Tíminn - 09.02.1989, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR:
RlKiSSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu,
8 28822
„ gmM eru °mr fm' PÓSTFAX NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN
TÍMANS
VERBBRCFAUIBSKIPn SAMVINNUBANKJUtiS SUÐUHUNOSBRAUr ta. SlMI: 688S68 687691 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989
Afleiðingar söluriftunar við v-þýskar verslanirtil umræðu í ríkisstjórn:
Rey rni taðsl ka pal lag mel ti is-
iðnaði sérstakt svigrúm
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðhcrra, hefur lagt til
við fyrstu umræðu í ríkisstjórn að reynt verði að koma til
móts við fyrirtæki í lagmetisiðnaði vegna óvæntrar birgða-
söfnunar á framleiðslu sem unnin hafði verið samkvæmt
sölusamningum við verslanir í V-Þýskalandi. Samkvæmt
heimildum Tímans hefur verið rætt um að sjávarútvegs-
ráðuneytið liðki fyrir þeim möguleika að bankar greiði út
afurðalán til þessara lagmetisfyrirtækja þrátt fyrir að sölu
hefur verið rift.
Vandræðin eru fyrst og fremst
þau að framleiðsluvaran ersérstak-
lega merkt verslunarkeðjunum
Tengelmann og Aldi og er því þörf
á scrstöku fjármagni til að brcyta
merkingunum og gera vöruna aftur
seljanlega á öðrum mörkuðum.
Einnig er þörf á rekstrarfé og
svigrúmi þar til varan kemst á ný í
verð.
Hermann Sveinbjörnsson, að-
stoðarmaður sjávarútvegsráð-
Iterra, sagði í viðtali við Tímann í
gær að flest þau fyrirtæki sem um
ræðir væru rekin á takmörkuðu
fjármagni eins og víðast tíðkast í
útflutningsgreinum. Því lægi það
fyrir að vegna jafn skyndilegrar
samningsriftunar, væri oftast stutt
í rekstrarstöðvun. Því væri ein
leiðin sú að reyna að skapa þessum
fyrirtækjum svigrúm til að endur-
merkja vöru sína og freista þess að
koma henni á markað að nýju. Til
þess að það megi takast þurfa þessi
fyrirtæki að fá fjárhagslegt oln-
bogarými til að forða rekstrar-
stöðvun. Aðgerðir þessar eru þó
enn á byrjunarstigi og enn aðeins i
til viðræðu milli sjávarútvegsráðu-
neytis og viðskiptaráðuneytis.
Sölustofnun hefur látið reikna út
áætlað tap af völdum samningsrift-
unar áðurnefndra verslanakeðj a og
var það gert að ósk Halldórs Ás-
grímssonar, sjávarútvegsráðherra.
Skýrslan er mjög ítarleg og er tapið
reiknað til hins ýtrasta. Er til
dæmis reiknað hversu mikið tap
kann að lenda á Eimskipafélagi
íslands, sem sjá átti um flutninga
lagmetisins á markað í V-Þýska-
landi og tap Almennra trygginga
hf. vegna iðgjaldataps á trygging-
um varningsins. Einnig er sagt í
skýrslunni að grænfriðungum sé að
takast með mótmælum sínum að
reka um 160 manns út í atvinnuleit,
sem starfað hefur að framleiðslu
og sölu á niðursoðinni rækju og
kavíar, lamað verulega rekstur
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, ræðir nú við viðskipta-
ráðherra um fyrirgreiðslu vegna
afurðalána. Tímamynd Pjetur
tveggja verksmiðja og lokað fjór-
um verksmiðjum. Af skýrslunni er
hins vegar erfitt að meta hversu
mörgum starfsmönnum hefur þeg-
ar verið sagt upp störfum í lagmet-
isiðnaði vegna mótmælaaðgerða
grænfriðunga við v-þýskar verslan-
ir. Samkvæmt heimildum Tímans
hefur innan við fimmtíu starfs-
mönnum verið sagt upp á öllu
landinu.
Þær verksmiðjur sem taldar eru
hafa farið verst út úr nýlegri riftun
sölusamninga til V-Þýskalands eru
HIK sf. á Húsavík, K.Jónsson og
co. á Akureyri, Fiskiðjan Arctic á
Akranesi og Pólstjarnan á Dalvík.
Önnur fyrirtæki í lagmetisiðnaði
eru með minna hlutfall af fram-
leiðslu sinni fyrir markaði í V-
Þýskalandi, en þangað hafa aðal-
lega verið seldar rækjur og kavíar.
KB
Verður Arnarflug sett á? Halldór Sigurðsson fréttafulltrúi Arnarflugs:
„Lögðum pakkalausn
fyrir ráðherrann"
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum er meirihlutavilji nú fyrír því
innan ríkisstjórnarinnar að Arnar-
flug lifi áfram og starfi sjálfstætt-
verði ekki sameinað Flugleiðum.
Skoðun manna sé í höfuðatriðum
sú að reynslan af sameiningu Loft-
leiða og Flugfélags íslands á sínum
tíma hafi ekki verið þess eðlis að
eftirsóknarvert sé að aðeins eitt
flugfélag nánast fái einokun á flugi
til og frá landinu.
