Tíminn - 11.05.1989, Page 20
680001 — 686300
Atjan man. binding
RÍKISSKIP § 7,5%
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 | SAMVINNUBANKINN |
ÞRDSTUR
685060
VANIR MENN
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
9
Tniiinn
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ1989
1,5% gengisfelling Seðlabankans fer
illa í verkalýðsforingjann Guðmund J. Guðmundsson:
Gengisfellingin
hefði mátt bíða
Bankaráð Seðlabankans lækkaði í gær gengi íslensku
krónunnar um 1,5% og hefur gengi erlendra gjaldmiðla verið
skráð í samræmi við það. Er þetta gert að fcngnu samþykki
ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Hefur ríkisstjórnin
jafnframt fallist á tillögur Seðlabankans um heimild til að skrá
gengi íslensku krónunnar allt að 2,25% undir eða yfir því
meðalgengi sem nú hefur verið ákveðið.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði í viðtali
við Tímann í gær að betur hefði farið
á því að bíða með þessa gengisfell-
ingu. Einnig væri það leiðinlegt að
ekki sé samtímis gengið til verulegr-
ar lækkunar á raunvöxtum. Það væri
þó Ijóst að ekki væri verið að svíkja
nein loforð í tengslum við nýlega
afstaðna kjarasamninga. „Eað eru
mjög margir launþegar í miklum
erfiðleikum núna vegna afborgana
lána með háum raunvöxtum plús
lánskjaravísitölu. Það þarf ekki að
líta á önnur lán en þau sem veitt eru
af h'feyrissjóðum verkalýðsfélag-
anna,“ sagði Guðmundur J. Taldi
hann gengisfellingu sem þessa auk
þess ekki vera þá vítamínsprautu
fyrir útflutningsgreinar sem dygði.
í nýgerðum kjarasamningum fóru
forsvarsmenn þessara atvinnugreina
fram á 7-11% gengisfellingu, en það
var ekki samþykkt í þeim viðræðum
sem þá fóru fram við ríkisstjórnina.
í frétt frá Seðlabankanum segir að
áðurnefndar ákvarðanir í gengismál-
um séu teknar með hliðsjón af
kostnaðarhækkunum sem útflutn-
ings- og samkeppnisgreinar hafa tek-
ið á sig með nýgerðum kjarasamn-
ingum og því samkomulagi er gert
var milli atvinnurekenda og ríkis-
stjórnar þá.
Á hinn bóginn telur Seðlabankinn
mikilvægt að hugsanleg frekari geng-
isaðlögun eigi sér stað í áföngum.
Þannig verði betur hægt að taka tillit
til breytinga á aðstæðum eins og t.d.
verði helstu útflutningsafurða og
breytinga á gengi helstu viðskipta-
gjaldmiðla íslendinga.
Við nýja gengisskráningu í gær
voru kaup á Bandaríkjadollar skráð
á 54,36 kr., sterlingspundi kr.
90,583, vestur-þýsku marki kr.
28,476, japönsku yeni kr. 0,404 og
danskri krónu á 7,318 kr. svo dæmi
séu tekin. KB
Framhaldsskólanemar gefast upp á verkfallinu:
Hættir í skólanum
og vilja vinnu strax
Skólafólk virðist hafa misst alla
trú á að lausn á verkfalli kennara sé
í sjónmáli. Að minnsta kosti hafa
krakkarnir þyrpst út á vinnumarkað-
inn og starfsmönnum ráðningarskrif-
stofa ber saman um að þeir vilji
byrja vinnu strax. Kennarar virðast
aftur á móti ennþá trúa á starfið og
hafa ekki sótt meira í framtíðarstörf
en venja er til á þessum árstíma.
Nokkuð margir hafa samt sem áður
sótt um sumarvinnu, sem byrjar um
mánaðamótin.
„Skólakrakkar hafa streymt til
okkar undanfarið með umsóknir um
atvinnu, en þetta mikill fjöldi hefur
venjulega ekki komið svona
snemma. Þau eru orðin mjög óþolin-
móð og vilja byrja að vinna strax,
vilja ekki bíða eftir prófunum eða
neinu. Þau segjast ekkert vita hvern-
ig þetta verður og að þau geti ekki
beðið eftir lausn kennaraverkfalls-
ins. Því miður er bara ekki neina
vinnu að fá eins og er. Sú atvinna
sem við bjóðum upp á hér byrjar
ekki fyrr en fyrsta júní. Þá hafa
nokkrir kennarar sótt um leiðbein-
endastörf hjá okkur, en sá umsókn-
arfrestur rann út fyrir tíu dögum. En
það hefur ekki verið meira en undan-
farin ár,“ sagði starfsmaður Ráðn-
ingarskrifstofu Reykjavíkurborgar í
samtali við Tímann.
Það sama var uppi á teningnum
hjá flestum ráðningarskrifstofum í
einkaeign, sem Tíminn hafði sam-
band við. „Það hefur verið nokkuð
jafn straumur skólafólks til okkar
undanfarið, en þá helst f sambandi
við sumarstörf. Við höfum þó orðið
vör við að krakkarnir eru mjög
óöruggir þar sem þeir vita ekkert
hvað verður,“ sagði starfsmaður
Liðsauka hf.
