Tíminn - 28.06.1989, Blaðsíða 18
'■ 18 Tífriinn
Mlðvikudagur 2S-. -júní 1989
fllllflllllll (ÞRÓTTIR lillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllB
Frjálsar íþróttir:
EINAR VANN í LAUSANNE
Einar Vilhjálmsson sigraði í
spjótkasti á alþjóðlega Grand Prix
mótinu í Lausanne í Sviss í gærkvöld.
Einar kastaði 79,82 m. Einar vann
sigur á mörgum þekktum spjót-
- kastaði 79,82 m á Grand Prix-mótinu í gærkvöld
kösturum í gær og virðist vera í góðri
æfingu um þessar mundir.
Bretinn Mike Hill varð annar í
Lausanne í gærkvöld með 78,90 m.
Bandaríkjamaðurinn Mike Barnett
varð í 3. sæti með 78,86 m. Frakkinn
Pascall Lefevre kom næstur með
77,42 m og í 5. sæti varð V-Þjóðverj-
inn Andreas Linden með 76,86 m. í
6. sæti varð Rudoph Steiner frá Sviss
með 73,38 m.
Einar vann einnig í spjótkast-
keppni í Frakklandi um síðustu
helgi, en á morgun keppir hann á
Grand Prix móti í Helsinki í Finn-
landi. Þar verður Vésteinn Haf-
steinsson kringlukastari einnig með-
al keppenda. BL
Einar Vilhjálmsson sigraði í spjótkasti í Lausanne í Sviss í gærkvöld.
Frjálsar íþróttir:
Roger Kingdom með
besta tíma ársins
- í 110 m grindahlaupi á Grand Prix mótinu í Lausanne
Bandaríski Ólympíumeistarinn í
110 m grindahlaupi, Roger
Kingdom, náði í gær fram hefndum
gegn Bretanum Colin Jackson á
Grand Prix frjálsíþróttamótinu í
Lausanne í Sviss, en Jackson sigraði
Kingdom í síðustu viku.
Hlaupið í Lausanne var mjög
spennandi og þrívegis var þjófstart-
að. Þrátt fyrir úrhellis rigningu náði
Kingdom besta tíma ársins í grein-
inni er hann hljóp á 13,13 sek.
Colin Jackson hljóp á 13,23 sek.
og Greg Foster frá Bandaríkjunum,
sem tvívegis hefur orðið heimsmeist-
ari í greininni, hljóp á 13,29 sek. í
þriðja sæti.
Down Sowell frá Bandaríkjunum
sigraði í 100 m hlaupi kvenna á 10,99
sek. Bandarískar stúlkur urðu í
fjórum efstu sætunum í hlaupinu.
í 100 m hlaupi karla skar mynda-
vél úr um úrslit, því þeir Dennis
Mitchell frá Bandaríkjunum og Ray-
mond Stewart frá Jamaica komu
báðir á 10,03 sek. í mark. Mitchell
var úrskurðaður sjónarmun á undan.
Leroy Burrel, einnig frá Bandaríkj-
unum varð f þriðj a sæti á 10,17 sek.
Said Aouita sigraði í 1.500 m
hlaupi karla á 3:35,26 mín. Annar í
hlaupinu varð Kenýa-maðurinn Wil-
fred Kirochi á 3:35,67 mín. Ólymp-
íumeistarinn Peter Rono frá Kenýa
varð í þriðja sæti á 3:35,80 mín.
í 200 m hlaupi kvenna sigraði
Grace Jackson frá Jamaica á 22,52
sek. Diane Dixon frá Bandaríkjun-
um varð önnur á 23,05 sek. og
svissnesk stúlka náði þriðja sætinu.
í 400 m hlaupi karla unnu Banda-
ríkjamenn þrefaldan sigur. Steve
Lewis sigraði á 44,47 sek. Tim
Simon varð annar á 44,71 sek. og
Danny Everett varð þriðji á 45,20
sek.
Ólympíumeistarinn í langstökki,
Carl Lewis frá Bandaríkjunum sigr-
aði í langstökkinu í Lausanne í
gærkvöld. Lewis náði ágætum árang-
ri og stökk 8,43 m.
Peter Koech sigraði í 3.000 m hindrun-
arhlaupi á 8:15,78 mín. I kúluvarpi
kvenna sigraði Heidi Kruger A-Þýska-
landi með 20,37 m. Patti Sue Plumer
Bandaríkjunum sigraði í 3.000 m hlaupi
kvenna á 8:42,12 mín. í hástökki kvenna
sigraði Galina Astafei frá Rúmeníu,
stökk 1,90 m. Marieta Ilcu frá Rúmeníu
sigraði í langstökki kvenna, stökk 6,61 m.
Portúgalinn Jose Regalo bar sigur úr
býtum í 5.000 m hlaupi á 13:27,25 mín. í
400 m grindahlaupi kvenna varð Sabdra
Farmer frá Jamaica hlutskörpust á 54,76
sek. Ana Fidelia Quirot frá Kúpu sigraði
í 800 m hlaupi kvenna á 1:57,95 mín.
BL
Knattspyrna 2. deild:
Víðissigur
Víðismenn unnu Völsunga frá
Húsavík með 4 mörkum gegn 2 í
Garðinum í gærkvöld. Grétar Ein-
arsson gerði 2 mörk fyrir Víði,
Vilberg Þorvaldsson 1 og Hlynur
Jóhannsson 1. Ásmundur Arnarsson
og Skúli Hallgrímsson gerðu mörk
Völsunga. BL
Tennis-Wimbledon:
AUDVELT HJA STEFFIGRAF
OG MARTINU NAVRATILOVU
- í fyrstu umferðinni á kvennadegi á Wimbledon tennismótinu í gær
Það var ekki að sjá á Steffi Graf
frá V-Þýskalandi, að iiún hafi beðið
lægri hlut á opna franska tennismót-
inu 17. júní s.l. Graf var öryggið
uppmálað í gær er hún sigraði bresku
stúlkuna Julie Salmon í fyrstu um-
ferð Wimbledon tennismótsins.
