Tíminn - 06.12.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.12.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 6. desember 1988 NÁMSGAGNASTOFNUN Námsgagnastofnun auglýsir eftir umsóknum um starfslaun á árinu 1989 Verkefni höfunda geta veriö af ýmsu tagi, s.s. handrit aö náms- og kennslugögnum í einhverri grein, efni til sérkennslu, handrit að myndbandi, þýðingar, tölvuforrit, lestarefni o.fl. sem tengist grunnskólum eða framhaldsskólum. Þá kemur til greina að veita starfslaun til rannsókna sem beinast að notkun námsefnis í grunnskólum og mati á námsefni. Með umsókn um starfslaun skal fylgja greinargóð lýsing á því efni sem áætlað er að vinna. Fleiri en einn geta unnið að sama verki. Með hliðsjón af umsókn verður ákvarðað um fjölda starfsmánaða til hvers einstaks verks, allt að 6 mánuðum. Ekki er gert ráð fyrir að viðkomandi gegni öðru meginstarfi meðan hann nýtur starfslauna. Starfs- laun verða greidd samkvæmt launaflokki BHMR1 148, 4. þrepi. Starfslaun eru greidd án orlofs- greiðslu og annarra launatengdra gjalda. Námsgagnastofnun hefur einkarétt á útgáfu efnis er þannig verður til í allt að þrjú ár eftir að handriti hefur verið skilað. Ákveði námsgagnastjórn að gefa út handrit verður gerður útgáfusamningur samkvæmt reglum Námsgagnastofnunar. Starfs- laun teljast þá hluti af endanlegri greiðslu fyrir útgáfurétt verksins. Frekari upplýsingar, m.a. um reglurum starfslaun, viðmiðanir stofnunarinnar um framsetningu og frágang efnis og hugsanleg forgangsverkefni, gefur Hanna Kristín Stefánsdóttir upplýsinga- fulltrúi Námsgagnastofnunar. Umsóknir skulu hafa borist Námsgagnastofn- un í síðasta lagi fyrir 15. mars 1989. Sænskt setulið hundskammar Expressen: Dátarnir vilja meira af Lindu Frá Þór Jónssyni í Stokkhólmi Dátar í Boden í Svíþjóð hafa sent lesendasíðu Ex- pressens, stærsta dagblaðs á Norðurlöndum, bréf þar sem ritstjórn blaðsins er hund- skömmuð fyrir meðferðina á ungfrú heimi, Lindu Péturs- dóttur, þegar hún sigraði í fegurðarsamskeppninni. Raunar var íslendingum hér í Stokkhólmi mjög skemmt, þegar fréttin birtist af sigri Lindu í Express- en. Oftast nær þegar grannar okkar hér í Skandinavíu fjalla um Norður- lönd, vill gleymast að ísland heyrir þeim til. En það var öðru nær, þegar íslensk stúlka hreppti titilinn fegur- sta stúlka heims og sænska stúlkan komst ekki einu sinni í úrslit. Þá varð fyrirsögnin eitthvað á þessa leið: Norðurlönd eiga fegurstu stúlku í heimi! Skyldu Vopnfirðingar vita að Linda þeirra hafi einatt verið sam- norræn? Hér er svo lausleg þýðing á bréfi reiðu hermannanna í Boden til Ex- pressens undir hausnum: Lemstruð og litlaus. „Hvernig getur ritstjórn Express- ens kinnroðalaust og án allrar tilfinn- ingar fyrir fegurðinni föstudaginn hinn 18. nóvember fengið af sér að gróflega limlesta ungfrú heim, Lindu Pétursdóttur? Hvernig getur maður með fullu viti sett svo litla og skorna mynd af áttunda undri veraldar út í horn? Heilsíðumynd í fjórlit er hið eina sem sæmir þessari fullkomnu kven- Íförrar Í£',« *t. ÖÖv- I" ■,! XW,, d„ ?Ilvv»tn- 1“'«■ ■ a,s«* ] u$k kvö ut I I jiinn ■'r'drti I s&snSxd I w'SW gist V&* J<*íi W J>4 i , •aar* i>n fM* hor j,- asa? teás veru.“ Undir þetta er ritað: Illa launaðir þrælar í setuliðinu í Boden. Og stjórn lesendasíðunnar tekur undir með hermönnunum: „Kæru þrælar í Boden - við á ritstjórn lesendasíðunnar erum án alls fyrirvara sammála ykkur. Nirfils- lega meðferð Expressens á Lindu nú nýlega er erfitt að afsaka, hér er um að ræða greinilega og óumdeilanlega misbeitingu á fegurðinni í tilverunni. En hér er bót og betrun - Linda Pétursdóttir í allri sinni örlátu dýrð. Ekki skal lasta okkur fyrir að fæturna vantar, heldur myndasafn það í Lundúnum, sem dreifir mynd- unum, og einhverjum dóna þar.