Tíminn - 17.06.1989, Blaðsíða 5
Laugardagur 17. juní 1989
Tíminn 5
Bjóða Olafi
sláturhúsið
Seölabankinn fellst á samþykkt ríkisstjórnarinnar:
Raunvextir
lækka um 1 %
Stjórn Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga á Höfn í Horna-
firði kom saman til fundar í
fyrradag. Var þar meðal ann-
ars rætt um ýmis vandamál
landbúnaðarins, einkum þó
þau sem snúa að framleiðslu
á kindakjöti, rekstri afurða-
stöðva, fjármagnsflæði og
birgðavanda.
Þar komu meðal annars til um-
ræðu þau ummæli Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra í
Ríkisútvarpinu hinn 13. júní að svo
gæti farið „að ríkið fari sjálft að selja
kindakjöt milliliðalaust í sumar, ef
afurðasölur selji ekki kjötið á viðun-
andi verði.“ Af því tilefni samþykkti
stjórn KASK einróma eftirfarandi:
„í tilefni af ummælum fjármála-
ráðherra í Ríkisútvarpinu þriðju-
daginn 13. júní s.l. lýsir stjórn Kaup-
félag Austur-Skaftfellinga sig hér
með reiðubúna til viðræðna við ríkis-
valdið um leigu eða sölu á sláturhúsi
félagsins á Höfn. Myndi ríkisvaldið
þannig losna við milliliðakostnað
þann og viljaleysi söluaðila, sem
ráðherra gerði að umtalsefni í um-
ræddum útvarpsþætti, og fá tækifæri
til að leysa vandamál kindakjöts-
framleiðslunnar með viðunandi
hætti.“
Þessi samþykkt hefur nú verið
send fjármálaráðherra, og bíður
stjórn KASK svara hans. -esig
Nú Iíggur fyrir að raunvextir sem nú eru 7,25% munu verða
komnir niður í 6,25% um næstu mánaðamót, þar sem
Seðlabankinn hefur fallist á samþykkt ríkisstjórnarinnar þar
að lútandi. Ríkisstjórnin er því mjög nærri því markmiði sem
hún hefur sett sér þ.e. að ná raunvöxtum niður í 5-6%.
Ríkisstjórninni barst á fimmtu-
daginn svar frá Seðlabankanum við
samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 2.
júní síðastliðnum þar sem bankinn
fellst á að skilyrði séu núna í þjóðfé-
laginu fyrir lækkun raunvaxta. Jafn-
framt hefur bankinn boðað það að
hann muni verða við óskum ríkis-
stjómarinnar um að stuðla að lækk-
un raunvaxta um 1-1,25%. Seðla-
bankinn hefur lagt til að raunvaxta-
lækkunin komi til framkvæmda á
tveimur næstu vaxtaákvörðunardög-
um þ.e. 21. júní og 1. júlí.
í viðtali við Tímann í gær sagðist
Steingrímur Hermannsson 'forsætis-
ráðherra telja að lækkunin muni
nema 1%. Steingrímur sagði jafn-
framt að full samstaða hefði verið
um þetta mál í ríkisstjórninni.
Er þetta í fyrsta skipti sem breyt-
ingin á 9. grein Seðlabankalaganna,
sem varð í lok marsmánaðar síðast-
liðnum, kemur til framkvæmda.
Með þeirri breytingu fékk Seðla-
bankinn heimild til að ákvarða svo-
kallaða hóflega raunvexti og bank-
anum ber að fara að tillögum ríkis-
stjómarinnar í þessum efnum.
Sala Útvegsbankans
Sala Útvegsbankans var einnig til
Sr.Guðmundur
dómprófastur
Næsti dómprófastur hefur verið
tilnefndur af sóknarprestum Reykja-
víkurprófastdæmis og er það sr.
Guðmundur Þorsteinsson, sóknar-
prestur í Árbæ. Aðrir sem atkvæði
fengu voru þeir sr. Árni Bergur
Sigurbjömsson, sr. Amgrímur Jóns-
son og sr. Tómas Sveinsson.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson mun
taka við starfi dómprófasts nú um
næstu mánaðamót af sr. Ólafi Skúla-
syni, sem tekur þá formlega við
embættisstörfum sem biskup
íslands.
