Tíminn - 24.06.1989, Qupperneq 3

Tíminn - 24.06.1989, Qupperneq 3
Laugardagur 24. júní 1989 HELGIN 13 því sem þá gæti komið fyrir og segja svo: „Drekki sig nokkur svo vín- drukkinn á sökum að eigi fái hann sér sjálfum fulla forsjón veitta, þann skulu Sektumenn annast og skal öldungur að því kveða nágranna hans, ef slíks mega þeir orka, er færi hann til síns heima og sé honum samlendur legunautur hans, ella skulu þeir fá honum herbergi þars honum er fullborgið". En það var einmitt út af þessu atriði, drykkjuskapnum á Sökum, sem samtökin fóru að riðlast þegar á leið. í bréfum sem fóru milli ís- lenskra stúdenta, innan og utan Saka á árunum 1766 og 1767, eru þessi drykkjuskaparmál meginefnið. Sést af þeim að þeir biskupssynirnir Hannes og Steinþór Finnssynir hafa hafa álasað Sektumönnum fyrir óhóflegan drykkjuskap og sagst ekki vilja fylla flokk þeirra af þeim ástæð- um eða - „með að drekka óhóflega á vínhúsum“. Svara Sektumennimir fullum hálsi og segja mestu drykkju- svolana einmitt fmnast meðal félaga biskupssona: „Munum vér þá að þér bitust og börðust millum yðar sem skynlaus dýr, en soddan ófögnuður stóð af þeirra eigin vantempran og illri meðferð er svo gjörðu, en víst ekki af vomm samkomum, sem réttbrúkaðar alleina þéna til inn- byrðis ánægju og hefur svo farið síðan þér við þær skildust...“ Allt þetta sem nú var greint lýsir allvel félagslífi og félagsanda landa á Hafnarámm Eggerts Ólafssonar. Það er samtökunum ekki allt til sérlegs sóma. En aldrei var Eggerts getið við þessi mál, þótt hann sæti að Sökum. Annars vom Sakir ekki svo oft haldnar að þeirra vegna hafi getað borið svo mjög á drykkjuskap meðal stúdenta, hvað sem endranær hefur verið. Sakir átti að halda sex sinnum á ári hverju, en á þeim tólf ámm sem fundabókin nær yfir virðist því ekki hafa verið fylgt nema sex árin. Af Sökum var fyrst greind „skipasök", sem átti að halda í velkomandaminni „skipa vorra af íslandi“. Önnur var miðsvetrarsök og hin þriðja sumar- sök. Loks var svo vorsök, „er skip vor fara og lokið er sendingum og bréfagerðum". Samtökin klofna Sektan var almennt stúdentafélag, sem til var fyrir daga Eggerts Ólafs- sonar og eftir. í henni gátu verið og áttu helst að vera allir stúdentar. Fram undir 1765 hefur það líka verið svo, eða fram á síðasta Hafnarár Eggerts. Það er ekki fyrr en í júlí 1766 að rætt er um að þeir biskups- synir og kumpánar þeirra „stukku burt úr vom kompagníe". í Sektunni vom enn fremur óbundnar allar skoðanir manna um þjóðemismál og önnur efni og hafði Sektan engin áhrif í því efni. Virðast ákvæði félagslaga um að menn skyldu stunda glímur vera hið eina HOTtlOCK GARÐÚÐARAR ÚÐUNARKÚTAR SLÖNGUSTATÍV SLÖNGUTENGI GARÐVERKFÆRAÚRVAL HEKKKLIPPUR GREINAKLIPPUR GRASKLIPPUR SLÁTTUORF SMÁVERKFÆRI # BIACK&DECKER m RAFMAGNSSLÁTTUVÉLAR VERÐ FRÁ KR. 7.950 ÞOR^ -AA1V1ÚL-A-T1- sem bendir til að félagið hafi verið annað en skemmtifélag. Þó hafa glímumar meir átt að vera til upp- lyftingar og til þess að minna á lífið heima en að í þeim hafi falist sérstök þjóðemishreyfing. Sama máli gegnir um það þegar á Sökum var fagnað „íslands patriot" Jóni Eiríkssyni, sem var í desember 1771. Það var gert í minningu þess að hann var þá „kommitteraður í Rentukammer- inu“ yfir hálfan Noreg. Það að Sektufélagsskapnum hefur verið ætlað að vera einum og órofn- um fyrir alla landa sést líka á því að þann 22. mars 1765 hélt Eggert gildi og „bauð þangað stúdentum öllum til sátta og einingar“. En þessi ummæli sýna líka að klofningur er kominn í Sektuna um 1765. Getur Espólín þess