Tíminn - 28.06.1989, Qupperneq 2

Tíminn - 28.06.1989, Qupperneq 2
2 Tíminn > Miövikudagur 28. júní 1989 Valur Arnþórsson bankastjóri Landsbankans um vaxtamál: Ekki ætlunin að af- Vaxtamálin hafa að undanförnu verið mikið til umræðu. Valur Arnþórsson bankastjóri Landsbankans sagði í samtali við Tímann að verið væri að leita leiða til að lækka vexti og létta þannig undir með atvinnuvegunum. Hann segir það algjöran misskilning að til stæði að afnema ætti verðtryggingu af innlánum, eins og einhverjir vOdu halda. Valur sagði að ríkisstjórnin sem nú væri við völd, eins og margar fyrri ríkisstjórnir, hefði að undanfömu verið að leita leiða til að styrkja gmndvöll atvinnulífsins. „Hún hefur lagt sérstaka áherslu á að vaxta- kostnaður í þjóðfélaginu lækkaði, en eins og allir vita hefur fjármagns- kostnaður verið grundvallaratvinnu- vegunum mjög þungbær. f samræmi við þetta og eftir samráð við Seðla- banka íslands hafa viðskiptabank- amir lækkað vexti á verðtryggðum útlánum," sagði Valur. Á fundi sl. fimmtudag samþykkti bankaráð Landsbankans að tillögu bankastjóra bankans, að vextir á verðtryggðum útlánum lækkuðu úr 7,25% niður í 6,25% grunnvexti, jafnframt því sem tekið er upp mjög hóflegt kjörvaxtakerfi, að sögn Vals. „Þetta er gmndvallaratriði t' því sem verið hefur að gerast í vaxtamálun- um. Við urðum reyndar að hækka eilítið nafnvexti, vegna þess að verð- bólga hefur farið vaxandi að undan- förnu. Við eltum hana alls ekki upp í okkar ákvörðun, heldur hækkuð- um nafnvexti á útlánum yfirleitt um 1% og síðan er augljóst þegar verð- bólgan fer niður aftur, þá munu nafnvextir geta lækkað," sagði Valur. Hvað innlánahliðina varðar, sagði Valur að fyrir það fyrsta mætti vera augljóst að til þess að bankarnir geti staðist, þá yrði að vera visst jafnvægi milli innlána og útlána. Jafnvægi milli þess sem innlánin kosta bank- ana og þess sem þeir fá fyrir útlánin. “Það er ekkert launungarmál, m.a. vegna ábendinga frá ákveðnum aðil- um í bankakerfinu sjálfu, að svo- nefndir skiptikjarareikningar hafa verið all mikið til umræðu að undan- fömu. Seðlabanki í samráði við ríkisstjómina hefur tekið upp ítar- legar viðræður við viðskiptabankana um skiptikjarareikningana og gmnd- völl þeirra. Eins og skiptikjarareikn- ingamir vom reknir, þar sem ein- staka bankar notuðu allt niður í eins mánaðar viðmiðun fyrir verðtrygg- ingartímabil reikninganna, þá vom þeir mjög erfiðir í stýringu í þeim miklu sveiflum sem vom í verðbólg- unni,“ sagði Valur. Viðræðum um skiptikjarareikn- ingana milli Seðlabankans og við- skiptabankanna er ekki lokið. Sam- komulag hefur orðið um að frá 1. júlí breytast skiptikjarareikningarn- ir þannig, að verðtrygging nær til þeirrar innistæðu sem er óhreyfð í sex mánuði, þ.e. frá 1. júlí til 31. desember nk. „Þetta er í samræmi við nýorðnar breytingar á lögum sem gera ráð fyrir því að ekki má verðtryggja innistæður sem standa skemur en sex mánuði. Þessi breyt- ing var því óhjákvæmileg, sem bein afleiðing af lagabreytingunni,“ sagði Valur. Jafnframt því að þessar breytingar taka gildi frá 1. júlí, þá halda Seðlabanki og viðskiptabankamir áfram að ræða saman um framtíðar- fyrirkomulag skiptikjarareikning- anna. Fyrirhugað er að menn verði