Tíminn - 17.06.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 17. júní 1989
FRÉTTAYFIRLIT
PEKING - Kínversk stjórn-
völd hafa hafið áróðursherferð
á alþjóðavettvangi og segja að
ástand í Kína se fullkomlega
eðlilegt og að útlendingum sé
óhætt að snúa aftur. Þrátt fyrir
þetta berast fréttir af handtök-
um og hefur Bandaríkjastjórn
hvatt þegna sína til a& halda
ekki til Kína. I Kanada hefur
fjöldi kfnverskra sendiráðs-
manna beðið um vegabréfsá-
ritun og hyggjast ekki snúa til
Kína á næstunni.
TREVISO - ítalar hafa misst
nær alla silkiuppskeru sína
þetta árið vegna þess að silk-
ilirfurnar hafa verið allt of iðnar
við að éta og gleymt að spinna
silkivefinn. 99% af ítölskum
silkilirfum hafa fengið þessa
dularfullu matarlyst sem ekki
hefur áður þekkst. Ekki er vitað
hvað veldur þessari matarlyst,
en um það bil 60 milljónir
silkilirfa búa á Ítalíu um þessar
mundir.
LONDON - Veröbólgan í
Bretlandi fer nú hraðvaxandi
og er var 8,3% í sfðasta mán-
uði. Það er tvöföld verðbólga
miðað við sama tíma f fyrra og
sú hæsta sem mælst hefur í
sjö ár.
RASHIDIYEH - ísraelskar
herþotur gerðu loftárásir á
stöðvar palestínskra skæru-
liða í Líbanon og er það önnur
árásin á tveimur dögum.
MOSKVA - Sovétmenn
hafa nú viðurkennt að alvarlegt
kjarnorkuslys hafi átt sér stað f
Uralfjöllum í september árið
1957 þegar mikil sprenging
varð í verksmiðju þar sem
smíðaðar voru kjarnorku-
sprengjur. Slysið, sem haldið
' hefur verið leyndu allt þar til
nú, skapaði mikla geislavirkni
á svæði sem var 105 km langt
og 9 km breitt og varð að flytja
tfu þúsund manns á brott frá
svæðinu. Nú rúmlega 30 árum
seinna eru stór svæði kringum
bæinn Kasli 100 km norður af
borginni Chelyabinsk svo
. geislavirk að umgangur um
þau er mjög takmarkaður og
vatn þar óhæft til drykkjar.
Vestrænir vísindamenn hafa
lengi talið Ijóst að alvarlegt
kjarnorkuslys hafi orðið á þess-
um slóðum á þessum tíma.
bera vitni í réttarhöldunum yfir John Poindexter vegna Íran-Kontramálsins, en þeir félagar hafa verið kvaddir í
réttinn.
Réttarhöldin í Íran-Kontramálinu:
BUSH 0G REAGAN
KALLADIR FYRIR
RÉTTINN SEM VITNI
George Bush forseti Bandaríkjanna og riddarinn Ronald
Reagan fyrrum Bandaríkjaforseti verða kallaðir til vitnis í
réttarhöldunum í svokölluðu Íran-Kontramáli. Það er Iög-
fræðingur John Poindexter fyrrum ráðgjafa Ronalds Reagans
og náins samstarfsmanns Bush á meðan hann gegndi
varaforsetaembættinu sem farið hefur fram á að þeir
kumpánarnir beri vitni í málinu. Kemur þetta mjög við
kaunin á tvímenningunum sem reynt hafa allt til þess að verða
ekki tengdir þessu vopnasölumáli.
- Skjólstæðingur minn hafði mikil
bein samskipti við báða þessa ein-
staklinga í undirbúningi vopnasölu-
málsins, sagði Richard Becler verj-
andi John Poindexter sem ákærur
hefur verið fyrir aðild sína að ólög-
legri vopnasölu til íran, en ágóði
þeirrar sölu rann til Kontraliða í
Níkaragva.
Poindexter var öryggisráðgjafi í
stjórn Ronalds Reagans og hefur
tekið á sig ábyrgð í hinni leynilegu
vopnasölu.
Bæði Bush og Reagan fengu vitna-
stefnu þegar réttarhöldin yfir Oliver
North í sama máli fóru fram. Þá
úrskurðaði dómarinn að framburður
þeirra væri ekki nauðsynlegur.
f réttarhöldunum yfir North kom
fram að flest benti til þess að Reagan
og Bush hafi átt beinan þátt í því að
fundnar yrðu leynilegar leiðir til að
styðja við bak Kontraliðum eftir að
Bandaríkjaþing hafði bannað
bandaríska hernaðaraðstoð við
Kontra, þvert á vilja Reagans
Bandaríkjaforseta.
Nú mun dómarinn í máli Poindex-
ter þurfa að taka afstöðu til þess
hvort framburður Bush og Reagans
skiptir máli.
Þess má geta að saksóknari varð
að falla frá kærum á North fyrir
meinsæri og þjófnað vegna þess að
ríkisstjórn Bush neitaði að afhenda
réttinum leyniskjöl vegna þess að
slíkt ógnaði öryggi ríkisins. Poindex-
ter er einmitt ákærður fyrir meinsæri
og þjófnað á eignum ríkisins á sama
hátt og North.
