Tíminn - 17.06.1989, Page 12
24 Tíminn
Laugardagur 17. júní 1989
KAUPFÉLÖGIN OG
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SlMI 38900
rtlupöWionarvé^
irgae * n»kka \nn e&a _ L
\nu a& Pa*nrasba99a’^ a
f há\m- °%?önd\a bag9ana
i’era&n'e^°Met6in*'enWf
•irp&KKun09 &um
MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
LÓÐARVINNA
Tilboð óskast í frágang lóðar við Menntaskólann
á ísafirði.
Ljúka skal frágangi lóðar vestan, norðan og austan
við skólahúsið. Verkinu skal vera lokið 15. sept-
ember 1989.
Útboðsgögn verða afhent, til föstudagsins 23. júní
1989 gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudaginn
27. júní 1989 kl. 11.00.
INNKAUPASTDFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Jónsmessumót
Árnesingafélagsins í Reykjavík verður haldið á
Hótel Selfoss, laugardaginn 24. júní og hefst með
borðhaldi kl. 19.30, en að loknu borðhaldi um kl.
22.30 hefst dansleikur. Heiðursgestir mótsins
verða hjónin Elínborg Guðmundsdóttir og Páll
Lýðsson í Litlu-Sandvík.
Flutt verða ávörp og skemmtiatriði við borðhaldið,
en að því loknu leikur hljómsveit Jakobs Jónssonar
fyrir dansi.
Nauðsynlegt er að þeir sem ætla að taka þátt í
borðhaldi tilkynni það í verslunina Blóm og græn-
meti, Skólavörðustíg 3a, s. 167111 eða á Hótel
Selfoss s. 98-22500 í síðasta lagi fimmtudaginn
22. júní.
Árnesingar austan fjalls og vestan eru eindregið
hvattir til að fjölmenna á mótið.
Árnesingafélagið í Reykjavík
Málmhúsið á Flúðum. Fyrirtækið Hjúpur sf. hyggst flytja hluta af starfsemi sinni í húsið.
Tfmamyndir: Guðmundur Stelngrímsson
Tveir menn geta byggt
verksmiðjuhús á mánuði
Málmiðjan hf. og og Blikksmiðjan Funi sf. hafa nú hafið
innflutning og framleiðslu á nýrri tegund húsa, svokölluðum
málmhúsum, sem taka eiga mun skemmri byggingartíma
heldur en önnur hús. Hér er um að ræða létt stálgrindarhús
sem eru einungis úr járni og eru boltuð saman á byggingar
stað.
Að sögn forsvarsmanna Málmiðj-
unnar eru húsin það einföld í bygg-
ingu að jafnvel er mögulegt að tveir
menn setji það upp á innan við
mánuði. Efniskostnaður þessara
húsa á einnig að vera um 35% minni
en kostnaður við sambærileg hús.
Eitt hús af þessu tagi er í smíðum
á Flúðum í Árnessýslu. Það hús
ætlar verksmiðjan Hjúpur sf. að
nota undir framleiðslu sína á heita-
vatnsrörum. Það hús hefur verið
nokkum tíma í byggingu, enda hafa
starfsmenn Hjúps sf. einungis unnið
við byggingu þess í íhlaupavinnu.
Húsið er um 500 fermetrar, vegg-
hæðin er 4 metrar og breidd þess 12
metrar. Það kostar uppsett um 3
milljónir íslenskar krónur. Þráinn
Ásmundsson, rekstrartæknifræðing-
ur hjá Málmiðjunni, hefur stjórnað
byggingu hússins.
Enginn nagli er notaður í bygg-
ingu þess og ekkert járn þarf að
sjóða saman. Bygging hússins fer
þannig fram að fyrst er steyptur
lágur veggur sem er síðan notaður
sem undirstaða fyrir stálgrind sem er
fest ofan á. Stálgrindin er boltuð
saman úr sérmótuðum stálbitum og
mun hún vera nokkuð fljót í upp-
setningu. Stálgrindin er þar á eftir
klædd jámplötum að utan og þakið
að hluta til með trefjaplastsplötum,
sú klæðning tekur tvo til þrjá daga.
Húsið er eingrað með steinull og
settar em járnplötur innan á grind-
ina. Eftir það er fyllt upp í grunninn
og gólfið steypt og á þá húsið að vera
tilbúið til innréttingar.
Að sögn Þráins er byggingarlegur
munur á þessu húsi og öðmm fólginn
í því að þetta hús er allt boltað
saman og engar burðarstoðir í vinn-
usal eða þverbita þarf til að halda
því uppi, svo framarlega sem það sé
ekki mikið meira en 12 metrar á
breidd. Einnig er stálgrindin öll
klædd með plötum að innan og að
utan og sést því ekkert í sjálfa
grindina. Þá koma spermrnar innan
á önnur hús.
Hægt er að bæta við húsið á alla
kanta eftir á og breyta staðsetning-
um hurða og glugga á einfaldan hátt
að sögn Þráins
Málmiðjan flytur inn allt efni og
útvegar allar teikningar og útreikn-
inga fyrir byggingarframkvæmdir.
Guðni Jóhannesson, verkfræðingur,
hefur séð um alla útreikninga og
Guðrún Nordal, arkitekt, teiknaði
húsið á Flúðum. Öll hönnun fer
fram í gegnum tölvu.
Þráinn segir hús af þessari gerð
hafa verið í þróun í öðrum löndum
í um 50 ár. Málmiðjan mun lengi
hafa haft í bígerð innflutning á
húsunum og kviknaði hugmyndin
fyrst fyrir um 15 árum. Húsin hafi
síðan verið hönnuð fyrir íslenskar
aðstæður með vind og snjó í huga.
Málmiðjan hefur efni í nokkrar
byggingar í viðbót og stendur til að
byggja fjögur hús í Kópavogi, öll
fyrir verksmiðjustarfsemi. Fyrirhug-
að er að komast að hvernig þessi hús
reynast í a.m.k. eitt ár. Eftir það
verður reynslan könnuð og ákveðið
hvort grundvöllur er fyrir þeim hér.
Húsin eru ekki einungis fyrir verk-
smiðjur því einnig hafa þau verið
notuð sem verslunarhúsnæði, skrif-
stofuhúsnæði, fyrir fiskeldi og fleira
í þeim dúr. Einnig hafa verið gerðar
tilraunir með íbúðarhús af þessu
tagi. Málmiðjan bindur miklar vonir
við húsin og Málmiðjumen segja
þau eiga mikla framtíð fyrir sér á
Islandi.
Samkvæmt þessum upplýsingum
um húsin ætti maður með stofnun
verksmiðju í huga að geta fengið
efni í einum gám ásamt teikningum
sent á staðinn, hringt í vin sinn og
byggt húsið á mánuði. GS.
Stálgrindin er sett á steyptan vegg og
málmplötur á grindina bæði að innan
og að utan og steinull á milli. Þegar
er búið að Idæða hluta hússins, en
klæðning tekur einungis nokkra
daga.