Tíminn - 04.01.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 04.01.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn Miðvikudagur 4. janúar 1989 AÐ UTAN Robert Morris lamaöi 6000 tölvur: Hetja í augum sumra - glæpamaöur í augum annarra 3. nóvember 1988 höfðu um 250 vísindamenn, iðnjöfrar og stjórnmálamenn safnast saman um kvöldmatarleytið í Cornell-háskóla í New York-ríki. Þeir ætluðu að vera viðstaddir þann mikilvæga atburð þegar ofurtölva Cornell- háskóla númer tvö, IBM 3090-600 E yrði tengd. Þúsundir bandarískra vísindamanna um landið þvert og endilangt, sem eru tengdir reiknistofnun Cornells, fengu þar með aðgang að einu voldugu verkfærinu enn til rannsókna á gífurlega flóknum verkefnum, eins og t.d. hvernig skyldi ráðast gegn súru regni eða hvaða meðferð ætti best við gegn augnkrabba. Skömmu fyrir sólsetur voru há- tíðahöldin að ná hámarki. Fjar- tengt vélmcnni tók fyrstu skóflu- stunguna að grunni nýrrar sjö hæða háskólabyggingar þar sem kennar- ar og nemendur eiga að vinna að því að „viðhalda stöðu okkar í fremsta sæti í tölvuvísindum," eins og rektor Cornell-háskóla, Frank Rhodes, komst að orði áður en hann bauð gestum veitingar. Á sama tíma: RMT í 20 mínútur Á sama tíma og borgarstjóri fþöku, varaforstjóri IBM og stað- gengill ríkisstjóra New York slógu glaðir botninn í hátíðahöldin á neðstu hæðinni, gekk ungur, grannur og síðhærður maður í æfingagalla og strigaskóm inn í bygginguna. Hann fór með lyftunni upp á fjórðu hæð og gekk inn í herbergi nr. 4105, við enda 30 metra langs gangs. Við langvegg þcssa mjóa her- bergis standa í röð sex tölvueining- ar af gerðinni Sun OS 3 og OS 4. Yfirleitt vinna við þessi tæki stúd- entar Kenneths Birman prófessors, sem hefur skrifstofu í herbergi nr. 4105 A. Þar sem hverjum þeirra 135 stúdenta sem nálgast lokapróf í tölvunarfræði er frjáls aðgangur að herberginu var ekkert óvenjulegt við ferðir unga mannsins. Eins og því sem næst daglega tók hann sér sæti á einum svörtu stólanna með skítugu gulu setunum. Maðurinn hófst rólegur handa með að slá notendatákn sitt, RTM, inn til sanninda um að hann væri réttmætur notandi tölvunnar. Skermurinn gaf til kynna að tölvan væri tilbúin til notkunar. Eftir nokkra daga komust tölvusérfræð- ingar Cornell að því að RTM-tákn- ið hefði verið „loggað inn“ í heilar 20 mínútur á þessum tíma. Þeir sem mæla notanda táknsins RTM bót halda því fram að allan þennan tíma hefði hann reynt að stöðva það sem ekki var lengur hægt að stöðva og hefði því yfirgef- ið bygginguna, „sennilega í sjokk- ástandi“, óséður rétt eins og hann komst inn. RTM fór í stúdentahí- býlin sín, en daginn eftir flaug hann til Washington, heim til for- eldra sinna, án þess að tilkynna um brottför sína. Þar virðist hann hafa álitið öruggast skjól á rneðan hann beið þess sem verða vildi. RTM gerði víða vart við sig Tölvuvísindamenn og neytendur um víða veröld hafa orðið að bíða árangurslaust eftir að heyra skýringar frá Robert Tappan Morris, 23 ára tölvusnillingi. Hann er grunaður um að hafa skapað og hleypt lausum sérlega lævísum og áður óþekktum tölvuvírus. RTM-vírusinn smitaði innan nokkurra klukkustunda þúsundir tölva við bandaríska háskóla og vísindastofnanir. Hann smaug inn í kerfi varnarmálaráðuneytisins, það varð vart við hann í tilrauna- stofnuninni í Livermore í Kalifor- níu, þar sem unnið er að