Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 10
20 HELGIN Laugardagur 21. janúar 1989 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Áramótauppgjörið fólst í morðum Þeir komu á gamlaársdag til að innheimta skuld en urðu morðingjar. Öllu skynsamlegra væri að ryðja lánar- drottnum úr vegi en skuldunautum, en þessa menn skorti skynsemi og þeir náðust fljótt. Þó voru þeir búnir að uppgötva að dauðir borga ekki skuldir. John Schwarz, fulltrúi lögreglu- stjóra í Kenosha-sýslu í Wisconsin var á eftirlitsferð nóttina fyrir gaml- ársdag 1986, einmitt þegar margir sváfu á sitt græna eyra til að safna kröftum og úthaldi fyrir áramóta- gleðina framundan. Á ferðum sínum kannaði hann vissa staði þar sem líklegt var að dregið gæti til tíðinda. Einn þeirra var lítil verslunarmiðstöð með ben- sínstöð, sem rænd var viku áður, á aðfangadagskvöld. Þá kom maður inn og heimtaði allt reiðufé í kassan- um. Afgreiðslumaðurinn sá enga byssu ogskipaði manninum að hypja sig. Þá tók gesturinn upp byssu og skaut upp í loftið. Hann fékk þá 200 dollara sem voru í kassanum. Kúlan í loftinu reyndist úr 25-hlaupvíddar byssu og skothylkið á gólfinu var úr sjálfvirku vopni af sömu stærð. Það var allt og sumt sem lögreglan vissi að svo stöddu. Eftir að hafa litið inn í port þar sem þungavinnuvélar voru geymdar og ekið framhjá nokkrum vöru- skemmum, ók Schwarz framhjá bensínstöðinni. Þar virtist töluvert að gera eins og vænta mátti rétt fyrir langa helgi. Afgreiðslumaðurinn var við kassann eins og venjulega. Nú átti hann aftur leið þar hjá, um fimmleytið að morgni. í augum leik- manns var allt til að sjá eins og búast mátti við á þessum tíma. Allar dyr voru lokaðar, slökkt í gluggum og á skiltum. Hluti af starfi lögreglumanns er að geta gert sér grein fyrir þegar eitt- hvað er öðruvísi en það á að vera þó ekki sé neitt sjáanlegt að. Schwarz ók upp að stöðinni og litaðist um. Slökkt var á bensíndælununt og í bjarma bílljósanna gat hann sér til að enginn væri við kassann innan við stóra gluggann. Hann skimaði í kring um sig um leið og hann steig út úr bílnum og gekk að dyrum stöðvarinnar. Þar beindi hann sterku vasaljósi sínu inn fyrir og sá ekkert óvenjulegt í fyrstu. Svo beindi hann Ijósinu á ská inn fyrir til að sjá lengra en fraus þá í sporunum. Það var ekki um að villast að þetta var reykur! Hann áttaði sig snögglega, hljóp aftur að bílnum og kallaði á slökkviliðið sem kom á vettvang að vörmu spori. Hálfbrunnin lík Þegar inn var komið og inn í herbergið að baki afgreiðslunni, log- aði þar lítill eldur á gólfinu en örskammt frá stóð 7 lítra plastbrúsi hálffullur af bensíni. Ekki nóg með það heldur lágu lík tveggja ungra manna í blóðpolli á gólfinu. Schwarz taldi að þeir væru afgreiðslumaður- inn og einhver annar, en líkin voru þannig útleikin að erfitt var að bera kennsl á þau. Þegar í stað var hringt til lögreglustjórans, Fred Ekornass. Þá var klukkan 5.17 árdegis. Ekornass kom á staðinn ásamt rannsóknarlögreglurnönnum pg þá var Schwarz búinn að girða stöðina af og kanna umhverfið. Engir pen- ingar voru í kassanum og veski beggja fórnarlambanna voru horfin, en ekki önnur verðmæti sem á þeim voru. Strax á leiðinni á staðinn fékk lögreglustjórinn ónotakennd sem eflaust stafaði af því að 19 ára bróðursonur hans, John E. Ekornass afgreiddi á einmitt þessari bensín- stöð. Hann vissi raunar að pilturinn átti ekki vakt þetta kvöld en þrátt fyrir það leið honum illa strax áður en hann kom á vettvang. Þrátt fyrir ástand líkanna gat lög- reglustjórinn borið kennsl á þau bæði. Annað var af bróðursyni hans og hitt af öðrum frænda hans, Steven D. Kinney, 21 árs. í símtali við eiganda bensínstöðv- arinnar kom í Ijós að hvorugur piltanna hafði átt að vinna um kvöldið. Maðurinn gatekki ímyndað sér hvað John hafði verið að gera þar, annað en ef til vill að heimsækja frænda sinn en þeir voru góðir vinir og mikið saman. Samkvæmt vinnuáætlun átti Luigi nokkur Aiello einn af fjórum af- greiðslumönnum að hafa verið á vakt. Hann tilkynnti hins vegar veik- indi á síðustu