Tíminn - 29.06.1989, Side 4

Tíminn - 29.06.1989, Side 4
4 Tíminn Fimmtudagur 29. júní 1989 SENDIBÍLASTÖÐIN Hf SÍM125050 Farsœll flutningur 1949 -1989 29. júní 1989 Verðum við með opið hús í Borgartúni 21 Veitingar allan daginn LÍTIÐ INN ALLIR VELKOMNIR BÍLASÝNING Saga stöðvarinnar í máli og myndum MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ Vinnuaðstaða kennara - lyfta Tilboð óskast í breytingar og endurbætur á húsnæði Menntaskólans við Hamrahlíð. Meðal annars skal stækka glugga á útveggjum kjallara í suðurálmu skólans, endurnýja lagnir og setja upp lyftustokk. Verkinu skal skila í nokkrum áföngum: Skila skal fyrsta hluta þess 28.8. 1989 en verklok á verkinu í heild verða 22.4. 1990. Útboðsgögn verða afhent til föstudagsins 7. júlí gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Húsið verður væntanlegum bjóðendum til sýnis dagana 3., 4. og 7. júlí milli kl. 9 og 12. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudaginn 11. júlí 1989 kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 'W' iðnskOlinn í reykjavík Orðsending til nemenda Þeim nemendum sem hyggjast stunda nám á haustönn 1989 er bent á að staðfestingargjöld þurfa að hafa borist skólanum í síðasta lagi 4. júlí. Eftir þann tíma verður tekið inn af biðlistum. Iðnskólinn í Reykjavík. TÖLVUNOTENDUR Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu. PRENTSMIÐIAN Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 Ríkisútvarpið langefst á vinsældalistanum: Um 65% íslendinga ánægðir með RUV Hlutfall svarenda 18-75 ára sem telja tilgreindai stofnanir gegna hlutverki sínu vel. Rilcisútvarpiö Háskólinn Rjóöleikhúsiö Lögreglan þjóökirkjan Menntaskólar grunnskólar dómstólar Alþingi „Vel“ var svaríö hjá tveim af hverjum þrem af þeim 1.050 landsmönnum sem Félagsvís- indastofnun spurði: Telur þú að Ríkisútvarpiö gegni hlutverki sínu vel, sæmilega eða illa? Að- eins um 7% svöruðu „UIa“. Ríkisútvarpið fékk lang besta einkunn af öllum þeim opinberu stofnunum sem álits landsmanna var leitað á, þrátt fyrir að könnunin var gerð um svipað leyti og afnotagjöld Ríkisút- varpsins voru hækkuð umtals- vert. Hjá þriðjungi bænda og sjómanna var Ríkisútvarpið m.a.s. efst á blaði þegar spurt var um hverja af nokkr- um stofnunum fólk vildi helst efla með opinberu skattfé, og það sama var uppi á teningnum hjá fjórðungi þeirra sem náð hafa sextugsaldri. Yngsta fólkið (18-24 ára) sker sig nokkuð úr. Af þeim töldu 45% RUV gegna hlutverki sínu „vel“ en 14% „illa“. Meðal fólks á aldrinum 40-60 ára voru sömu hlutföll aftur á móti 72% og aðeins 4% svaraði „ilía“. Aðrir völdu svarið „sæmi- lega“. Svarið var „vel“ hjá 60-70% allra menntunarhópa og sömuleiðis allra starfsstétta. Töluverður munur kemur hins vegar fram eftir búsetu. Um 71% landsbyggðamanna svaraði „vel“ en aftur á móti 55% Reyknesinga. Svipað er uppi á teningnum þegar Iitið er á svör manna eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka. Yfir 80% alþýðubandalagsmanna telja Ríkisútvarpið gegna sínu hlutverki vel og ekki einn einasti svaraði „illa“. Meðal sjálfstæðismanna voru hlutföllin 60% og 12%, en þar var stærsti hópur óánægðra ásamt með yngstu kynslóðinni. I könnuninni var einnig spurt: Ef taka ætti opinbert skattfé til að efla eina af eftirtöldum stofnunum með auknum fjárveitingum, hverja myndir þú helst velja? Um var að ræða Þjóðleikhús, Grunnskóla, Há- skóla, Listasafn íslands, Ríkisút- varpið, eða ekkert af þessu. Af öllu úrtakinu valdi rúmlega helmingurinn grunnskólana, um 16% Háskólann og 12% Ríkisút- varpið. Afar