Tíminn - 28.06.1989, Page 10

Tíminn - 28.06.1989, Page 10
Tíminn 11 10 Tíminn Miövikudagur 28. júní 1989 Miövikudagur 28. júní 1989 Bakari að atvinnu gerir út ' sköfun og græðir 3,1 millj. Eftir Stefán Ásgrímsson „Ég er einmitt að dunda við að skafa hér og það hlýtur að vera í lagi að ræða aðeins við þig á meðan,“ sagði Georg Már Michaelsen bakari í Hveragerði í gær, en Georg Már Michaelsen er talsvert heppinn maður. Og talsvert áræðinn líka. Síðastliðna átján mánuði hefur Georg Már spilað mikið í skafmiðahapp- drættum. Flestir telja með réttu að dálítið hæpið sé að stóla að ráði á að hreppa vinning sem einhver slægur er í í skafmiðahapp- drætti, eða hvaða happdrætti sem er ef því er að skipta, hvað þá að hafa af slíku bærilegar tekjur. En stundum gengur þetta og hjá Georg Má hefur þetta bara gengið ágætlega. Síðustu átján mánuði hefur hann keypt skafmiða fyrir alls um 400 þúsund krónur en þeim peningum er ekki kastað á glæ því Georg Már hefur hreppt vinninga, bæði í peningum og í varningi að verð- mæti um 3,1 milljón króna. Mismunurinn, eða hagnaðurinn, er á þessum átján mánuðum 2,7 milljónir eða 150 þúsund krónur á mánuði. 350 þúsund kallinn sem Georg Már setti í happ- drættismiða hafa því vaxið um rúmlega 800%. Það þætti nú aldeilis bærileg ávöxtun hvar sem væri. Mitsubishi Colt og Mercedes Bens,“ sagði Georg Már við Tímann. Sagt hefur verið að skafmiðaumsetning Georgs væri á við það sem best gerðist í góðri sjoppu. Vinningshlutfall í skaf- miðahappdrætti er í flestum tilfellum eitthvað yfir 40% og lang flestir vinning- anna eru smávinningar; ein og ein kók- flaska eða fimmtíu kall hér og þar. Heppni Georgs Más er því með ólík- indum því hann hefur á síðastliðnum átján mánuðum unnið í skafmiðahapp- drættum auk bílanna sem þegar hafa verið nefndir; átta utanlandsferðir, vídeótæki, vídeómyndatökuvél auk grúa smávinninga. - Hvernig ber Georg Már sig að við þetta? Reiknar hann út vinningslíkur að einhverju marki eða lætur hann auðnu ráða? „Ég kaupi miðana í búntum beint frá happdrættunum og höfuðtilgangurinn er að styrkja málefnin sem þau standa fyrir.“ - Þú hlýtur að hafa snarað út miklum peningum í skafmiðakaup því varla hefur komið miði á hvern vinning? Um 800% ávöxtun „Jú verulega miklum, ætli ég hafi ekki lagt út á milli 350 og 450 þúsund krónur á þessu eina og hálfa ári.“ - Og hvað hefur þetta fé síðan gefið af sér? „Ætli það sé ekki eitthvað nálægt 3,1-3,2 milljónum að verðmæti.“ - Nú eru þetta allt saman ýmiskonar varningur og utanlandsferðir. Hefur þú getað komið þessu öllu í lóg? „Ég hef notað utanlandsferðirnar til þess að hvíla mig og á bílana báða sjálfur. Að öðru leyti hef ég látið börnin mín njóta góðs af því sem ég hef unnið.“ - En hvað kom til að þú byrjaðir að spila í svo stórum stíl? „Það var mest fikt og nýjungagirni í upphafi eins og oft er þegar einhverjar nýjungar koma á markaðinn. Ég var strax heppinn þegar ég keypti fyrstu miðana sem voru í Fjarkanum, eitthvað átta miða að mig minnir. Ég fór með þá heim að skafa af þeim og þá kviknaði í mér.“ Ólýsanleg tilfinning - Vannstu eitthvað þá? „Já, Mitsubishi Colt bílinn.