Tíminn - 17.06.1989, Blaðsíða 19
Tíminn 31
Laugardagur 17. júní 1989
llllllill ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ .......Illlllllllllllllllllllllllll,
Helga Halldórsdóttir KR er frjálsíþróttamaður Reykjavíkur 1989. Á myndinni hér að ofan tekur Helga við bikar
frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur úr hendi Péturs Bjömssonar. Timamynd Arni Bjarna.
Knattspyrna 2. deild:
Eyjasigur á IR
íþrótta-
viðburðir
helgarinnar
Knattspyma:
Sunnudagur
1. deild karla kl. 20.00.
Laugardalsvöllur Fram-Valur
3. deild:
Seyðisf. Huginn-Dalvík kl. 16.00.
Eskif. Austri-Kormákur kl. 16.00.
4. deild:
Selfossi Emir-Haukar kl. 14.00.
Blönduósi Hvöt-Efling kl. 14.00.
Stöðvarf. KSH-Sindri kl. 14.00.
Egilsst. Höttur-Leiknir F. kl. 14.00.
Mánudagur
1. deild karla kl. 20.00.
KR-völlur KR-ÍBK
1. deild kvenna kl. 20.00.
KA-völlur KA-Þór
1. deild kvenna kl. 20.00.
Stjömuvöllur Stjaman-Valur
4. deiid :
Gervigras Árvakur-Baldur kl. 20.00.
Golf:
Stórmót Stöðvar 2 fer fram um
helgina á Grafarholtsvelli. Leiknar
verða 36 holur laugardag og sunn-
udag. Ræst verður út frá kl. 08.00.
báða dagana.
Á Hólmsvelli í Leim verður haldið
kvennamót á morgun sunnudag.
Mótið nefnist opna-Guerlin mótið.
Ræst verður út kl. 10.00. en skráning
er í síma 92-14100.
Á Nesvelli verður opna Skeljungs-
mótið í dag 17. júní og á morgun
verður hjóna og parakeppni hjá
Golfklúbbnum á Hellu, á Strandar-
velli. Á Hvaleyrarholtsvelli í Hafn-
arfirði verður í dag öldungamót, en
keppt er um Ó.G. bikarinn.
Frjálsar íþróttir:
Flugleiðamótið í frjálsum íþróttum
verður haldið í dag, 17. júní á
frjálsíþróttavellinum í Laugardal.
Keppni hefst kl. 16.00 með keppni í
Stangarstökki, langstökki kvenna og
kúluvarpi karla. Síðan rekur hver
greinin aðra þar til keppni í 4x100 m
boðhlaupum hefst kl. 17.50.
Meðal keppenda á mótinu verða
Vésteinn Hafsteinsson, sem nýlega
bætti fyrra íslandsmet sitt í Kringlu-
kasti og Pétur Guðmundsson, sem
er í mikilli framför í kúluvarpinu.
Vestamanneyingar unnu ÍR-inga í
2. deildinni í knattspymu á Val-
bjamarvellinum í fyrrakvöld. Gest-
irnir skoruðu 2 mörk gegn 1 marki
heimamanna.
Fyrri hálfleikur var markalaus, en
þegar í upphafi síðari hálfleiks náðu
Eyjamenn forystunni með skalla-
marki Ólafs Árnasonar. ÍR-ingar
voru ekki lengi að jafna, því Eggert
Sverrisson skoraði fallegt mark
stuttu síðar. Um miðjan hálfleikinn
gerði Jón Bragi Amarsson út um
leikinn er hann skoraði með föstu
skoti af löngu færi, 2-1 fyrir Eyja-
menn.
ÍR-ngar léku án margra fasta-
manna í þessum leik. Einar Ólafsson
gat ekki leikið vegna meiðsla og
Kristján Halldórsson og Kristófer
Ómarsson vom erlendis. Jón G.
Bjarnason og Bragi Björnsson
þurftu báðir að fara af leikvelli
vegna meiðsla og markaskorarinn
Tryggvi Gunnarsson lék með þótt
nefbrotinn væri, en gat lítið beitt sér.
Staða Eyjamanna í deildinni er nú
vænleg og liðið er til alls líklegt í
sumar og 1. deildarsætið, sem liðið
sat jafnan í hér áður, gæti orðið
þeirra á ný með sama áframhaldi.
BL
Handknattleikur:
Töpuðu fyrir
Spánverjum
íslenska kvennalandsliðið sem
þessa dagana tekur þátt í alþjóðlegu
móti í Portúgal, tapaði fyrsta leik
sínum í mótinu í fyrrakvöld. Mót-
herjamir voru Spánverjar sem sigr-
uðu 15-12. Staðan í hálfleik var 7-6.
Inga Lára Þórisdóttir var markahæst
í íslenska liðinu með 7 mörk. BL
Laugardagur kl. 13:25
24. LEIKVIKA- 17. jum 1989 !!l m 2
Leikur 1 Fram - Valur
Leikur 2 B. Miinchen - Bochum
Leikur 3 W. Bremen - Stuttgart
Leikur 4 M. Gladbach - H.S.V.
Leikur 5 Mannheim - Köln
Leikur 6 B. Dortmund - Karlsruhe
Leikur 7 Hannover - E. Frankfurt
Leikur 8 St. Kickers - Nurnberq
Leikur 9 St. Pauli - B. Uerdingen
Leikur 10 B.Leverkusen - Kaisersi.
Leikur11 Kongsvinger - Brann
Leikur 12 Rosenborg - Viking
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -8^ LUKKULÍNAN s. 991002 Ath. breyttan lokunartíma 146 I* 4.
KAUPMENN ■ INNKAUPASTJÓRAR
Vorum aö fá sendingu af
PÖKKUNARNETUM
Pökkunamet eru ódýr og meö því
besta til pökkunar á grænmeti og
ávöxtum. Þau eru á hespum, er
passa fyrir pökkunarvélar, sem eru
til í flestum kjörbúöum.
Hver hespa er 100m og eru
25 hespur í kassa. Litir eru
gulur og rauður.
P
KRÓKHÁLSI 6 SÍMI 671900
4*^
ARCTKCAT
KATTARKIUBBURINN
(Cat’s Pride Club)
var stofnaður á Mývatni í vetur og
er áhugafélag um vélsleða og allt
sem þeim viðkemur.
Allir áhugamenn um vélsleða geta
orðið félagar og fá þá sendar fréttir
frá klúbbnum, bæklinga o.fl.
Ath! ekkert árgjald
Ég undirritaður óska eftir því að
gerast félagi í Kattarklúbbnum
Nafn...............................
Heimili............................
• Er eigandi vélsleða
teg-...............................
□ Er ekki eigandi vélsleða.
Sendist til: KOTARiaÉBBHIIS,
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík