Tíminn - 29.04.1989, Side 15
Laugardagur 29. apríl 1989
Tíminn 27
MINNING
nægjanlega til fjár af þjóðfélaginu.
Eg man alltaf eftir þegar verið var
í heyskap og tíð var góð, þá var ekki
hætt slætti fyrr en séð var að nóg væri
heyjað, heldur var haldið áfram að
re'ftum og heyforðinn oft það mikill
að dugði jafnvel til tveggja ára.
Þetta kom sér stundum vel og man
ég sérstaklega eftir óþurrkasumrinu
1955 þegar margir bændur lentu í
vandræðum vegna heyleysis, þá voru
til nóg hey á Laxfossi. Ég minnist
þess hvað Jón var mikill fjármaður,
það var með ólíkindum hvernig
hann þekkti kindurnar sínar í sundur
með nöfnum langt úti í haga. í
réttunum var hann aldeilis í essinu
sínu, en þar var hann manna marka-
gleggstur og ávallt til hans leitað
þegar skera þurfti úr um vafamál.
Þær voru margar smalamennskurnar
og réttirnar sem ég fór í með Jóni á
þeim árum sem ég var á Laxfossi og
verða þær stundir ógleymanlegar
meðan ég lifi. Ég þakka kynni mín
við Jón Snorrason á Laxfossi. Konu
hans, syni og aðstandendum sendi
ég mínar samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning hans.
Guðmundur G. Vigfússon
Á sumardaginn fyrsta, þann 20.
apríl síðastliðinn, lést vinur okkar
og nágranni Jón Snorrason bóndi á
Laxfossi. Jón var fæddur á Laxfossi
5. nóvember 1896. Foreldrar hans
voru þau Guðrún Sigurðardóttir frá
Efstabæ í Skorradal og Snorri Þor-
steinsson frá Húsafelli sem voru
búendur á Laxfossi um margra ára
skeið. Jón ólst þar upp í stórum
systkinahóp, sem ég kynntist einnig
sem góðra nágranna og minnist ég
þeirra með hlýhug, Þorsteins á
Hvassafelli og Sigurðar á Gilsbakka
sem báðir voru dugandi bændur og
félagsmálamenn. Einnig minnist ég
systranna tveggja sem Iengi voru í
skjóli bróður síns á Laxfossi og hans
ágætu konu Hólmfríðar Sigurðar-
dóttur frá Veiðilæk. Þau gengu í
hjónaband 23. janúar 1948 og eign-
uðust einn son Jakob að nafni. Hann
er búsettur í Borgamesi ásamt fjöl-
skyldu. Ég þekkti lítið til lífshlaups
Jóns á yngri árum en veit þó að hann
var einn af stofnendum Ungmenna-
félags Stafholtstungna og sat þar í
hreppsnefnd og tók þátt í félagsmál-
um af einurð og festu, fór ekki dult
með skoðanir sínar, en vildi hvers
manns vanda leysa. Þegar ég læt
hugann reika til liðinna ára verður
mér efst í huga allar ánægjustundir
með þessu hispurslausa náttúmbarni
sem undi sér svo vel við leik og starf
úti í guðsgrænni náttúrunni, eins og
sagt var svo oft þegar gengið var til
búsmala.
Fyrst þegar ég sá Jón kom hann
ríðandi á brúnum hesti, kvaddi dyra
og sagði: „Mig langaði svo að sjá
þessa nýju granna mína.“ Þá vorum
við nýflutt í Hreðavatnsskála. Mað-
urinn talaði óvenjulega hreint og
skýrt mál, heldur í hærra lagi, tók
þétt og hlýtt í hönd mér sem hann
gerði oft síðar og þá gjarnan með
báðum.
Við áttum margar ánægjustundir
við smölun og var þá ekki legið á liði
sínu. Ég held að Jóni hafi hvergi
liðið betur en fram til fjalla á haust-
dögum og sjá lagðprúða hjörð koma
til réttar. í réttinni undi hann sér vel,
fljótur og glöggur á mörk og fénað,
manna kátastur þó hann neytti aldrei
víns. Þannig man ég þennan heið-
ursmann best. En það var margt
fleira sem gerði hann minnisstæðan.