“ - Hvernig tilfinning er að vinna svona stórvinning eins og bíl, Colt og Mercedes Benz? „Það er ólýsanlegt. Maður trúir þessu ekki fyrr en maður er búinn að fá tækið í hendumar og kominn heim til sín. Ég trúði þessu alls ekki fyrst þegar ég stóð með miðann í höndunum. Tilfinningin er ólýsanleg og engin orð til þar yfir, enda er um að ræða stórkostlega heppni." - Nú ert þú stór viðskiptavinur skaf- miðahappdrættanna. Veita þau þér ekki einhvern afslátt við svona stór miðakaup? „Jú, ég fæ smá aukaafslátt umfram það sem söluaðilar fá.“ - Hvernig hafa kunningjar og nágrann- ar tekið þessari heppni þinni. Samgleðj- ast þeir þér eða eru þeir grænir af öfund? „Sumir samgleðjast, aðrir líta mann hornauga og segja að peningarnir leiti þangað sem fé er fyrir.“ - Varstu talinn ríkur fyrir? „Já ætli það ekki. Ég hef nóg fyrir mig og mína fjölskyldu. Það skortir ekkert slíkt hjá mér.“ - Ætlarðu að halda áfram að skafa? „Já, ég hætti ekki snöggt heldur dreg smám saman úr, en ég er búinn að skafa ein þrjú búnt í dag.“ - Hefurðu verið heppinn í öðrum happdrættum? „Já, í Happdrætti Háskólans. Ég hef af og til fengið sæmilega góða vinninga á trompmiða en ég spila aðeins á slíka miða.“ - Þú virðist vera ótrúlega heppinn, nánast fagmaður í að vinna í happdrætt- um. Geturðu ráðlagt mér sem aldrei vinnur neitt í þessu efni? „Nei varla, nema þá að kaupa svona tíu-tuttugu búnt í einu og skafa það. Það er eina vonin.“ „Réttu græjurnar" - Hvemig útbúnaði hefur þú komið þér upp við að skafa alla miðana? „Ef þú sæir verkfærið sem ég sit með í höndunum þá myndir þú hlæja. Ég nota pappírshníf en það vantar skaftið á hann. Ég beygði bara oddinn á honum og ég er mjög fljótur að skafa með honum, allt fer af í einni sviptingu. Laddi ætti eiginlega að komast í þetta því þetta eru réttu græjurnar.“ í „skafmiðakreðsum" ganga sögur um að Georg Má hafi tekist vel að prútta og fá verðið á miðabúntunum enn meira niður en sem nemur 10% sölulaunum. í því sambandi er talað um að hann hafi fengið eitt þúsund sjötíu og fimm krónu miða með 40% afslætti og greitt fyrir „partýið“ 45 þúsund krónur í stað 75 [þúsunda. Við höfum ekki fengið þetta staðfest en hins vegar vitum við að ekki var i hagnaður af þessum kaupum. Georg Már er nú nýbúinn að skafa af þessum þúsund miðum og engir stórvinningar voru á þeim, aðeins ein og ein kókflaska. Venjulega stendur aftan á skafmiðun- um hversu margir stórvinningar eru í boði innan tiltekinnar upplagsstærðar skafmiða. Karl Sigurgeirsson hjá Lukku- tríói sagði Tímanum að til dæmis hefðu fyrir nokkru verið fjórir Mercedes Benz bílar verið stærstu vinningarnir. Gefnir hefðu verið út milljón miðar og hefðu því líkurnar á því að vinna Benza verið einn á móti tvöhundruð og fimmtíu þúsund útgefnum miðum. „Maðurinn hefur verið þrælheppinn. Þótt þú kaupir þér þúsund miða búnt þá eru ekki stórbrotnar líkur á að þú græðir á viðskiptunum. Þannig gætu verið nokk- urra prósenta líkur á að þú hagnist við slík kaup,“ sagði Karl. Karl sagði að auðvitað væru skafmið- arnir gerðir í fjáröflunarskyni og eðli málsins