“ Akranes lóðaúthlutun 1989 Þeim sem hyggjast hefja byggingaframkvæmdir á árinu 1989 og ekki hafa fengið úthlutað lóð, er hér bent á að lóðir á eftirtöldum svæðum eru lausar til umsóknar fyrir: Einbýlis og raðhús í Jörundarholti. Verslanir og þjónustustofnanir í Jörundarholti. Iðnaðarhús á Smiðjuvöllum, Kalmansvöllum og í Höfðaseli. Iðnaðarhús tengd sjávarútvegi á Hafnarbraut og Faxabraut. Verslanir, þjónustustofnanir og íbúðir í Miðbæ. Hús fyrir búfénað í Æðarodda. Nánari upplýsingar eru veittar á Tæknideild Akraneskaupstaðar, Kirkjubraut 28, 300 Akranesi, sími 93-11211. Lóðaumsóknuim skal skilað á sama stað, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást, fyrir 31. desember nk. Bæjartæknifræðingur. Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Við Iðnskólann í Reykjavík er laus til umsóknar staða bókavarðar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. desember n.k. Menntamálaráðuneytið. Nægur rjómi á boðstólum fyrir jólin Undanfarin ár hefur þurft að flytja rjóma til höfuðborgarsvæðis- ins fyrir jól og páska. Vegna sam- dráttarins í mjólkurframleiðslu í september og október hafa verið birtar fréttir, m.a. í DV, að fyrir- sjáanlegur væri skortur á rjóma á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessi jól. Pétur Sigurðsson hjá Mjólkur- samsölunni sagði að ótti um slíkt væri ástæðulaus. Pétur sagði að búið væri að panta 25 þúsund lítra frá Akureyri og 8 þúsund lítra frá Blönduósi og Sauðárkróki, sem væri sama magn og pantað hefði verið í fyrra. „Við gerum alls ekki ráð fyrir neinum vandamálum hvað þetta varðar. Þetta lítur út fyrir að vera alveg nóg, við seljum það mikið meira af léttmjólk og undan- rennu hér á okkar svæði en í fyrra þannig að rjómaframleiðsla er meiri.“ ssh Rjúpnaskyttur í hópum upp til fjalla: Sýnið að- gát í rúpna- veiðinni Nú þegar styttist óðfluga í jólin hafa skotveiðifélög séð ástæðu til að hvetja rjúpnaskyttur til að viðhafa aðgát í ferðum sínum. Nokkrar grundvallarreglur ættu allir þeir sem til fjalla fara að hafa í heiðri og má þar nefna að gera grein fyrir ferðum sínum. Hvert er ferð- inni heitið, hvað á hún að taka langan tíma o.sv.frv. f framhaldi af því skulu veiðimenn reyna að halda áætlun til að losa sína nánustu við óþarfa áhyggjur. Þá er mikilægt að viðhafa fyílstu varúð í meðferð skot- vopna. Allir þeir sem til veiða fara ættu líka að hafa það í heiðri að veiða ekki á eignarlöndum nema að fengnu leyfi viðkomandi aðila. Bókaflóðið til sýnis Um helgina var haldin sýning í Norræna húsinu á þeim bókum sem koma út fyrir jólin. Björn Ó. Gíslason hjá Félagi íslenskra bókaútgefanda sagði að giskað væri á að í haust og byrjun vetrar hefðu komið út um 350 bóka- titlar og væri þeir nokkru færri en í fyrra. Varðandi skiptingu á milli hinna ýmsu tegunda af bókmenntum sagði Björn að hún væri að mestu leyti svipuð og í fyrra, nema hvað nú kæmu út tæplega helmingi fleiri ljóðabækur en í fyrra. Einnig væri nokkur samdráttur útgáfu spennu- sagna. ssh Þessum nasistabúningi lengst til hægri var stillt upp í tilefni af jólabókasýn- ingu í Norræna húsinu en þar er m.a. að finna bókina „íslenskir nasistar“. Búningurinn var fenginn að láni frá Þjóðminjasafninu en hann varð viðkomandi bókaforlag að tryggja fyrir eina miiljón króna.Tímamynd: Gunnar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.