búnir að koma sér niður á stefnu varðandi þá í september til október í haust, og hugsanlegar breytingar taki þá gildi um næstu áramót. Aðspurður hvað kæmi þá helst til álita, sagði Valur að lengd viðmiðun- artímabils fyrir verðtryggingu yrði hugsanlega 12 mánuðir. Hann sagði það ekkert launungarmál að Lands- bankinn iegði áherslu á að geta haldið áfram skiptikjarareikningi í formi Kjörbókarinnar sem orðið hefur vinsælasta spamaðarformið í landinu. „Það er því mjög mikilvægt að tmfla ekki það form, á þann hátt að sparifjáreigendur verði órólegir, því spamaður er vissulega gmnd- völlur þess að við getum lánað út til atvinnulífsins. í því sambandi vil ég leggja sérstaka áherslu á og Ieiðrétta vissan misskilning sem mér virðist hafa orðið. Einhverjir virðast standa í þeirri trú að það sé til umræðu og standi til að afnema verðtryggingu á innlánum, hvort sem er á skipti- kjarareikningum eins og Kjörbók- inni okkar eða á öðmm verðtryggð- um reikningum. Það stendur alls ekki til. í mínum huga er það alveg ljóst mál að sparifjáreigendur sjá sínum hag best borgið í framtíðinni eins og hingað til að hafa sína peninga á Kjörbókinn í Landsbank- anum,“ sagði Valur. Valur sagðist vilja koma því á framfæri að algj ör misskilningur væri eins og sumir virtust halda að fé á Kjörbók Landsbankans væri Valur Amþórsson bankastjóri Landsbankans. bundið. “Inni á Kjörbókum Lands- bankans em 15,6 milljarðar og það fjármagn er laust, þ.e.a.s. innistæðu- eigendur geta lagt inn og tekið út eins og þeim hentar og það er einmitt einn af miklum kostum Kjör- bókar. Hins vegar er þýðingarmikið að innistæðueigendur átti sig á því, eins og áður er fram komið, að frá fyrsta júlf til næstu áramóta gildir verðtrygging eingöngu á lægstu inni- stæðu á því tímabili, eða með öðmm orðum, það sem staðið hefur óhreyft," sagði Valur. -ABÓ Grænfriðungar enn að biðja um fjárframlög: Með Island á heilanum Grænfriðungar auglýsa nú að þeir þurfi nauðsynlega á fjárframlögum að halda. Fyrir skömmu birtist í The Sunday Times auglýsing þar sem samtökin biðja einstaklinga að senda framlög að upphæð tólf pund og fjölskyldur 17,50 pund. Sérstaklega er tekið fram að með hærri framlögum sé samtökunum gert kleift að framkvæma meira, náttúrunni til vemdar, og því megi vitaskuld hver og einn láta eins háa upphæð af hendi rakna og viðkom- andi er unnt. I staðinn eiga gefendur að fá sent fréttabréf Grænfriðunga með upplýsingum um framkvæmdir. f auglýsingunni eru íslendingar og hvalveiðar okkar teknar fyrir sem oftar. Grænfriðungar benda á að vísindaveiðar hafi verið bannaðar árið 1986 og halda því fram að íslendingar hafi verið fyrstir til að brjóta það bann. Samtökin segja að fslendingar verði að gjalda meint brot dýru verði og því beiti Græn- friðungar sé fyrir viðskiptabanni á íslenskan fisk. LEIGA HÆKKAR Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði sem samkvæmt samningum fylgir vísitölu hús- næðiskostnaðar eða breytingum meðallauna, sbr. lög nr. 62/1984, hækkar um 5% frá og með 1. júlí næstkomandi. Reiknast þessi hækkun á þá leigu sem er í júní 1989. Þeim láist þó að geta þess að íslendingar munu ekki stunda neinar hvalveiðar á næsta ári, ekki einu sinni í þágu vísindanna. Jafnframt