Tíminn - 19.04.1989, Síða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 19. apríl 1989
jp Laugarvatn
Iþróttamið-
stöð íslands
Samkvæmt ákvörðun menntamálaráðherra verður íþrótta-
miðstöð íslands staðsett að Laugarvatni. Heimamenn eru
ánægðir með ákvörðunina og hefur Héraðssambandið Skarp-
héðinn sent frá sér ályktun þar sem henni er fagnað.
íþróttamiðstöðinni er ætlað það
hlutverk að vera aðsetur þeirra sem
þurfa á æfingaaðstöðu að halda um
nokkurt skeið. Árið 1987 skipaði
þáverandi menntamálaráðherra,
Sverrir Hermannsson, nefnd sem
ætlað var að skila áliti ásamt greinar-
gerð um stofnun íþróttamiðstöðvar-
innar. Nefndin lauk störfum seint á
síðasta ári og skilaði skýrslu til
núverandi menntamálaráðherra,
Svavars Gestssonar, um uppbygg-
ingu íþróttamiðstöðvar að Laugar-
vatni.
Nefndin leggur til að ríkið,
íþróttahreyfingin og hugsanlega
heimamenn sameinist um uppbygg-
inguna. Á staðnum er þegar íþrótta-
kennaraskóli, stórt íþróttahús og
góðir vellir. Vellina þarf að vísu að
lagfæra nokkuð áður en mögulegt
reynist að taka þá í notkun. „Nefnd-
inni þótti Laugarvatn ákjósanlegur
staður, þar sem flokkum gæfist tæki-
færi til að komast í æfingabúðir.
Jafnframt því sem einstaklingar sem
væru ef til vill að æfa fyrir ákveðnar
keppnir hefðu þarna aðstöðu" sagði
einn nefndarmanna Hannes f>. Sig-
urðsson í samtali við Tímann.
Nefndin leggur einnig til að
íþróttakennaraskólinn fái til afnota
húsnæði þar sem rekinn var Hús-
mæðraskóli Suðurlands í eina tíð.
Æskilegt er talið að farið verði hægt
og sígandi af stað með uppbygging-
una. Henni verði sfðan hraðað sam-
fara aukinni aðsókn. Til að byrja
með er lagt til að um tólf til fjórtán
milljónir verði settar í framkvæmd-
ina.
Heimamenn eru að vonum ánægð-
ir með fyrirhugaðar framkvæmdir
og hafa sent frá sér eftirfarandi
ályktun: „Sambandsráðsfundur
Héraðssambandsins Skarphéðins,
haldinn að Heimalandi sautjánda
apríl, fagnar þeirri ákvörðun Svav-
ars Gestssonar, menntamálaráð-
herra, að, að Laugarvatni verði
staðsett íþróttamiðstöð íslands."
Ályktunin var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum en fundinn
sóttu rúmlega fimmtíu fulltrúar að-
ildarfélaga og tuttugu og tveggja
nefnda sem starfa innan HSK. jkb
Fyrrverandi skógræktarstjori latinn
Hákon Bjarnason
Hákon Bjarnason fyrrverandi
skógræktarstjóri lést að morgni
sunnudagsins sextánda apríl, á 82.
aldursári.
Foreldrar Hákons voru Ágúst
H. BjarnasonogSigríður Jónsdótt-
ir. Hann fæddist árið 1907 þann
þrettánda júlí í Reykjavík.
Hákon lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1926
og prófi í skógræktarfræðum frá
skógræktardeild Landbúnaðarhá-
skólans í Kaupmannahöfn 1932.
Framhaldsnám í tilraunastatistik
stundaði hann við Rothamstead
Experimental Station í Englandi
og við Experimentalfáltet í Stokk-
hólmi.
