Tíminn - 11.03.1989, Síða 10

Tíminn - 11.03.1989, Síða 10
20 HELGIN Laugardagur 11. mars 1989 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Hver fleygði höfuð- lausu líki íThames? Tveir menn létu lífið við dularfullar aðstæður fyrir rúmum áratug. Enginn er enn viss um hver eða hverjir myrtu þá og enn síður hvers vegna. Tveir menn sitja í ævilöngu fangelsi vegna málsins en halda stíft fram sakleysi sínu. Scotland Yard er ráðþrota en hvað halda lesendur? Hreint og svalt morgunloftið skall á hinum 39 ára gamla smáglæpa- manni Billy Mosely næstum eins og högg þegar liann steig út í frelsiö úr fangelsinu í Bedford í Englandi og þung járnbent hurðin skall í lás að baki honum. Nú þurfti hann ekki lengur að anda að sér daunillu inniloftinu þar, mcttuðu þef af salernum og sótt- hreinsunarefnum, svita, soðnu káli og ódýrri steikingarolíu. Billy stóð í sömu sporum nokkra stund, teygaði sveitaloftið í Bed- fordshire og rölti svo niöur að járn- brautarstöðinni til að ná lest til London. Þetta var miðvikudagsmorguninn 18. september 1974 og Billy var harðákveðinn í að sjá aldrei framar á ævinni hvernig fangelsi leit út að innan. Hann taldi sig eiga góða vini utan múranna sem myndu hjálpa honum til að halda sig á mjóa veginum framvegis. Hann hafði lengi hugsað um frelsið meðan hann styrkti sig með gormatækjum og auk þess hafði hann auðgað anda sinn örlítið undanfarið með því að lesa ævisögu Rudolfs Hess. Raunar átti hann tvo nána vini sem voru honum eins og bræður og hann gat treyst. Annar var Micky Cornwall, þekktur í undirheimunum sem „Hláturræninginn.“ Nafngiftin var til komin af því að Micky átti það til í miðju bankaráni, jafnvel með þétta grímu, að bresta í óstöðvandi hlátur sem skelfdi félaga hans jafnvel meira en starfsfólk bankans. Að öðru leyti var Micky fyllilega treyst- andi. Hinn var Bob Maynard, gjarnan kallaður „Feiti.“ Þeir Billy höfðu þekkst síðan í skóla er þeir áttu heima í Holloway-hverfinu í norðan- verðri London og skrópuðu í skóla annan hvern dag. Billy hafði ekki fast aðsetur og Maynard-fjölskyldan sem var fjölmenn, tók hann undir sinn verndarvæng. Drengirnir byrjuðu snemma að reyna fyrir sér á hála veginum og rændu sælgætisbúðir á daginn til að byrja með en tóku síðan að bíða myrkurs og brjótast inn. Á unglings- aldri voru þeir settir í sérskóla fyrir skróp og þaðan lá leiðin á betrunar- heimili gegn um unglingadómstóla, skilorðseftirlit og brot á því og loks í alvörufangelsi. Billy leist illa á Svo var það loks að Billy, sem raunar var ákafur aðdáandi Kray- bræðra sem enn sitja í fangelsi fyrir alls kyns afbrot, meðal annars morð, steig úr lestinni á Kings Cross-stöð- inni og vænti þess fastlega að einhver tæki á móti sér, þó ekki væri nema Feiti Bob Maynard. Bob var þar ekki og því síður Micky Cornwall sem einmitt þá sat af sér skamman dóm í fangelsinu í Hull. Billy yppti öxlum, hristi af sér vonbrigðin og tók leigubíl heim til Maynards. Nokkrum mínútum eftir komu hans þangað, kom Bob líka. Miklir fagnaðarfundir urðu og síð- degis var haldið upp á tilefnið með ljúfum veigum sem Billy naut einkar vel, enda hafði hann ekki séð slíkt hvað þá meira í hálft annað ár. Ekki bar á öðru en Maynard væri hættur öllum ofbeldisglæpum. Hann hafði særst á höfði og þurft í endur- hæfingu á stofnun þar sem hann fékk áhuga á silfurvörum og starfaði nú í útjaðri þess markaðs í London sem höndlar með dýra málma. Sam- starfsmaður hans var Reg nokkur Dudley. Billy leist ekkert á þessar fréttir þar sem honum geðjaðist ekki vit- undarögn að Dudley þessum. Oft hafði verið minnst á hann í fangels- inu, einkum fyrir svik við félaga sína og ofsafengni í skapsmunum. Dudley hafði raunar setið inni nokkrum árum áður fyrir að opna andlitið á konu sinni með sveðju í afbrýðiskasti. Einmitt þessa stundina hafði Dudley skroppið til Spánar til að bjarga Ijóshærðri og lögulegri dóttur sinni úr einhverju klandri sem veit- ingahús hennar á Lloret del Mar var komið í. Billy lét í ljós áhyggjur af samstarfi vinar síns við Dudley en Bob lét það sem vind um eyru þjóta. Bob var sannfærður um að starf- semi þeirra Dudleys væri fínasta fyrirtæki. Þeirvoru þekktirumhverf- Vinur Billys, Micky Cornwall var greinilega kvíðinn þegar hann fór að heiman í síðasta sinn. is Hatton Garden, einkum á knæp- unum sem „Löglegur og Almenn- ur.