Tíminn - 04.01.1989, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 4. janúar 1989
Tíminn 19
ir\nuu ; ladjSE Vllbk
i!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið
Fjalla-Eyvindur
og kona hans
leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson
Laugardag kl. 20.00 6. sýning
Fimmtudag 12. jan. 7. sýning
Laugardag 14. jan. 8. sýning
Fimmtudag 19. jan. 9. sýning
Þjóóleikhúsið og íslenska óperan sýna
JFgmnfiíprt
ibo|fmann6
^ Ævintýri Hoffmanns
Ópera eftir Offenbach
Föstudag kl. 20.00 Fáein saeti laus
Sunnudag kl. 20.00
Föstudag 13. jan.
Takmarkaður sýningafjöldi
Stór og smár
Leikrit eftir Botho Strauss
Tvær aukasýningar:
Mi. 11. jan. kl. 20.00 Næstsíðasta sýning
Su. 15. jan. ki. 20.00 Síðasta sýning
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20.
Simapantanireinnig virka daga kl. 10-12.
Sími 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíð og
miði á gjafverði.
wmm
MS4
LKIKl4:iA(; a2 2(2
RKYKIAVlklJR ^
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
1
yj-i
Láttu
sjá þig!
yUIVlFERÐAR
RÁÐ
Tónlist: Atli Fleimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Fimmtudag 5. jan. ki. 20.30
Föstudag 6. jan. kl. 20.30
Laugardag 7. jan. kl. 20.30.
Sunnudag 8. jan. kl. 20.30.
Miðasala í Iðnó simi 16620
Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Símapantanir virka daga frá kl. 10. Einnig
símsala með VISA og EUROCARD á sama
tíma. Nú er verið að taka á móti pöntunum
til 22. janúar 1989.
MAIA 'Þ OM® A.WSÍ
Söngleikur eftir Ray Flerman
Þýðing og söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson
Tónlist: 23 tónskáld frá ýmsum timum
Leikstjóm: Karl Ágúst Úlfsson
Leikmynd og búningar: Karl Júlíusson
Útsetningar og tónlistarstjórn: Jóhann G.
Jóhannsson
Lýsing: Egill Örn Árnason
Dans: Auður Bjarnadóttir
Leikendur: Pétur Einarsson, Helgi
Björnsson, Flanna María Karlsdóttir, Valgeir
Skagfjörð, Ólafia Flrönn Jónsdóttir, Harald
G. Haraldsson, Erla B. Skúladóttir, Einar
Jón Briem, Theódór Júlíusson, Soffia
Jakobsdóttir, Anna S. Einarsdóttir, Guðný
Helgadóttir, Andri Örn Clausen, Hallmar
Sigurðsson, Kormákur Geirharðsson,
Guðrún Helga Arnarsdóttir, Draumey
Aradóttir, Ingólfur Björn Sigurðsson,
Ingólfur Stefánsson.
Sjö manna hljómsveit valinkunnrson,
Ingólfur Stefánsson.
Sjö manna hljómsveit valinkunnra
hljóðfæraleikara leikur fyrir dansi.
Sýnt á Broadway
5. og 6. sýning 4. janúar kl. 20.30.
7. og 8. sýning 6. janúar kl. 20.30.
9. og 10. sýning 7. janúar kl. 20.30.
Miðasala í Broadway sími 680680
Miðasalan í Broadway er opin daglega kl.
16-19 og fram að sýningu þá daga sem
leikið er. Einnig simsala með VISA og
EUROCARD á sama tíma. Nú er verið að
taka á móti pöntunum til 22. janúar 1989.
___|
^ I
- Gæði myndanna á þessum sýningum eru
yfirleitt í öfugu hlutfalli við gæði vínsins sem
er framreitt.
m .
- Og munið svo að ef einhver spyr
mig um skattana eigið þiö aö láta
hljómsveitina spila. Og það hátt!
