Tíminn - 17.06.1989, Síða 3
Laugardagur 17. júní 1989
HELGIN
13
„Til allrar óhamingju fyrir oss erum
vér svo hörmulega langt burtu frá
hásæti yðar konunglegu hátignar, en
andstæðingár sem hafa hagsmuna að
gæta í þessu máli á hinn bóginn
nálægir. Þeir gætu því ef til vill reynt
með leynd að koma á framfæri
fölskum röksemdum gegn frelsi og
viðreisn íslands, án þess að vér
hefðum hugmynd um eða aðstöðu til
skýringa og andsvara. Vér vonum
þess vegna að yðar hátign fyrirgefi
oss, að mér neyðumst nú til að grípa
til varúðar- og vamarráðstafana sem
eru í fullu samræmi við lögmál
náttúrunnar og réttlætisins, semsé að
gefa út á prenti orðrétt afrit af
þessari bænarskrá ásamt álitsgerðum
stiftamtmanns og amtmanna." Því
skal bætt hér við að ekki varð úr því
að Ólafur Stefánsson stiftamtmaður
skrifaði álitsgerð um bænarskrána,
en í staðinn gaf hann úr sérstakan
bækling um íslensku verslunina.
Viðbrögð embættismanna
í rentukammeri
Bæði í bænarskránni og í álitsgerð
Stefáns Þórarinssonar, sem tekur
ennþá dýpra í árinni, er þess krafist
að íslendingar njóti jafnréttis við
þegna konungs í Danmörku og Nor-
egi. Því til áherslu eru íslendingar
kallaðir þar þjóð með franska orðinu
nation, sem hafði mun ákveðnari
merkingu en danska orðið foik. í
byltingunni tók fyrrnefnt orð að
tákna þjóð sem væri hinn raunveru-
legi handhafi ríkisvaldsins, og vald-
hafar stjórnuðu einungis í umboði
hennar. í samræmi við það tóku
Frakkar þá að hrópa við hátíðleg
tækifæri og í hemum „lifi þjóðin!"
(vive la Nation!) í stað þess að áður
hafði verið hrópað „lifi konungur-
inn!“ (vive le Roi!). Þess vegna fékk
orðið nation áiíka byltingarkennda
merkingu á þessum tíma í vitund
Magnús Stephensen.
og ógnar bæði þeim og óbomum
kynslóðum með mesta eymdarlífi,
ef ekki algerri tortímingu. Því lengur
sem óánægjan grefur um sig í brjóst-
um þeirra er sæta kúgun og féflett-
ingu, því lengur sem almúginn hróp-
ar árangurslaust á stuðning yfirvald-
anna í landinu og því oftar sem þau
sjálf gefa árangurslaust og með
bundnar hendur skýrslur um neyð
landsmanna, án þess að hlustað sé á
sanngjamar kæmr þeirra eða hugsað
um úrræði til að setja kaupmönnum
vomm einhver takmörk, því meira
eykst gremja manna yfir núverandi
verslunarfyrirkomulagi sem misbýð-
ur frelsi þeirra að ósekju.
Ef íslendingar hefðu ekki svo
mikla og góða reynslu af því hve
mjög yðar konunglega hátign hefur
ávallt verið boðin og búin til að létta
hin hörðu kjör þeirra, ef ekki væri
unnt að vona að þessar sönnu og
auðmjúku skýrslur um neyð vora,
sem yðar konunglegu hátign hefur
annaðhvort verið ókunnugt um eða
hefur verið haldið leyndum fyrir
rannsakandi augum yðar hátignar,
myndu hræra hið milda hjarta lands-
föðurins, ef menn hefðu ekki bæði
rökstuddar vonir um og reiddu sig
algerlega á skjóta hjálp og björgun,
ef þjóð vor gleymdi eitt andartak
þeirri hollustu og hlýðni sem henni
bæði ber og hún leitast líka ávallt við
að sýna lögum og tilskipunum yðar
konunglegu hátignar, hversu óger-
legt hlyti það að öðmm kosti að vera
fyrir yfirvöldin að draga úr eða
stemma stigu við örvæntingu þjóðar,
sem er misboðið með slíkri verslun!;
hversu ómögulegt væri þá að halda
þjóðinni, sem er kúguð og misþyrmt
af versluninni, lengur sljórri gagn-
vart örvandi rödd náttúrlegra frelsis-
réttinda!"
Þá er sú ákvörðun að gefa bæn-
arskrána og fylgiskjöl hennar út á
prenti m.a. rökstudd á þessa leið:
manna í Frakklandi og víðar um
lönd eins og einkunnarorðin frelsi,
jafnrétti, bræðralag og t.d. einnig
orðin mannréttindi, lýðveldi eða
republik.
