Tíminn - 15.04.1989, Blaðsíða 15
-rnntmiT_si'\
Timinn 27
L^tí^ar08§ur \ 5.u§|§frf í¥9é&'1
111111111 MINNING iillllllllllllllllllllllllilllllllliilllillilillllll^
Þorsteinn Vilhjálmsson
kunni ógrynni vísna sem hann fór
með fyrir okkur systkinin. Afi var
dugnaðarmaður með mikla gleði og
kátínu sem fyllti hjörtu allra þeirra
er umgengust hann.
Nú vitum við að okkar elskulega
afa líður vel og við þökkum honum
allt það sem hann hefur gefið okkur
í lífinu.
Með þessum línurn kveðjum við
afa.
„Nú blundar fold í blíðri ró,
á brott er dagsins stríð,
og líður yfir land og sjó,
hin Ijúfa næturtíð. “
Sigríður, Þuríður Magnúsína,
Þorsteinn Magni og Guðjón
Syðri-Hömrum
Fæddur 20. júlí 1906
Dáinn 7. apríl 1989
Nú hefur afi okkar ástkæri fengið
hvíldina eftir nokkurra mánaða
veikindi. Við systkinin minnumst
allra góðu og skemmtilegu stund-
anna sem við áttum með honum.
Hjá honum, lærðum við eldri syst-
kinin að lesa og var þá oft kátt á
þingi. Af hestum hafði afi dálæti og
átti hann tvo uppáhalds hesta sem
okkur fannst og finnst enn mikið til
koma. Alltaf var hægt að leita til afa
með áhyggjur sínar og sorgir því
hann hafði alltaf allskyns ráð við
þeim. Hann var líka ávallt tilbúinn
með sínar hlýju, traustu hendur er
okkur var kalt.
Hann var víðlesinn maður og
hafði mikið yndi af bókum. Hann
Jón Kr. Kristjánsson
Víðivöllum, Fnjóskadal
Fæddur 29. júlí 1903
Dáinn 29. mars 1989
Jarðlífið er ekki óendaniegt, það
vitum við öll. Við eigum samt þá ósk
að vinir okkar fái að dvelja sem
lengst í návist okkar, svo að við
getum náð til þeirra og rætt við þá á
góðri stund. Mikill persónuleiki er
horfinn sjónum okkar. Jón Kr.
Kristjánsson frá Víðivöllum í
Fnjóskadal andaðist í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri að morgni
29. mars s.l.
Jón var sonur hjónanna Kristjáns
Jónssonar og Önnu Kristjánsdóttur,
sem bjuggu á Víðivöllum. Jón var
mikill menningarfrömuður í sinni
sveit, kennaraskólagenginn, enda
barnakennari í Hálshreppi til margra
ára. Jafnframt því sá hann um bóka-
safn hreppsins og útlán þaðan á
bókum. Jón var lengst af í útgáfu-
stjórn Árbókar Þingeyinga og hefir
skrifað margar fræðandi og
skemmtilegar greinar í það rit, og
margt fleira mun hann hafa ritað,
sem ekki verður talið upp hér.
Jón tók við búinu af föður sínum
og hefur rekið það af mesta myndar-
skap. Jón var kvæntur Huldu Björgu
Kristjánsdóttur frá Nesi í Fnjóskadal,
og voru þau mjög samhent hjón, að
mér finnst. Þau eignuðust 5 börn, en
þau eru: Karl, lögregluþjónn á Ak-
ureyri, en kona hans er Marselína
Hermannsdóttir, Kristján bóndi á
Veturliðastöðum, en kona hans er
Guðríður Arnþórsdóttir, Álfhildur
húsfrú í Víðifelli, gift Árna Ólasyni,
Völundur, ókvæntur, háskólageng-
inn og stundar kennslu o.fl. störf, og
Aðalsteinn bóndi á Víðivöllum,
kvæntur Jónínu Guðmundsdóttur.
Álfheiður og Árni byggðu nýbýlið
Víðifell í landi Víðivalla, er þau
tóku við búskap á hluta jarðarinnar.
Á efri hæðinni í því húsi bjuggu Jón
og Hulda í ánægjulegu sambýli, en
við Víðivallajörðinni tóku hins vegar
Aðalsteinn og kona hans.
