Tíminn - 03.06.1989, Qupperneq 16
28 Tíminn
Laugardagur 3. júní 1989
Frá Hagskiptum hf. og
Verðbréfasjóði Hagskipta hf.
TIL EIGENDA
GENGISBRÉFA
Með hliðsjón af kröfum nýrra laga nr. 20/1989 um
verðbréfaviðski pti og verðbréfasjóði er Ijóst
að Hagskipti hf. mun ekki uppfylla kröfur laga s.s. um
lágmarksstærð skv. 11. og 12. gr. o.fl. til að reka
verðbréfafyrirtæki og verðbréfasjóði.
Af þessum sökum hafa Hagskipti hf. farið þess á leit við
Fjárfestingarfélag íslands hf. að þaðyfirtaki
Verðbréfasjóð Hagskipta hf.
Fjárfestingarfélagið hefur orðið við þeirri beiðni og hefur
því yfirtekið reksturinn frá og með 2. júní 1989.
Eigendur Gengisbréfa eru beðnir um að snúa sér til
Fjárfestingarfélagsins varðandi upplýsingar um sjóðinn
s.s. varðandi gengi, innlausn o.fl.
tí. [ iJ
Á \W
>vJ
SAMVINNU
TRYGGINGAR
AHMÚLA 3 108 REYKJAVlK SlMI (91)681411
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum:
Mazda 626
Wagoneer
Lada Sport
Lada Safir
VWGolf
MMCColt
Skoda 105 s
Audi 200
MMCTredia
Renault 11
Mazda Van
Daihatsu Charade
MMcL-300
Mazda 323
árgerð 1988
árgerð 1987
árgerð 1987
árgerð 1987
árgerð 1986
árgerð 1986
árgerð 1985
árgerð 1984
árgerð 1984
árgerð 1984
árgerð 1983
árgerð 1981
árgerð 1980
árgerð 1979
DAGBÓK
Reyðarfirði 10. júní
Bryggjiihátíö verður haldin á hafnar-
svæöinu á Reyðarfirði 10. júni. Það voru
menn hjá Verðandi h.f. sem fengu JC.
Rcyðarfjarðar í lið með sér til að skipu-
leggja hátíðina og sjá með þeim um
framkvæmd hennar.
Skemmtiatriði koma víðs vegar að, þar
má nefna Valgeir Guðjónsson, Stuðmann
með meiru, Rockabillyband Reykjavíkur
og ofan af Héraði koma harmonikku-
leikarar. Yngsta kynslóðin fær heimsókn
brúðuleikhúss frá Egilsstöðum. Á vegum
heimamanna verður m.a. tívolí, mini-golf
og kassaróður. Boðið verður upp á ýmsa
létta leiki og þeir sem áhuga hafa geta
brugðið sér í sjóstangaveiði úti á firði.
Kvenfélag Reyðarfjarðar verður með
kaffisölu á svæðinu, og kl. 19 geta allir
fengið mat sinn grillaðan og tekið þátt í
stærstu grillveislu þar um slóðir. Hátíðin
endar svo með dansi.
Pessi hátíð fléttast inn í dagskrá M-Há-
tíðarnefndar, en M-Hátfð á Reyðarfirði
mun standa dagana 9.—ll.júnf.
FftTA(i
KIJIUI
BORÍÍÁRA
Félag eldri borgara
Opið hús á morgun, sunnudag, í Goð-
heimum, Sigtúni 3. Kl. 14, frjálst spil og
tafl, kl. 20, dansað.
Athugið að félagsfundur verður hald-
inn í Goðheimum mánudaginn 5. júní kl.
20:30.
Dagskrá:
1) Stofnun landsambands aldraðra
2) Kosning 14 fulltrúa á stofnþing
3) Önnur mál.
Gerðuberg:
, Menningarhátíð á vegum
íslensku hljómsveitarinnar
Menningarhátíðin stendur frá föst. 2.
júní til sunnud. 4. júní.
Fluttir verða fyrirlestrar, haldin nám-
skeið og ráðstefna, auk tónleikahalds.
Erlendir gestir hátíðarinnar verða m.a.
þeir dr. Malcoln Brown, tónlistarsagn-
fræðingur (Indiana University, Bloom-
ington) og prófessor Joseph Moreno
músikþerapisti (Maryvill College, St.
Louis). Einnig flytur dr. Anna Magnús-
dóttir fyrirlestur.
SUMAR í GARÐINUM
Menntamálaráðuneytið
Lausar stöður
Við námsbraut í sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla
(slands eru lausar til umsóknar tvær tímabundnar
lektorsstöður (50%) í sjúkraþjálfun.
Við Háskólann á Akureyri er laus til umsóknar lektors-
staða í hjúkrunarfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um-
sækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavfk, fyrir 1. júlí n.k.
Menntamálaráðuneytið,
31. maí 1989.
Til sölu Land-Rover
Ferðafélag íslands
Gönguferðir um Noreg í sumar:
1) 7.-16.júlí: Hardangervidda.
Þetta er sex daga gönguferð (hringferð)
milli sæluhúsa. Gengið er um heiðalands-
lag (sléttlendi). Stysta dagleiðin er 4 klst.
og sú lengsta 7 klst.
2) ll.ágúst- 21.ágúst: Jotunheimen.