stjörnu- stríðsáætluninni, seytlaði inn í kjarnorkurannsóknastofnunina í Los Alamos í Nýju Mexíkó og í Lincoln rannsóknastofnunina í Massachusetts þar sem fengist er við rannsóknir fyrir flugherinn og kom loks af stað ringulreið í Ames- rannsóknastofnun NASA (geim- ferðastofnunarinnar) í Moffet Field við San Francisco. í tvo daga og tvær nætur unnu hundruð tölvusérfræðinga víða um Bandaríkin við að reyna að koma aftur böndum á „demoninn" sem Morris hafði hleypt lausum. Kraftlítill vírus Nokkuð fljótlega viðurkenndu þeir, að þó að vírusinn hefði gert árásir víða samtímis væri hann tiltölulega kraftlítill. „Ef vírusinn hefði verið illkynja hefði hann gctað gert skelfilcgan usla og eyði- lagt allar upplýsingarnar okkar," segir talsmaður stjörnustríðsrann- sóknarstofunnar í Livermore. En það var líka einasta huggun gagna- bankastjóranna, sem eru á einu máli um að þarna hafi þeir-orðið hvað hræddastir um upplýsinga- söfnunina sína. Árás vírussins var svo víðtæk og náði svo víða að bandaríska alrík- islögreglan FBI setti tafarlaust í gang rannsókn. Þeir embættis- menn sem bera ábyrgð á tölvuör- yggi brugðust líka hart við og að undirlagi NSA (þjóðaröryggis- ráðuneytisins) voru kallaðir saman allir fremstu sérfræðingar í tölvu- vísindum og öryggismálum til skrafs og ráðagerða. Þar hittust, auk embættismanna NSA og FBI, sérfræðingar í leyni- þjónustunni CIA, þeir fulltrúar orkumálaráðuneytisins sem bera ábyrgð á kjarnavopnum, yfirmenn í flughernum og fulltrúar rann- sóknastofnana hersins sem fást við skotfræði, auk fjölmargra háskóla- kennara. Fundurinn var svo leyni- legur að þátttakendur urðu að sverja þess dýran eið að Iáta ekkert uppskátt um það sem þar hefði farið fram. Auðvitað fór þó svo að einhverj- ir þeirra, óbreyttir borgarar, gátu ekki alveg haldið sér saman og út hefur kvisast að borist hefði m.a. í tal að setja á stofn miðstöð sem safnaði saman þekkingu á tölvuvír- usum og ynni áfram úr þeim. Líka ætti að stofna einhvers konar vík- ingasveit sem færi strax á stúfana þegar vart yrði við tölvuvírus til að berjast gegn honum um land allt. I huga útskrifuðu tölvunarnem- anna við MIT háskólann er enginn vafi á hversu víðtæk áhrifin eru af aðgerð RMT. Þeir segja hér kom- inn þann tölvusnilling sem geti komist inn í öll tölvunet veraldar. Meðal óbreyttra borgara gætir líka aðdáunar á snillingnum. Sú staðreynd að Morris komst framhjá ölfum öryggishindrunum í tölvukerfi á svo glæsilegan hátt sem raun ber vitni þykir svo ein- stakur atburður að sumir segja að framvegis verði talað um tímatalið „fyrir og eftir“ aðgerð Morris. Óvenjulegt uppeldi RMT: Eyddi sumarleyfum á íslandi! En hver er R.T. Morris? Robert Anne Morris er hreykin af syni sínum og sýnir hverjum sem hafa vill blaðaúrklippu þar sem sagt er frá innbroti hans í tölvukerfi 1982. Tappan Morris fæddist 8. nóvem- ber 1965, annar í röð þriggja barna Anne og Roberts eldri Morris. Anne er þekkt fyrir afskipti sín af umhverfismálum og er meðal höf- unda um þau í námsefni sem kennt er við menntaskóla í Bandaríkjun- um. Faðirinn er sjálfur mikill tölvu- snillingur. Uppeldi Roberts yngri og systk- ina hans var síður en svo tilviljana- kennt og sofandalegt. Það er nefnt til dæmis um hvað fjölskyldan hefur farið eigin leiðir, að kindurn hafi verið beitt á lóðina við hús þeirra í New Jersey til að losna við að slá grasið og sumarleyfum hafi verið