Tíminn - 04.01.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.01.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn rMiðvik-udagur.4..janúar 4989 Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar: Gengi krónunnar verði svipað og í september Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tilkynnti í gær að Seðla- banka hafí verið heimilað að lækka gengi íslensku krónunnar um 4% frá síðasta skráða gengi, frá því fyrir áramót. Að sögn forsætisráðherra og viðskiptaráðherra er hér eingöngu um að ræða leiðréttingu á gengi íslensku krónunnar gagnvart þróun erlendra gjaldmiðla. Er gengi krónunnar nú hið sama gagnvart Bandaríkjadollar og það var í september, en þá var það síðast ákveðið. Er því hér um leiðréttingu að ræða gagnvart alþjóðagjaldeyris- markaði og til að laga viðskiptakjör þjóðarinnar, en þó mest þeirra fyrir- tækja sem starfa í sjávarútvegi, út- flutningi ogsamkeppnisgreinum iðn- aðar. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði af þessu tilefni að ráðstöfun þessi væri alveg óháð þeim ráðstöfunum í efnahagsmálum sem eru í undirbúningi nú þegar og kynntar verða á næstu dögum. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði að ríkisstjórnin væri algerlega á móti því að farið verði í kollsteypuaðgerðir til höfuðs efna- hagslífi þjóðarinnar. „Þessi gengis- breyting er fyrst og fremst vegna erlendra breytinga en ekki inn- lendra,“ sagði Jón og skýrði þessar aðgerðir þannig að ríkisstjórnin væri að gera hreint borð á nýju ári. Þessi gengisfelling væri hófleg breyting sem ekki kæmi á tímum bullandi þenslu í þjóðfélaginu. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, bar þessa gengisfell- ingu saman við breytinguna í maí sl. þegar síðasta ríkisstjórn felldi geng- ið um 10%. „Það varð enginn árang- ur af 10% gengisfellingu í maí, en all nokkur af 3% gengisfellingu sem gerð var á fyrstu starfsdögum þessar- ar ríkisstjórnar. Hér er því á ferðinni pólitísk tilkynning um staðfestu ríkisstjórnarinnar, á santa tíma og gengisfellingarkórinn hrópar á koll- steypu með 15-20% gengisfellingu," sagði Ólafur. Samhliða áðurnefndri ákvörðun ríkisstjórnarinnar, hefur hún ákveð- ið að heimila Seðlabankanum að skrá daglegt gengi krónunnar innan marka sem eru 1,25% ofan við og neðan við ákveðið meðalgengi. Svigrúm þetta verður notað til að jafna sveiflur í raungengi krónunnar vegna óvæntra breytinga á gangi helstu gjaldmiðla á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði. KB Formenn stjórnarflokkanna ásamt Jóni Sigurðssyni, viðskiptaráðherra, þegar gengisfellingin var kynnt og skýrð út í fundarherbergi ríkisstjórnarinnar. Tímamynd Árni Bjarna Áætlanir hjá embætti veiöistjóra um aö gera tilraunir meö athyglisveröar nýjungar á Mosfellsheiöi næsta vor: FJALLALOMBI RADÍÓSAMBAND Nú eru uppi áætlanir hjá veiði- stjóraembættinu um að gera tilraunir næsta vor með radíósenda sem eru festir um háls lamba, þannig að hægt ‘sé að fylgjast með vanhöldum þeirra. Búnaðurinn virkar þannig að liggi lambið kyrrt á sama stað í óeðlilega langan tíma gefur radíósendirinn frá sér boð er greinast í sérstöku við- tæki. Ráðgert var að gera tilraunir með þennan búnað á Mosfellsheiði í fyrravor í samstarfi við þá aðila sem nýttu sér upprekstur á heiðina. Voru keyptir sérstakir radíósendar til þessa frá Svíþjóð, en þegar til kom fékkst ekki leyfi frá Póst- og síma- málastofnun til að nota þá vegna þess að sendarnir trufluðu tíðnisvið er stofnunin hafði einkaleyfi á. Þá reyndist einnig kostnaður við verk- efnið verulegur. Af þessum sökum var tilrauninni frestað. Tíminn hafði samband við tæknideild Pósts og síma til að fræðast nánar um af hverju radíósendarnir voru ekki leyfðir. Hjálmar Árnason, sá er sá um mat á sendunum vildi ekki tjá sig um málið, þar sem ætti að skrifa um það opinberlega. Þess í stað vísaði hann á yfirmann sinn Gústaf Arnar yfirverkfræðing, sem reyndist ekki viðlátinn og náði Tíminn ekki s'am- bandi við hann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ekki er ljóst hvort af þessum rannsóknum getur orðið í ár, það veltur aðallega á hvort veiðistjóra- embættið og þeir hreppar er eiga upprekstur á Mosfellsheiði treysta sér til þess að fjármagna þær. Sú hugmynd hefur komið upp að bjóða út smíði radíósendanna hér innan- lands en þeir kosta töluvert fé og við það bætist launakostnaður starfs- manns er framkvæmir tilraunina. Að sögn Þorvaldar Björnssonar aðstoðarmanns veiðistjóra er hér um að ræða athyglisverða tækni er bæði gæti varpað ljósi á hversu vanhöld lamba eru mikið til komin vegna dýrbíta og einnig auðveldað veiðimönnum að finna greni tófa. _ág Seölabanki íslands: Gengid fellt um tæplega 5% Seðlabanki íslands ákvað í gær tæplega fimm prósenta gengislækk- un íslensku krónunnar miðað við meðalgengi erlendra gjaldmiðla. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar- innar var Seðlabankanum heimilað að lækka gengið til samræmis við stöðu krónunnar og Bandaríkjadals í endaðan september sl. Þetta þýddi 4% lækkun krónunnar gagnvart dalnum en 4,88% gengislækkun samkvæmt viðskiptavog, en við hana er meðaltal erlendra gjaldmiðla miðað. Breyting þessi veldur því m.a. að kaupgengi dollars hækkar úr 46,16 krónum frá því fyrir áramót, í 48,08 krónur frá gærdeginum. Er talið að nú sé dollarinn á nánast sama gengi og hann var eftir gengisbreytinguna sem stjórnin greip til á fyrstu starfs- dögum sínum, 28. september. Þá var gengi dollars skráð á 48,14 krónur. Þessi 4,88% gengisfelling felur ekki í sér að Seðlabankinn hafi gripið til heimildar um 1,25% geng- isbreytingu til að mæta daglegum sveiflum á genginu, upp eða niður. KB Ríkisráðsfundur: Forseti full- gilti samninga Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum þann 31. desember 1988 fullgilti forseti fslands nokkra samninga. Þessir samningar voru m.a. Norðurlandasamningur um sameig- inlegan vinnumarkað kennara í bók- legum greinum, list-, verkmennta- og íþróttakennara og sérkennara í grunnskólum og í framhaldsskólum. Samningur milli Danmerkur, Finnlands, íslands, Noregs og Sví- þjóðar um stofnun Norræns þróun- arsjóðs. Þá fullgilti forseti að Skúli Guðmundsson yrði skipaður skrif- stofustjóri á Hagstofu íslands og Albert Guðmundsson yrði skipaður sendiherra. Þá var þeir Ingimar Sigurðsson og Ingolf J. Petersen skipaðir skrifstofustjórar í heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytinu. Auk þessa voru ýmsar afgreiðslur staðfestar, sem fram höfðu farið utan ríkisráðsfundar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.