Gengið milli sæluhúsa (landslag smáhæð-
ótt) og eru dagleiðir 4-6 klst. f báðum
ferðum er gert ráð fyrir skoðunarferðum
frá áningarstöðum. Matur er innifalinn í
verði og fólki ráðlagt að hafa ekki þyngri
byrðar en 7-8kg.
Nokkur sæti laus í ferðina um Jotun-
heimen.
Kynnið ykkurnánari tilhögun ferðanna
á skrifstofu félagsins. Gangið með félög-
um okkar í Norska ferðafélaginu. Ferð-
umst um Noreg eins og Norðmenn, með
fararstjórum sem miðla af drjúgri reynslu
og þekkingu á staðháttum.
Tilkynnið þátttöku strax.
Ferðafélag íslands
2.-4.júní: Helgarferð til Þórsmerkur.
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal. Göngu-
ferðir með fararstjóra um Mörkina.
Brottför kl. 20 föstudag. Upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofu F.í., Óldugötu 3.
Dagsferðir sunnudaginn 4. júní:
Kl. 10 DyrafjöU-Marardalur-Kolviðar-
hóll (nýi vegurinn).
Ekið að Nesjavöllum og gengið þaðan um
Dyraveg. Rútan tekur hópinn á Nesja-
vaUavegi. Verð kr. 1000.-
KI.13 Húsmúii-Engidalur-Draugatjörn.
Ekið að Kolviðarhóli og gengið þaðan.
Verð kr. 800,-
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl.
Miðvikudaginn 7. júní Id. 20: Kvöldferð
í Hciðmörk. í þessari ferð verður hugað
að gróðri í reit Ferðafélagsins í Heið-
mörk. Ókeypis ferð.
Nýr söfnuður í Grafarvogi
Mánudaginn 5. júní boðar dómprófast-
urinn í Reykjavík, sr. Ólafur Skúlason til
fundar í Foldaskóla í Grafarvogi og er
ætlunin að stofna nýja sókn í hverfinu.
Fram að þessu hafa þessar byggðir tilheyrt
Árbæjarsöfnuði og notið þjónustu sókn-
arprestsins þar, sr. Guðmundar Þor-
steinssonar, en mannfjöldi þessa presta-
kalls er farinn að nálgast 13 þúsund og því
löngu tímabært að stofna sérstakt presta-
kall í Grafarvogi.
Fundurinn hefst kl. 20:30 og eftir
formlega stofnun safnaðarins verður kos-
in sóknamefnd, Síðan verður starfið
skipulagt og kirkjumálaráðherra, Halldór
Ásgrímsson hyggst heimila prestsþjón-
ustu nýs sóknarprests þegar á þessu ári.
Verður það því eitt af verkum nýju
sóknarnefndarinnar að velja prest fyrir
prestakallið.
fbúar þessa nýja hverfis eru hvattir til
að mæta á stofnfundinn og ræða málefni
nýja safnaðarins. Þessi fundur verður þá
líka með síðustu embættisverkum sr.
Ólafs, áður en hann lætur af starfi sem
dómprófastur.
Póstur ogsími, l.tbl.
Út er komið 1. tölublað af Pósti og
síma. Þetta er kynningarblað Pósts og
síma og er ætlað að greina frá þvt' sem
helst er á döfinni hjá stofnuninni, ekki
síst nýjum þjónustugreinum. Umsjón og
útgáfu annast Myndbær hf. fyrir hönd
Póst- og símamálastofnunarinnar, en
ábyrgðarmaður er Jóhann Hjálmarsson.
Meðal efnis í þessu fyrsta tölublaði er
grein um ljósleiðara, gagnaflutningsnet-
ið, forgangspóst, frfmerkjasölu til safn-
ara, alþjóðapóstsambandið og síma-
kostnað á fslandi.
Vikuleg laugardagsganga
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður í dag, laugardaginn 3.
júní. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.
10.
Markmið göngunnar er: Samvera, súr-
efni og hreyfing. Bæjarrölt Hana nú er
góð byrjun á góðri helgi fyrir unga og
aldna. Nýlagað molakaffi.
Myndir Matthíasar Ólafssonar
Athygli skal vakin á því að myndir
Matthíasar Ólafssonar málara (Hassa)
sem hangið hafa uppi undanfarna mánuði
í Sparisjóði Mýrarsýslu Borgarnesi, verða
teknar niður föstudaginn 9.6. 1989.
Seldar myndir verða fluttar heim til
eigenda sinna að kvöldi sama dags.
Hafnarfjarðarkirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Helgi
Bragason. Sr. Gunnar Ingason.
Bifreiðimar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 5. júní 1989, kl. 12-16.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.,
Ármúla 3, Reykjavík, eða umboðsmanna fyrir kl.
16, mánudaginn 5. júní 1989.
Samvinnutryggingar g.t.
- Bifreiðadeild -
Nú er hann loksins til sölu, þessi einstaki gripur.
Diesel með overdrifi á alla gíra, nýbólstraður að
innan, óryðgaður, tvöfaldur nýr dekkjagangur, tvö
varadekk á felgum, tvær nýjar hásingar, auka
gírkassi, pústkerfi og olíuverk o.m.fl.
Tilvalinn í útileguna, sveitina eða hvar sem er.
Selst á sanngjörnu verði.
Upplýsingar í síma 91-672041 eða 91-52489.
Gunnar.
Hönnum auglýsingu
FRÍTT
þegar þú auglýsir
í Tímanum
AUGLÝSINGASfMI 680001