Tíminn - 03.06.1989, Síða 14
26 Tíminn
Laugardagur 3. júní 1989
Fyrirliggjandi
Hef urðu verðskyn?
Þá skaltu líta nánar á þetta...
EK 2034 eldavélin
4 plötur, 1 hitastýrð, 3 hraðsuðu-
plötur, yfir og undirhiti, blást-
ursofn, grill, sjálfhreinsibúnað-
ur
Blomberq
Verð kr. 53.900,-
Staðgr. 51.200,-
Góð kjör
EK 2139 eldavélin
Glerhelluborð, 4 hitafletir, ein
með yfirsuðuvörn, ofn með und-
ir og yfirhita, blástur
Blomberq
Verð kr. 73.900,-
Staðgr. 70.200,-
Góð kjör
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NffiG BÍLASTÆOI
''//Wa
V
V
Útboð
Langadalsá 1989
Vegagerð ríkisinsóskareftirtilboðum í ofangreint
verk.
Lengd vegarkafla 2,3 km, fylling 55.000 m3 og
neðra burðarlag 11.000 m3.
Verki skal lokið 1. júlí 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
5. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 19. júní 1989.
Vegamálastjóri
VETTVANGUR
lirnllf
Pétur Pétursson, þulur:
„Rollur“ og raunarollur
í fornum ritum er rætt um góðan hirði, þann er gætir hjarðar sinnar og
leiðir að lind og vötnum, leitar haga og beitar, gætir þess jafnan að halda
hópinn, nemur staðar á grænum grundum og vakir yfir hjörð sinni svo enginn
verði viðskila meðan gimbillinn skoðar lambagrasið Ijósa og ber munn sinn
að mosaþúfu. í fjárhópnum velst jafnan til forystu sú ærin sem forsjálust er,
skynjar veður og vinda, varast keldur og torfærur, ratar um reginfjöll og
rennur á ból í byggð, en nemur staðar á stöðli, í skjóli bónda sem búverkar
og húsfreyju sem hyggur að gróðri.
í þjóðsögum og ævintýrum akur-
yrkju og sauðfjárræktarþjóða er
fjöldi munnmæla er geymst hefir á
vörum alþýðu og greina frá hættum
er hjörðinni kann að stafa frá tilraun-
um fjandsamlegra flokka, dýra eða
manna, er freista þess með margvís-
legum hætti að yfirbuga grandalausa
hjörð er unir sér við læk eða lind. Til
þess að skerpa athygli ungra fjár-
hirða og hvetja þá til varðstöðu gegn
hættum er kynnu að ógna hjörðinni
var þeim þulinn fjöldi dæmisagna og
brugðið upp skáldlegum myndum.
Alkunn er sagan um úlf í sauðar-
gæru.
Það mun hafa verið í liðinni viku
sem önnur hvor sjónvarpsstöðin átti
tal við Steingrím Hermannsson for-
sætisráðherra. f máli ráðherrans
kom fram sú skoðun hans að banna
ætti bónda sem hefði framfæri sitt af
mjólkurframleiðslu, að „eiga líka
200 rollur“, eins og ráðherrann
komst að orði, ef rétt er munað. Hér
heggur sá er hlífa skyldi. Framsókn-
arflokkurinn hefir löngum talið það
sér til gildis að standa vörð um
hagsmuni bænda og haldið á loft
frelsi þeirra til búskapar í öllum
greinum landbúnaðar. Sé það haft í
huga og þess jafnframt gætt að nú
nýverið hefir Búnaðarfélag íslands
minnst 150 ára afmælis síns vekja
furðu ummæli ráðherrans sem til var
vitnað. Það verður Ijóst að ráðherr-
ann hefir bugast og leggst nú að
lágu, er hann tekur undir áróður
þeirra er linnulaust hafa haldið uppi
árásum og fjandskap í garð bænda-
stéttarinnar. Slánar og stertimenni,
sem hafa það sér til dægrastyttingar
að aka um fjöll og firnindi, utan
þjóðvega og eyða gróðri og grænum
rindum gaspra og geipa um ágang
búfjár og landeyðingar af völdum
sauðfjár. Nýlegar tölur sýna að fjöldi
sauðfjár í Gullbringusýslu er 3000
talsins. 1 Garðabæ einum, heimabæ
Steingríms Hermannssonar forsætis-
ráðherra, eru nær 4000 bílar. Margir
þeirra búnir öflugum tækjum til
fjallaferða. Auk þeirra eru vélsleðar
sem gott er að grípa til ef Bragakaffi
er ekki á sínum stað í eldhúsinu og
von er á Sambandsmanni í kvöld-
kaffi.
