Tíminn - 06.12.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.12.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 6. desember 1988 Þorsteini Pálssyni líkt við karlinn í tunglinu: Vextir af bindifé eiga ekkert skylt við niðurgreiðslur Morgunbladid hefur eftir Þorsteini PáLssyni, formanni Sjálfstæðis- flokksins, fyrir hclgi, aA 2% vextir á bindiskyldu bankanna í Seðlabanka „sé aðeins niðurgreiðsla á almennum vöxtum...“ Bundið fé bankanna í Seðlabankanum nemur oft miklum fjárhæðum. Það hefur verið verðtryggt um sinn, en vaxtalaust og hafa bankamenn talið það þungar búsiljar, sem ekki hafl haft hvctjandi áhrif á vaxtalækkun almennt. Tíminn sneri sér til Stefáns Páis- un í bönkunum. Ég undrast mjög sonar, bankastjóra Búnaðarbank- ans og spurði liann álits á fyrr- greindri yfirlýsingu flokksfor- mannsins. Stefán sagöi: „Ég undr- ast mjög svona fullyrðingu, að það sé virkilega gert ráð fyrir því að bindiskyldan í Scölabankanum sc vaxtaiaus. Við höfum ekki þá skoð- svona fullyrðingu. Áður voru almennir vextir á bindiskyldu, en þessu var breytt fyrir tveimur árum, vextir felldir niður og verðtrygging tekin upp í staðinn. En bankanir hafa haldið því fram, að bindiféö hljóti að eiga að bera vexti. Áður varaldrei talað um að vextir af bindifé væri niður- greiðsla. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri þessa fráleitu kenningu.“ Vextir eru nú 2% og segir Stefán að bankamenn líti svo á að þessi 2% séu aðeins áfangi á þeirri leið að greiða frekari vexti af þessu fé. Annar bankamaður, sem Tíminn talaði við, sagði um niðurgreiðslu- kenningu Þorsteins Pálssonar, að flokksformaðurinn væri cins og karlinn í tunglinu, svo fjarri sanni væri að vextir á bindifé væri í ætt við niðurgreiðslu. Klúbbfélagar og starfsfólk Landakotsspítala við afhendingu hjartagæslutækj- anna. Þórarinn Arnórsson er hjartaskurðlæknir og jafnframt klúbbfélagi og er hann fjórði maður frá vinstri á myndinni. Lionsklúbburinn Víðarr safnaði fé til kaupa á lækningatækjum: Landakot fær monotor Lionsklúbburinn Víðarr hefur undanfarin 5 ár safnað fé og hefur því verið varið til kaupa á lækninga- tækjum fyrir hjartasjúklinga. Á þessu ári var keyptur monotor sem stöðugt mælir blóðþrýsting, og er hann nú kominn í eigu Landakots- spítala. Tækin voru afhent í lok nóvember og af því tilefni bauð stjórn spítalans ásamt framkvæmda- Endurvinnsla á PVC plasti í Vestmannaeyjum: Bobbingar úr ónýtum rorum „Ég hef til þessa einkum framleitt millibobbinga í tveim stærðum og netaverkstæðin hafa keypt þá og sett á veiðarfæri sem þau framleiða,“ sagði Páll Siggeirsson, framkvæmda- stjóri Kirkos í Vestmannaeyjum. Bobbingarnir eru einkum notaðir á troll og hefur Páll hingað til framleitt mest fyrir minni bátana í Vestmannaeyjum og víðar um land. Bobbingarnir sem Páll framleiðir eru úr PVC plasti, því sama sem notað er í plastslöngur og rör. Hér er að nokkru um endurnýtingu að ræða en hráefnið í framleiðslu Páls er að mestu rör og slöngur sem mistekist hefur að framleiða. Er varan þá hökkuð niður og endur- steypt, en óhemju magn hráefnis er fáanlegt með þessum hætti um alla Evrópu. Upphafið að þessari starfsemi Páls er það að Samband sunnlenskra sveitarfélaga gekkst fyrir því að stofnað yrði til nýrra atvinnugreina, einkum í iðnaði. Um það leyti var loðnuveiðibann og því nokkur lægð í netagerð og hugðist því Netagerðin Ingólfur hefja þessa framleiðslu. Loðnuveiði- banninu var síðan aflétt og umsvif netagerðarinnar jukust og hætti því netagerðin við þessa aukabúgrein en Páll ákvað að taka við. Hann keypti síðan vélar og einka- leyfi til framleiðslunnar frá Dan- mörku og hófst handa. Páll sagði síðan: „Ég fékk fyrirgreiðslu að hluta til fyrir þessum kaupum en lúnsvegar ekki fyrir markaðssetn- ingu framleiðslunnar þannig að þetta hefur verið talsverður barningur en eins og ég sagði hefur framleiðslan einkum verið seld netaverkstæð- um.