Tíminn - 09.02.1989, Side 3
Fimmtudagur 9. febrúar 1989
Tíminn 3
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, segir ekki verið að hverfa frá markaðsvöxtum með
væntanlegum aðgerðum ríkisstjórnarinnar:
Sterk aðgerð að opna
fyrir erlendum bönkum
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, segir að ein af sterk-
ustu aðgerðunum til að auka samkeppni á markaði lánastofn-
ana og draga úr fákeppnisástandinu, sé að opna landið fyrir
beinni samkeppni erlendis frá. Segist seðlabankastjórinn þess
vegna vera fylgjandi því að kannað verði hvort heimila megi
viðurkenndum erlendum bönkum starfsemi hér á landi, eins
og vikið er að í nýjustu efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Telur hann að ekki sé hægt að
segja að um neina meginbreytingu
sé að ræða á þvf fyrirkomulagi að
bankakerfið hér á landi búi við
markaðsvexti, þótt talað sé um að
ákveðnari heimildir verði veittar
Seðlabankanum til að setja takmark
á vaxtamun og ójafnvægi méðal-
ávöxtunar verðtryggðra og óverð-
tryggðra skuldbindinga.
Ekki hefur enn verið gengið frá
því milli viðskiptaráðuneytis og
Seðlabanka hvernig framkvæmdin
verður á ákvörðunum ríkisstjórnar-
innar um vaxta og peningamál, en
frá þessum málum verður fljótlega
gengið að sögn seðlabankastjóra.
„Það er ekkert í þessari yfirlýsingu
sem segir að hverfa eigi frá markað-
svöxtum á fslandi, heldur eigi að
reyna að fá markaðsvextina niður. í
því skyni er ætlunin að láta 5%
spariskírteinavexti verða leiðandi.
Það er þó ljóst af orðalagi í yfirlýs-
ingu forsætisráðherra, að ekki er
ætlunin að gera það í einum áfanga.
Það verður að meta hvert skref á
þessari leið og sjá til hver viðbrögð
markaðsins verða,“ sagði Jóhannes
Nordal.
f yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar
um aðgerðir í vaxtamálum er tekið
sérstaklega fram að Seðlabankinn
eigi að tryggja að ekki skapist óeðli-
legur munur milli nafnvaxta og raun-
vaxta hjá innlánsstofnunum. Seðla-
bankastjóri telur að ekki sé um
neina stefnubreytingu að ræða hvað
þetta atriði varðar, en bendir á að
mjög erfitt geti verið að tryggja það
samræmi sem bankinn telur eðlilegt.
„Ég held að það sé það eðlilega og
heilbrigðara að svipuð ávöxtun sé á
verðtryggða markaðinum og þeim
óverðtryggða. Sveiflur í verðbólgu
frá mánuði til mánaðar gera það hins
vegar að verkum að erfitt getur verið
að ná þessu jafnvægi. Verðbólga
verður oft önnur en sú sem spáð er
og breytingar verða nokkuð
snöggar. Það er að mínu mati þessi
óreglulegi ferill verðbólgunnar sem
hefur átt ríkasta þátt í þeim mun
sem skapast hefur þarna á milli,“
sagði Jóhannes.
En hvernig líst seðlabankastjóran-
um á þá hugmynd að heimila erlend-
um bönkum að setja upp útibú hér
á landi eða koma á fót annarri
starfsemi? „Það er enginn vafi á því
að þetta er ein af sterkustu aðgerð-
unum til að auka samkeppnina á
markaðinum hérna og draga úr fá-
keppnisástandi. Ég er því alveg
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri.
fylgjandi því að að því sé stefnt. Það
mundi veita bönkunum hér á landi
aðhald varðandi vaxtamun og skapa
samkeppni um þjónustu. Þetta á
sérstaklega við um ákveðna tegund
þjónustu sem erlendir bankar eru á
undan okkur með,“ sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri. KB
Nýju númerin ekki gölluð?
Þola
ekki
bensín
Bifreiðaskoðun íslands afgreiðir
ennþá bílnúmer sem hægt er að þvo
lakkið af.
Ýmsum brá í brún þegar þeir fóru
að hreinsa bílana sína með nýju
númerunum og horfðu á þau renna
burtu. í Ijós kom að ef bensín komst
í tæri við lakkið rann það af. For-
ráðamenn Bifreiðaskoðunarinnar
brugðu við og fengu hingað til lands
þýskan sérfræðing til að athuga
málið.
Sérfræðingurinn vildi ekki m^ina
að um framleiðslugalla væri að ræða.
„í flestum Evrópulöndum hefur
þessi málning verið notuð nú um
tuttugu ára skeið án þess að af því
hlytust nein vandræði," sagði Karl
Ragnars framkvæmdastjóri Bifeiða-
skoðunarinnar í samtali við Tímann.
„Fólk á ekki að vera að setja á
númerin efni sem lakkið á bílnum
myndi ekki þola.“
1 reglugerðum eru ákvæði sem
segja bílnúmer ekki vera lögleg ef
þau eru ekki skýr og vel læsileg.
Bifreiðaskoðunin afgreiðir ennþá
númer með lakki sem ekki þolir
bensín og er því hægt að þvo af.
„Við gátum ekki stoppað það. Fólk
vill fá nýja bílinn sinn,“ sagði Karl.
Tíminn hafði samband við
starfsmann við Bón og bílaþvotta-
stöðina á Bíldshöfða en hjá þeim
hafa verið gerðar tilraunir með núm-
erin. „Við höfum prófað að láta
númerin liggja í white-spritt og fleiri
tjöruleysandi efnum og spúla þau
með háþrýstidælum og það er allt í
lagi, lakkið þolir það vel.“
Allir þeir sem hafa þegar fengið
gamlan bíl umskráðan og nýtt númer
og gætu þess vegna lent í því að þau
máðust af, eða hafa þegar lent í því,
fá ný númer ef þeir óska þess. Líka
þeir sem hafa síðustu daga fengið
nýja bíla með númerum sem ekki
þola bensín. Svo og þeir sem hafa
fengið sitt annað númer vegna þess
að nýja númerið máðist af, en þeir
geta fengið þriðja númerið ef númer
tvö dugir ekki. jkb
Gleði- og gáskadrottningin EJsa Lund riður á vaðið og lætur.gámminn geysa á$amt flokki valinkunnra
gleðimanna í skammdegissprengju ársins. Sérstakir gestir okkar heittelskuött^Elsu eru m.a. galsa-
bræöurnir Halli og Laddi; raftæknirinn og stuðgjafihn Skúli Amper OhmarssonJ Smári „sjarmör"
Sjutt, skóari; Magnús, tjóndi; Valgerður Moller og Leifur óheppni. ' .
Undir og yfir og allt tim kring er svo stórsöngvarinn og ferðagrínarinn Egill Olafsson ásamt hinni
tón- og söngelsku hljóniéVeit Magnúsar Kjartanssonar. Og síðast en ekki si'St: gleðigjafinn Nadia
Banine. Stjórnandi og spennugjafi: Egill Eðvarðsson. .
Enginn býður betur en Þórscafé í vetur.
v' Þriréttuð veislumáltiö að haetti Elsu Lund. Húsiö opnar kf. 19.00.
y' Borðapantanir daglega i simum 23333 og 23335.-- Elsa: „Betra er að gripa síma
panta i tima svo að ekki þurfi að hima úti i kulda og trekk með mina".
v Sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld.
- “040,
10,
**** 0,
N