Þess verður nú vart með margvís-
legum hætti að auðjöfrar og yfir-
gangsmenn reyna að koma bændum
á kaldan klaka. Sumir þeirra hrekja
leiguliða á vergang. Selja fullvirðis-
rétt og flæma ábúendur af jörðum og
neyða þá til daglaunavinnu í járn-
blendi- eða ál- og áburðarverksmiðj-
um, eða vinnusölum annarra óska-
barna stóriðjufursta.
Svo hrokafull er afstaða sumra
embættismanna og svokallaðra
stjórnmálamanna, að þeir telja sig
geta skipað á bás einhæfni og skammt-
að skít úr hnefa frjálsbornum mönn-
um er fyrrum voru útverðir öræfa, -
„bóndi er bústólpi, bú er landstólpi"
var kveðið forðum. Halda þessir
skammsýnu forvígismenn að það sé
íslenskum landbúnaði til framdrátt-
ar þó Búnaðarbankinn selji ítalskar
lírur og hollensk gyllini í mynd-
skreyttum salarkynnum sínum. Eða
að það auki veg bændastéttar og
búnaðar þótt hafðar séu gluggasýn-
ingar á landslagsmálverkum er sýna
einhverja laxveiðiá Pepsicolafor-
stjóra.
Vellríkir forstjórar og embættis-
menn stríðala góðhesta sem hneggja
við stall með öllum tygjum og bryðja
járnmél í upphituðum hefðarbásum.
Þeim fylgja kynhreinir og fínkembd-
ir stofurakkar með ævafornar ættar-
tölur og flaðra uppum hefðarfrúr.
Búskaparhættir framtíðar í landi
forsætisráðherra verða ef að líkum
lætur: kanínurækt, skafmiðar, lottó,
bingó, rallakstur og sólarlandaferð-
ir. Marka-Leifi, Fjalla-Bensi og Jón
í Möðrudal kveðnir í kútinn og
beðnir aldrei þrífast. Amerískir bíla-
salar úr þjóðvarðliði Bandaríkjanna
boðnir velkomnir á Miðnesheiði í
bófaleik og byssuhasar skriðdreka-
skothríðar að nýliðinni þjóðhátíð.
Vífill, leysingi Ingólfs Arnarson-
ar, hafði bú á Vífilsstöðum. Hann
hljóp daglega upp á Vífílfell að
hyggja að veðri og vindum. Skyldi
hann hafa grunað það þegar hann
sendi smala sinn að sækja sauðkind-
ur á kvíaból og hugaði jafnframt að
kúm í fjósi sínu, að framtíðar-
nágranni hans, landbúnaðarráð-
herra, sjávarútvegsráðherra, sam-
gönguráðherra, utanríkisráðherra,
einn og sami maður, Steingrímur
Hermannsson, lýsti því yfir að sauð-
kindur í landnámi Ingólfs Arnarson-
ar, mannsins sem flýði undan ofríki
hárprúðra skattheimtumanna í Nor-
egi, væru flæmdar í útlegð og beðnar
aldrei þrífast um þær mundir er 1100
ár voru liðin frá því að skipsfélagarn-
ir Ingólfur og Vífill báru fyrstu
landnámslömbin í fangi sér að bera
munn að mosaþúfu.
Bændur eiga sinn þegnrétt í landi
voru. Þeir sem telja sig sjálfskipaða
í orkunefnd, járnblendinefnd,
áburðarnefnd, varnarmálanefnd, at-
vinnumálanefnd, efnahagsnefnd,
veiðilaganefnd, vísindanefnd, auk
fjölda annarra, eiga ekki að úr-
skurða kúabændur óhæfa til þess að
eiga nokkrar sauðkindur að auki.
„Rollur“ bænda eiga meiri rétt á sér
en raunarollur forvígismanna.