í árbókum sínum við það ár að „á þeim ámm var allmikil óöld með stúdentum í Kaupmannahöfn, fylgdi annar flokkur Hannesi Finnssyni og var kallaður biskupssonaflokkur, en sá bóndasonaflokkur er Eggert fylgdi og hans bræðrum". En annars munu Verið var að reisa Höfn úr rústum eftir brunann 1728 á þessum árum og nóg um lóðir á bestu stöðum. Það sýnir veisæld helstu ráðherra að þeir þurftu ekki að spara við sig er þeir komu sér þaki yfir höfuðið. Verslunarráð- herrann C. A. Berckentin reisti sér þetta slot 1751-1755. Húsið er nú samkomustaður Oddfellowa- reglunnar í Höfn. engar beinar heimildir vera fyrir því að til hafi verið tvö andstæð félög meðal landa. Biskupssynir og bændasynir voru tveir mismunandi flokkar innan sama félagsins. En óvildin milli þeirra magnaðist smám saman svo, að annar flokkurinn, biskupssynimir, gengu úr félaginu. Tókst ekki að bræða það saman aftur fyrr en löngu seinna að nokkru leyli og í nýrri mynd, svo sem Lærdómslistafélaginu. Fleiri ástæður Um ástæðun til klofningsins getur Espólín þess annars helst að honum hafi ráðið persónulegur óþokki milli þeirra Eggerts og Hannesar, „því Eggert hafði beðið fyrrum Margrét- ar Finnsdóttur og yfirgefið hana og fleira bar til, fóm ei þykkjur saman“. Ennfremur getur hann þess að Egg- ert vildi „að stúdentar héldu uppi glímum og leikjum, en hinum þótti þeim ei það hæfa og komst í metnað- ur“. En samkvæmt samtímabréfum Sektumanna sjálfra, sem fyr getur, stafaði ágreiningurinn fyrst og fremst af drykkjuskapnum á Sökum og óvild af sögusögnum, sem af honum hafa sprottið. En öllum heimildum ber saman um það að klofningnum hafi ráðið persónulegar ástæður, en ekki skoð- anamunur á þjóðmálum. Þegar menn því vilja skoða biskupssona- og bændasonaflokkinn sem fulltrúa tveggja andstæðra stefna í þjóðernis- og menningarmálum er að mestu um að ræða að inn í félagslíf samtíðar Eggerts hafi síðari tímar lagt skoðanir og hugsanir sjálfra sfn. 6 40 ...........tf- .*%> O*................................................................* -Æ>.........................................« O* % cf & -oq pfXQ *Q & %...............................................................Qt <8 » i >lD <3* Q ö $ if % & h b h % i h MADDAMA, KERLING, FROKEN, FRU VEISTU HVERT ÞÚ STEFNIR NÚ? KVENNALISTAKONUR Á FERÐ ALMENNIR FUNDIR, VINNUSTAÐAHEIMSÓKNIR, ÚTIMARKAÐI R. AIJSTURLAND VESTURLAND NORÐURLAND EYSTRA Guðrún Agnarsdóttir og Þórhildur Þorlcifsdóttir 26. JUNI. MANUDAGUR Höfn í Hornafirði. 27. JÚNÍ. ÞRIÐJUDAGUR Höfn í Hornafirði - Iðavellir. 28. JÚNÍ. MIÐVIKUDAGUR Egilsstaðir. 29. JUNI. FIMMTUDAGUR Borgarfjörður eystri. 30. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Seyðisfjörður. Danfríður Skarphéðinsdóttir og Kristín Einarsdóttir 26. JUNI, MANUDAGUR Búðardalur. 27. JÚNÍ, ÞRIÐJUDAGUR Stykkishólmur - Grundarfjörður. 28. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Ólafsvík - Breiðablik. 29. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Borgarnes - Logaland. 30. JUNI, FÖSTUDAGUR Akranes. Kristín Halldórsdóttir og Málmfríður Sigurðardóttir 26. JÚNÍ, MÁNUDAGUR Reykjahlíð. 27. JÚNÍ, ÞRIÐJUDAGUR Ólafsfjörður - Hrísey - Dalvík. 28. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Grenivík - Húsavík - Þórshöfn. 29. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Raufarhöfn.- Kópasker - Breiðamýri. 30. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Akureyri. Konur mætast, konur kætast. Sjá nánar í götuauglýsingum - Geymið auglýsinguna. -c 0 r I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.