stundu svo eigandinn hingdi til Steves Kinney og bað hann að taka aukavakt, hvað hann féllst á. Það var allt sem eigandinn vissi. Hedden lögregluforingi tók að sér rannsókn málsins. Að undanskildum líkunum og bensínbrúsanum var ekkert á vettvangi sem gefið gat neinar vísbendingar. Engin fingraför reyndust á brúsanum. Hins vegar var mikið af förum um alla stöðina en útvega þyrfti fingraför allra starfsmanna og eigandans til saman- burðar við þau. Hver gat ástæðan verið? Hvað líkin varðaði sagði Hedden að þau væru svo mikið brunnin að erfitt væri um rannsókn á þeim að svo stöddu. Blóðmagnið gat þó bent til að piltarnir hefðu verið stungnir til bana en Hedden hafði einmitt þurft að rannsaka nokkur slík morð undanfarið. Læknirinn sagði útilok- að að fullyrða um dánarorsök fyrr en eftir krufningu sem skyldi fara fram eins fljótt og auðið yrði. Óopinberlega sagði læknirinn að nær útilokað væri að greina milli stungu- eða höggsára og sprungna af völdum hitans og eldsins. Ekornass lögreglustjóri tók sjálfur að sér að tilkynna aðstandendum piltanna og ættingum sjálfs sín at- burðinn og var það honum ekki auðvelt verk. John Ekornass var að sögn for- eldra sinna heima allan daginn og fram á kvöld við að stilla vélina í fjölskyldubílnum. Um klukkan hálf- níu fór hann og ætlaði að líta inn á diskótek en þaðan fór að hann svo að líkindum að heimsækja frænda sinn á bensínstöðina. Enginn gat ímyndað sér að John ætti sér nokkurn fjandmann sem setið hefði um líf hans. - Hann var góður piltur og vann mikið, auk þess sem hann rétti alltaf öðrum hjálpar- hönd er þess þurfti, sagði einn ættingi hans. - Ég hef aldrei heyrt neinn tala illa um John. Hann var svo ungur að honum gafst ekki tími til að faka ákvarðanir um framtíðina eða setja sér markmið. Lögreglumenn gátu ekki annað en íhugað hvort ef til væru tengsl milli ránsins um jólin og morðanna. Allir staðir sem standa við tengiveg- ina eru erfiðir. Hvaða bófi sem er getur undið sér þar inn, framið glæp, stokkið upp í bílinn og verið kominn út úr ríkinu á nokkrum mínútum. Þessi bensínstöð stendur við teng- iveg 1-94 sem er fjölfarin hraðbraut rnilli Milwaukee og Chicago. Á slík- um vegum eru vitni fá og fljót að hverfa á braut. Sönnunargögn finnast Nú gerðist það í Kenosha að næturvörður stöðvaði lögreglubíl. Maðurinn var að koma úr vinnunni og fór út um bakdyr sem sneru að bílastæði þar sem bíll hans stóð undir götuljósi. Þegar hann settist inn í bílinn kom hann auga á eitthvað á götunni sem leit út eins og veski. Hann fór og aðgætti það nánar og það reyndist vera veski. Að vísu var það tómt, en einkennilega blautt og klístrað einhverju dökkrauðu efni. Þegar maðurinn stóð þarna með veskið milli tveggja fingra, bar lög- reglubílinn að og maðurinn hikaði ekki við að stöðva hann. Við athugun kom í Ijós að engir peningar voru í veskinu en hins vegar var þarökuskírteini með nafni Stevens D. Kinney. Ökumaður bílsins var búinn að fá tilkynningu um morðin á bensín- stöðinni og tilkynnti þegar veskis- fundinn á stöðina og lögreglumenn komu til fundar við hann og nætur- vörðinn. Þeim var vísað á blettinn þar sem veskið hafði legið, skammt frá netgirðingu sem mikið og vanhirt gras óx upp um. í grasinu fundust Þeir urðu fórnariömb lánardrottna sinna, systkinasynirnir John Ekorn- ass (tv) og Steven Kinney. brátt vattstungnar æfingabuxur og gallabuxur, hvorutveggja með dökk- um skellum og slettum. Skammt þar frá fannst annað veski með pening- um og skilríkjum í. Eigandi þess var John E. Ekornass. Þegar Hedden og Ekornass lög- reglustjóri fréttu af þessu voru þeir sammála um eitt atriði: Bófarnir voru ekki þrautþjálfaðir í iðju sinni og höfðu ekki forðað sér á bíl yfir í annað ríki eftir ódæðið. Hverjir sem þeir voru, hlutu þeir að vera þaðan af svæðinu, frá Kenosha-sýslu. Aftur var haft samband við eig- anda bensínstöðvarinnar svo og alla afgreiðslumennina og þeir beðnir að koma í viðtal og afhenda fingraför sín. Enginn hafði neitt við það að athuga. Einn afgreiðslumannanna- var víðsfjarri og ætlaði að eyða