Tíminn - 09.02.1989, Side 12

Tíminn - 09.02.1989, Side 12
.12 Tíminn Fimmtudagur 9. febrúar 1989 100 ára minning TRYGGVIÞÓRHALLSSON forsætisráðherra - eftir Ingvar Gíslason, ritstjóra Tímans Stjórnmálaafskipti Tryggvi Þórhallsson gekk mennta- veg, iauk guðfræðiprófi við Háskóla íslands árið 1912. Skömmu síðar vígðist hann til Hestþinga í Borgar- firði og var þar prestur næstu ár. T ryggvi hugðist gerast fastur kennari við guðfræðideild Háskólans, sagði lausu prestsstarfinu, en svo fór að hann hlaut ekki dósentsembættið, sem hann sóttist eftir. Við það urðu straumhvörf á æviferli hans. Honum bauðst að verða ritstjóri Tímans haustið 1917, en blaðið var þá nýlega stofnað sem vikublað og ekki full- mótað, þótt stefna þess væri ljós. Tryggvi var þá aðeins 28 ára að aldri. Tryggvi Þórhallsson var ritstjóri Tímans næstu 10 ár. í höndum hans varð Tíminn fljótlega útbreiddasta blað landsins og eftir því áhrifamik- ið. Jafnframt varð Tryggvi Þórhalls- son einn af aðalforingjum Fram- sóknarflokksins, ekki síst eftir að hann tók sæti á Alþingi eftir kosn- ingarnar 1923. í þessum kosningum efldist Framsóknarflokkurinn veru- lega og þó enn meira í kosningum sem haldnar voru 1927. Þá verða tímamót í sögu flokksins, sem tengj- ast mjög nafni Tryggva Þórhallsson- ar. Honum var falið að mynda ríkisstjórn og naut til þess að sjálf- sögðu fylgis þingmanna Framsókn- arflokksins og hlutleysis Alþýðu- flokksins. Þetta var í fyrsta skiptí sem framsóknarmaður myndaði ríkisstjórn, en áður hafði flokkurinn átt aðild að ríkisstjórnum nokkrum sinnum síðan 1917. Tryggvi var eftir þetta forsætisráðherra samfellt nær fimm ár. Auk þess var hann atvinnu- málaráðherra mikinn hluta þessa tímabils. Ræður af líkum að völd Tryggvi Þórhallsson við skrifborð sitt í ráðherrabústaðnum sennilega 1930. Fyrir ofan skrífborðið eru myndir af Tryggva Gunnarssyni, foreldrum Tryggva Þórhallssonar og síra Birni Halldórssyni ■ Laufási. Þess er nú minnst, að í dag eru liðin 100 árfráfæðingu Tryggva Þórhallssonar, sem var forsætisráðherra í nærfellt fimm ár, 1927-1932. Tryggvi hafði áður verið ritstjóri Tímans um tíu ára skeið. Alþingismaður var hann á árunum 1923-1934. Tryggvi andaðist á miðjum aldri, 46 ára gamall, sumarið 1935. Hann var þá banka- stjóri Búnaðarbanka íslands. Eru því bráðum 54 ár síðan Tryggvi Þórhallsson lést í blóma lífsins og mikið vatn til sjávar runnið síðan. Þótt líf hans yrði ekki langt, þá var ævi hans viðburðarík. Hann var einn af fremstu áhrifa- mönnum sinnar samtíðar, forystumaður í íslenskum þjóðmálum á eftirminnilegu aldarskeiði, komst til póli- tískra áhrifa þegar við upphaf fullveldistímans og átti mikinn þátt í mótun fyrri helmings þessa tímabils. Fullveldistíminn Nokkuð ber á því um þessar mundir að ungt fólk lætur sér fátt finnast um árin milli heimsstyrjald- anna allt fram undir stofnun lýðveld- isins 1944. Svo virðist sem ungt fólk á líðandi stund geri sér ekki grein fyrir mikilvægi þess að fsland varð fullvalda ríki með sambandslögun- um 1. des. 1918. Fullveldistímabilið, sem svo má kalla, var sá aldarfjórð- ungur, sem leið milli fullveldisvið- urkenningar og lýðveldisstofnunar. Með réttu má segja að þessi aldar- fjórðungur hafi verið aðfaratími lýð- veldisstofnunarinnar. Fullveldið 1918 markaði glögg skil í íslenskri sjálfstæðisbaráttu. Þá var náð þeim áfanga, sem keppt hafði verið að síðan snemma á 19. öld, að ísland yrði sjálfstætt ríki í konungssam- bandi við Dani. Hugmyndin um að fsland yrði lýðveldi fékk ekki al- menna viðurkenningu fyrr en rétt eftir 1940. Ekki er örgrannt um að unga kynslóðin nú á dögum líti á milli- stríðsárin sem afar fjarlægan tíma og þó e.t.v. fremur sent lítinn framfara- tíma, ef ekki einhvers konar hall- ærisöld. Slíkt álit er á miklum mis- skilningi byggt. Þótt óneitanlega væri margt með frumstæðum brag miðað við hátækni og velsæld allra síðustu ára, þá er alveg Ijóst að þessir áratugir eru hluti af nútíman- um og eðlisskyldir líðandi stund hvað varðar viljann til framfara og bættra lífskjara þjóðarinnar. Er óhætt að fullyrða að