Auk þess legg ég til að ráðherrar
og aðrir sem ræða búnaðarmál læri
að beygja ær og kýr.
Péfur Pétursson, þulur.
utsKnltarnopunnn tra tlotum.
Timamynd: Örn
SKOLASLIT AD H0LUM
Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal var slitið við
hátíðlega athöfn í Hóladómkirkju 27. maí sl. Sr. Sigurður
Guðmundsson, vígslubiskup flutti hugvekju og kirkjukór
Hóladómkirkju söng við undirleik Rögnvaldar Valbergsson-
ar. Fjölmenni var við athöfnina.
Alls brautskráðust 17 nemendur
þar af 12 fiskeldisfræðingar. Tveir
nemendur gátu ekki lokið prófum
vegna verkfallstruflunar. Hæstu
meðaleinkunn á búfræðiprófi hlaut
Matthildur Hjálmarsdóttir frá
Bergsstöðum í Vestur-Húnavatns-
sýslu I. ág. einkunn 9,6 og hlaut hún
sérstaka viðurkenningu Búnaðarfé-
lags íslands. Hæstu einkunn á fisk-
eldisbraut hlaut Ólafur Guðmunds-
son, Hólum I. ág. einkunn 9,0 og
jafnframt viðurkenningu frá Veiði-
málastofnun.
Viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur í einstökum séráföng-
um veittu auk skólans: Stéttarsam-
band bænda, Landssamband fískeld-
is- og hafbeitarstöðva, Hólalax hf.,
Trésmiðjan Borg, Sauðárkróki,
Landssamband veiðifélaga, Hrossa-
ræktarsamband Skagafjarðar og Fé-
lag ísl. fiskeldisfræðinga.
Sveinbjörn Eyjólfsson, deildar-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu
flutti kveðjur og árnaðaróskir frá
landbúnaðarráðherra og ráðuneyti.
Hjörtur E. Þórarinsson formaður
Búnaðarfélags íslands, Tumi Tóm-
asson forstöðumaður Veiðimála-
stofnunar á Norðurlandi og Einar
Svavarsson fh. Hólalax ávörpuðu
nemendur og óskuðu þeim heilla.
Að lokinni athöfn í kirkjunni voru
veitingar í boði skólans.
49 nemendur stunda nám við skól-
ann á þessu skólaári, 27 á fiskeldis-
braut og 22 á búfræðibraut, 17
stúlkur og 32 piltar.
Helstu breytingar í náminu eru að
áhersla var aukin á tölvufræði og
notkun tölva. Umhverfisfræðsla var
aukin og áhrif hverrar búgreinar á
umhverfi sitt.
Kennsla í hrossarækt og reið-
mennsku var aukin bæði á skólanum
og einnig geta nemendur tekið verk-
nám á hrossaræktarbýlum. Unnið er
að gerð fyllra námsefnis í fiskeldi og
fiskrækt. Góð aðsókn er að skólan-
um og hann fullsetinn.
í samvinnu við Stéttarsamband
bænda, Framleiðnisjóð landbúnað-
arins og Búfræðslunefnd beitti skól-
inn sér fyrir endurmenntunarnám-
skeiðum fyrir bændur, m.a. í hrossa-
rækt, bændabókhaldi, tölvunotkun,
málmsuðu, skógrækt, bleikjueldi,
fiskrækt og alm. fiskeldi. Þátttak-
endur fengu styrk frá Framleiðni-
sjóði. Nokkur truflun var á þessu
starfi síðari hluta vetrar vegna
ófærðar og síðar verkfalls.
Samtals komu 246 manns á nám-
skeið í vetur sem stóð í 3-5 daga í
senn. Gert er ráð fyrir að þetta verði
fastur liður í starfi skólans. í sumar
verða haldin námskeið fyrir börn og
unglinga þar sem tengt er saman
íþróttir og útivist, reiðmennska, bú-
skapur og sveitalíf ásamt sögu og
helgi Hólastaðar. Þessi námskeið
eru haldin í samvinnu við sóknar-
prestana í Skagafirði. Um 140 ungl-
ingar koma árlega á þessi námskeið
ognjótaþaumikillavinsælda. GÓ.