Hákon gegndi embætti skóg-
ræktarstjóra frá árinu 1935 allt til
ársins 1977 og var jafnframt fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags ís-
lands í tugi ára. Þá var hann
framkvæmdastjóri við mæðiveik-
ivarnir frá 1937 til 1941, fulltrúi
Skógræktarfélags íslands í Nátt-
úruverndarráði frá árinu 1963, for-
maður félagsins Ísland-Noregur í
fjögur ár frá því 1960 og meðlimur
í Vísindafélagi íslands. Hann ritaði
og þýddi ýmsar bækur sem snerta
skógrækt og var ritstjóri Ársrits
Hákon Bjarnason
Skógræktarfélags fslands um ára-
bil. Hann stundaði einnig jarðvegs-
rannsóknir í starfi sínu og var
brautryðjandi á sviði öskulagar-
annsókna.
Hákon var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu árið
1954, stórriddarakrossi árið 1974
og hlaut einnig hina konunglegu
norsku Ólafsorðu.
Ný stjórn Sjálfsbjargar talið frá vinstri (aftari röð), Ruth Pálsdóttir,
Ragnar Gunnar Þórhallsson formaður, og Hildur Jónsdóttir. Fremri röð
f.v. Jón H. Sigurðsson og Sigurður Björnsson.
Sjálfsbjörg, félag fatlaöra í Reykjavíkog nágrenni:
Fagna góðri sölu
á rauðu fjöðrinni
Stjórn Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Reykjavík og
nágrenni fagnar góðum árangri Lionshreyfingarinnar í
landssöfnuninni „Léttum þeim lífið“ með sölu á rauðu
fjöðrinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu að
loknum aðalfundi sem haldinn var 30. mars sl.
Þá er lýst yfir ánægju með bygg-
ingu vistheimilis fyrir fjölfatlaða
að R-eykjalundi og bent á ótvíræð-
an rétt fjölfatlaðra einstaklinga til
að búa á eigin heimili með þeirri
þjónustu sem nauðsynleg er.
Stjórn félagsins lýsir einnig yfir
stuðningi sínum við samstarf og
fyrirhugað átak Samtaka endur-
hæfðra mænuskaddaðra og Áhuga-
hóps um bætta umferðarmenn-
ingu. Kynningu á afleiðingum um-
ferðarslysa og viðhorfum þeirra,
sem hafa fatlast af völdum slysa,
telur stjórn félagsins mikilvægan
þátt í að bæta umferðarmenningu
og breyta hugarfari og hugmyndum
almennings, þannig að fatlað fólk
verði metið til jafns við aðra þegna
þjóðfélagsins.
Til stendur að Sjálfsbjörg flytji í
nýtt húsnæði sem nú er í byggingu
að Hátúni 12, í Reykjavík. Þar
verður aðstaða fyrir skrifstofur og
samkomusalur, hvort tveggja sér-
staklega byggt með aðgang fatlaðra
í huga. -ABÓ
Útflutningur á hrossum til BNA vaxandi. Ingvar Karlsson fram-
w kvæmdastjóri:
„Utflutningstollar
undarleg meinloka“
„Það þarf að vera mjög hátt verð á graðhestum og merum
til útflutnings en það sem heldur verðinu niðri eru útflutnings-
tollarnir á þeim. Þessir tollar eru furðulegir og ég veit satt að
segja ekki hvar annars staðar útflutningstollar fyrirfínnast,“
sagði Ingvar Karlsson framkvæmdastjóri, en undanfarin tæp
fjögur ár hefur hann leitað markaða fyrir íslenska hesta í
BNA í samvinnu við ýmsa aðila, bæði í Bandaríkjunum og
hérlendis.
Upphaf þessa var að Ingvar Karls-
son og fleiri fóru með nokkra hesta
á hrossastefnu í Madison Square
Garden í New York, sem haldin er
annað hvert ár.
Nú bíður á annan tug hesta flutn-
ings til Bandaríkjanna og sagði Ingv-
ar að áhugi fyrir ísl. hestinum hefði
þar farið jafnt og þétt vaxandi. Að
meðaltali hafa árlega verið milli
tuttugu og þrjátíu hestar seldir
þangað.
