Tíminn - 24.06.1989, Síða 10
20
HELGIN
Laugardagur 24. júní 1989
Vísnaþáttur 26. þáttur
Einn dag á þessum veörasama þorra leit Gunnar Kolbeins-
son bóndi Syðri-Knarrartungu út og kvað.
Herðist þorra harður múll
hylur snjórínn grundina.
Óttalega er hann fúll
úti þessa stundina.
Jón Sigurðsson, bóndi á Sólbakka í Borgarfirði eystra vann
eitt sinn í vélsmiðju Braga bróður síns á Sauðárkróki. Bragi
bað Jón að skreppa fyrir sig í smiðju Kaupfélags Skagfirðinga
og kaupa öxulstál. Kaupfélagsmenn voru þá að sníða líkan af
nauti sem átti að standa á búðarborði hjá K.S. Þeir notuðu
við smíðina öxulstál og var það ekki til sölu. Er Jón kom til
baka og sagði frá erindislokum skýrði hann mál sitt með vísu
þessari:
Flest vill ske á fengitíð
frjóvgast eggin víða.
Ur öxulstáli í ergi og gríð
yxnabelju smíða.
Þessi hestavísa er eftir Björn St. Guðmundsson frá Reynik-
eldu:
Gullna fléttu gammur ber
geðið prettar engan lengi.
Mósi léttur fyrstur fer
fetar nett þó grýtt sé engi.
Davíð Guðmundsson bóndi á Glæsibæ kvað:
Öllum getur yfirsést,
ýmsir bíða hnekki,
sumir gráta syndir mest
sem þeir drýgðu ekki.
Auðunn Bragi Sveinsson orti eitt sinn um ungan pilt í Súðavík:
Síst frá víkur sómanum
sig mun slíkur herða.
Áki líkist afanum
og mun ríkur verða.
Guðmundur Guðmundsson frá Kálfsstöðum endar Troll-
mannarímur þannig:
Burt er skíma bráðlega
breytast tímar óðfluga,
andinn kímir úrvinda
endar ríma Trollmanna.
Haraldur Hjálmarsson frá Kambi kvað svo:
/ æsku hafði ég orku og vit
átti vísan framann.
í stað þess hefi eg látið lit
lækkað og gengið saman.
Þessi vísa gæti verið innlegg í kvenfrelsisbaráttuna. Höfundur
ókunnur.
Það hefur löngum loðað við,
líkast gömlu meini.
Að kasta skít í kvenfólkið
en kyssa það í leyni.
Steinbjörn Jónsson frá Háafelli kvað svo:
Röddin mild og höndin hlý
hennar sem ég þráði.
Enn er sól og sumar í
svip og augnaráði.
Að lokum ein vísa af Austurlandi. Björn frá Móbergi yrkir
svo um blaðið Þingmúla eða öllu heldur þess sem ábyrgð hefur
borið á því.
Þingmúli er alltaf að þynnast, styttast og mjókka
þrengist um pláss fyrir minningargreinar og kynni.
Útgefandinn að eldast, hrörna og ljókka
svo afköstin verða þarafleiðandi minni.
Kristmundur Jóhannes-
son
Giljalandi
Haukadal
371 Búðardal
S. 93-41352
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Michelle elskaði Steve en keppti við
Joanne um hylli hans. Steve vildi ekki
hætta að hitta Joanne og Micheile ákvað
að ryðja henni úr vegi. Á einu kvöldi
gerðust atburðir sem Michelle hafði síst
órað fyrir.
Steve Somerville var vinsæll ungur
maður og sá ekkert athugavert við
að eiga náin kynni við fleiri en eina
stúlku samtímis. Það var honum því
ekkert vandamál að tvær stúlkur
börðust um hylli hans. Honum
fannst hann hafa nógan tíma handa
þeim báðum.
Önnur stúlkan var Joanne Tap-
ping frá Dumfries í Skotlandi. Hún
var 19 ára og þau Steve höfðu verið
skólasystkin og þekkst í sex ár. Eftir
að skólanum lauk höfðu þau haldið
kunningsskapnum áfram og hist
reglulega.
Samband þeirra var á vissan hátt
sérstakt þar sem þau voru hvorki
trúlofuð né „bara góðir vinir“. Þeim
leið vel í návist hvort annars og
hvorugt hugsaði um að slíta böndin
sem þrátt fyrir allt voru til staðar.
Hin konan í lífi Steves var hin 21
árs Michelle Beattie. Hún vann í
verksmiðjunni þar sem Steve starf-
aði áður en hann hélt verkfræðinámi
sínu áfram.
