Tíminn - 17.06.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 17. júní 1989
Tíminn 23
Svavar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Breiðdælinga:
Bjartsýnn ef allir
leggjast á eitt
Útgerð fyrir austan hefur ekki farið varhluta af þeim
erfiðleikum sem steðjað hafa að fiskvinnslunni að undan-
fömu. Svavar Þorsteinsson, framkvæmdarstjóri Hraðfrysti
húss Breiðdælinga sagði í samtali við Tímann að þeir væm
bjartsýnir þrátt fyrir allt og hefðu trú á að hægt væri að vinna
frystihúsið út úr þeim rekstrarörðugleikum sem það hefur átt
Byggðastofnun veitti heimild nú á
dögunum til að kaupa svokölluð
A-hlutdeildarskírteini af Hlutafjár-
sjóðnum vegna nokkurra fyrirtækja,
og var Hraðfrystihús Breiðdælinga
hf. eitt af þeim. „Samþykkt Byggða-
stofnunar kemur ekki til fram-
kvæmda fyrr en fyrirtækið hefur
fengið afgreiðslu í Hlutafjársjóði,
þannig að við höfum ekki séð neitt
af þessum peningum ennþá", sagði
Svavar. Um 80 manns vinna hjá
fyrirtækinu og sagði Svavar að það
væri Iífsspursmál fyrir Breiðdalsvík
að fyrirtækið héldist gangandi. Hei-
mild Byggðastofnunar er hlutur
hennar í að gera fyrirtækið lánshæft
hjá Atvinnutryggingasjóði. Svavar
sagði að skuldir fyrirtækisins væru
meiri en svo að þessar 15 milljónir
hrykkju fyrir, en rætt hefur verið um
að Fiskveiðasjóður og Landsbank-
inn komi hugsanlega inn í þetta.
Ranglega var hermt í Tímanum á
miðvikudaginn að Hraðfrystihús
Breiðdælinga hf. og Hraðfrystihús
Stöðvarfjarðar hefðu sameinast að
einhverju leyti um stoðgreinar, en
Svavar sagði að slíkt væri enn á
umræðustigi.
„Ég er bjartsýnn ef allir leggjast á
eitt um að koma fyrirtækinu úr
þessum kröggum, og ég vona að það
verði gert á þann hátt að við stöndum
ekki aftur í sömu sporum eftir eitt
eða tvö ár. Við erum vel tækjum
búin, með nýlegt frystihús og tvö ný
skip og að því leyti stöndum við
vel“, sagði Svavar. LDH -
Norræn frímerkjasýning í Noregi:
Þjóðskjalasafn-
inu veitt gull
Þjóðskjalasafn íslands hlaut nýveríð gullverðlaun á
norrænni frímerkjasýningu. Sýningin var haldin í Fredrik-
stad í Noregi.
Þjóððskjalasafn íslands sýndi í
heiðursdeild sýningarinnar, bréf
frá þeim tíma er danskur póstur
var á íslandi, auk skildinga- og
aurabréfa frá því fyrir aldamót.
Þátttaka íslendinga í erlendri frí-
merkjasýningu hefur aldrei verið
meiri, en alls sýndu átta aðilar
ellefu efni í frímerkja og bók-
menntadeild.
Sigurður H. Þorsteinsson, um-
boðsmaður sýningarinnar, afhenti
Ólafi Ásgeirssyni, þjóðskjalaverði,
verðlaunin í gær.
Þetta er í þriðja sinn sem Þjóð-
skjalasafnið hlýtur gullverðlaun á
frímerkjasýningu erlendis. Það
hefur vakið töluverða athygli með-
al frímerkjasafnara að Þjóðskjala-
safnið hefur í öll þrjú skiptin sýnt
efni frá mismunandi tímabilum í
íslensku póstsögunni. jkb
Kristján Björnsson blaðamaður
Tímans lætur nú af starfi sínu og
mun gegna prestþjónustu í Breiða-
bóistaðarprestakaiii. Tíminn þakkar
honum vel unnin störf.
Fimm sóttu um þrjú prestaköll
og fjórir sóttu um stöðu sendi-
ráðsprests í Kaupmannahöfn:
prestur
á Breiða-
bólstað
Kristján Bjömsson guðfræðingur
og blaðamaður hefur verið kosinn til
að gegna prestþjónustu í Breiðaból-
staðarprestakalli í Vesturhópi. Þrír
umsækjendur voru um stöðuna. Þá
hefur sr. Láms Þ. Guðmundsson
hefur verið ráðinn sendiráðsprestur
í Kaupmannahöfn frá 15. júlí nk. í
samráði við sóknamefnd safnaðarins
í Kaupmannahöfn og með samþykki
dóms- og kirkjumálaráðherra. Um
stöðuna sóttu þrír auk sr. Lámsar.
Tvö önnur prestaköll vom auglýst
til umsóknar nýlega og sótti einn
umsækjandi um hvort. Annað
prestakallið er Bólstaðarhlíð í
Húnavatnsprófastsdæmi, en hitt er
Skeggjastaðaprestakall í Múlapró-
fastsdæmi. Kosning til þessara prest-
akalla hefur ekki farið fram og hvílir
nafnleynd á umsækjendum.
Kirkjumálaráðherra veitir em-
bættin að fengnum tillögum kirkju-
stjómarinnar.
Starfsmaður kveður
Kristján Bjömsson, sem hverfur
nú til prestskapar að Breiðabólstað
lætur af starfi sínu sem blaðamaður
Tímans. Ritstjórn Tímans vill þakka
honum vel unnin störf í þágu blaðs-
ins á þriðja ár og óskar honum
velfamaðar í nýju starfi.
fi
H
9
%
**
p
$
?
tc
9
%
p*-
*
9
*¥
*
k
?
9
p
9
?
p
9
9
p
£
?
P
9
MADDAMA, KERLING, FROKEN, FRU
VEISTU HVERT PÚ STEFNIR NÚ?
KVENNALISTAKONUR Á FERÐ
ALMENNIR FUNDIR, VINNUSTAÐAHÉÍMSÖKNlR,
ÚTIMÁRKAÐIR.
VESTFIRÐÍR
NORÐURLAND VESTRA
SUÐURLAND
9 % ? Kristín Halldórsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir Kristín Einarsdóttir og Málmfríður Sigurðardóttir. Danfríður Skarphéðinsdóttir og Guðrún Agnarsdóttir.
9 21. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR
H Patreksfjörður. Hvammstangi - Laugabakki. Hveragerði - Þorlákshöfn.
9 22. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR
9 Tálknafjörður - Bíldudalur - Þingeyri. Skagaströnd - Blönduós Stokkseyri - Eyrarbakki - Selfoss.
23. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR
.; Bolungarvík - Suðureyri. Varmahlíð - Sauðárkrókur. Hella - Hvolsvöllur.
24. JÚNÍ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ, MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ, LAUGARDAGUR
ísafjörður. Sauðárkrókur. Vík.
25. júnf — 30. júní vcrða Kvennálistakonur á ferö
um Norðurland eystra, Vesturland og Austfirði.
Sjá nánar í götuauglýsingum - Geymið auglýsinguna
O-g 40 Qc g -*Q Ok 40 Ck «P Ou 9 04-
-*Q CH-
P0k«0»qt<y » *Q <X ja-Ot ; Á
P q,
£
<5
Jf
9
9
9
Ch
p
?
*
?
%
9
P
p
9
?
9
%
9
hi
9
3*
?
%
P
í
P
fi
9
p
9
9
9
\
9
p
V
¥>
9
9
v
p
*
p
9
h
fi
9
?
9
%
?
3