Tíminn - 03.06.1989, Page 5
Laugardagur 3. júní 1989
Tíminn 5
Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR undrandi yfir að skjöl frá stofnuninni skyldu fara í umferð án hans leyfis:
Mun RLR kanna hver
útvegaði Ijósritin?
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræöingur Magnúsar Thor-
oddsen, hefur lagt fram skjöl í Borgardómi, sem virðast
upprunnin úr skjalasafni ÁTVR. Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR segist ekki hafa veitt leyfí fyrir því að skjöl þessi yrðu
Ijósrituð eða að Jóni Steinari yrði veittur aðgangur að
skjölunum, sem hafa að geyma upplýsingar um áfengispant-
anir ráðuneyta frá í fyrra.
TO álita kemur að fela rannsóknarlögreglu ríkisins að
rannsaka hver hafi komið skjölunum í hendur verjanda
Magnúsar.
Tíminn komst yfir ljósrit af Ijósrit-
um þeim er Jón Steinar hefur lagt
fram í málsvörn sinni. Hann afhenti
sjónvarpsfréttamönnum slík ljósrit
við málflutninginn og fékk Tíminn
náðarsamlegast að taka ljósrit af
þeim hjá Halli Halissyni. Við fórum
með ljósritin til Höskuldar í gær og
eftir að hafa litið yfir þau taldi hann
fullvíst að þau væru Ijósrit af skjölum
í skjalasafni ÁTVR.
Hefur þú einhverjar skýringar á
hvernig skjölin hafa komist í hendur
Jóns Steinars?
„Nei. Við látum aldrei af hendi,
alveg sama hver í hlut á, að undan-
skildu fjármálaráðuneyti og ríkis-
endurskoðun, skjöl sem varða við-
skipti einstakra aðila við þessa
stofnun. Þessi skjöl hefur hvorki
ríkisendurskoðun né fjármálaráðu-
neytið beðið um,“ sagði Höskuldur
Jónsson forstjóri ÁTVR.
- Hefur Jón Steinar farið þess á
leit við þig að fá þessi skjöl?
„Nei. Engin ósk hefur borist um
þessi skjöl sérstaklega. Hins vegar
var þess óskað í upphafi, af Jóni
Steinari að við létum í té upplýsingar
um viðskipti okkar við einstaka
aðila. Því var hafnað bréflega og ég
held að enginn ágreiningur sé um að
slíkt er viðurkennd verklagsregla
hér.“
- Varðst þú ekki hissa þegar þú
sást þessi skjöl í sjónvarpinu?
„Ekki aðeins hissa heldur mjög
leiður yfir því að þessi skjöl skyldu
fara út fyrir þessa stofnun. Ég veit
það að starfsfólk hér er ákaflega
miður sín að þau skuli vera í
umferð.“
- Munt þú reyna að komast að því
með hvaða hætti þessi skjöl komust
út fyrir stofnunina?
„í fyrsta lagi er sjálfgefið að við
þurfum að gæta okkar skjala betur
en gert hefur verið fram til þessa. í
öðru lagi verður það að teljast
sanngjörn krafa að ég reyni að
grafast fyrir um það hvernig þessi
skjöl fóru út, aðallega vegna allra
þeirra starfsmanna er hér starfa."
-Telur þú að þessum skjölum hafi
verið stolið?
„Ég veit ekki með hvaða hætti þau
voru Ijósrituð hér. Ég veit ekki betur
en að þessi skjöl muni að finna í
skjalasafninu og hefur því ekki verið
stolið í þeirri merkingu að þau hafi
verið fjarlægð.“ Höskuldur fór inn í
skjalageymsluna og gekk úr skugga
um að þau væru til staðar. Höskuld-
ur staðfesti að ljósritunarvél væri til
staðar í húsinu.
- Munt þú spyrja Jón Steinar um
það hvernig hann komst yfir þessi
skjöl?
„Ég geri ekki ráð fyrir því að verði
þetta mál rannsakað með venjuleg-
um hætti, muni ég stjórna þeirri
rannsókn.“
- Hvað áttu við með venjulegri
rannsókn?
