Tíminn - 17.06.1989, Side 11
Laugardagur 17. júní 1989
HELGIN
21
vKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKA
var hnífur með 13 sm löngu og 5 sm
breiðu blaði.
Allt gengur upp
Nú gengu lögreglumenn á allar
íbúðir hússins sem voru alls 53.
Enginn sem þar bjó kom heim við
lýsinguna á rósamanninum. Einn
leigjandinn, hinn 29 ára Robert
Nash, gat þó skýrt frá að þegar hann
kom heima um áttaleytið á föstu-
dagskvöld, hafði staðið blár Ford
Sierra á bílastæðinu hans, þannig að
hann þurfti að leita sér að öðru stæði.
Um það bil hálftíma síðar heyrði
hann hlaupið niður stigann og úti-
hurðina skella í lás. Þegar hann leit
út um gluggann sá hann mann setjast
inn í bláa bílinn og aka burtu.
Robert var sýnd mynd lögreglunnar
og kvað hann þetta geta verið mann-
inn sem hann sá.
Á þriðjudagsmorgun fóru Reid og
menn hans til vinnustaðar Imeldu.
Á stæðinu úti fyrir stóðu hvorki fleiri
né færri en sex bílar af gerðinni Ford
Sierra og tveir þeirra voru bláir.
Starfsmannastjórinn gat vpplýst
að Frances Sims, 42 ára starfsmaður,
ætti annan bílinn. Reid bað um að
fá að sjá mynd af honum og þá var
allur vafi úr sögunni: Sims var mað-
urinn sem leitað var að.
Hann keypti rósirnar og það var
hann sem Robert Nash sá hlaupa úr
úr húsinu og inn í bláa bílinn kvöldin
sem Imelda var myrt.
- Færið hann hingað, skipaði
Reid.
Þegar Sims kom og settist, sagði
Reid blátt áfram: - Mig langar að
spyrja þig um morðið á Imeldu
Fleming.
Sims náfölnaði og tók að skjálfa
frá hvirfli til ilja. Loks dró hann
andann djúpt og herti upp hugann.
- Hvað viljið þið vita? spurði hann
svo með sterkum, velskum hreimi.
Ég held að þú ættir að koma með
okkur á stöðina, sagði Reid og leiddi
hann út í lögreglubílinn sem beið.
Vonlaus ást
í fyrstu harðneitaði Sims bæði að
hafa sent Imeldu rósimar og áð hafa
komið nálægt íbúð hennar 26. júlí.
Loks sá hann þó að leikurinn var
i-rances bims nerti loks upp hug-
ann og bauð Imeldu út.
tapaður og þá lagði hann spilin á
borðið.
- Ég var ástfanginn af Imeldu,
sagði hann. - En ég þorði aldrei að
bjóða henni út. Loks ákvað ég að
senda henni rós í sex daga og láta til
skarar skríða þann sjöunda og bjóða
henni út.
- Hún hló að mér, en þakkaði þó
fallega fyrir þegar henni varð ljóst
að mér sámaði. Þegar hún fór inn í
svefnherbergið til að setja sjöundu
rósina í vasann hjá hinum, kom ég á
eftir henni.
I speglinum yfir snyrtiborðinu sá
ég að hún hló aftur, sagði Sims lágri
röddu. - Það varð mér um megn.
Mér fannst hún auðmýkja mig og ég
missti stjóm á mér.
Hann kastaði sér aftan á hana, dró
hana niður í rúmið og nauðgaði
henni.
- Þegar mér varð ljóst hvað ég var
búinn að gera, varð ég viti mínu fjær
af skelfingu. - Meðan Imelda lá
þarna kjökrandi, fór ég fram í eldhús
og sótti hníf í skúffu.
Frances Sims afplánar nú lífstíðar-
dóm fyrir morðið á Imeldu Fleming.
Imelda hló þegar miðaldra maður
bauð henni út.
LRÉ>rWUMU
GRÓÐURHÚSIN
ERU
KOMIN
Vönduð álhús m/3
mm. gróðurhúsa-
gleri eða4mmtvö-
földu ylplasti.
Stærðir:
6,6 ferm. 256x256 cm
8,2 ferm. 256x320 cm
9,8 ferm. 256x382 cm
SINDRA AÁSTALHF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 62
7222'JBjj
MAZDA 626 GLX 2.0 ÁRG. ’88
□ Ekinn 29.000 km □ Sjálfskiptur □
□ Vökva/veltistýri □ Rafmagn í rúðum □
□ Samlæsingar á hurðum □
□ Útvarp/segulband □
□ Sumar- og vetrardekk □
Upplýsingar í síma 685582
og farsími 985-28116
Massey-Ferguson
DRÁTTARVÉLAR
Til afgreiðslu strax