Samgönguráðherra, Steingrími
Sigfússyni hafi verið nokkuð í mun
að Arnarflug yrði sameinað Flug-
leiðum en hann sé nú orðinn einn
um þá skoðun innan ríkisstjórnar-
innar.
Halldór Sigurðsson blaðafulltrúi
Arnarflugs sagði Tímanum sl. mánu-
dag að Arnarflug væri búið að leggja
sín mál í hendur samgönguráðuneyt-
isins og sagðist hann þá telja að
ráðherra væri að kanna með viðræð-
um við Flugleiðir hvort hægt væri að
fá fram heppilegri lausn í málinu en
Arnarflugsmenn hefðu sjálfir lagt
fyrir ráðherra.
-En hefur tekist að auka hlutafé
Arnarflugs nægilega til að bjarga
félaginu og er KLM ennþá inni í
dæminu? Halldór sagði:
„Þetta er ennþá í vinnslu. Við
höfum aflað loforða um aukið hluta-
fé frá núverandi hluthöfum og höf-
um fengið felldar niður stórar skuldir
erlendis og þetta hefur verið sett í
pakka sem ráðherra hefur verið
sýndur. Síðan er eftir að vita hvort
eða hvernig ríkisstjórnin metur þetta
og hvort hún telur þetta nægjan-
legt.“
Samkvæmt heimildum Tímans
hefur ríkisstjórnin nú metið þessa
hluti þannig að rétt sé að „setja
Arnarflug á vetur“ en fleira veldur
en „pakkalausn“ Arnarflugs:
Flugmálastefnan hefur um margt
verið andsnúin Arnarflugi og stór
svæði hafa verið félaginu algerlega
lokuð, svo sem Bretland og Norður-
löndin en þangað hafa Flugleiðir
einar flogið áætlunarflug.
Arnarflug hóf á sfnum tíma að
fljúga til meginlands Evrópu og
byrjaði flug þangað án nokkurs
áryggisnets. Það hefur byggt upp
aæði farþega- - og vöruflutninga á
Evrópuleiðunum og aukið hlut sinn
jafnt og þétt.
Gagnvart neytendum þykir það
all vafasamt að afhenda Flugleiðum
Arnarflug nánast á silfurfati. Ýmis-
legt þykir benda til þess að Flugleiðir
hafi talið það nokkuð Ijóst Arnarflug
væri lagst banaleguna og hafa Flug-
leiðamenn látið að því liggja að
undanförnu að þeir hygðust auka
arð af starfsemi sinni, t.d. með því
að fella niður lágfargjöld. í sam-
keppni kæmust menn vart upp með
að standa við slíkar yfirlýsingar. Þá
þótti ljóst að ef Flugleiðir yfirtækju
Arnarflug með öllum þess skuldum,
hefði félaginu nægt að hækka flug-
fargjöld sín um 3% til að standa
undir yfirtökunni.
Meðan Flugleiðir voru eini ís-
lenski aðilinn sem stundaði áætlun-
arflug milli landa gekk reksturinn
misjafnlega. Þegar áætlunarflug
Arnarflugs síðan hefst 1982 var eins
og umskipti yrðu og rekstur Flug-
leiða tók að skila hagnaði.
Flugleiðir hafa síðan ítrekað hafið
áætlunarflug á svipuðum, eða sömu
flugleiðum og Arnarflug. Má í því
sambandi nefna flug þeirra til Aust-
urríkis í kjölfar flugs Arnarflugs til
Salzburgar, ofan í flug Arnarflugs til
Zúrich með áætlunarflugi til Basel,
og til Frankfurt.
Viðræður um orlofsflug næsta
sumar með meðlimi launþegasam-
taka og stéttarfélaga við Flugleiðir
hafa staðið um nokkurn tíma og
hafði náðst samkomulag um þau mál
og í raun aðeins eftir að undirrita
samninga. Þegar hins vegar máls-
sókn Flugleiða gegn Verslunar-
mannafélagi Suðurnesja hófst
kipptu félögin að sér höndum og
hafa samtök launþega lýst því yfir að
ekki verði samið við félagið nema
þáð dragi málið til baka.
Heimildarmönnum blaðsins ber
saman um að það sem hér hefur
verið rakið séu höfuðástæður þess
að ríkisstjórninni þyki það heldur
óvænlegt að Flugleiðir verði eitt um
hituna í áætlunarflugi til og frá
landinu og Arnarflug muni því halda
áfram aðvera til um sinn a.m.k. -sá
Marel hf., Pólstækni hf.
og Rekstrartækni hf:
sam-
starf
Fyrirtækin Marel hf., Póls-
tækni hf. og Rekstrartækni hf.
hafa gert með sér samning um
samstarf og sameiginleg'a hluta-
fjáraukningu fyrirtækjanna.
Hlutafjáraukning fyrirtækj-
anna verður um 50 milljónir
króna og mun koma frá ýmsum
aðilum og fyrirtækjum. Marel og
Pólstækni framleiða einkum
tölvuvogir fyrir fiskiskip, fisk-
vinnslufyrirtæki, flokkunarvélar
og fleira. Rekstrartækni hf. hefur
aðallega unnið að tölvusölu og
sölu á hugbúnaði, sérstaklega
fyrir fiskiðnað.
Ákveðið er að fyrirtækin verði
í framtíðinni áfram sjálfstæð
hlutafélög, en nátengd rekstrar-
lega. jkb