taka Grænfriðungar fram að auk þess sem þeir beini aðgerðum sínum sérstaklega gegn íslendingum muni þeir vinna að algjöru, almennu banni við hvalveiðum. jkb Þrír fyrrverandi biskupar á prestastefnu. Þeir eru Sigurbjörn Einarsson, Sigurður Sigurðsson og Pétur Sigurgeirsson. Halldór Ásgrímsson kirkjumálaráðherra ræddi hugmyndir um aukið sjálfstæði kirkjunnar við upphaf prestastefnu: Sjálfstæðari kirkja þarf að vera fjárhagslega óháð Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup íslands, setti eina fjölmennustu prestastefnu frá upphafi, í Kirkju- hvoli í Garðabæ í gær. Þetta er síðasta prestastefnan sem Pétur biskup stýrir, en hann lætur af embætti l.júlí nk. og markaðist setningarræða hans nokkuð af því. Halldór Ásgrímsson, kirkjumála- ráðherra, flutti næst ræðu sem vakti mikla athygli viðstaddra, en í henni lagði hann áherslu á að auka þyrfti fjárhagslegt sjálfstæði kirkjunnar, yrði stefnt að auknu sjálfstæði hennar, og sagði að „það mætti gera með því að hækka eigin tekjustofna hennar og draga úr fjárveitingum frá ríki. Jafnvel mætti hugsa sér að ganga svo íangt að þjónar kirkjunnar verði ekki lengur á launaskrá ríkisins heldur kirkju“ f starfsskýrslu þjóðkirkjunnar fyr- ir síðasta ár kom fram að af 11 prestum sem vígðir voru á árinu, voru 6 konur, og sagði sr. Bemharð- ur Guðmundsson, fræðslustjóri, að slíkt væri einsdæmi. Samfara um- fjöllun um starfsskýrsluna var greint frá starfsemi Hjálparstofnunar kirkj- unnar og ýmsum nýjungum í fræðslustarfi. Sr. Bernharður sagði að aðalmál prestastefnunnar 1989, safnaðar- uppbygging, tæki mið að því að árið 2000 fögnum við þúsund ára kristni á íslandi og þykir fara vel á því að minnast þess með lifandi starfí safn- aðanna. Dr. Gunnar Kristjánsson flutti framsöguerindi þar sem hann fjallaði um málið í heildarsýn, og síðan ræddi sr. Bemharður um fræðslumál sem lið í safnaðampp- byggingu, Ragnheiður Sverrisdóttir djákni talaði um þjónustuna og sr. Kristján Valur Ingólfsson tók fyrir helgihald sem þátt í uppbyggingu safnaðarins. Fyrsta degi stefnunnar lauk svo með almennum umræðum, og sagði sr. Bernharður að það væri gífurlega gaman og mikils virði fyrir stéttina að geta hist einu sinni á ári og rætt þau mál sem mest brenna á, ekki síst fyrir þá presta sem byggju við einangrun úti á landi. í dag, miðvikudag, verður fjallað um frumvarp um skipan prestakalla og prófastsdæma, sem hinir ýmsu kirkjulegu aðilar hafa rætt að undan- förnu og mun væntanlega verða lagt fyrir Alþingi í haust. Framsögumað- ur er sr. Jón Einarsson prófastur. Sr. Bernharður sagði að í frumvarpinu væri fyrst og fremst gert ráð fyrir skipulagsbreytingum, ekki stæði til að fjölga eða fækka prestaköllum, heldur ætti að reyna að nýta betur. starfskrafta þeirra presta og safnaða sem starfandi væru. Halldór Ás- grímsson vék að frumvarpinu í ræðu sinni í gær og sagði þar meðal annars að í því væri tekið mið af breyttum aðstæðum, búseturöskun og bættum samgöngum síðustu ára. Frumvarp- ið gerir ráð fyrir að embætti vígslu- biskupanna verði efld verulega. Prestastefnunni lýkur með altaris- göngu í Bessastaðakirkju á morgun kl. 18, að loknu heimboði forseta íslands. LDH-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.