Hulda var skólasystir mín frá
Laugum í Reykjadal, og eftir að þau
hjón tóku við búi á Víðivöllum,
vorum við systur oft hjá þeim í vinnu
og héldum vináttu við þau áfram
seinna, eftir því sem möguleikar
leyfðu, því gott er að koma í Víði-
velli, enda oft gestkvæmt þar á
sumrin. - Eitt atvik man ég, löngu
liðið, þegar við bróðir minn vorurn
að læra að lesa. Það hefur sjálfsagt
ekki verið mikið um peninga til
bókakaupa, en þá barst okkur bóka-
sending frá hjónunum á Víðivöllum,
foreldrum Jóns, og var slíkt mjög
vinsamlega hugsað.
Mér sýnist, að hjónin, sem þarna
búa nú, haldi uppi reisn staðarins
því það er mýndarlega um gengið úti
sem inni. í haust er leið, þegar Jón
gekk með okkur um gróðurhúsin og
garðana, var greinilegt, hve mikinn
áhuga hann hafði á blómunum og
matjurtunum, rétt eins og bókunum
sínum.
Á meðan Jón kenndi í Skógum
voru börnin þar í heimavist. Það var
því ekki aðeins kennslan sem hann
sá um heldur öll umsjón. Hann sá
um að börnin hefðu daglega útivist,
fór gjarnan sjálfur með þeim út á
göngu og gáði vandlega að því, að
þau væru ekki blaut í fætur eða illa
til reika. Þess utan varð hann svo að
leysa alls kyns vanda, sem upp kom
hjá börnunum.
Nú er þessi aldni vinur okkar
horfinn, örugglega til enn æðri starfa
á nýju sviði. Þessar línur eru aðeins
þakklætisvottur frá okkur systkinum
fyrir þá uppfræðslu, sem við nutum,
og aílar glaðværar ánægjustundir,
sem við áttum með honum.
Guð veiti þér góðar viðtökur og
verndi eftirlifandi konu þína, börn
og alla afkomendur.
F.h. systkina
Hulda Guðnadóttir
OREIFARAfí T-60 S
Tekur13 poka.
Hleðsluhæð aðeins 90 cm.
Ryðfrír dreifibúnaður.
Til afgreiðslu strax.
Mjög hagstætt verð og góðir greiðslu-
skilmálar.
FLATAHRAUN 29
H 220 HAFNARFJORDUR
p SÍMI 91-651800
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunar-
fræðingar
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða
hjúkrunarfræðinga í sumarafleysingarog/eðafast-
ar stöður á eftirtaldar deildir:
Handlækningadeild
Slysadeild
Bæklunardeild
Skurð- og svæfingadeild
Gjörgæsludeild
Kvensjúkdómadeild
Lyflækningadeild
Sel (hjúkrunardeild)
Barnadeild
Geðdeild
Til greina kemur að ráða á fastar vaktir.
Umsóknarfrestur til 1. maí 1989.
Nánari upplýsingar gefa Sonja Sveinsdóttir, hjúkr-
unarframkv.stj. og Ólína Torfadóttir, hjúkrunar-
forstj. í síma 91-22100.
n
'J'
Safnvörður
Staða safnvarðar við Árbæjarsafn er laus til
umsóknar. Staðan er laus frá 1. júní 1989.
Umsækjandi skal hafa lokið prófi í menningarsögu
(þjóðfræði/sagnfræði).
Iðnmenntun og starfsreynsla á minjasöfnum æski-
leg.
Meginverksvið safnvarðarins er að hafa umsjón
með sýningum, geymslum og safnsvæði, auk
almennrar safnvörslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir borgarminja-
vörður í síma 84412.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar
Pósthússtræti 9^ 5. hæð, á eyðublöðum sem þar
fást, fyrir 1. maí n.k.
Útboð
Fyrir hönd byggingarnefndar Heilsugæslustöðvar
og sjúkrahúss St. Fransiskussystra í Stykkishólmi
óskar Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf.
eftir tilboðum í loftræsitæki fyrir sjúkrahúsið. Um
er að ræða tæki er afkasta um 40.000 rúmmetrum
á klukkustund.
Útboðsgögn verða afhent hjá VST hf. Ármúla 4,
gegn 5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 3.
maí kl. 11.00.
VERKFRÆOISTOFA SIGUROAR THORODDSEN hf
ÁRMÚLI 4 REY.KJAVlK SlMI 84499
IBUÐ OSKAST
Óskum eftir aö taka á leigu 3-4 herb.
íbúð. Helst sem næst miðbænum.
Við lofum góðri umgengni, reglusemi
og skilvísum greiðslum. Erum fjögur í
heimili.
Upplýsingar í síma 78321, (Albert)
eða 16828, (Þráinn).