Tíminn - 19.04.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 19. apríl 1989
Jk Almennt KEnHrA- kf"n®!;anamí HÁSKóLi til B.Ed.-profs ÍSLANDS Umsóknarfrestur um þriggja ára almennt kennara- nám við Kennaraháskóla íslands er til 5. júní. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Umsækjendur koma til viðtals dagana 8.-14. júní, þar sem þeim verður gefinn kostur á að gera grein fyrir umsókn sinni. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða önnur próf við lok framhaldsskólastigs svo og náms- og starfsreynsla sem tryggir jafngildan undirbúning. Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fást á skrifstofu skólans, Stakkahlíð, 105 Reykja- vík, sími: 91-688700. Rektor
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR: Styrkir til framhaldsnáms Háskólinn á Akureyri og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri auglýsa styrki til framhaldsnáms fyrir hjúkrunarfræðinga. Sú kvöð fylgir styrkveitingum þessum, að styrkþegi skuldbindi sig í ákveðinn tíma eftir að námi lýkur til starfa við áðurnefndar stofnanir. Frekari upplýsingar veitirforstöðumaður heilbrigð- isdeildar Háskólans á Akureyri, sími 96-27855. Umsóknir sendist til H.Á. og F.S.A. fyrir 20. maí 1989. HÁSKÓLINN Á AKUREYRI FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI.
Lausar stöður Við Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands eru lausar til umsóknar stöður æfingakennara. Um er að ræða almenna bekkjarkennslu, m.a. í efri bekkjum með áherslu á stærðfræði og náttúrufræði. Einnig er laus staða sérkennara og hálf staða heimilisfræðikennara. Laun skv. launakerfi starfsmanna rlkisins. Umsækjendur skulu hafa aflað sér framhaldsmenntunar eða starfað að verkefnum á sviði kennslu og skólastarfs sem unnt er að meta jafngilt framhaldsnámi. Umsóknum ásamt ítarlegum upplýsingum um náms- og starfsnáms- feril ber að skila til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Fteykjavík, fyrir 16. maí n.k. Menntamálaráðuneytið, 14. apríl 1989.
+ Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður og tengdaföður Sigurvins Einarssonar fyrrverandi alþingismanns Jörína Jónsdóttir Rafn Sigurvinsson Elín Sigurvinsdóttir Sólveig Sveinsdóttir Sigurður Eggertsson Einar Sigurvinsson Björg Sigurvinsdóttir Sigrún Lárusdóttir Kolfinna Sigurvinsdóttir ÓlafurSigurvinsson Sverrir M. Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn.
+ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir Sigurgeir Guðbrandsson á Heydalsá verður jarðsunginn frá Kollafjarðarneskirkju, laugardaginn 22. apríl kl. 13.30. Halldóra Guðjónsdóttir Guðbjörn Sigurgeirsson Guðjón Heiðar Sigurgeirsson Guðbrandur Ásgeir Sigurgeirsson Hrólfur Sigurgeirsson og systkini hins látna.
Vextir á bréfum Húsnæöisstofnunar hafa lítil áhrif á almenna vexti:
Um 40% alls sparnaðar
1988 í lífeyrissjóðum
„Miðað við óbreyttar reglur í viðskiptum Húsnæðisstofn-
unar og lífeyrissjóðanna, þar sem ákveðnum hluta ráðstöfun-
arfjár er varið til skuldabréfakaupa, er afar ólíklegt að
vaxtalækkun þar hafí bein árhrif á raunvexti almennt“. Þetta
er meginniðurstaða hagfræðinganefndar sem Samband al-
mennra lífeyrissjóða skipaði til að kanna - vegna erindis frá
Verkamannasambandinu - hvort vaxtalækkun í þessum
viðskiptum myndi lækka vaxtastigið í landinu samsvarandi.