“ Páll sagði að þótt hann hefði til þessa einkum framleitt bobbinga þá gæti hann framleitt miklu fleiri vöru- tegundir. Hann sagðist hafa mikinn hug á að framleiða fríholt fyrir íslenskar hafnir en eins og sjá má í Reykjavíkurhöfn eru fríholtin þar gömul dekk. Dekkin hafa þann ókost að þau draga í sig olíu og óhreinindi sem bæði fara í sjóinn og ata skipin út sem liggja utan í þeim. Þá sagðist Páll auðveldlega geta framleitt gólfflísar í hvaða lit og mynstri og stærð sem væri. Flísar þessar væru níðsterkar og hentuðu afar vel þar sem mikið álag væri og umgangur, svo sem á verksmiðju- og vinnustaðagólf. Hann sagði að öll gólf í dönsku Stórabeltisferjunni Dronning Marg- arethe væru lögð slíkum flísum og þá væru fríholtin í þeim höfnum sem ferjan leggur að af því tagi sem hann hyggst framleiða. -sá Páll Siggeirsson framkvæmdastjóri Kirkos í V estmannaeyjum. Tímamynd, Pjetur. stjóra og yfirlæknum deildarinnar, klúbbnum í veglega móttöku á spít- alann. Víðarrsfélagar hafa ákveðið að verja fjármunum og vinnu á næsta ári í að styrkja geðdeild Borgarspít- alans í Arnarholti. Ætlunin er að breyta þar eldri byggingu í þjálfun- arsal fyrir sjúklingana og kaupa til þess tæki og annan búnað, eftir því sem fjármagn leyfir. Fjáröflun Víðarrsmanna í ár verð- ur happdrættismiðasala og eru ein- ungis gefnir út 1000 miðar sem kosta 1.000 krónur hver. Vinningur er Citroen AX 10 bifreið, sem afhent verður vinningshafa þann 18. des- ember n.k. Vonast er eftir góðum undirtekt- um og að fólk taki þannig þátt í að bæta aðstöðu geðsjúkra á Arnar- holti. Á tali meö Hemma Gunn: Gekk of langt Á fundi útvarpsráðs á föstudag var gerð bókun þess efnis að of langt hefði verið gengið, þegar gert var grín að áfengiskaupum Magnúsar Thoroddsen, í þættinum „Á tali með Hemma Gunn“. „Það var einungis bókað í fundar- gerð, en engin ályktun samþykkt að þarna hafi verið gengið of langt og sömuleiðis óviðkomandi aðilar dregnir inn með óviðeigandi hætti. Okkur fannst þetta smekklaust og óviðeigandi að hafa þessi mál í flimtingum á viðkvæmum tíma og ekki samboðið Ríkisútvarpinu,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir í sam- tali við Tímann. Aðspurð sagði hún að ekki yrðu eftirmálar vegna þessa. -ABÓ Páll framleiðir sem stendur eingöngu svukallaða millibobbinga fyrir bátaflot- ann. Húsnæðisvandi Menntaskólans í Reykjavík: Forsætisráðherrann skorar á stjórnvöld í gangi eru nú undirskriftalistar þar sem skorað er á Alþingi og stjórnvöld að bæta þegar úr brýn- um húsnæðisvanda Menntaskólans í Reykjavík og leggja jafnframt drög að nýju varanlegu framtíðar- húsnæði á lóð skólans. Ýmsir eldri stúdentar sem voru forvígismenn nemenda á skólaárum sínum hafa skrifað undir og er þar að finna mörg þekkt nöfn. í sumum tilfell- um er ekki hægt að líta öðruvísi á en svo, að með undirskriftinni séu menn að skora á sjálfa sig. Einn þeirra sem telst til þessa hóps er sjálfur forsætisráðherrann, Steingrímur Hermannsson. Sömu sögu er að segja um Jón Sveinsson, aðstoðarmann forsætisráðherra, Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóra, Bjarna Braga Jónsson, að- stoðarseðlabankastjóra og alþing- ismennina Geir Haarde og Kjartan Jóhannsson. Þar sem málalok eru í höndum menntamála- og fjármálaráðuneyt- is sem eru undir stjórn alþýðu- bandalagsmanna, ætti ekki að skaða að frægir alþýðubandalags- menn láta ekki sitt eftir liggja. Nefna má Einar Olgeirsson, fyrr- verandi alþingismann, Björn Th. Björnsson, rithöfund, Braga Guðmundsson, félagsmálastjóra í Kópavogi og síðast en ekki síst Mörð Árnason, ritstjóra á Þjóðvilj- anum. Reiri fræg nöfn er að finna á þessum undirskriftalista. Nefna má Benjamín Eiríksson. fyrrverandi bankastjóra, Kristján Albertsson, rithöfund, Þór Vilhjálmsson, hæstaréttardómara og Markús Öm Antonsson, útvarpsstjóra. ssh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.