Tíminn - 09.02.1989, Síða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 9. febrúar 1989
^TTTTI tj- -
■ ■ ftnr
Ingibjörg
Pálmadóttir
Andrés
Ólafsson
Steinunn
Sigurðardóttir
Magnús H.
Ólafsson
Akranes - Fjárhagsáætlun
Almennur fundur um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir áriö 1989 verður
haldinn í Framsóknarhúsinu viö Sunnubraut mánudaginn 13. febr. kl.
20.30.
Gísli Gíslason bæjarstjóri gerir grein fyrir áætluninni.
Bæjarfulltrúarnir svara fyrirspurnum.
Allir velkomnir.
Fulltrúaráðið
Guðjón B.
Ólafsson
Árnesingar
Framsóknarfélag Árnessýslu boöar til félagsfundar um málefni
samvinnuhreyfingarinnar miövikudaginn 15. febrúar kl. 21 aö Eyrar-
vegi 15, Selfossi.
Frummælandi veröur Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS.
Félagsmenn og aðrir áhugamenn um málefní samvinnuhreyfingarinn-
ar eru hvattir til aö mæta.
Stjórnin.
Námskeið
Landssamband framsóknarkvenna hyggst standa fyrir
eftirfarandi námskeiðahaldi á næstunni.
Námskeiðin munu hefjast í byrjun febrúar og standa
fram að páskum.
Eru þau öllum opin og verði stillt í hóf að venju.
Staðsetning námskeiðanna fer eftir þátttöku á hverjum
1. Félagsmálanámskeiö.
Grunnnámskeið fyrir byrjendur í fundarsköpum,
ræðumennsku og eflingu sjálfstrausts. Kennarar verða:
Unnur Stefánsdóttir, Ragnheiður Sveinbjömsdóttir, Inga
Þyrí Kjartansdóttir, Ásdís Óskarsdóttir.
2. Framhaldsnámskeið.
Raddbeiting og framsögn.
Kennari: Baldvin Halldórsson, leikari.
Undirstaða í ræðutækni fyrir sjónvarp, hljóðvarp og
ræðustól. Kennari: Kristján Hall
3. Námskeið fyrir framkomu í fjölmiðlum.
Framkoma í hljóðvarpi og sjónvarpi.
Undirstöðuatriði í greinarskrifum og blaðaútgáfu.
Kennari: Amþrúður Karlsdóttir, fjölmiðlafræðingur.
Þátttaka tilkynnist til Ingu Þyrí Kjartansdóttur í síma:
91-24480 sem fyrst
L.F.K.
Ráðning Hannesar HólmsteinsGissurarsonartil Háskóla
Islands s.l. sumar stuðlar að breyttum lögum um skólann:
Háskólinn fái
aukin völd til
mannaráðninga
Frumvarp til laga um breytingar á
lögum um Háskóla íslands var tekið
til fyrstu umræðu á Alþingi í gær.
Frumvarp þetta er flutt af ríkis-
stjórninni og miðar að því að auka
vald skólans til mannaráðninga.
í máli Svavars Gestssonar
menntamálaráðherra kom fram að
frumvarp þetta er flutt í þeim til-
gangi að auka sjálfstæði Háskólans
og að skólinn geti ráðið því hverjir
starfa innan hans veggja. í því
sambandi var skírskotað sérstáklega
til þeirrar umræðu er átti sér stað í
kringum ráðningu Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar til Háskóla ís-
lands síðast liðið sumar. Breyting-
arnar eru á 11. grein laga um Háskól-
ann og miðar að því að færa vald til
mannaráðninga frá menntamálaráð-
herra til ráðamanna innan skólans.
Helstu breytingar með þessu frum-
varpi eru þær að skipuð skal þriggja
manna nefnd er dæmi um hæfni
umsækjenda um prófessorsembætti,
dósentsstörf og lektorsstörf. Dóm-
nefndin skal skipuð einum manni frá
háskólaráði, einum frá ráðuneytinu
og einum frá þeirri deild er maður sá
er ráðinn verður kemur til með að
starfa við, og skal hann jafnframt
vera formaður nefndarinnar.