framfarahugur þjóðarinnar var vel vakandi á þrem- ur fyrstu áratugum þessarar aldar. Þjóðin ól ekki síður með sér mikla drauma um framtíð landsins á þess- um árum, heldur en síðar hefur orðið. Framkvæmdir þjóðarinnar voru ekki síður stórhuga þá en nú þekkist, ef rétt tillit er tekið til sögulegra aðstæðna. Á því öllu er bitamunur en ekki fjár, ef saman- burður er gerður. Hugurinn er hinn sami. Tækni, þekking og úrræði hafa breyst. Sá er munurinn. Uppvaxtarskeið og starfsævi Tryggva Þórhallssonar voru því merkistímar í íslenskri þjóðarsögu. Þar fer saman að íslendingar fá aukin yfirráð mála sinna, frá því að vera háðir dönsku valdi, og atvinnu- þróun í nútímaskilningi fer að eiga sér stað fyrir frumkvæði landsmanna sjálfra. Það er fróðlegt að kynna sér umræður um þjóðmál á fyrstu árum aldarinnar, að ekki sé minnst á þann tíma, þegar komið er fram á annan og þriðja áratuginn og þar á eftir. Inntak umræðnanna er að jafnaði að bera saman gamla og nýja tímann, þar sem nýi tíminn er nefndur fram- faratími og því haldið fram að þjóðin lifi mikla breytingu á atvinnuháttum, samgöngum, menningu og aldarfari. Að þessu leyti er enginn munur á viðhorfum fólks á þessum tíma og því sem er í dag. Þeir, sem nú eru ungir og í fullu starfsfjöri og eru framfarasinnaðir munu allt eins hitta fyrir samherja sína og skoðanabræð- ur við að kynnast liðnum kynslóð- um, en að þar séu einhverjir úrtölu- og afturhaldsmenn á ferð. Þegar Tryggva Þórhallssonar er minnst, er ekki síst ástæða til að draga fram hina jákvæðu mynd aldarfarsins á hans dögum, minna á framfara- og hugsjónabaráttu þess tíma. Ætt og uppvöxtur Tryggvi Þórhallsson fæddist í Reykjavík 9. febr. 1889. Foreldrar hans voru hjónin Valgerður Jóns- dóttir og Þórhallur Bjarnarson, þá forstöðumaður Prestaskólans, síðar biskup. Foreldrar Tryggva voru báð- ir Norðlendingar. Móðir hans þing- eyskrar ættar og faðir hans af þing- eyskum og eyfirskum ættum kominn. Valgerður Jónsdóttir var dóttir Jóns Halldórssonar á Bjarna- stöðum í Bárðardal, sem dó að vísu ungur frá konu og mörgum börnum en hefur orðið kynsæll. Valgerður varð fósturdóttir Tryggva Gunnars- sonar, þess fræga athafnamanns Tryggvi Þórhallsson, ritstjórí. Mynd tekin af bókasafni Tryggva Þórhalissonar í Laufási ca 1934. norðanlands og sunnan. Frá honum er komið nafnið á Tryggva Þórhalls- syni. Þórhallur, faðir Tryggva, var sonur sr. Björns Halldórssonar í Laufási, hefðarklerks og skálds, sem orti ekki aðeins klassíska sálma, heldur og sígildar vísur og gaman- bragi sem lengi verður jafnað til, ef menn eru að gera að gamni sínu. Sr. Björn, afi Tryggva, var ekki aðeins prestahöfðingi og skáld, heldur framtakssamur bóndi og athafna- maður á Laufásstað. Hann lét byggja upp Laufásbæinn, sem allir þekkja nú sem dæmi um húsakost á íslensk- um stórbýlum á fyrri öld, og lét reisa Laufáskirkju, sem enn stendur. Þórhallur Bjarnarson, faðir Tryggva, var gáfaður menntamaður eins og sr. Björn hafði verið, og eftir því ötull og framtakssamur á verald- arvísu. Þegar hann, ungur að árum, gerðist forstöðumaður Prestaskól- ans, keypti hann kotbýli eitt í Reykjavíkurlandi, byggði þar stór- hýsi á sinnar tíðar mælikvarða, rækt- aði landið og tók að reka þarna; stórbúskap og kallaði Laufás. Lauf- áshúsið stendur enn við Laufásveg, sem við staðinn er kenndur, en búskap-1 ur þar er aflagður fyrir löngu, enda Reykjavíkurborg vaxin þar allt um kring fyrir mörgum áratugum. Þór- hallur var auk þess forystumaður í almennum búnaðarmálum í landinu, lét þau mál alveg sérstaklega til sín taka, þótt ekki sé rúm til að rekja það nánar. Bróðir hans, Vilhjálmur Bjamarson, sem flust hafði frá Kaup- angi í Eyjafirði nokkru eftir 1890, gerðist stórbóndi á Rauðará við Reykjavík, en sú jörð var á þeim slóðum þar sem nú er Frímúrarahús- ið og Lögreglustöðin við Hverfisgötu og það umhverfi. Hann var faðir Halldórs Vilhjálmssonar skólastjóra á Hvanneyri, mikils búnaðarfröm- uðar á fyrri hluta aldarinnar. Tryggvi ólst upp við framfaraáhuga, ekki síst í landbúnaði.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.