HANN DREKKUR
Rokkstjarnan Tommy Lee
í Motley Crue, eiginmaður
leikkonunnar Heather Lock-
lear í Ættarveldinu, er nú
orðinn liðsmaður hjá AA-
samtökunum eftir að konan
tilkynnti honum að annað-
hvort hætti hann að drekka
eða hjónabandi þeirra væri
lokið.
Nú herma sögur að Tommy
hafi verið þurr í meira en þrjá
mánuði. Vinir hans hafa eftir
honurn að honum hafi svo
sem fundist tími til kominn
að breyta ástandinu. Heather
sé honum dýrmætust af öllu í
lífinu og að hann hreinlega
dæi ef hann missti hana.
Þegar þau Heather giftu
sig drakk hann þegar mikið
en Heather taldi það ekki
annað en stöðugan fögnuð,
því hjómsveitin var alltaf að
halda upp á eitthvað. Hann
kunni hreinlega ekki að
skemmta sér á annan hátt en
drekka sig fullan og vaka
næturlangt, sögðu vinir hans.
Einhverntíma bar það við í
gleðskap að einhver hafði
orð á að nú væri Tommy
búinn að fá nóg. Hann svar-
aði: - Maður fær aldrei nóg.
Sjáðu mig bara. Innan við
klukkustund síðar var hann
borinn sofandi út í bíl og ekið
heim. Þá var líka kominn
morgunn.
Drykkja Tommys færðist
enn í aukana þegar aðrar
þungarokkhljómsveitir fóru
að ógna einveldi Motley Crue
í Los Angeles. Þá gerðist
hann árásargjarn og var einn-
ig tekinn ölvaður við akstur.
Vinir hans segja að á einu ári
hafi hann gjörsamlega misst
alla stjórn á drykkju sinni og
undir lokin notað áfengi fyrir
morgun- hádegis- og
kvöldmat.
Heather kvartaði undan að
hann væri þunglyndur, við-
skotaillur og fámáll, þá sjald-
Tveggja ára gömul mynd af Tommy Lee og Heather.
Hann drakk mikið en hún hélt alltaf að hann væri bara
að fagna velgengni hljómsveitar sinnar, Motley Crue.
an hann var heima, en yfir-
leitt dvaldi hann á hótelher-
bergjum með hverjum sem
hann fann og vildi drekka
með honum og ekki skorti
tilboðin. Þegar hann kom svo
heim á morgnana og Heather
bað um skýringu, læsti hann
sig inni í svefnherberginu og
leið þar út af.
Heather sagði vinkonu
sinni að hún sæi Tommy varla
og hvernig sem hún bæði
hann að reyna að hætta, kæmi
það fyrir ekki. Loks setti hún
honum hreinlega úirslita-
kosti.
- Þegar Heather sagðist
fara frá mér ef ég hætti ekki,
féll mér allur ketill í eld, segir
Tommy. - Það var mál til
komið. Ég var hættur að
muna helminginn af dögun-
um og skalf svo að skvettist
úr glasinu og ég varð að
drekka af stut fyrst til að
skjálftinn hyrfi og ég gæti
drukkið af barmi.
Tommy sneri sér til AA og
reynir nú sitt besta til að
halda sér þurrum og halda
konunni. Heather er ánægð
og segir Tommy gjörbreyttan
mann, hann sé svo miklu
blíðari og elskulegri en með-
an hann drakk. Þetta hafi
bjargað hjónabandinu í bili
að minnsta kosti.
Heather er þó ekki svo
bjartsýn að vera handviss um
að þetta vari að eilífu en
þakkar fyrir hvern dag.
Leikarinn John Cleese
breyttist í hvorki meira né
minna en kyntákn og hégóm-
legan náunga við að leika á
móti Jamie Lee Curtis í
myndinni „Fiskur að nafni
Wanda." Meðal annars hefur
hann látið græða hár á fram-
anvert höfuðið en þar var
orðið ansi vfðáttumikið, autt
svæði. Hárið sem grætt var á,
var tekið úr hnakkanum, þar
Hegómleiki
sem nóg var af því.