Graf var öryggið uppmálað þegar
hún lagði Salmon, 6-1 og 6-2. Hún
hefur greinilega ekki farið á taugum
eftir tapið gegn Arantxa Sannchez í
París á dögunum og virðist líkleg til
þess að komast í úrslitaleikinn, en
hún sigraði á mótinu í fyrra.
Mótherji Graf frá því í fyrra,
Martina Navratilova frá Bandaríkj-
unum, vann einnig auðveldan sigur
í gær. Hún lék gegn Jill Hethering-
ton frá Kanada og sigraði 6-3 og 6-2.
Það er því ýmislegt sem bendir til
þess að þessar tvær tenniskonur
berjist um sigurinn í Wimbledon
mótinu.
Meðal annarra úrslita á mótinu í
gær má nefna að Zina Garrison frá
Bandaríkjunum, sem er 5. á heims-
listanum, vann Kimiko Date frá
Japan örugglega 6-1 og 6-2.
Chris Evert frá Bandaríkjunum
sem nú er í 4. sæti á heimslistanum,
vann í gær löndu sína Peanut Louie
Harper auðveldlega 6-1 og 6-1.
Bandaríska stúlkan Susan Sloane
sem er 16. á heimslistanum, vann
Sany Collins, einnig frá Bandaríkj-
unum, 6-4 og 6-0.
Þá vann argentínska stúlkan Ge-
briela Sabatini aðveldan sigur gegn
Dianne Balestrat frá Ástralíu 6-1 og
6-0. Sabatini er um þessar mundir 3.
á heimslistanum í kvennaflokki.
Keppnin hófst á mánudag og þá
urðu helstu úrslit í kvennaflokki þau
að Helena Sukova frá Tékkóslóvak-
íu vann Monique Javer frá Bretlandi
6- 4 og 6-4.
Lendl í basli
í fyrradag kepptu margir af hæst
skrifuðu körlunum í fyrstu umferð
mótsins. Ivan Lendl frá Tékkó-
slóvakíu, sem unnið hefur til flestra
verðlauna í tennisheiminum annarra
en sigurs á Wimbledonmóti, lenti í
miklu basli með Nicolas Pereira frá
Venezuela. Lendl hafði þó sigur að
lokum 7-6, 4-6, 6-3, 6-7 og 6-1.
Stefan Edberg frá Svíþjóð, sem
sigraði á mótinu í fyrra sigraði Chris
Pridham frá Kanada örugglega, 6-3,
6-4 og 6-1.
Mótherji Edbergs frá því í fyrra,
V-Þjóðverjinn Boris Becker, sem
tvívegis hefur sigrað á Wimbledon,
vann einnig sigur í sínum leik á
mánudag. Hann bar þá sigurorð af
Brian Shelton frá Bandaríkjunum
6-1, 6-4 og 7-6.
Gamla kempan Jimmy Connors
frá Bandaríkjunum vann Andrei
Cherkasov frá Sovétríkjunum 6-3,
6-2, 4-6 og 6-3.
Michael Chang frá Bandaríkjun-
um, sem vann Lendl eftirminnilega
á opna franska mótinu á dögunum,
sigraði í sfnum leik gegn Bandaríkja-
manninum Bill Scanlon, 6-4,6-3,2-6
og 6-3.
Miloslav Meir frá Tékkóslóvakíu
vann Scott Warner frá Bandaríkjun-
um 6-2, 6-2 og 6-4.
Þá vakti athygli að Júgóslavinn
Slobodan Zivojinovic vann Svíann
Anders Jarryyd 3-6, 7-6, 6-3 og 6-0.
McEnroe var hætt kominn
í gær munaði litlu að Bandaríkja-
maðurinn John McEnroe félli úr
keppninni. Hann tapaði fyrstu
tveimur lotunum gegn Ástralanum
Darren Cahill, 4-6 og 4-6. En
McEnroe snéri leiknum sér í hag og
vann næstu þrjár lotur 6-2, 6-3 og
8-6. Það mátti því ekki muna miklu
í lokahrinunni, en McEnroe sem er
5. á heimslistanum um þessar
mundir, náði að bjarga andlitinu.
Kevin Kurren frá Bandaríkjun-
um, 12. á heimslistanum, vann And-
rew Castle frá Bretlandi 6-2,4-6,7-6
og 6-3.
Spennan var samt hvað mest í leik
þeirra Jonasar Svensson frá Svíþjóð
og David Wheatons frá Bandaríkj-
unum. Bandaríkjamaðurinn var
óheppinn og tapaði þremur lotum
7-6.
Handknattleikur:
Hilmar tekur
við 21 árs
landsliðinu
Hilmar Bjömsson handknattleiks-
þjálfari hefur verið ráðinn þjálfarí
21 árs landsliðsins, sem taka mun
þátt í úrslitakeppni heimsmeistara-
mótsins í haust, en sú keppni verður
á Spáni.
Hilmar tekur við að Jóhanni Inga
Gunnarssyni, sem stýrði Iiðinu til
sigurs gegn Sviss í úrslitaleikjum um
þátttökurétt í mótinu á Spáni.
ísland leikur í riðli með Spánverj-
um, V-Þjóðverjum og Tékkum í
mótinu. BL
Þær voru í sviðsljósinu á kvennadegi á Wimbledon-mótinu í gær. Gabriela
Sabatini frá Argentínu til vinstri og Steffi Graf frá V-Þýsklandi til hægri.