Tíminn - 09.02.1989, Side 15

Tíminn - 09.02.1989, Side 15
Fimmtudagur 9. febrúar 1989 FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA - Skæruliöar múslíma réðust á stöðvar afg- anskra hermanna meðfram tveimur þjóðvegum er liggja að Kabúl. Sovéskir hermenn höfðu áður gætt þjóðveganna en afganskir hermenn tekið við stöðvunum er sovéskt herlið yfirgaf Afganistan. ISLAMABAD - Samein- uðu þjóðirnar skýrðu frá því að áhöfn vöruflutningavélar frá ríkisflugfélaginu í Eþíópíu sem hlaðin hafði verið 32 tonnum af hjálpargögnum frá Egyptum hafi neitao að fljúga til Kabúl höfuðborgar Afganistans. Flugvélin átti að vera fyrsta vöruflutningavélin sem flygi með hjálpargögn frá Samein- uðu þjóðunum til Kabúl vegna borgarastyrjaldarinnar í Agan- istan, en til stendur að senda 320 tonn af mat og lyfjum til borgarinnar. VARSJÁ - Viðræðurpólsku ríkisstjórnarinnar og stjórnar- andstöðunnar í Póllandi sem leiðtogar verkalýðssámtak- anna Samstöðu leiða, héldu áfram þrátt fyrir yfirlýsingu tals- manns ríkisstjórnarinnar Jerzy ilrban. Hann sakaði náma- verkamenn sem eru í verkfalli um að hindra stjórnmálalegar og efnahagslegar umbætur i landinu. Viðræður stjórnvalda og stjórnarandstöðunnar fjalla einmitt um leiðir til að ná fram þessum úrbótum. Leiðtogar Samstöðu hafa fordæmt verk- fall kolanámumanna á þessu stigi viðræðnanna. BRUSSEL - Belgar sam- þykktu tilboð Hassans kon- ungs Marokkó um að hann verði milligöngumaður í við- ræðum Belga og forseta Zair, Mobutu Sese Seko, en slest hefur upp á vinskapinn undan- farna þrjá mánuði vegna harð- vítugra skrifa belgískra dag- blaða um þennan mæta mann. NIKOSÍA - Andlegur leið- togi írans Ajatollah Ruhollah Khomeini hefur samþykkt að veita hópi af pólitískum föng- um frelsi sitt. Utvarpið í Teher- an segir að hér sé aðallega um að ræða unga fylgismenn vinstri sinnaðra stjórnarand- stöðuflokka í íran. JÓHANNESARBORG-i Læknar sem skoðað hafa þá [ pólitísku fanga í Suður-Afríku sem nú eru í hungurverkfalli segja Ijóst að margir fanganna hafi sætt barsmíð og pynting- um. Fangarnirhafafæstirkom- i ið fyrir dóm. Tíminn 15 lll lllllllllll ÚTLÖND Enn eitt hörmulegt flugslys - nú á Azoreyjum: Þota f erst með 144 farþega innanborðs Bandarísk farþegaþota fórst í fjallendi á eyjunni Santa Maria sem tilheyrir Azoreyjunum á miðju Atlantshafi. Hundrað fjörutíu og fjórir voru um borð í vélinni og komst enginn lífs af úr slysinu. Farþegaþotan sem var af gerðinni Boeing 707 var í áætlunarflugi frá Bergamo á Ítalíu til Dóminíkanska lýðveld- isins. Flugstjórinn hugðist tæknilegra örðugleika. Flak flugvélarinnar dreifðist yfir stórt svæði í fjalllendinu sem er mjögerfitt yfirferðar. Höfðu einung- is fá lík fundist í gærkveldi, en björgunarsveitir frá eyjunum héldu þegar á slysstað. Ibúar þorpa í grennd við slysstað- inn sögðust hafa séð vélina fljúga utan í fjallshlíðina í sjö kílómetra fjarlægð frá flugvellinum á eyjunni og hafi samstundis komið upp eldur í flakinu. ítölsk ferðaskrifstofa sem seldi ferðir með fiugvélinni skýrði frá því að allir farþegar og áhöfn þotunnar hafi verið ítölsk að flugstjóranum undanskildum, en hann væri Banda- ríkjamaður. Þotan var í eigu banda- ríska flugfélagsins Indipendent Air. Flugstjórinn ku hafa haft samband við flugturninn skömmu áður en Ienda á Santa Mariu vegna þotan fórst og sagst vera að undirbúa nauðlendingu. Portúgölskum freigátum sem staddar voru nærri Santa Mariu var þegar í stað stefnt til eyjunnar með lyf og hjálpargögn, en fljótlega var ljóst að engin not var fyrir þau hjálpargögn. Azoreyjar liggja úti í miðju Atl- antshafi í 800 km fjarlægð frá Port- úgal, en eyjarnar eru undir stjórn Portúgala. Enn eitt flugslysið varð í gær þegar farþegaþota af Boeing 707 gerð fórst á Azoreyjum og með henni 144 manns. Þessi mynd er af flaki nýrrar franskrar farþegaþotu er fórst á flugsýningu á síðasta ári, en síðasta ár var mesta flugslysaár á friðartím- um frá upphafi. Japanskurhryðju- verkamaður hlýtur 30áradómíBNA Liðsmaður hinna iilræmdu jap- önsku rauðu herdeildar, sem á síðasta ári var handtekinn á þjóð- veginum við New Jersey í Banda- ríkjunum með þrjár sprengjur í fórum sínum, var dæmdur í