Nefndin skal leita álits hlutaðeig-
andi skorar áður en háskóladeild
fjallar um umsækjendur er dóm-
nefndin telur hæfa.
Þó svo að forseti íslands skipi í
embætti prófessora og menntamála-
ráðherra dósenta og lektora, má
samkvæmmt nýja frumvarpinu, eng-
um manni veita prófessorsembætti,
lektors- eða dósentsstarf við háskól-
ann nema meirihluti dómnefndar
telji hann hæfan og meirihluti deiid-
arfundar mæli með honum í embætt-
ið eða starfið.
Pá er einnig kveðið á um að
heimilt sé að kveða svo á í reglugerð
að sömu ákvæði megi gilda um
sérfræðinga við ransóknarstofnanir
eða aðrar háskólastofnanir. - ág
Átta nemendur Myndlista- og handíðaskóla íslands hlutu heiðurspening Rósarinnar frá Lidice fyrir framlag sitt til
myndlistarsýningar barna sem haldin var til minningar um þann atburð er nasistar þurrkuðu bæinn Lidice í
Tékkóslóvakíu af yfirborði jarðar áríð 1942. Með þeint á myndinni er tékkneski sendiherrann; Jiri Seman.
Túnamynd: Árni Bjarna.
Ungir nemendur Myndlista- og handíðaskólans hljóta tékknesk myndlistarverðlaun:
„Rósin frá Lidice“
í Myndlistaskólann
Myndlista- og handíðaskóli ís-
lands hlaut heiðurspening Rósarinn-
ar frá Lidice og var hann afhentur í
Tékkneska sendiráðinu á þriðjudag-
inn var.
Til þessa heiðurspenings unnu átta
ungir nemendur Myndlista- og hand-
íðaskólans en þeir tóku þátt í mynd-
listarsýningu sem haldin var sl. sum-
ar í tengslum við árlega minningar-
hátíð um þann atburð þegar þýskir
nasistar jöfnuðu þorpið Lidice við
jörðu og ýmist drápu eða sendu
íbúana í útrýmingarbúðir.
Þriðja hvert ár er haldin mynd-
listasýning barna í tengslum við
hátíðina. í henni taka þátt börn alls
staðar að úr veröldinni og heiðurs-
peningurinn; Rósin frá Lidice er
veitt fyrir frábært framlag til sýning-
arinnar.
Börnin sem til verðlaunanna unnu
að þessu sinni eru Ævar Bjarnason,
Helga Hauksdóttir, Linda Kristín
Sveinsdóttir, Saga Steinþórsdóttir,
Ingvar Rafn Gunnarsson, Erna
Björg Róbertsdóttir, Sigrún Dögg
Helgadóttir og Kristín Anna Guð-
jónsdóttir. Kennari þeirra er Hrafn-
hildur Gunnlaugsdóttir.
Verkin voru til sýnis í menningar-
miðstöð Lidice frá 19. maí til loka
september. Öll börnin fengu viður-
kenningu fyrir myndir sínar og fyrir
sérlega glæsilegt framlag hópsins í
heild hlaut Myndlista- og handíða-
skólinn heiðurspening Rósarinnar
frá Lidice.
Tékknesk- íslenska félagið hafði
milligöngu um að íslensku börnin
tóku þátt í sýningunni. -sá
Sementsverksmiðjan:
Ný stjórn
Gengið var frá kosningum í
stjórn Sementsverksmiðja ríkis-
ins í sameinuðu þingi á þriðjudag.
Kosnir voru eftirfarandi full- •
trúar: Steinunn Sigurðardóttir
Akranesi, Eiður Guðnason al-
þingismaður, Inga Harðardóttir,
Friðjón Þórðarson alþingismað-
ur, og Ingi Björn Albertsson
alþingismaður. - ág