Tíminn - 19.04.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.04.1989, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 19. apríl 1989 Tíminn 3 Björgunarmenn komnir á staöinn. Sem sjá má hefur þegar mikið verið traðkað í kringum vélina. límamvnd Árni Bjarna Tveir menn sluppu nær ómeiddir þegar kennsluvél brotlenti á Mosfellsheiöi í gærkvöldi: Snjóblinda í lágflugi? Tveir menn sluppu nær ómeiddir, er eins hreyfils kennsluvél - TF-FFA brotlenti skammt frá Borgarhóium á Mosfellsheiði laust eftir klukkan 18 í gærkvöldi. Klukkan 18:15 barst flugturninum í Reykjavík neyðarkall frá vélinni sem er af gerðinni Beachcraft Skipper BE-77. Þá strax var flugvél send af stað til leitar og fann hún slysstaðinn 15-20 mínútum síðar og um leið var ljóst að mennirnir voru lítið slasaðir þar sem þeir sáust á gangi við vélina og veifuðu til flug- mannsins. Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík var kölluð út og fóru um 30-40 félagar hennar á slysstað. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á staðinn og voru mennirnir fluttir á Borgarspítalann til rann- sóknar. Meiðsli þeirra voru óveru- leg, aðeins skrámaðir í andliti og var eina læknisaðgerðin sú að eitt spor var saumað í neðri vör annars mannsins, sem fékk í sig flís er framrúða vélarinnar brotnaði. Eftir því sem Tíminn kemst næst olli snjóblinda slysinu. Vélin var í kennsluflugi á vegum flugskólans Vesturflugs á sérstöku æfingasvæði skammt frá Borgarhólum á Mosfells- heiði. Svo virðist sem vélin hafl verið í lágflugi og á mjög lítilli ferð. . Ljósmyndari Tímans sem flaug yfir slysstaðinn veitti því eftirtekt að förin eftir vélina voru mjög stutt, áður en hún rak nefið niður og valt fram yfir sig á bakið. Loftferðaefiir- litið mætti á staðinn skömmu eftir slysið og var unnið að rannsókn slyssins í gærkvöldi. Vélinni var velt við um klukkan 10:30 gærkvöldi og virtist kunnugum sem hún væri lítið skemmd. Fram- rúða var sprungin og lítil dæld var á nefinu. Vélin átti að baki þrjátíu flugtíma frá síðustu skoðun og bendir þvi allt til þess að hún hafí verið í fullkomnu lagi. -ES/SSH ' Skúli Sigurðarson hjá Loftferðaeftirlitinu kannar vélina, eftir að hcnni hcfur verið velt við. Tímamynd Pjetur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.