þrjátíu ára fangelsi í gær. Yu Kikumura neitaði sakargift- um bandarískra stjórnvalda sem sökuðu hann um að hafa undirbúið sprengjutilræði í New York til að hefna lotárása Bandaríkjamanna á Líbýu árið 1986. Yu sagðist hafa unnið á eigin vegum án samstarfs við aðra og að hann væri ekki tengdur Rauðu herdeildunum. í dómsorði segir að Yu Kikum- ura geti ekki sótt um náðun fyrr en eftir 25 ár. Pá muni honum verða vísað úr landi um leið og hann losni úr fangelsi. Yu neitaði að standa á fætur er dómsorð var lesið yfir honum af Alfred Lechner dómara: -Þú hugðist myrða og særa fjölda fólks. Það sem þú hugðist gera var að myrða og meiða fólk af þeirri ástæðu einni að það væri af banda- rísku bergi brotið. Það er eina ályktunin sem hægt er að draga af þeim sprengjum sem þú hafðir í fórum þínum. Þær voru hannaðar á þann veg að þær dræpu og særðu sem flest fólk, en ekki til þess að sprengja byggingar í loft upp. Áður en dómsorð var lesið yfir Yu stóð hann upp og gaf yfirlýs- ingu: -Ég fordæmi ríkisstjórn Banda- ríkjanna fyrir ólöglegan málflutn- ing í máli mínu. Stjórnvöld nota mál mitt til að réttlæta árás á ríkisstjórn Líbýu og líbýsku þjóð- ina. Ég kom til Bandaríkjanna á mínum eigin forsendum. Ég er ekki tengdur Líbýu. Bandaríkin búa til sögur um Líbýu til að réttlæta sínar eigin árásir á Líbýu, sagði Yu. w Rondonopolis í Brasilíu: Oþekktirmenn myrða 7 fanga Þrjátíu menn réðust inn á lög- reglustöð í bænum Rondonopolis í miðri Brasilíu og drápu sjö fanga í fyrrinótt. Lögreglan í bænum, sem hefur óskað eftir liðsauka, sagðist enga hugmynd hafa um hverjir voru að verki. Fimm fangar voru myrtir í fangaklefum sínum en tveir voru dregnir út fyrir lögreglustöðina og myrtir þar. Morð þessi eru framin tveimur dögum eftir að átján fangar f Sao Paulo köfnuðu í klefum sínum. Þeir voru meðal fimmtíu fanga sem gerðu uppreisn og var af þeim sökum troðið inn í fangaklefa sem voru ekki nema fjórir fermetrar að stærð. Hermir sagan að lögregla hafi síðan sprautað táragasi inn í klefann. Rannsóknamefnd vinnur nú að því máli, að sögn lögreglu. Palestínumenn sam- einast gegn ísrael Palestfnumenn á hernumdu svæð- unum á Vesturbakkanum og á Gaza ganga nú sameinaðir til baráttunnar gegn hernámi ísraela. Frelsissamtök Palestínu og fslamska andspyrnu- hreyfingin Hamas sem hingað til hafa keppst um hylli Palestínu- manna á þessum svæðum hafa nú gert með sér samkomulag um að leggja niður fyrri ágreiningsefni og einbeita sér sameiginlega að barátt- unni gegn ísraelum. Fylgismenn þessara tveggja sam- taka hafa á undanförnum mánuðum, hvað eftir annað barist á götum borga og bæja á hernumdu svæðun- um, en Hamas samtökin hafa sakað PLO um að selja rétt Palestínu- manna með því að samþykkja rétt Gyðingaríkis jalnhliða rétti Palest- ínuríkis. Hér eftir munu aðgerðir samtak- anna í verkföllum og mótmælaað- gerðum verða samræmdar og bæði samtökin hvetja Palestínumenn til að sniðganga ísraelskar vörur og að greiða ekki skatta sína. Á sama tíma fór sendinefnd Pal- estínumanna hjá Sameinuðu þjóð- unum fram á það að ofbeldið á Vesturbakkanum verði tekið til sér- stakrar umræðu. Þessi krafa kemur í kjölfar mannréttindaskýrslu Bandaríkjastjórnar sem sakar fsra- ela um alvarleg mannréttindabrot gegn Palestínumönnum. Tveir Palestínumenn féllu fyrir kúlum ísraelskra hermanna í gær. Kóreumenn í hár saman vegna her- æfinga í S-Kóreu Undirbúningsviðræður Norðúr- Kóreumanna og Suður-Kóreu- manna fyrir fyrirhugaðan fund for- sætisráðherraríkjanna sigldu í strand í gær á fyrsta degi þeirra. Ásteytingarsteinninn var fyrirhug- aðar heræfingar Suður-Kóreuhers og herliðs Bandaríkjamanna í Suð- ur-Kóreu, en þær eiga að fara fram á næstunni. Upp úr viðræðunum slitnaði þegar sendinefndirnar höfðu rifist um æfingarnar í rúmar tvær klukkustundir eftir að formaður norður-kóresku sendinefndarinnar hafði krafist þess að heræfingunum yrði aflýst. Enginn árangur varð af fundin- um sem beðið hafði verið af mikilli eftirvæntingu, en sendinefndimar ákváðu þó að hittast að nýju 2. mars í Panmunjon þorpinu á landa- mærum ríkjanna, en þorpið er opinber griðastaður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.