Innan fárra daga munu svo liggja
fyrir úrslit í tilnefningu til vígslubisk-
upsembættis í Skálholtsstifti þar sem
sr. Ólafur lætur einnig af því embætti
um mánaðamótin.
umræðu á fundi ríkisstjómarinnar á
fimmtudaginn en sem kunnugt er
hefur Jón Sigurðsson sætt harðri
gagnrýni fyrir að kaupverð bankans
hafi verið of lágt. Varðandi Útvegs-
bankamálið sagði Steingrímur Her-
mannsson að málið væri í höndum
viðskiptaráðherra og hann hafi haft
heimild til að selja þessi bréf. Stein-
grímur sagði að ekki hefði komið
fram hörð gagnrýni á málsmeðferð
viðskiptaráðherra á ríkisstjórnar-
fundinum. Steingrímur sagði
jafnframt: „Ég held að menn séu
sammála um það að með þessari
sölu náist fram veruleg hagræðing og
það er mjög mikilvægt fyrir bankak-
erfið. Hinsvegar hafa vissulega kom-
ið fram gagnrýnisraddir og við-
skiptaráðherra hefur meira að segja
sagt sjálfur að verðið væri í lægri
kantinum og hann hefði gjaman
viljað fá hærra verð fyrir bankann.“
Steingrímur sagðist geta tekið
undir það með ýmsum í þingflokki
Framsóknarflokksins að það hefði
verið æskilegt að menn hefðu skoðað
þetta mál nákvæmar sérstaklega
með tilliti til kaupverðsins. „Ég tel
að verðið sé í lægra kantinum en
spumingin er sú hvað menn em
tilbúnir að gefa fyrir þessa miklu
hagræðingu.“
SSH
Sýking í nýju sundlauginni í Grímsey:
Eyjaskeggjar
með útbrot
Stór hluti íbúa Grímseyjar þjáist þessa dagana af
útbrotum, sem fylgir mikill sviði og óþægindi, vegna
sýkingar sem kom upp í sundlaug eyjarinnar. Um er að
ræða bólur sem fólk hefur fengið út um allan líkamann.
Einkennin em þó nokkuð
misjöfn, hjá sumum er aðeins um
að ræða litlar bólur sem líkjast
helst flugnabiti en aðrir hafa fengið
einskonar kýli. „Það hafa flestir
íbúar eyjarinnar sýkst af þessu og
sumir em það illa haldnir að þeir
geta engan veginn verið,“ sagði
Hafliði Guðmundsson, íbúi í
Grímsey, í samtali við Tímann í
gær er leitað var upplýsinga um
faraldurinn.
í fyrradag rannsökuðu heilbrigð-
isfulltrúinn á Akureyri og héraðs-
læknirinn ástandið. Voru sýni tekin
úr sundlaugarvatninu. Einnig voru
tekin sýni úr útbrotum og þau
mynduð. Enn liggur ekki fyrir um
hverskonar sýkingu er að ræða.
Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi
sagði við Tímann að sundlaugin
hefði virst mjög þrifaleg og nægi-
Iegt klórmagn í sundlaugarvatninu.
Sagðist Brynjólfur því telja líklegt
að um einhverskonar veirusýkingu
væri að ræða þar sem bakteríur
þrífast ekki í vatni sem í er nægileg-
ur klór.
í gær var öllu vatni hleypt úr
lauginni og hún sótthreinsuð, en
laugin verður ekki opnuð aftur fyrr
en niðurstöður liggja fyrir um
ástæður sýkingarinnar.
Ólafur OddSson héraðslæknir
sagði í samtali við Tímann að hann
hefði gefið þeim sem em sýktir
ofnæmislyf sem er gefið við kláða.
Það hefur þó ekki dugað fullkom-
lega en dregið úr óþægindunum.