Ef reglur væru sveigjanlegri,
þannig að bréfakaup sjóðanna væru
ekki bundin ákveðnu hlutfalli taldi
hagfræðinganefndin aftur á móti að
bein áhrif vaxtalækkunar gætu orðið
einhver, vegna þess hve skuldabréfa-
kaup lífeyrissjóðanna af Húsnæðis-
stofnun eru orðinn stór hluti láns-
fjármiðlunar í landinu.
Á hinn bóginn telur nefndin hugs-
anlegt að vaxtalækkun á þessum
bréfum gæti hugsanlega haft óbein
áhrif á lánamarkaðinn:
í fyrsta lagi gæti hún flýtt fyrir
almennri vaxtalækkun ef hún væri á
annað borð talin framundan.
f öðru lagi fest í sessi þá flokkun
lánþega eftir áhættu, sem þegar
mótar fyrir í bankakerfinu, þar sem
nú munar orðið rúmlega 2% á
vöxtum með hæsta og lægsta áhættu-
álagi.
Bent er á að eftir að ákvörðun
vaxta var gefin frjáls (1986) hafi
vextir spariskírteina og skuldabréfa
Húsnæðisstofnunar myndað nokk-
urskonar vaxtagólf eða lágmarks-
vexti til viðmiðunar, enda fylgi þess-
um viðskiptum mjög lítil áhætta.
Hvað varðar almenna vaxtalækk-
un sem orðið hefur síðustu tvo
ársfjórðunga áætla hagfræðingarnir
að almennur samdráttur, seðla-
prentun og sértækar aðgerðir til
hjálpar útflutningsfyrirtækjum hafi
vegið þyngra heldur en lækkun vaxta
á spariskírteinum og skuldabréfum
byggingarsjóða.
Eignir lífeyrissjóðanna eru taldar
rúmlega 70 milljarðar um síðustu
áramót, og því orðnar um 30% af
öllu innlendu lánsfé í landinu. Pað
hlutfall hafði þá hækkað úr rúmlega
20% í upphafi áratugarins.
Nýr peningalegur sparnaður í
landinu er talinn tæpir 25 milljarðar
á s.l. ári, hvar af rúm 40% (10
milljarðar) var nettó sparnaður líf-
eyrissjóðanna. Af þessum 10 millj-
arða nettó sparnaði sjóðanna runnu
55% til húsnæðissjóðanna. Árin
1982-1984 var þetta hlutfall aðeins
um og undir 10%.
Hlutfallsleg skipting útlána lífeyr-
issjóðanna hefur breyst stórlega á
undanförnum árum. Árið 1984 voru
lán til sjóðfélaga 64% allra útlána og
stór hluti þess sem eftir var fór
einnig óbeint í lán til sjóðfélaga gegn
um byggingarsjóðina. Það sem eftir
er fór að mestu í kaup á spariskír-
teinum ríkissjóðs (9%), en aðeins
1% í lán til fyrirtækja.
Á síðasta ári fóru aðeins 13%
lánanna beint til sjóðfélaga, en 55%
til byggingarsjóðanna. Lán til fyrir-
tækja og fjármálastofnana (banka)
höfðu hins vegar aukist úr 1% í 24%
á þessum fjórum árum. -HEI
SUMARNAMSKEIÐ FYRIR
VERÐANDIFORELDRA
Hingað til hefur ekki verið boðið
upp á námskeið fyrir verðandi for-
eldra yfir sumartímann vegna
sumarleyfa starfsfólks á heilsugæslu-
stöðvum. Nú hefur orðið breyting
þar á því tvær Ijósmæður, Guðrún
Ólöf Jónsdóttir og Hrefna Einars-
dóttir, munu hefja námskeiðahald
af þessu tagi í maíbyrjun t' félagsmið-
stöðvunum Árseli í Árbæ, Gerðu-
bergi í Breiðholti og Fjörgyn í
Grafarvogi.
Um er að ræða tvennskonar nám-
skeið. Hið fyrra er ætlað konum á
18.-22. viku meðgöngu en hið síðara
er ætlað konum á 24.-32. viku
meðgöngu. Heildartími hvors nám-
skeiðs fyrir sig verður 14 tímar sem
munu dreifast á sjö vikur hvort.