eytt á íslandi og í bátsferðir eftir skipaskurðum í Bretlandi! Systkinin lærðu öll á hljóðfæri og leikur Robert á fiðlu. Systir hans spilar á franskt horn og bróðir hans á lágfiðlu. Faðir þeirra leikur á selló og móðir þeirra á básúnu. En tónlist er bara meðal margra annarra áhugamála sem fjölskyld- an fæst við. Kjörorð foreldranna er: Verið þátttakendur - ekki bara áhorfendur. Þegar Robert yngri var 11 ára kom tölva fyrst inn á heimilið. Fyrst var henni komið fyrir niðri í kjallara en hún hefur fyrir löngu fengið heiðurssess í setustofunni. Upphaflega vann Robert skóla- verkefnin sín á tölvuna en ekki leið á löngu þar til honum óx heldur betur fiskur um hrygg og færni hans jókst hröðum skrefum. Innan skamms var hann farinn að gefa skipanir um tölvuna heima til stóru tölvusamstæðunnar á Bell rann- sóknarstofunum, sem voru í grennd heimilis hans. Og þar vann pabbi hans í þeirri deild sem annast tölvuöryggi. Pabbinn fann upp leik: Var hann forfaðir tölvuvíruss? Robert eldri var í hópi þeirra vísindamanna við Bell rannsóknar- stofurnar sem á árunum upp úr 1960 eyddu tómstundum sínum við Feðgarnir sem báðir bera nafnið Robert Morris eru báðir miklir tölvusnillingar. Sá yngri er sakaður um að hafa plantað vírus inn á tölvukerfi og lamaö 6000 tölvur víðs vegar um Bandaríkin. að búa til tölvuleikinn „Darwin". Sá leikur var í því fólginn að „ráðast á forrit mótspilarans og gleypa það,“ segir einn þeirra sem þátt tóku í þessum leik og er nú yfirmaður Robertseldri. Hannseg- ir Robert hafa verið ósigrandi í leiknum. Það var svo ekki fyrr en rétt upp úr 1980 að Robert, sem orðinn var einn besti tölvuöryggissérfræðing- ur Bandaríkjanna og átti hlut að því að þróa Unix-fyrirtækjakerfið, gaf rannsóknarnefnd bandaríska þingsins upp leyndardóm þessa forrits sem sennilega er fyrsta tölvuvírussforritið. Uppljóstruninni um „Darwin“- vírusinn lét Morris fylgja þá at- hugasemd að það væri algerlega óhugsandi að „við eigum eftir að ala upp börn sem gætu orðið fær um að komast inn í tölvuöryggis- kerfi stærstu háskóla og hermálayf- irvalda Bandaríkjanna". Það þykir sumum kaldhæðnisleg fullyrðing í Ijósi þess að nú er sonur hans, sem lærði allt um tölvuleiki heimafyrir hjá pabba sínum, grunaður um að hafa gert einmitt þetta. Sameiginlegur tölvu- áhugi þeirra feðganna hefur fært þá nær hvor öðrum og bróðir RTM segir þá hafa verið líkari starfs- bræðrum en feðgum. Robert yngri var fljótur að til- einka sér kunnáttu föður síns. Móðir hans sýnir stolt tölvublað frá árinu 1982 þar sem honum er þannig lýst, án þess að nafns hans sé getið, að hann sé „rólegur, kurteis ungur maður sem hafi kom- ist inn á lokuð tölvunet og lesið þar einkapóst". Tölvusnillingur með fjölmörg áhugamál 1983 innritaðist Robert svo í Harvard og fór svo hratt fram að 1985 var hann látinn taka sér hlé frá námi. Þá vann hann í eitt ár hjá tölvufyrirtæki í Texas, og það fyrir- tæki, eins og reyndar önnur sem Robert hefur unnið hjá á námstím- anum, hefur sérhæft sig í forritum fyrir öryggiskerfi. Þegar Robert sneri aftur til Har- vard eftir ársleyfið var hann gerður aðstoðarforstjóri Aiken-tölvumið- stöðvarinnar í Harvard. í þessari ábyrgðarstöðu fékk hann svoköll- uð „súperneytanda" forréttindi sem veittu honum aðgang að leyni- legum gögnum. Það er fullyrt að hann hafi engan skaða gert í þessari stöðu, enda spyr vinur hans hvers