Of hreinskilinn
Þar sem Steve og Joanne höfðu
þekkst frá því löngu áður en Steve
fór að hafa áhuga á stúlkum, var
Michelle eins og ferskur andblær í
tilveru hans. Auk þess að vera
lagleg, var hún líka greind og
skemmtileg. Sú staðreynd að hún
var hálfu öðru ári eldri en Steve átti
sinn þátt í að gera hana sérstaka í
hans augum.
Auk þess sem Steve var vinsæll
var hann líka þekktur fyrir hrein-
skilni. Það hafði áður komið honum
í koll og gerði það í þessu máli líka.
Þegar Michelle spurði hann hvort
hann hitti nokkra aðra stúlku en
hana, sá hann engan tilgang með að
segja ósatt og sagði því bara eins og
var.
- Já, ég þekki aðra stúlku, svaraði
hann. - Hún heitir Joanne og við
höfum hangið meira og minna saman
í mörg ár.
- Þá áttu sem sagt kærustu, sagði
Michelle og gat ekki dulið vonbrigði
sín.
- Það er kannski fullmikið sagt,
sagði Steve. - Hún er þó meira en
bara vinkona mín.
Michelle Beattie varð liú óskap-
lega afbrýðisöm gagnvart „hinni
stúlkunni" eins og hún kallaði hana.
En þegar hún krafðist þess að Steve
hætti að hitta Joanne, leit hann hissa
á hana og svaraði stuttlega neitandi.
- Mér þykir allt of vænt um
Joanne til að slíta sambandi við hana
fyrirvaralaust, útskýrði hann. - Auk
þess áttu ekkert með að segja mér
hverja ég má hitta og hverja ekki.
Úrslitakostir
Michelle Beattie þoldi hins vegar
ekki tilhugsunina um keppinautinn.
Kvöld eitt þegar þau Steve fóru
saman á diskótek, setti hún honum
úrslitakosti.
- Steve, ég hef verið að hugsa um
samband okkar, sagði hún alvarleg.
- Ég ákvað að ef þú hættir ekki að
hitta þessa Joanne, er allt búið
okkar á milli.
Eitt það versta sem Steve vissi,
var þegar annað fólk leyfði sér að
segja honum fyrir verkum. Þess
vegna brást hann við bæði af undrun
og gremju.
- Allt í lagi, sagði hann þurrlega.
- Ef þú vilt hafa það þannig er mér
sama. Þar með stóð hann upp frá
borðinu og skildi Michelle eftir.
Undrun Michelle breyttist bráð-
lega í ofsareiði. Hún hugsaði sem
svo að ef hún ætti að sitja ein að
Steve yrði að ryðja Joanne úr vegi.
Vandinn var bara hvemig það ætti
að gerast.
Hún ákvað að heimsækja Joanne
Tapping og reyna að telja hana á að
láta Steve í friði. Það mistókst alveg.
Steve var þegar búinn að segja
Joanne hvemig Michelle hafði reynt
að negla hann niður og hún hló bara
upp í opið geðið á Michelle. Eldrauð
af skömm ög reiði sór Michelle að
hefna sín á þessum frjálslynda keppi-
nauti.
Áætlun um morð
Daga sem nætur velti hún fyrir sér
hvernig hún ætti að losna við Joanne
og dag nokkurn fann hún svarið í
blaði. Aðalfrétt dagsins var um
mann sem rændi 14 ára stúlku um
hábjartan dag og myrti hana síðan
eftir að hafa misnotað hana kynferð-
islega. Sem betur fór setti einhver á
sig bílnúmer hans svo hann var
handtekinn skömmu síðar. Því mið-
ur var þá of seint að bjarga stúlk-
unni.
Af þessari frásögn fékk Michelle
þá hugmynd að ráða Joanne hrein-
lega af dögum. Ef Joanne væri
endanlega úr sögunni yrðu hennar
eigin vandræði það líka. Þá fengi
hún Steve alveg út af fyrir sig.
Af tilviljun komst Michelle að því
að Joanne ætlaði að heimsækja Ra-
chel Maplin vinkonu sína klukkan
hálf níu að kvöldi nokkrum dögum
síðar. Þar gæti tækifærið verið komið
til að losna við keppinautinn fyrir
fullt og allt.
Jafnframt reyndi Michelle allt sem
hún gat til að vingast við Steve á
nýjan leik. Henni tókst það með því
að gefa honum dýrt úr og smjaðra
heil ósköp.
Hins vegar hætti hann ekki að
hugsa um Joanne þrátt fyrir það og
hann lét Michelle vita af því líka.
Steve var hreinskilinn og i þessu
máli gerði það bara illt verra.