Tíminn - 11.03.1989, Blaðsíða 7
Laugardagur 11. mars 1989
HELGIN
17
I
Frá æfingu hjá íslenska pílukastrélaginu í Reykjavík. Hér sést þegar
Finnbogi kastar pílunni. Hún er beint fyrir ofan hándarbakið á kast-
aranum.
Emil kastar á borðið. Allar þrjár pílurnar fóru í þrcfaldan 20 og gáfu af sér 180.
Áttu breskir
bogavarðliðar
hugmyndina að
pílu?
2-3000 krónur. Þegar borð er sett P
upp. verður að gæta að fjarlægðinni. ■
Hæð frá gólfi og upp í miðpunkt skal ^
vera 1,73. Fjarlægð frá borði (ekki :
frá vegg) skal vera 2,37. Þetta eru
alþjóðlegar tölur og best að halda sig '
við þær.
Islenskt landslið í pílu
Fyrir ekki ýkja mörgum árum var
það að lögregiumenn af Suðurnesj-
um og úr Reykjavík fóru að venja
komur sínar upp á Keflavíkurflug-
völl til að spila pílu. Kanarnir voru
til að byrja með mun betri en það
breyttist þegar fram liðu stundir og
j dag ku þetta vera ójafn leikur
fslendingunum í hag. Undirritaður
heimsótti þessa vöggu pílunnar á
íslandi eitt fimmtudagskvöld og
sannreyndi að ákveðinn hópur |
Suðurnesjamanna rúllaði þar upp
hinum ýmsu spilurum af Vellinum.
Flestir voru með ísland ritað stórum
stöfum á baki sér. Ekki var það til
að greina að íslendingana frá j;
Könunum, heldur voru þar lands- j
liðsmenn á ferð. Svo einkennilega
vill nefnilega til að velflestir bestu j:
spilararnir koma af Suðurnesjum, i;
Grindavík og Keflavík. Kemur þar i
til nálægðin við Völlinn.
íslenska landsliðið í pílu. Efri röð frá
vinstri. Emil Þ. Emilsson, Gunnar
Schram, Ægir Ágústsson, Guðjón
Hauksson, Tómas Bartlet og Friðrik
Diego sem var fararstjóri hópsins
þegar farið var til Svíþjóðar og
Danmerkur. Neðri röð frá vinstri.
Pétur Hauksson, Kristinn Þ. Krist-
insson og Óskar Þórmundsson.
komst í sjónvarpið komu peningarn-
ir inn í leikinn og þá hófst uppgangur
pílunnar fyrir alvöru. Atvinnumenn
komu fram á sjónvarsviðið. Þeir lifa
af því að kasta pílu, æfa átta tíma á
dag og auglýsa pílu og ýmsar vörur
er tengjast íþróttinni." sagði Emil.
Hann nefnir uppáhaldsspilarann
sinn til sögunnar, hinn margfalda
mcistara John Lowe. Emil segir frá
í því að John Lowe sé eini spilarinn
; sem náð hefur „níu pílu leik" í
sjónvarpskeppni. Þegar Emil talar
um níu pílu leik á hann við að hann
: hafi fengið 501 stig úr níu pílum. Það
: gerðist þannig: Fyrstu þjár fóru allar
Ií þrefaldan 20, samtals 180. Aftur
fóru allar þrjár í þrefaldan 20. Eftir
var 141. Fyrsta pílan fór í þrefaldan
17, gaf 51. Næsta píla fór í þrefaldan
18, gaf 54. Eftir voru 36 og tvöfaldur
18 tryggði Lowe 102 þúsund pund,
sem eru um átta milljónir í dag.
„Þetta er mun meiri viðburður en þó
að golfari fari holu í höggi. Aðeins
einn hefur gert þetta í sjónvarps-
sendingu og það var Lowe.”