„Ég gæti farið þá leið, sem vana-
lega er farin þegar skjöl eru með-
höndluð með öðrum hætti en eðlilegt
mætti teljast. Það er að biðja utan-
komandi aðila um að kanna það.“
- Þá væntanlega rannsóknarlög-
reglu ríkisins?
„Að öllum líkindum," sagði
Höskuldur.
Tíminn náði tali af Friðgeiri
Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR skoðar Ijósritin og segir þau vera úr skjalasafni stofnunarinnar. Tímmnynd Pjctur
Björnssyni borgardómara, einum
þeirra sem dæma munu í máli Magn-
úsar og spurði hann hverju máli það
skipti ef í ljós kæmi að skjöl væru
efnislega stolin, sem lögð hefðu
verið fram fyrir réttinum. Hann vildi
ekki tjá sig um málið þar sem það
væri á mjög viðkvæmu stigi, búið
væri að dómtaka það.
Jón Steinar Gunnlaugsson, verj-
andi Magnúsar Thoroddsen vildi
ekki upplýsa Tímann frekar en aðra
um hvernig hann komst yfir skjölin
umræddu. Vitnaði Jón Steinar til
áskorunar ríkislögmanns við mál-
flutninginn, þar sem hann skoraði á
Jón Steinar að gera grein fyrir því
hvernig skjölin hefðu komist í hans
hendur. Jón Steinar neitaði, á sama
hátt og Arnar Páll fréttamaður neit-
aði að svara spurningu Jóns Steinars
um hver hefði verið heimildarmaður
hans að fréttaflutningi af málinu í
upphafi. Þess má geta að ríkislög-
maður taldi að skjölin hefðu verið
fengin með ólögmætum hætti, alla-
vega vafasömum hætti og því skoraði
hann á verjanda að upplýsa hið
sanna í málinu.
Jón Steinar neitaði alfarið að ræða
þessi mál við blaðamann Tímans.
Þó svo sönnur verði færðar á það
síðar, með lögreglurannsókn að
skjölunum hafi efnislega verið
stolið, hefur það ekki áhrif á niður-
stöðu dómsins í máli Magnúsar. Það
var niðurstaða þeirra lögfróðu
ntanna sem Tíminn bar þetta undir
í gær. Vitnuðu menn til þess að í
einkamálalögum væri ekki fjallað
um sönnunargögn sem fengin væru
með ólögmætum hætti.
Tímanum var bent á að samkvæmt
lögum um opinbera starfsmenn bæri
þeim að sýna trúnað í starfi og sá
sem hefði ljósritað skjölin, hefði
örugglega ekki haft þá reglu í huga
þegar hann Ijósritaði skjölin og slíkt
gæti verið refsivert athæfi.
Þá hafa menn velt því fyrir sér
hvernig standi á að Jón Steinar fór
ekki fram á úrskurð dómara fyrir því
að umrædd skjöl yrðu lögð fram.
Slíkt hefði sennilega reynst auðsótt
mál.
-ES
Greiösla sjúklinga til lækna og fyrir rann-
sóknir og lyf hækkaði 1. júní:
Meðul hækka
í 550 krónur
skal samlagsmaður, sem áður
segir, greiða honum 630 kr. hverju
sinni. Sömuleiðis skal hann greiða
fyrstu 630 krónurnar af kostnaði
hverrar rannsóknar á rannsóknar-
stofu eða hjá sérfræðingi og einnig
fyrstu 630 krónurnar af kostnaði
við hverja röntgengreiningu. Þó
þurfa elli- og örorkulífeyrisþegar
aðeins að greiða 215 krónur í hvert
skipti, fyrstu 12 skiptin á hverju
ári, en síðan ekkert ef hann þarf að
leita þessarar þjónustu oftar á ári.
Hvað varðar sérfræðihjálp og
rannsóknir má þó aldrei krefja
sjúkling um nema eina greiðslu
fyrir hverja komu, hversu margar
tegundir rannsókna ásamt viðtali
er um að ræða.