- Hár skortir alla skynsemi,
segir Cleese. - Það breytir
engu þó það sé tekið aftan frá
og flutt frarn fyrir. Verra er
það hins vegar með tennurn-
ar, bætir hann við, enda vant-
ar hann nokkrar. - Það liti í
meira lagi kjánalega út ef ég
léti taka jaxla og setja þá í
staðinn fyrir framtennur.
Leikarinn John Cleese
breyttist í kyntákn við að
leika á móti Jamie Lee
Curtis.
KVIKMYNDIR
Stjörnugjöf ★★★
SOVÉSK ÓLGA
I ELDLlNUNNI
(Red Heat)
Leikstjóri: Walter Hill.
Handrit: Byggt á sögu Walters Hill.
Framleiöandi: Carolco.
Aöalleikarar: Arnold Schwarzeneg-
ger, James Belushi, Peter Boyle, Ed
0‘Ross, Gina Gershom.
Það er sannarlega tilbreyt-
ing að sjá kraftakarl með •
húmor eins og þann sovéska
sem Arnold Schwarzenegger
leikur, í regnbogamyndinni
„Red Heat“, „í eldlínunni".
Er reyndar einkennilegt að
nafn myndarinnar hafi ekki
orðið „Rauður hiti“, eða t.d.
„Sovésk ólga“. Kraftakarl-
arnir eru ekki of margir í
bandarískum kvikmyndum
um þessar mundir. Það eru
þeir Schwarzenegger, Silw-
ester Stallone og Bruce Willis
ef talið er knappt á fingrum
annarrar handar.
Þeir sem á annað borð hafa
gaman af sleggjumyndum í
líkingu við þær myndir sem
ofangreindir leikarar eru
kenndir við, ættu ekki að
bíða lengi með að tryggja sér
miða - popp og gott sæti. Það
Menn geta meiðst lítillega á enni þegar slegist er með
langferðabifreiðum. Schwarzenegger í topp formi.
er vel þess virði að eyða stund
með persónum Red Heat.
Það ætti samt ekki að gera án
viðeigandi gagnrýni og vak-
andi auga með andsovéskum
áróðri sem bandarísku fram-
leiðendurnir hafa lætt inn á
milli hressilegra atriða. í
reynd ætti að vera nóg að sjá
hversu yfirburðir sovésku
löggunnar eru miklir umfram
óstöðuglyndi Chicagolögg-
unnar, sem leikin er af réttum
manni á réttum stað, James
Belushi. Hann hjálpar til við
að hressa afdráttarlaust upp á
húmorinn og á köflum kald-
hæðnina. í kynningu segir að
sýnt sé hversu ólíkar aðferðir
séu notaðar í heimsveldunum
við löggæslu og þá alveg sér-
staklega varðandi yfirheyrslu
glæpamanna. Þarna fær áróð-
urinn mest rými og ekki síður
í samtölum aðalpersónanna.
En fyrst ég nefni samtöl, er
rétt að taka það fram að
myndir Schwarzenegger sker
sig úr hópi kraftakarlanna,
hvað varðar áherslu hans á
kaldhæðnisleg tilsvör. Er það
ekki minnsti styrkur myndar-
innar.
Meðal annarra nýjunga,
miðað við eldri bandarískar
eldlínumyndir, ber að geta
rútuslagsins þegar dregur að
lokum myndarinnar. Aldrei
fyrr hef ég séð sögupersónur
berjast á rútum eins og á
burtreiðum. Eiginlega hlýtur
þetta að skrifast á rússnesk-
una, enda áttust þar við tveir
„sovéskir" risar. Onnurenda-
lok gátu varla verið betur við
hæfi þar sem markmið kvik-
myndarinnar var að sýna
fram á samskipti risavelda á
sinn sérstæða hátt.
Semsagt: Afar góð og
spennandi afþreying.
Schwarzenegger er hér í topp
formi og sýnist mér lítið þýða
fyrir Rambo að steyta görn
um þessar mundir. KB