“ Viðurnefnið fengu þeir vegna þess að annar spurði jafnan hvort varan væri lögleg en hinn lagði áherslu á að þeir störfuðu á almenn- um markaði. Auk þess voru þeir dálítið broslegir í útliti, alltaf í eins svörtum frökkum og með svarta hatta. Ástamál í ólestri Billy Moseley átti raunar þriðja vininn sem fagnaði frelsi hans, lag- lega Ijóshærða konu sem kölluð var Rosie. Því miður átti eiginmaður hennar fyrsta rétt til hennar en hann var meðlimur í bræðralagi undir- heimanna þá stundina. Þó bræður þar steli öllu steini léttara hver frá öðrum, láta þeir yfirleitt eiginkonur í friði. Það stafaði ekki af ströngum sið- ferðisreglum heldur ósköp skiljan- legri löngun til að hafa æxlunarfærin áfram þar sem móðir náttúra ætlaði þeim að vera. Billy var ekki mikið að hugsa um það þegar hann endur- nýjaði kynni sín af Rosie með það Þetta er samsett lögreglumynd af Billy Mosley sem fannst höfuð- og útlimalaus i Thamesá. fyrir augum að bæta sér upp glataðan tíma. Hann hafði líka samband við fyrrverandi konu sína. Hann hafði skrifað Rosie úr fang- elsinu og játað henni alla ást sína ásamt því að leggja til að hún ræddi þetta viðkvæma mál við mann sinn og bæði hann um skilnað. Billy vonaðist nú til að hitta eiginmanninn svo þeir gætu haldið viðræðum áfram. Rúmri viku síðar, þann 26. sept- ember var fundurinn ákveðinn og ætluðu Billy og eiginmaður Rosie að hittast úti fyrir þekktum veðmang- araklúbbi í Dalston í austurborginni. í augum Billys var ekkert öruggara en að hittast síðla dags í mestu umferðinni á þessum stað. Hann ók heiman að frá sér í Islington með ást í hjarta og söng á vörum. Hann kom hins vegar aldrei á áfangastað. Náunginn sem lánaði Billy bílinn fór að verða órólegur seint um kvöldið og hringdi um allar jarðir en enginn hafði séð Billy eða bílinn. Rosie var Itka óróleg þar sem Billy hringdi ekki til hennar eins og hann hafði lofað. Hins vegar hringdi eigin- maður hennar, bæði fúll og hissa. Hann hafði komið 10 mínútum of seint á stefnumótsstaðinn og þá var Billy þar ekki og kom ekki heldur. Enginn óttaðist um Billy því hann hafði áður átt það til að láta sig hverfa um tíma. Samt sem áður fóru vinir hans heim til hans og leituðu í íbúðinni, meðal þeirra Rosie og Bob. Þau fundu jafnvirði 40 þúsund IKR í reiðufé undirgólfteppinu, svo og kort af norðausturströnd Eng- lands þar sem Billy hafði oft sagt að faðir sinn ætti heima. Eilítið undar- legt virtist að Billy hefði skyndilega farið í fjölskylduheimsókn í stað þess að greiða úr ástamálum þeirra Rosie og auk þess skilið ferðaféð eftir. Búkur finnst í Thames Rosie og eiginmaður hennar héldu áfram að búa saman í losaralegu hjónabandi og Bob Maynard að höndla með silfur, að þessu sinni einn á báti því Reg Dudley var kominn í fangelsi um hríð, hvað ekki var óalgengt. Þegar haustar í London blása naprir vindar upp Thamesárósa frá Norðursjónum og einkum er kaldr- analegt á Rainham-mýrunum í Ess- ex rétt við fljótið. Sólin náði varla að skína gegn um dökkt morgunmistrið þann 13. október, þegar fuglafræð- ingurinn John Small arkaði þar um fljótsbakkann í aur og grjóti í leit að fiðruðum vinum. Rétt ofan við vatnslínu kom hann skyndilega auga á eitthvað sem líkt- ist kindarhræi sem öll ull var af. Hann stökk niður