„Það hefur verið svolítið um það
að krakkarnir hafa hreinlega hætt í
skóla, farið að leita sér að vinnu og
vilja byrja strax. Hins vegar gengur
þeim erfiðlega að fá sumarvinnu.
Einhverjir kennarar hugsa sér alltaf
til hreyfings á þessum árstíma, en
við höfum ekki orðið vör við að það
væri meira en undanfarin ár,“ sagði
einn starfsmanna Hagvangs.
Starfsumsóknir hjá ráðningar-
skrifstofu stúdenta sem nýlega opn-
aði, eru meira en tvöfalt fleiri en í
fyrra. „Á sama tíma í fyrra lágu inni
um tvö hundruð umsóknir en nú eru
þær yfir fimm hundruð. Þetta eru
krakkar allt niður í þá sem eru á
fyrsta ári í menntaskóla. En það er
mjög erfitt fyrir framhaldsskólanem-
ana að segja til um hvenær þeir geta
byrjað og þeir vita í raun ekkert
hvað þeir eiga að gera. Margir
krakkanna, einkum þeir sem koma
úr fjölbrautaskólum, eru því hættir í
skólanum og vilja fá vinnu strax,“
sagði einn starfsmannanna. jkb
Bílvelta á Reykjanesbraut:
Ungur maður lést
og annar slasaðist
Ungur maður lést eftir að bifreið sem var farþegi í bílnum slasaðist
sem hann ók fór út af Reykjanes- og var hann fluttur á sjúkrahús í
braut og valt, skammt vestan við Reykjavík. Ekki er að fullu Ijóst
Grindavíkuraflcggjarann um hvernig slysið vildi til. -ABÓ
klukkan 12.30 í gær. Ungur maður
Félagar úr Módelsamtökunum sýndu framleiðsluvörur fyrirtækisins.
T ímamynd Árni Bjamn
Byggðastofnun kaupir hlut í ullarvörufyrirtæki:
Atak til eflingar
smærri fyrirtækja
Byggðastofnun hefur keypt
50% hlutafjár í uilarvörufyrirt-
ækinu Árblik hf. í Garðabæ og
iðnaðarráðuneytið og Iðnlána-
sjóður munu leggja fram fé til
sölu- og markaðsátaks. Geng-
ið var frá samkomulagi þessa
efnis í gær, en á vegum iðnað-
arráðuneytisins hefur undan-
farna mánuði verið unnið að
lausn rekstrarvanda smærri
ullarfyrirtækja, sem átt hafa í
miklum framleiðslu- og mark-
aðserfíðleikum. Auk þess hef-
ur verið unnið að því að treysta
stöðu stóru útdutningsfyrir-
tækjanna, Álafoss hf. og Hildu
hf. m.a. með því að koma á fót
sameiginlegu markaðsfyrir-
tæki þeirra í Bandaríkjunum.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
sagði á fundi sem haldinn var af
þessu tilefni að undanfarið hafi
verið unnið mikið starf í að efla
fjárhagslega undirstöðu ullariðn-
aðarins, leggja honum lið við
markaðsöílun og vöruþróun. Sagði
hann að hér væri um að ræða einn
þátt í þvf-starfi. Miklar vonir væru
bundnar við starfsemi Árbliks og
vonast væri til að þetta yrði upphaf-
ið á nýjurn uppgangi í ullariðnaði,
scm drcgist hefði saman á undan-
förnum árum.
Ástæðuna fyrir því að ákveðið
var að styðja við ullarvörufyrirtæk-
ið Árblik, til útflutningsátaks, má
rekja til þess að ekki hefur náðst
samstaða um samstarf annarra að-
ila.
Ullarvörumarkaðir hafa verið
mjög erfiðir á undanförnum árum,
en ýmislegt bendir til að markaðs-
aðstæður fari batnandi á næstunni.
Sala Árbliks sem af er þessu ári
hefurgengið mjög velogsöluaukn-
ingin áætluð um 60%, miðað við
árið 1988. Ágúst Þór Eiríksson
framkvæmdastjóri Árblikssagði að
búið væri að selja vörur fyrir um 50
milljónir króna og stefnt væri að
því að selja vörur fyrir yfir 100
milljónir króna á þessu ári. Fyrir-
tækið seiur ullarlínuna undir vöru-
nterkinu Icewear, en bómullarp-
eysur undir vörumerkinu Coral.
Framleiðslan er seld víðsvegar
um heim, í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Frakklandi, Noregi og í
Japan, en ákveðið hefur verið að
beina átakinu að mörkuðum í
Bretlandi og V-Þýskalandi.
Á vegum Árbliks starfa sjö
prjónastofur víðsvegar um land,
með samtals um 70 ársverk. Fyrir-
tækin eru Akraprjón hf. á Akra-
nesi. Borg hf. i Víðidal, Drífa hf.
á Hvammstanga, Gæði hf. í Vt'k,
Prýði hf. á Húsavík, Sveinsstaðir í
Blönduóshreppi og Vaka hf. á
Sauðárkróki. Ágúst Þór sagði að
þessum fyrirtækjum væru tryggð
næg verkefni og væri útlit fyrir að
bæta þyrfti við fleiri framleiðslufyr-
irtækjum í náinni framtíð. -ABÓ