Hann var laus við alla sýndar-
mennsku, bar lítið á, eyddi ekki um
efni fram og heimtaði ekki hærri
laun að kvöldi en aflað hefði verið.
f dag er borinn til moldar einn
merkasti myndlistarmaður okkar ís-
lendinga úr hópi þeirra er fram
komu á sjónarsviðið á sjöunda ára-
tugnum.
Jón Gunnar Árnason var aðal-
hvatamaður að stofnun SÚM, Ný-
listasafnsins og Myndhöggvarafé-
lagsins og vann þar afar fórnfúst og
óeigingjarnt starf.
Jón Gunnar tók sæti í safnráði
Listasafns íslands, sem annar fulltrúi
SÍM, síðastliðið haust, samkvæmt
nýjum lögum um Listasafnið. í öll-
um málum var hann ráðhollur og
vandvirkur. Hann var fordómalaus,
en mjög næmur og kröfuharður í
afstöðu sinni til allrar myndlistar,
sem er einkenni allrar góðra lista-
manna. Hann var drengur góður og
skemmtilegur með afbrigðum.
Að leiðarlokum vill Listasafn fs-
Hann bjó góðu búi, fór vel með
fjármuni og var tryggur samvinnu-
maður. Ég hygg að aðrir hafi meira
notið ráðdeildar hans en séð verður
í fljótu bragði. Það þurfa að vera til
fjármunir í lánastofnunum sem
menn hafa sparað með hagsýni svo
aðrir sem verr séu á vegi staddir geti
fengið lán. Einn vinur hans sagði
mér að aldrei muni hann háfa verið
ábyrgðarmaður á víxli, en sagði
gjarnan við slíkri beiðni: „Á ég ekki
heldur að Iána þér?“ Slíkt gera ekki
neinir meðalmenn.
Jón var leiguliði alla tíð og þótti
mér, sem mörgum öðrum, það mið-
ur því Laxfoss er ein af mestu
hlunnindajörðum í héraði en var
ekki látin njóta svo ég sæi í uppbygg-
ingu, en er vel í sveit sett og snotur
bújörð. Nú er þar allt í eyði því þau
voru flutt í Borgarnes fyrir nokkrum
árum. Enn má sjá hlaðvarpann
grænka fyrst allra túna.
Að endingu vil ég þakka fyrir
hönd allrar fjölskyldunnar sem var í
Hreðavatnsskála velvildina og alla
góðu kaffisopana sem við þáðum við
eldhúsborðið hjá ykkur Fríða mín,
og börnin minnast þess hvað þeim
þótti gaman að koma að Laxfossi,
leidd um allan bæ og sýndir munir
sem ekki voru í hvers manns ranni,
vettlingar og sokkar, sem voru svo
hlýir, var oft kærkomið veganesti.
Með virðingu og þökk kveðjum
við þennan aldna nágranna sem
jarðsunginn verður í dag, laugardag
29. apríl 1989, frá Borgarneskirkju.
Guð veri með þér og þinni fjölskyldu
Fríða mín.
Samúðar kveðjur.
Leópold Jóhannesson.
lands þakka Jóni Gunnari störf hans
í þágu safnsins og ómetanlegan skerf
til íslenskrar myndlistar.
Kveðjafrá
Listasafni íslands
SUMARTÍMI
Vinsamlega athugiö
að skrifstofur okkar veröa opnar
frá kl. 8:00 til kl. 16:00 frá 2. maí nk.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3
Sendum félögum okkar, verka-
fólki til lands og sjávar bestu
kveðjur og árnaðaróskir í til-
efni 1. maí.
Alþýðubankinn hf.
Sendum félögum okkar, verka-
fólki til lands og sjávar bestu
kveðjur og árnaðaróskir í til-
efni 1. maí.
Verkalýðsfélagið Jökull,
Austur-Skaftafellssýslu.
Sendum félögum okkar, verka-
fólki til lands og sjávar bestu
kveðjur og árnaðaróskir í til-
efni 1. maí.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis.
Sendum félögum okkar,
verkafólki til lands og sjávar
bestu kveðjur og árnaðar-
óskir í tilefni 1. maí.
Hraðfrystihús Hvals hf.
Rafiðnaðarsamband
íslands
og aðildarfélög þess senda
öllu vinnandi fólki bestu
árnaðaróskir í tilefni af 1.
maí.
Gleðilega hátíð!
Stjórnin.