af bakkanum, óð leðjuna að hræinu og velti því við með öðrum fætinum. Þá hrökk hann til baka með hryllingsópi því „kindin" reyndist vera karlmanns- búkur sem á vantaði höfuðið og útlimina. Á næstu dögum fundu gamall eftirlitsmaður og nokkur börn fleiri hluta líksins en þó ekki höfuðið eða hendurnar. Hvorutveggja skiptir miklu máli til að bera kennsl á lík, til dæmis vegna tanna, ljósmynda og fingrafara. Meinafræðingar við Guys-sjúkra- húsið í London hófu þegar að rann- saka líkamshlutana. Lögreglumenn sem margir höfðu gott hlustunar- samband við undirheimana þóttust jafnframt vissir um að Billy Mosley væri ekki hjá föður sínum, heldur steindauður. Kunningjar hans höfðu heyrt ávæning af samræðum við útför í Maynard-fjölskyldunni. sem þóttu benda til að Bob gerði ekki ráð fyrir að hitta félaga sinn framar. En gat búkurinn úr Thames verið líkamsleifar Billys? Nú var hafin afar ítarleg rannsókn. Sérstakur Ijós- myndari tók útfjólubláar myndir af líkinu og þar komu í ljós blettir á hægra læri og bringu sem gátu verið eftir tiltekinn áburð sem notaður er við húðsjúkdómi. Vitað var að Billy hafði haft útbrot á árum áður og þau voru þá ranglega greind sem kyn- sjúkdómur. Afbrýðisamur eiginmaður? Meinafræðingurinn Alan Grant tók síðan blóðsýni úr fyrrum konu Billys og þremur börnum þeirra og komst að raun um að helmingurinn af fjölskyldunni var með blóð sömu eiginleika og blóð líksins. Það sem rak endahnútinn á rannsóknina var sérkennilegt ástand gallsteina í lík- inu og kom það saman við röntgen- myndir sem teknar höfðu verið af Billy Moseley í fangelsinu í Bedford. Þegar hér var komið var hafin opinber rannsókn á hvarfi Billys Moselys og dauða sem nú var stað- festur af læknum. Það var Alf Barr- ett lögregluforingi í Essex sem stjórnaði rannsókninni, þar sem lík- ið fannst f hans lögsagnarumdæmi. Bob Maynard lagði að fyrrum eiginkonu Billys að segja lögreglunni að hún hefði vitað um samband Billys við Rosie og við leit í íbúð Billys fann lögreglan ástarbréf sem staðfestu það. Fljótlega var haft uppi á eiginmanni Rosie enda hafði hann enga ástæðu til að fela sig. Hann sagði lögreglunni það sem hann hafði áður sagt Rosie: Að hann hefði komið 10 mínútum of seint til fundarins en Biliy hefði aldrei látið sjá sig. Hann sagði Barrett að vitanlega hefði honum sárnað að komast að ótrúnaði konu sinnar en hann minnt- ist þess ekki að hafa hótað Billy að drepa hann. Hann hefði verið í miklu uppnámi um þessar mundir en ekki búist við vandræðum er þeir Billy hittust og satt að segja verið létt þegar ekkert varð af fundinum. Þá var Feiti Bob yfirheyrður, einkum um samtalsbrotin sem heyrst höfðu við útförina. Hann kvaðst ekki vera alveg viss um neitt en hefði lengi grunað að félagi sinn væri látinn. Næst heimsótti lögreglan Reg Du- dley í fangelsið. Hann virtist hissa og eilítið ringlaður á gestakomunni og rætt var við hann á þeim grundvelli að einhver hefði myrt einhvern í hefndarskyni vegna framhjáhalds. Dudley var alveg á því að vel kæmi til greina að maður væri drepinn fyrir að fara á fjörurnar við konu Cornwall hverfur Lögreglumaðurinn sem talaði við Dudley vissi vel að grunnt hafði verið á því góða milli þeirra Billys, svo og að Dudley vissi að Billy hafði verið andvígur samstarfi Bob vinar síns við hann á Hatton Garden- svæðinu. Rannsókninni miðaði ekk- ert frekar við það sem Dudley hafði fram að færa, enda hafði yfirheyrslan ekki verið formleg og Dudley frjálst að svara eða svara ekki. Þá gerðist það að til sögunnar kom Micky Cornwall sem látinn var laus úr Hull-fangelsi þann 15. októ- ber. Hann fór líka rakleitt til London og hóf að spyrjast fyrir á eigin spýtur á knæpum í norður- og austurborg- inni í þeim tilgangi að komast að öllu

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.