Öll þau gjöld sem hér hafa verið
rakin hækkuðu síðast fyrir einu
ári, þann 1. júní 1988. -HEI
Sá hlutí kostnaðar sem sjúkling-
ur á að greiða læknum vegna
vitjana og fyrir afgreidd lyf út á
lyfseðla hækkaði þann 1. júní.
Fyrir hvert viðtal á stofu heim-
ilislæknis (samlagslæknis) skal nú
greiða 190 kr., en 350 kr. ef
læknirinn vitjar sjúklings. Þeir sem
vitja sérfræðings skulu aftur á móti
greiða 630 kr. hverju sinni.
Fyrir hverja afgreiðslu á lyfi á
samlagsmaður að borga fyrstu 550
krónur verðsins en sjúkrasamlag
það sem á vantar á fullt verð. Elli-
og örorkulífeyrisþegar þurfa þó
aðeins að borga 170 kr. fyrir hverja
lyfjaafgreiðslu. Ef lyf kostar ekki
meira, eða jafnvel minna en áður-
nefndar upphæðir greiðir samlags-
maður það verð.
Fyrir heimsókn til sérfræðings
Eiríkur Tómasson hæstaréttarlögmaður:
Ráðherra vanhæf ur
Ef svo fer sem allt bendir til, að
mál Magnúsar Thoroddsen fari fyrir
Hæstarétt og hæstaréttardómarar
vikja vegna vanhæfis, þá er það
dómsmálaráðherra að skipa nýja
dómara til að fjalla um málið. Hall-
dór Ásgrímsson dómsmálaráðherra
er væntanlega einnig vanhæfur
vegna afskipta sinna af málinu og
þarf hann einnig að vikja úr sæti. Þá
verður að setja nýjan ráðherra til
þess að skipa setudómara í þessu
máli. Það kæmi í hlut forsætisráð-
herra og myndi hann að öllum
líkindunt fela einhverjum af núver-
andi ráðherrum að gegna því starfi,
meðan þetta embættisverk er unnið.
Þetta er skoðun Eiríks Tómasson-
ar hæstaréttarlögmanns.
f frétt sem Tíminn birti í gær var
velt upp ýmsum hugmyndum lög-
fræðinga, um lausn á þeirri laga-
kreppu sem upp kemur ef mál Magn-
úsar fer fyrir Hæstarétt. Þar var m.a.
bent á að ein lausnin gæti verið sú að
forseti fslands skipaði setudómara
úr röðum prófessora í lagadeild
Háskóla íslands á eigin ábyrgð.
Lögfræðingur sem Tíminn talaði við
í gær benti á að Vigdís væri einnig
vanhæf í þessu máli þar sem hún
hefði skrifað undir frávikningu
Magnúsar Thoroddsen og tengdist
því málinu þótt óbeint sé. Það virtist
þó almenn skoðun að forsetinn geti
ekki orðið vanhæfur vegna þess að
samkvæmt stjórnskipunarlögum ber
hann einfaldlega ekki ábyrgð á
stjómarathöfnum sínum, ráðherra
ber ábyrgð á öllum stjórnarfram-
kvæmdum, og því væri undirskrift
Vigdísar á ábyrgð dómsmálaráð-
herra.
Af sömu ástæðum taldi Eiríkur
Tómasson að forseti gæti aldrei skip-
að dómara né seturáðherra á eigin
ábyrgð, hann bryti þar með í bága
við ákvæði Stjórnarskrár íslands.
í 15.grein Stjórnarskrárinnar segir
að forsetinn skipi ráðherra og veiti
þeim lausn. Vigdís mun því skipa
seturáðherra á ábyrgð forsætisráð-
herra að mati Eiríks.
Nú hefur Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, borið vitni í
þessu máli, en Eiríkur taldi of langt
gengið að álíta hann vanhæfan sem
stjómvald fyrir vikið. Menn verði að
hafa einhver ákveðin, veruleg tengsl
við málið til þess að teljast vanhæfir
Eiríkur Tómasson hrl.
og slíkt ætti ekki við um Steingrím.
Eiríkur taldi líklegast að forsætis-
ráðherra myndi fela einhverjum af
samstarfsráðherrum sínum að gegna
starfi dómsmálaráðherra í þessu
máli.