Embættismönnum rentukamm-
ersins sem fjöliuðu um bænarskrár-
málið og lögðu það síðan fyrir krón-
prinsinn, hnykkti mjög við hinu
byltingarkennda orðalagi í bænar-
skránni og álitsgerð Stefáns Þórar-
inssonar. Þeir hafa nefnilega gert
rauð strik o.fl. auðkenni við það sem
þeim þótti þar einkum athugavert.
Auk alls konar stóryrðaéru það t.d.
lofsyrðin í upphafi bænarskrárinnar
um þjóðveldið forna sem er kallað
republik, og ýmis orð og ummæli um
frelsi, náttúrurétt, borgaraleg rétt-
indi, þjóðar- og þegnréttindi, sem
og að íslendingar eru kallaðir þjóð
með orðinu nation, eins og fyrr
segir. Með slíkum auðkennum hafa
embættismenn kammersins að öllum
líkindum viljað beina athygli krón-
prinsins sérstaklega að þessu orða-
lagi, sem þeir vissu að myndu vekja
megna andúð hans.
Bænarskrármenn ofmeta
frjálslyndi krónprinsins
Þó að Friðrik krónprins væri
hlynntur ýmsum umbótum í ríki
sínu, var hann algerlega mótfallinn
öllum breytingum sem skert gætu
einveldið á einhvern hátt. Það var
þess vegna eðlilegt að hann hataði
frönsku byltinguna og allt sem
tengdist henni. Menntað einveldi,
sem ýmsir helstu ráðgjafar krón-
prinsins aðhylltust, átti ekki heldur
sérlega mikil ítök í honum. Þetta
kom berlega í ljós er völd hans
jukust að mun við fráfall A.P. Bem-
storffs ráðherra sumarið 1797. Bem-
storff hafði verið aðalleiðtogi stjóm-
arinnar allt frá 1784, enda var krón-
prinsinn ungur að aldri, óreyndur og
lítt menntaður. Prentfrelsið fór t.d.
mjög fyrir brjóstið á Friðriki krón-
prinsi, eða það sem hann kallaði
misnotkun þess, svo sem gagnrýni á
einveldið og ýmsar stofnanir þess og
lofskrif um mannréttindayfirlýsing-
una frönsku og byltinguna. Svo fór
því að gefin var út konungleg tilskip-
un haustið 1799 sem takmarkaði
prentfrelsið að mun.
Þegar á þetta er litið er ekki við
öðm að búast en krónprinsinn liti á
útgáfu almennu bænaskrárinnar og
fylgiskjala hennar sem eitt dæmið af
mörgum um misnotkun prentfrelsis,
og það því fremur sem sjálfir emb-
ættismenn landsins stóðu að henni.
Það var í fullu samræmi við þetta að
þessir embættismenn fengu harðorð-
ar konunglegar áminningar með hót-
unum um embættismissi, ef þeir létu
slíkt henda sig öðru sinni. Jafnframt
var öllum óskum íslendinga um
aukið eða fullt verslunarfrelsi alger-
lega hafnað. Það sýndi sig þannig að
frömuðir almennu bænarskrárinnar
höfðu gert sér langtum hærri hug-
myndir um frjálslyndi, víðsýni og
umbótaáhuga Friðriks krónprins en
efni stóðu til.
Aðalheimildir:
Sigfús Haukur Andrésson:
Verzlunarsaga íslands 1774-1807 -
Upphaf fríhöndlunar og almenna bænarskráin.
Rvík 1988.
Magnús Stephensen:
Minnisverð tíðindi I.
Leirárgörðum 1796-1798.
7 Oryggi i
fóðurverkun
Heybindivelar!
Tvær gerðir Markant 55 og
verktakavélin Markant 65. Stillanleg
lengd á böggum 40-110 cm.
Öruggar og afkastamiklar vélar. A
HAMDOL ARINOFNAR
Margar gerðir.
Tilvaldir fyrir sumarbústaði eða þá sem hafa
aðgang að rekaviði, skógarleifum, timburafgöngum
o.fl. Sýnishorn á staðnum.
BYGGIR h/f
Grensásvegi 16
s: 37090
□I
BiLVANGURstr
HÖFÐABÁKKA 9 5ÍMI 687300
Pað er engin spurningaðIsuzuTrooper
- 3ja dyra - er rúmgóður og þœgilegur
ferðabíll.
^ Mjög stórt og rúmgott farangursrými.
^ Þœgileg og vel hönnuð innrétting.
^ Léttur og lipur í akstri.
Sparneytin og kraftmikil vél.