ára- mótunum nyrst í ríkinu. í símtali sagðist hann eiga vakt á föstudags- kvöld eftir tvo daga og myndi koma við á stöðinni þá síðdegis. - ' ,'ífc ' ■ %..... l Há kókanínskuld Ekornass hafði enga sérstaka ást- æðu til að ætla að morðin væru innanhússverk en staðreyndin er samt sú að fleiri glæpir eru það en nokkurn skyldi gruna. Lögreglu- stjórinn neitaði eindregið að hafa látið eitthvert hugboð ráða því hvernig hann hagáði rannsókninni. Hann kvaðst einungis hafa spurt öðruvísi vegna ránsins um jólin og jafnvel hugsað sér að slá þar tvær flugur í einu höggi. - Mér fannst ágætt að byrja þannig og það reynd- ist einmitt rétta byrjunin, sagði hann seinna. - Frá upphafi var Aiello ósam- kvæmur sjálfum sér í svörum og varpaði strax á sig grun, sagði Ek- ornass eftir á. - Við veltum fyrir okkur, hvort morðin hefðu aðeins fylgt í kjölfar misheppnaðs ráns eða hvort þau hefðu verið fyrirfram ákveðin af allt öðrum ástæðum. Eftir viðtalið við Aiello var hins vegar varpað nýju ljósi á málið. Aiello sagði að hann og einn hinna afgreiðslumannanna, Spriggie Hensley, hefðu þurft að ræða mikil- vægt mál við John Ekornass. Þess vegna hefði hann sjálfur tilkynnt veikindi kvöldið fyrir gamlaársdag. Hann vissi að Steve Kinney yrði feginn að fá aukavakt og þá ætluðu þeir að ræða alvarlega við John. Þeir gerðu ráð fyrir að hann færi út að skemmta sér vegna frídaga framund- an. Hins vegar bjuggust þeir aldrei við að hann færi til bensínstöðvar- innar og biði eftir að verða Kinney samferða heim. Hadden lögregluforingi spurði Aiello hvað þetta mikilvæga málefni hefði verið. Aiello varð niðurlútur og svaraði svo varla heyrðist: - Kókaín. Hann flýtti sér að bæta við að hann hefði alls ekki drepið John. Hann hefði verið á knæpu í miðbæn- um allt kvöldið, þar sem hann spjall- aði við barþjóninn, kunningja sinn. Þeir gætu gengið úr skugga um það. Hann kvaðst mætavel vita að kókaín gæti komið sér í vandræði en þannig lægi þó ekki í málinu. Að Iqkum tilgreindi hann knæpuna og barþjón- Spnggie Hensley treysti á falsaða fjarvistarsönnun en kenndi félaga sínum um allar sakir. Götóttar fjarvistarsannanir Lögreglumenn tilkynntu Aiello að honum yrði haldið til frekari spurn- inga og meðan verið væri að athuga fjarvistarsönnun hans. Um sama leyti og honum var vísað inn í varðhaldsklefa, var tölva lögregl- unnar beðin um upplýsingar um Luigi E. Aiello, 22 ára, nú búsettan í Kenosha í Wisconsin. Spriggie Hensley, 21 árs, var sótt- ur heim til sín. í ljósi framburðar Aiellos þótti Hedden og Ekornass vissara að taka með sér húsleitar- heimild. Ekki leið á löngu þar til blóðug föt fundust svo og hnífur sem verið gat morðvopnið. Við svo búið fóru lögreglumenn einnig heim til Aiellos þar sem fleira fannst markvert. í yfirheyrsluherbergi lögreglu- stöðvarinnar var Hensley nú spurður út úr. Hann sagðist aðeins vera lausráðinn afgreiðslumaður á ben- sínstöðinni en föst vinna hans væri starf öryggisvarðar hjá tilteknu fyrir- tæki. Hann viðurkenndi áð þeir Aiello hefðu rætt alvarlegt mál við John Ekornass um kókaín, en sjálfur kvaðst hann hafa staðið fulla örygg- isvakt það kvöld. Hann hefði verið í vinnunni fram undir morgun og yfirmaður hans gæti vottað það. Meðan menn voru sendir til að athuga þá staðhæfingu, spurðu Hedden og lögreglustjórinn Hensley nánar um kókaínmálið. Hann varð niðurlútur en þá minnti Hedden hann á að allt sent hann segði mætti nota gegn honum síðar. Svo gat virst i sem Hensley væri í þann veginn að segja eitthvað sem hann þyrfti ekki að segja að svo stöddu og flækja sig þar með í fíkniefnamál. Þá kom Hensley lögreglumönnum á óvart með því að tilkynna að John Ekornass hefði skuldað yfir 11 þús- und dollara vegna kókaíns. Hann gat ekki horft framan í lögreglustjór- ann þegar hann útskýrði að slíkar skuldir væru venjulega innheimtar af fullkomnu miskunnarleysi eftir mjög svo auðskildar viðvaranir. í þessu tilfelli hefð.i horft nokkuð öðruvísr við þar sem skuldunautur- inn væri náskyldur lögreglustjóra

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.