Ólafur sagði ennfremur að hann
vissi ekki til þess að tilfelli af þessu
tagi hefði komið upp hér á landi en
hann vissi dæmi um það erlendis
frá að svipaðar bakteríu- eða veiru-
sýkingar hefðu borist með sund-
laugarvatni. Ólafur tók fram að
enn lægi ekki ljóst fyrir um hvers-
konar sýkingu væri að ræða. SSH
Dómsforseti hæstaréttar taldi
málið vera á sviði stjórnsýslu en ekki einkamál:
ENDANLEG MORKUN
Á HENDIRÁDHERRA
Guömundur Jónsson, forseti hæstaréttardómstólsins sem
felldi dóm í landamerkjadeilu Landmanna og Skaftártung-
umanna, skilaði sératkvæði í dómnum á fimmtudag. Taldi
hann það ekki vera á valdi dómsstóla að ákveða um
landamörk þessi, heldur eigi ákvörðun um mörkin að
koma frá ráðuneyti og í framhaldi af því verði lagasetning.
Málið sé einfaldlega á sviði
stjómsýslu og sé ekki einkamál.
Guðmundur greiddi hins vegar at-
kvæði með meirihluta dómsins
þegar kom að efnislegri afgreiðslu.
Niðurstaða hæstaréttar var, eins
og segir í Tímanum í gær, að kröfu
Skaftártungumanna um að þeir fái
hálf Veiðivötnin með því að afrétt-
armörkin verði færð norður fyrir
Tungnaá, er hafnað.
„Niðurstöðurnar þýða að Skaft-
fellingar hafa ekki getað leitt í ljós
neinn afréttarrétt sinn. Þar sem
þeir hafa ekki getað það, verða
kröfur þeirra ekki teknar til
greina,“ sagði Árni Grétar
Finnsson, hrl., lögmaður Land-
sveitarmanna. „Þar með em mörk-
in Tungnaár og í raun og vem segja
þeir það í dómnum, þótt orðalagið
sé ekki mjög afgerandi. Miðað við
dóminn er búið að marka línuna
milli afrétta hreppanna."
Kjarninn í þessum flókna og
viðamikla hæstaréttardómi var á
þessa leið: „Eins og lýst er f hinum
áfrýjaða dómi virðist ágreiningur
aðila áður fyrr aðallega hafa verið
um mörkin sunnan Tungnaár.
(Beitarland, innsk.) Samkvæmt
gögnum málsins er ljóst að báðir
aðilar hafa smalað að Kirkjufells-
ósi og aðaláfrýjendur hafa smalað
hina svonefndu Kílinga og Jökul-
gil. Samkvæmt þessu ber að stað-
festa niðurstöðu héraðsdóms um
mörkin sunnan Tungnaár. (Sbr.
dómssáttina 1951 er Rangæingar
hafa viljað halda sig við, innsk.)
Gagnáfrýjandi (Skaftártungu-
menn, innsk.) hefur ekki Ieitt í ljós
að hann hafi átt upprekstrarrétt á
hinu umdeilda svæði ofan Tungna-
ár. Verða því kröfur hans að um
tiltekin merki á þessu svæði, með
hliðsjón af rétti til afréttarnota,
ekki teknar til greina. Miðað við
þessa niðurstöðu um að gagnáfrýj-
andi (Skaftártungumenn, innsk.)
eigi ekki afréttarland ofan Tungna-
ár þykir eins og kröfugerð er
háttað, skorið úr deilu aðila máls
þessa um mörk afréttar ofan
Tungnaár og ekki efni til að áfrýja
ferkari mörk landsvæða í máli sem
eingöngu er á milli þessara aðila."
„Þetta þýðir eiginlega að ástand-
ið er óbreytt frá því Skaftártungu-
menn höfðuðu málið á hendur
Landsveitarmönnum," sagði lög-
maður Land- og Holtamanna, Árni
Grétar Finnsson hrl., í samtali við
Tímann í gær. Sagði hann að með
þessum dómi væri samkomulaginu
frá 1886 hafnað, enda væri ekkert
á það minnst. Efnisleg réttindi á
þessu svæði voru til meðferðar
fyrir dómi árið 1955. Þá féll dómur-
inn þannig að Land- og Holtamenn
eigi upprekstrarrétt og afréttarrétt.
„Af þessum réttindum er síðan
leiddur veiðiréttur," sagði Árni
Grétar.
Ekki náðist í Jón Steinar Gunn-
laugsson, hrl., lögmann Skaftár-
tungumanna í gær til að fá hans
túlkun á niðurstöðum Hæstaréttar.
KB