Hann sagði að þarna væri um afar
áhugaverðan markað að ræða og
sagði: „Hefðu peningarnir sem not-
aðir hafa verið þennan tíma til að
kynna fjallalambið, farið í að kynna
hestinn í Bandaríkjunum, þá væru
þeir peningar nú margfaldlega
komnir til baka. Það er ég sannfærð-
ur um.“
Ingvar sagðist viss um að hrossa-
rækt og - útflutningur væri vaxtar-
broddur íslensks landbúnaðar en
ekki lambakjötsframleiðsla, minka-
eða refarækt.
„Þetta sem kallað er útflutnings-
tollur er svokallað stofnverndargjald
og er 10% af kaupverði hryssu og
20% af kaupverði stóðhests. Þá
gilda ákveðnár reglur um lágmarks-
verð á útfluttum kynbótahrossum til
að tryggja að uppgefið verð sé ekki
of langt frá raunveruleikanum ef svo
má að orði komast," sagði Svein-
björn Eyjólfsson í landbúnaðarráðu-
neytinu.
Sveinbjörn sagði að leyfi til út-
flutnings venjulegra hrossa þyrfti frá
viðskiptaráðuneytinu en væri um
kynbótahross að ræða þyrfti land-
búnaðarráðuneytið að veita leyfi að
fenginni umsögn Búnaðarfélags ís-
lands og framleiðsluráðs landbúnað-
arins. Þá þyrfti að greiða sjóðagjöld
eins og tíðkast um almennan útflutn-
ing og dýralæknir þarf að skoða
hrossin í útflutningshöfn og gefa út
heilbrigðisvottorð.
Hann sagði að útflutningur til
Bandaríkjanna færi vaxandi og væri
um áhugaverðan markað að ræða.
Hins vegar sæktust Svíar þessa
stundina mest eftir íslenskum
hestum, en töluvert væri einnig flutt
út til annarra Norðurlanda og V-
Þýskalands. -sá
Sauðárkrókur:
Tekjur bæjarfélagsins
rúmar 190 milljónir
Frá Guttormi Ólafssyni, frcttaritara Tímans á
Sauðárkróki.
Á fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks þriðjudaginn 11. apríl s.l. var
fjárhagsáætlun bæjarins og stofnana
hans samþykkt fyrir árið 1989. Allir
bæjarfulltrúar greiddu henni at-
kvæði sitt og bæjarfulltrúar Fram-
sóknarflokksins með sérstakri
bókun.
Stærstu tekjuliðir fjárhagsáætlun-
arinnar eru útsvör og aðstöðugjöld,
142.7 milljónir en fasteignagjöld 38
milljónir. Heildartekjur eru 193.8
milljónir króna.
Stærstu útgjaldaliðireru almanna-
tryggingar og félagshjálp, 36.9 millj-
ónir, fræðslumál 31.3 milljónir, yfir-
stjórn sveitarfélagsins 22.9 milljónir,
heilbrigðismál 8.0 milljónir,
æskulýðs- og íþróttamál 11.0 millj-
ónir.
SÍMI1
Klukkan 19:00 í fyrrakvöld tók til
starfa svokallaður „Trúnaðarsími"
sem er starfræktur af Ungmenna-
hreyfingu Rauða Kross íslands. Um
er að ræða símaþjónustu fyrir fólk á
aldrinum 18-30 ára og er hún opin
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 19:00-22:00.
Fjármagnskostnaður að frádregn-
um fjármagnstekjum 41 milljón. Til
frádráttar frá rekstri eru aðeins 7.8
milljónir.
í fréttatilkynningu frá Ungmenna-
hreyfingu Rauða Krossins segir:
„Við erum tilbúin að taka þátt í
sorgum þínum og gleði. Veita svör
og afla upplýsinga um leiðir til
lausnar og ræða viðkvæm mál í
fullum trúnaði.“ SSH