vegna hann hafi átt að gera það þar sem hann hafi haft svo auðveldan aðgang að öllu þar. „Það var engin ögrun þar,“ segir þessi vinur. Annar vinur segir að það sé út í hött að lýsa Robert þannig að hann sé viti sinu fjær eða jafnvel svo fíkinn í tölvur að hann hafi misst glóruna. Þvert á móti „klifraði hann á fjöll, spilaði íshokkí, hafði áhuga á fornri sögu og lét sér ekki detta í hug að koma fyrir tölvu í stúdentahíbýlunum sínum," segir þessi vinur. Tölvudeildin við Cornell-há- skóla er talin meðal þeirra fimm bestu við háskóla í Bandaríkjunum og hún féll hreint ágætlega að framtíðaráformum tölvusnillings- ins frá Harvard. Þegar Robert Morris leitaði inngöngu við Cornell varð það orð sem af honum fór fyrir að vera laginn við að brjótast inn í tölvukerfi, honum til fram- dráttar. Dexter Kozen, sem hefur æðsta vald við að velja doktorsefni í skólann segist hafa verið ákafur stuðningsmaður þess að veita Rob- ert Morris inngöngu. „Við viljum fá samstæðan stúdentahóp með fjölbreytt áhugamál og skapandi gáfur," segir hann. „Robert Morris hefur sannað gáfur sínar á tölvu- sviðinu og uppfyllti kröfur okkar ákaflega vel.“ Kozen gerir ekki mikið veður út af tæknilegu afreki Morris með því að planta vírusnum í tölvukerfið. Hann segir að slíkt forrit hefðu allir tölvunemendur skólans getað gert hefðu þeir viljað eða fengið það að verkefni. Verknaðurinn siðferðilega verjandi? Þar sem enginn stóð Morris að verki við gerð vírussins í skólanum virðist augljóst að undirbúningur- inn hafi farið fram heima hjá honum og hann hafi haft hluta vírussins meðferðis þegar hann kom í skólann. En tölvufræðing- arnir við Cornell hafa staðfest að Morris (sumir hafa fyrirvara og segja „eða hver það nú var“), hafi þegar tveim vikum fyrir árásina sjálfa, prófað vírusforritið. Þessari niðurstöðu hafa þeir komist að með því að raða saman öllum þeim atriðum í sambandi við vírustilfell- ið sem vitað er um. Markmið prófunarinnar var að auka við þau lykilorð sem fyrir hendi voru og áttu að opna vírusn- um leið inn í reiknisamstæðuna. 25. okt. voru 336 orð á listanum. Fjórum dögum síðar höfðu 99 lykilorð bæst við. Það eru deildar meiningar í i heimi tölvusérfræðinga um hvort verknaður Morris sé siðferðilega verjandi. Prófessor Kenneth Birman, sem hefur skrifstofuna við hlið tölvuherbergisins þar sem að- gerðin var framin, hefur þung orð um slakt siðferði fyrirmyndarnem- andans, en þeir sem þekkja Morris best bera honum mjög vel söguna og segja hann sérlega siðavandan. Kozen vill ekki heldur sleppa hend- inni af skjólstæðingi sínum. Hann segir að ef til þess komi að at- kvæðagreiðsla fari fram í rann- sóknarnefnd Cornell-háskóla sem hafi úrslitaáhrif um framtíð Morris, muni hann beita áhrifum sínum í þá veru að aðeins verði um áminningu að ræða, ekki brott- rekstur. „Ég er reiðubúinn að taka honum opnum örmum," segir Ko- zen. En það á trúlega mikið vatn eftir að renna til sjávar áður en til úrslita dregur í máli Morris við Cornell. Nefnd skólans fellir ekki sinn dóm fyrr en FBI hefur lokið rannsóknum sínum. Og í þeim búðum eru menn ekki einu sinni vissir um hvaða lagagrein hinn meinti vírusárásarmaður hafi brot- ið með athæfinu. Hins vegar er ekki útilokað að málarekstur verði hafinn gegn Morris sem fordæmi, og það myndi færa hann á spjöld amerískrar réttarsögu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.