í fréttatilkynningu þar sem nám-
skeiðin eru kynnt segir að „þar sem
börn halda áfram að fæðast þrátt
fyrir sumarleyfi starfsfólks, þykir
okkur mjög brýnt að koma til móts
við óskir foreldra um úrbætur og
teljum einnig að þessa þjónustu eigi
að færa út í íbúðarhverfin þar sem
unga fólkið, hinir verðandi foreldr-
ar, býr.“
Námskeiðin eru að fyrirmynd
Sheilu Kitzinger og Michel Odent en
þau hafa haldið fram gildi „náttúru-
legrar fæðingar", að því tilskildu að
meðganga sé eðlileg og móðirin
Brynjólfur Bjarnason, fyrrverandi
alþingismaður og ráðherra, andaðist
í Hróarskeldu í Danmörku á sunnu-
dag, nfræður að aldri.
Brynjólfur var fæddur 26. maí
1898 á Hæli í Gnúpverjahreppi.
Foreldrar hans voru hjónin Bjarni
Stefánsson bóndi og kona hans
Guðný Guðnadóttir. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1918 og fór utan þá
um haustið til náms í náttúrufræði
við Kaupmannahafnarháskóla.
Brynjólfur var þar til 1923, lauk
prófi í forspjallsvísindum, og síðar
fyrrihlutaprófi í náttúrufræði. Hann
stundaði nám í heimspeki við Berlín-
arháskóla árin 1923-1924.
Hann var ritstjóri Verkalýðsblaðs-
ins 1930-1935 og alþingismaður
1937-1956. Brynjólfur sat á 24 þing-
um alls og var menntamálaráðherra
frá 21. október 1944 til 4. febrúar
1947. Hann var formaður Kommún-
istaflokks íslands frá upphafi til
1938, er Sameiningarflokkur alþýðu
var stofnaður. Hann var miðstjórn-
armaður þess flokks 1938-1951 og
átti sæti f miðstjórn flokksins, ásamt
því að gegna fleiri trúnaðarstörfum.
Brynjólfs B jarnasonar var minnst
á Alþingi í fyrradag. -ÁG
Brynjólfur Bjarnason
fv. þingmaður látinn
fullkomlega heilbrigð. Aðferð þeirra
byggir á þeirri forsendu að foreldr-
arnir sjálfir verði virkari þátttakend-
ur í undirbúningi fæðingarinnar og
fæðingunni sjálfri.
Þátttökugjald á námskeiðin er
5000 krónur, en þar er innifalin
ítarleg mappa með fræðsluefni.
Innritun fer fram í síma 675716
virka daga kl. 13:30 til 16:00 og eru
nánari upplýsingar veittar í sama
númeri. SSH
Málþing íslenskrar
málnefndar:
íslenskt mál
og menning
Á laugardaginn kemur verður
í Ársal Hótel Sögu haldið mál-
þing á vegum íslenskrar mál-
nefndar.
Þingið ber yfirskriftina „fs-
lenskt mál og menning á öld
gervitungla". Meðþessuframtaki
vill málnefndin minnast 25 ára
afmælis síns og leggja lið mál-
ræktarátaki menntamálaráðu-
neytisins.
Málþingið hefst klukkan eitt
með ávarpi forseta íslands, Vig-
dísar Finnbogadóttur. Frummæl-
endur verða tíu talsins og meðal
þeirra má nefna Ágúst Guð-
mundsson, Jón Óttar Ragnars-
son, Markús Örn Antonsson,
Thor Vilhjálmsson og fleiri.
Fjallað verður um íslenska
kvikmyndagerð og mál, íslenskt
hljóðvarp og sjónvarp og framtíð
tungunnar. Er þingið ætlað öllum
áhugamönnum um þessi málefni.
Að loknum framsögum verða
pallborðsumræður. Klukkan
fimm mun menntamálaráðherra
Svavar Gestsson segja fundi
slitið. jkb