Ungverjaland:
250.000
manns
fylgdu
Imre Nagy
til grafar
Kvartmilljón manna fylgdi Imre
Nagy fyrrum forsætisráðherra Ung-
verjalands til grafar, en í gær fór
fram opinber útför Nagys sem
hengdur var fyrir landráð eftir sýnd-
arréttarhöld árið 1958. Nagy leiddi
uppreisn Ungverja gegn yfirráðum
Sovétríkjanna árið 1956, en sú upp-
reisn var brotin á bak aftur af mikilli
hörku eftir að Sovétmenn sendu
herlið inn í Ungverjaland með sam-
þykki annarra Varsjárbandalags-
ríkja.
Minningarathöfnin stóð yfir í níu
klukkustundir. f minningarræðum
voru bæði Sovétmenn og ungverski
kommúnistaflokkurinn harðlega
gagnrýndir fyrir aðförina að Nagy.
Janos Kadar sem á sfnum tíma tók
við forsætisráðherraembættinu af
Nagy og leiddi þjóð sína smátt og
smátt í átt til aukins frjálsræðis
miðað við önnur austantjaldsríki,
sagði í gær að hann skammaðist sín
fyrir aðförina að Nagy á sínum tíma.
Kadar var við stjórnvölinn allt þar til
í fyrra er hann var neyddur til að
segja af sér. Síðan þáhafa Ungverjar
tekið stór skref í átt til lýðræðis og
hyggjast halda frjálsar kosningar þar
sem fleiri flokkar en kommúnista-
flokkurinn mun bjóða fram.
Ungversk stjórnvöld hafa að
undanförnu lítið sparað lofið á Nagy
og segja að lýðræðisþróunin nú sé
mjög í anda hugsjóna hans. Vonast
þau til þess að með hinni opinberu
útför Nagys nú verði grafinn sá
skuggi sem þjóðin hefur séð á ung-
verska kommúnistaflokknum allt frá
því sovéskir skriðdrekar brutu frels-
ishreyfingu Ungverja á bak aftur
fyrir 33 árum.
Þess má geta að Sovétmenn sem
hafa haft 60 þúsund manna herlið í
Ungverjalandi undanfama áratugi
hyggjast kalla allt sovéskt herlið frá
Ungverjalandi næstu mánuði og
héldu fyrstu hersveitirnar heim í
síðustu viku.
Flugslys á sýningu í Frakklandi
Áhorfendur á hínni frægu flugsýningu sem haldin er í París
ár hvert, fengu óvænt aukanúmer þetta árið þegar sovésk
MiG-29 orrustuþota hrapaði til jarðar í nokkur hundruð
metra fjarlægð frá áhorfendunum. Eins og áður hefur komið
fram í fréttum slapp flugmaðurinn lifandi úr háskanum með
því að skjóta sér út úr þotunni nokkrum sekúndum áður en
þotan skall á jörðinni og sprakk í loft upp.
Sovéski tilraunaflugmaðurinn
Anatoly Kvochur sem flaug MiG-29
orrustuþotunni sem er ein fullkomn-
asta, ef ekki fullkomnasta orrustu-
þotan í annars fjölbreyttum herflug-
flota Sovétmanna, fann að eitthvað
var að þegar hann var að sýna erfiða
lágflugsþraut. Þotan var í 350 feta
hæð og á rúmum tvöföldum hljóð-
hraða er hún missti flugið og féll til
jarðar eins og risastór sardínudós.
Anatoly slapp með skrekkinn og
marinn skrokk og vildi óður og
uppvægur halda áfram að fljúga á
flugsýningunni, þó hann hafi ekki
fengið leyfi til þess.
Sem betur fer fór betur en á
horfðist í þetta skiptið, en því miður
hefur ekki alltaf farið svo á flugsýn-
ingum undanfarið. Enn er ofarlega í
hugum manna harmleikurinn í Ram-
stein í Vestur-Þýskalandi í águst-
mánuði í fyrra þegar sjötíu manns
fórust þegar tvær ítalskar herþotur
skullu saman og brakið dreifðist yfir
áhorfendasvæðin. Það var ekki eina
slysið í fyrra, því í maímánuði fórust
tveir á flugsýningu í Hannover í
Vestur-Þýskalandi og mánuði síðar
fórust þrír þegar ný Airbus A320
farþegaþota frá Air France fórst á
flugsýningu í Frakklandi.
Þetta er heldur ekki fyrsta mann-
skæða flugslysið á Parísarflugsýning-
unni, því árið 1973 fórust þrettán
manns er sovésk TU-144 þota fórst.
aiagsioa Kemur a MiLí-iV orrustuþotuna einhverra hluta vegna og fiugmaðurinn missir stjóm á henni. 2. Anatoly fiugmaður nær að skjóta sér út úr þotunni
er hún fellur til jarðar. 3. Þotan sekúndubroti óður en hún snertir jörðina. 4. MiG-29 omistuþotan ekki lengur til staðar, heldur einungis ólögulegt brak
falið í eldkófi.