samkvæmt væri hagnaðarvonin fyrir einstakan kaupanda lítil. „Það eru bara þeir heppnu sem vinna, en þeir geta á hinn bóginn unnið verulega stóra vinn- inga,“ sagði hann. En spilar fólk í happdrættum.yfirleitt upp á hagnaðarvonina eða vill það með þátttöku sinni fyrst og fremst styrkja tiltekið málefni? Við ræddum við nokkra menn sem tengjast happdrættum á einn eða annan hátt og flestir töldu þeir að yfirleitt væri hagnaðarvonin ekki það sem efst er á baugi hjá fólki. Einn viðmælandi sagði að sér sýndist að talsvert misjafnt væri eftir aldri og - efnahagslegri afkomu fólks hvernig og hversu mikið það tæki þátt í fjárhættu- spili. Eldra fólk sem lokið hefði ævistarfi sínu virtist eyða almennt meiri tíma og fjármunum í slíkt en t.d. flestir aðrir þjóðfélagshópar. Það væri þó ekki fyrst og fremst hagnaðarvonin sem ræki hina öldruðu áfram heldur stjórnaðist spila- gleði þess ef til vill meir af spilafíkn. Þetta gerði hins vegar fólkinu yfirleitt lítið til þar sem það ofbyði sjaldan fjárhag sínum og eyddi kannski fé sínu ekki í neinn annan óþarfa. Skrifari minn- ist í þessu sambandi stórhópa aldraðs fólks, einkum kvenna sem komu daglega í Tívolí í Kaupmannahöfn þegar garður- inn opnaði á morgnana. Fólkið stikaði beina Ieið að spilaköss- unum, sem Danir kalla „einhentu þjóf- ana“. Þegar fólkið kom að „sínum“ vélum, dró það úr pússi sínu meðalstóran rusla- poka fullan af tuttugu og fimmeyringum og hófu síðan spilamennskuna og sátu við þar til tuttugu og fimmeyringahrúgan var uppurin. Þá var hætt og haldið heim. Happdrættismenn segja að algengt sé að eldra fólk séu góðir viðskiptavinir skafmiðahappdrættanna. Þá sé fólk sem hefur, eða finnst sjálfu það hafa erfiða afkomu, einnig góðir viðskiptavinir, en hjá því fólki sitji hagnaðarvonin í önd- vegi. Lang flestir kaupi sér skafmiða eða aðra happdrættismiða aðallega vegna þess að það vill styrkja það málefni sem happdrættinu er ætlað að styrkja en jafnframt hafi það sjálft svolítinn spenn- ing upp úr krafsinu. Vegna þess að sala skafmiða hefur dregist saman að undanförnu þá leita happdrættin nú leiða til að glæða söluna aftur. Meðal þess er leitast við að gefa nýja miða út oftar á ári en verið hefur, þar sem aðdráttarafl skafmiðanna er ætíð mest fyrstu daga og vikur eftir útgáfu. Brátt verða útgefnir hjá einu af þrem stærstu skafmiðahappdrættunum miðar sem kosta munu hundrað krónur stykkið. í þeim miðaflokki verða tiltölulega fáir vinningar, en stórir. Þá er að koma á markað miðaflokkur þar sem vinningar eru mjög margir og hæsti vinningur tiltölulega lágur, eða 180 þúsund. Þar verða líkur á að hreppa vinning verulega meiri en í hinu, en hagnaðarvonin hins vegar minni. Þá má geta þess að hjá einu happdrætt- inu er enn tæplega tveggja milljóna bíll óútgenginn og eru 250 þúsund útgefnir miðar að baki hans. Hins vegar eru verulega margir miðar af þessu 250 þúsund miða upplagi seldir þannig að líkurnar aukast stöðugt á að hreppa góðan bíl fyrir hundrað kall. Mitsubishi í fyrra, Benz í ár „Ég er búinn að fá tvo bíla á þessu ári;

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.