Tíminn - 22.04.1989, Blaðsíða 3
Laugardagur 22. apríl 1989
HELGIN
13
Mytton ríður á birninum inn til gesta sinna.
Sérvitringar eru
athyglisvert fólk
Enskur sálfræðingur hef-
ur rannsakað þennan
merkilega hóp manna
David Weeks nefnist enskur sál-
fræðingur, sem taldi sig vera búinn
að kynnast öllum gerðum afbrigði-
legrar hegðunar manna. En þá
varð fyrir honum hópur sem með
uppátækjum sínum tók öllum öðr-
um fram. Það voru allra handa
sérvitringar.
Meðal þeirra var bókavörður-
inn, sem engu tækifæri sleppti til
þess að láta sig síga á reipi niður
veggi hárra húsa, klæddur eins og
hann væri bleikur fíll. Þá var það
gamla konan, sem vissi ekki meiri
kurteisi er hún tók á móti gestum
en að liggja endilöng í líkkistu er
þeir komu inn úr dyrunum. Enn
var það verktakinn, sem gerði
hundinn sinn að forstjóra í fyrir-
tækinu. Hundurinn átti að minna
starfsliðið á að dingla rófunni. Svo
ekki sé minnst á manninn, sem
alltaf svaf með svín er hann átti í
rúminu hjá sér.
Weeks rannsakaði þessa ein-
staklinga og 126 aðra í þrjú ár,
spurði þá spjörunum úr, lét þá
gangast undir greindarpróf og
annað. Niðurstöðurnar eru í þá
veru að þetta fólk sé gætt meiri
sköpunargáfu en aðrir, forvitnara,
viljasterkara og greindara. Það vill
með uppátækjum sínum greina sig
frá hinum leiðinlega meirihluta
fólks.
Einn er verkfræðingur sem sinnir
öryggismálum og gengur að störf-
um sínum íklæddur grænum kufli,
eins og Hrói höttur. Annar gengur
út úr húsi sínu á hverju kvöldi og
leggst fyrir í helli, sem hann hefur
gert sér i garðinum. Þá er maður
sem komið hefur sér upp meira en
7000 dvergamyndum í garðinum
hjá sér. Frægur varð maðurinn sem
gerði sér það til skemmtunar að
ganga aftur á bak frá Sheffield til
Huddersfield. “Sérviska er ekki
geðbilun," segir enski rithöfundur-
inn Edith Sitwell, sem sjálf er mjög
sérvitur. „Hún er saklaus tegund af
stolti.“
En því miður reyndust Weeks
sérvitringarnir hafa mikla tilhneig-
ingu til taugaveiklunar og
þriðjungur sýndi tilhneigingu til
geðklofa. Og svo var að sjá sem
sérviskan gengi í ættir. Einn sér-
vitringur sagði svo frá:
„Móðir mín þoldi ekki stiga.
Hún lét fjarlæga alla stiga úr húsum
þar sem hún bjó með mestu
ánægju. Því varð að nota málara-
stiga utanhúss til þess að komast
milli hæða. Eitt sinn lét hún rífa
allt innan úr húsi, svo hún gæti
fjarlægt stigaganginn."
Sérvitringar hafa verið til á öllum
öldum og einkum voru þeir margir
Edith Sitwell: „Sérviska er eins
konar saklaust stolt.“
á síðustu öld. Meðal þeirra var
gósseigandinn Mytton, sem gaman
hafði af að koma gestum sínum á
óvart með skrýtnum uppátækjum.
Oscar Wilde: „Bráðnauðsynlegt
í lífinu að vera dálítið skrýtinn."
Eitt sinn kom hann klæddur veiði-
búningi inn í borðsal sinn ríðandi
á bjarndýri, sem hann keyrði
sporum. Má ímynda sér uppnámið
meðal gestanna. Lafði Eglintoune
nokkur lét dýrin sín ætfð sitja til
borðs með sér, þar á meðal tólf
rottur, sem komu þjótandi, þegar
hún sló með fingri á kassa sem þær
bjuggu í.
Edward James, óskilgetinn son-
ur Edwards VII., hafði stóra kyrki-
slöngu hjá sér í húsinu og hann var
með 30 sentimetra langar negiur á
tánum. Því gekk hann á stultum er
hann fór í gönguferðir með slöng-
una vafða utan um sig.
Já, á nítjándu öldinni þótti það
næstum til heyra að hafa einhverja
sérvisku, a.m.k. í Englandi. Þetta
var Oscari Wilde ljóst, sem löngum
var laginn að koma á óvart með
einhverju furðulegu. „Það er
bráðnauðsynlegt í lífinu að vera
dálítið skrýtinn," sagði hann líka.
BÍLAR DAGSINS
ÚRVAL NOTAÐRA LADA SPORT
OG LADA SAMARA
Tegund Árgerð Ekinn
Lada Sport5g. 1988 9.500 km.
Lada Sport4g. 1988 15.000 km.
LadaSport5g. 1987 30.000 km.
LadaSport4g. 1987 20.000 km.
LadaSport5g. 1986 31.000 km.
LadaSportSg. 1986 56.000 km.
LadaSport4g. 1986 34.000 km.
LadaSport4g. 1986 50.000 km.
LadaSport4g. 1985 31.000 km.
Lada Samara 1500 5 g. 1988 16.000 km.
Lada Samara 1300 5 g. 1988 15.000 km.
Tökum vel með farna Lada bíla upp í nýja.
Opið kl. 9-18 virka daga
og laugardaga kl. 10-14.
Heitt á könnunni.
Vélsleóasalan
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
840 60 'S 6812 00
Suðurlandsbraut 14
5 22 a Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Barónsstíg 47
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir að
ráða starfsfólk til afleysinga, sem hér segir:
Við heimahjúkrun - hjúkrunarfræðinga á kvöld
og næturvaktir. Um er að ræða hlutastörf.
- Sjúkraliða - vaktavinna.
Við Barnadeiid - hjúkrunarfræðinga.
Við Mæðradeild - Ijósmæður.
Einnig vantar móttökuritara á hinar ýmsu
deildir.
Upplýsingar um ofangreind störf gefur hjúkrunar-
forstjóri í síma 22400.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur á eyðublöðum sem þar fást,
fyrir k. 16.00, þriðjudaginn 2. maí n.k.
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Stóragerði
Á Borgarskipulagi er verið að vinna tillögur að
breytingum Stórgerðis.
íbúum Stóragerðis og öðrum sem áhuga hafa á
bættu umferðaröryggi í götunni er bent á að kynna
sér tillögurnar og greinargerð á Borgarskipulagi
Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, alla
virka daga milli kl. 8.30-16.00 frá föstudegi 14.
apríl til föstudags 28. apríl 1989.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila skrif-
lega á sama stað innan tilskilins frests.
Borgarskipulag Reykjavíkur.