Góður árangur
á keppnisferð
Islenska landsliðið í pílu fór íyrir
skemmstu keppnisferö um Svíþjóð
og Danmörku. Engir stórir sigrar
unnust, en landsliðshópurinn sýndi
og sannaði að Islendingar cru komn-
ir til að vera í pflu. „Við sýndum það
að við getum vel staðið í þeim bestu
á Norðurlöndunum. Þeir voru mjög
hrifnir af okkar frammistöðu. Við
komurn með úrval af 150 spilurum
sem við veljum úr, en Skánarliðið
sem við kepptum við var valið úr
5000 manns. Þeir voru því mjög
hrifnir af því hvað viö sýndum. Þeir
sögðu sjálfir að ekki væri langt í að
þeir lentu í vandræðum meðokkur."
sagði Emil, en hann er einn af þeini
sem skipa landslið íslands í pílu-
kasti.
Hann fullyrðir að til séu „náttúru-
talentar" í pílu. „Ég hef verið að
kenna byrjendum og sumir hafa
þetta í sér og aðrir altur ekki. Það er
eins með þessa íþrótt og aðrar."
Hvernig kemst maður á námskcið
hjá pílukastklúbbnum?
Islenska pílukastfélagið í Reykja-
vík er með æfingar á fimmtudags-
kvöldum. Við höfum vcrið í Frosta-
skjóli en líkast til, þegar þessi orö
verða skrifuð, verðum við komnir í
húsnæði annarsstaðar í Reykjavík
og verðum með opið öll kvöld. Víð
„Það eru nátt-
úrutalentar i
þessu eins og
öðru“
munum fljótlega auglýsa byrjenda-
námskeið og ætlunin er að vera nteð
tvö mót í viku, á þriðjudögum og
laugardögum en það verður auglýst
síðar.” sagði Emil.
Mikill uppgangur í pílu
Mikill uppgangur hcfur verið í
pílu hér á landi síðustu tvö ár. Má
þá sérstaklega nefna að Stöð 2 hefur
gert nokkuð af því að sjónvarpa frá
mótum í pílu og hefur það verið vel
þegið af pílukösturum.
Nú þegar bjórinn hefur haldið
innreið sína og krár spretta upp eins
og gorkúlur má gera ráð fyrir að
fleiri kynnist þessari íþrótt, ef að
líkum lætur. Krár eru helsta upp-
spretta pílukasts á Bretlandseyjum,
á meginlandi Evrópu og í Bandaríkj-
unum. Þegar hefur Tíminn spurnir
af því að kráareigendur hafi komið
upp píluborðum á krám í Reykjavík.
Þó svo bjór og píla séu oft nefnd
í sömu andránni hafa Bretar þó
brugðið á það ráð að bjórdrykkja
hefur verið bönnuð í keppnum og
einnig sígarettureykingar. Verður
þetta íþróttinni sjálfsagt til frani-
dráttar og tryggir í framtíðinni að
virðing verði borin fyrir þeim er
hana stunda. - ES
Vantaði kráarstemningu?
Emil Þ. Emilsson er formaður
Pílukastfélags íslands. Hann var
spurður hvernig stæði á því að píla
hefði ekki komið fyrr til íslands?
„Aðalástæðan er kannski sú að
við höfum ekki haft krár hér. Fólk
má ekki taka þetta neikvætt upp, þó
ég tengi píluna við krár, því ekki eru
nema tíu til fimmtán ár frá því að
Bretar fóru að taka pílu alvarlega
sem íþrótt. Áður var þetta spilað
nær eingöngu á krám. Þegar pílan
idi. Timamyndir Árni Bjarna
geröiraf LADA bílum
helgina 11. og 12. mars
frá kl. 10-17.
Mikið úrval skrásettra bíla
til afhendingar strax.
Tökum gamla LADA bílinn upp í nýjan
og semjum um eftirstöðvar.
^IwBMÍbb
Veitingar veróa á boðstólum.
- góöur kostur í bílakaupum
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐAfíVÉLARHF [1
Ármúla 13 - 108 Reykjavík - S* 681200