vakið athygli, en þarna var einungis einn hópur sjónvarps- manna mættur á staðinn og hann var á vegum íslenska sjónvarpsins. Eftir þetta stóra átak á laugardaginn síð- asta hefði ekki komið ein einasta frétt um það á stóru þýsku sjónvarps- stöðvunum. Eiður Guðnason samsinnti Jóni Sæmundi og sagði að það væri engu líkara en að beinar línur lægju á milli sumra íslenskra fjölmiðla og tals- manna þessara samtaka. Hann taldi að íslenskir fjölmiðlar hefðu orðið til að efla baráttu grænfriðunga í þessu máli. Fleiri tóku undir þessi orð Eiðs. Alexander Stefánsson sagði að málflutningur eins og frumvarp borgaraflokksmanna og þingsálykt- unartillaga Árna skaðaði málstað fslendinga og væri þar að auki van- traust á vísindamenn Hafrannsókn- arstofnunar. Hann taldi að við ætt- um að standa fastir fyrir í þessu máli og vinna áfram að áætlun um vís- indaveiðarnar sem væru í fullu sam- ræmi við samþykktir Alþjóða hval- veiðiráðsins. -ág

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.