fáir voru reiðubúnir að láta skattpeninga sína til styrktar Listasafninu, eða minna en 1%. Vilji til opinberra fjárveitinga til Ríkisútvarpsins óx með hækkuðum aldri, er um þrefalt meiri á lands- byggðinni (17%) en á Reykjanesi, nær tvöfalt meiri meðal sjálfstætt starfandi (19%) heldur en launþega og nær þrefalt meiri meðal fram- sóknarmanna (23%) en sjálfstæðis- manna. Loks má nefna að nær allir sem spurðir voru lýstu skoðun á Ríkisút- varpinu og sama var raunar að segja um lögreglu og Alþingi. Allt að fjórðungur tók aftur á móti ekki afstöðu til annarra stofnana. -HEI Alþjóðlegt köfunarnámskeið: Kafað á Sri Lanka Hópur áhugafólks um köf- un hefur ákveðið að efna til ferðar á alþjóðlegt köfunar- námskeið við Indlandshaf. Um er að ræða 19 daga ferð sem stendur frá 16. ágúst til 3. september n.k. Sjálft námskeiðið stendur í tíu daga og er kafað í Indlandshafi, bæði við Colombo og á öðr- um stöðum á suðurströnd Sri Lanka. Námskeiðið er á veg- um alþjóðlegs köfunarskóla og öðlast þátttakendur „Open WaterDiver“ rétt- indi, samkvæmt PADI- staðli. Námskeiðin eru bæði fyrir byrj- endur og reynda kafara, sem boðið er upp á skoðunarferðir með leið- sögn um undirdjúpin, meðan nám- skeiðið stendur yfir. Á þessum slóð- um er sjórinn mjög tær, litríkt sjáv- arlíf og skipsflök frá ýmsum tímum. íslenski fararstjórinn hefur áður stundað nám við þennan sama al- þjóðlega köfunarskóla. Ætlunin er, að þeir sem taka þátt í námsferðinni geti orðið stofnfélag- ar í alþjóðlegum klúbbi köfunar- fólks, sem ætlunin er að stofna á íslandi. Allar frekari upplýsingar um köf- unarnámsferðina að Indlandshafi er hægt að fá á skrifstofutíma í stma 91-15331 og hjá fararstjóranum, Júlíusi Einarssyni, í síma 91-16652. SSH Félagsvísindastofnun kannar hug þjóðarinnar: Alþingi fékk „falleinkunn“ Segja má að Alþingi hafi fengið „falleinkunn“ hjá þjóðinni í könn- un Félagsvísindastofnunar á af- stöðu landsmanna til ýmissa opin- berra stofnana. Af hverjum 100 kjósendum telja 38 Alþingi gegna hlutverki sínu illa, en aðeins 6 sögðu vel. Rúmlega helmingur kjósenda sagði sæmilega. Verður að telja þetta afar slæma niður- stöðu fyrir Alþingi, þegar litið er til þess að í kringum helmingur þessara sömu kjósenda telja flestar aðrar stofnanir, sem leitað var álits um, skila hlutverki sínu vel - hin umdeilda stofnun Ríkisútvarpið þó best þeirra allra. Aðeins dómstól- arnir nálguðust „falleinkunn" Al- þingis. Kjósendur voru spurðir: Telur þú Alþingi gegna hlutverki sínu vel, sæmilega eða illa? Um 40% allra karlanna töldu Alþingi gegna hlutverki sínu illa, en 35% kvennanna. Óánægðastir allra eru iðnaðarmenn, sérfræðing- ar og atvinnurekendur (46%). I aldurshópum var óánægjan mest hjá 25-50 ára, og eftir landsvæðum mest á Reykjanesi. Skipt eftir stjómmálaflokkum, svöruðu 42% stuðningsmanna Kvennalista: Illa. En hins vegar fæstir í hópi framsóknarmanna, eða 28%. I öllum flokkum voru ósköp fáir sem gáfu einkunnina: Vel, eða aðeins á 5-8%. -HEI Spariskírteini seljast grimmt Mikil sala var í spariskírteinum ríkissjóðs í síðustu viku, en þá seldust spariskírteini fyrir um 800 milljónir króna. Þetta er tæplega helmingur þess sem selt hefur verið af spariskírteinum frá áramótum, en heildarsalan er um 1.800 milljónir króna. Pétur Krístinsson framkvæmdastjóri Söluskrífstofu ríkisskuldabréfa sagði í samtali við Tímann, að það sem réði þessum mikla fjörkipp væri að fólk virtist trúa því að raunvaxtalækkunin sé að eiga sér stað og það sé að tryggja sér skírteinin á þeim vöxtum sem í boði eru í dag. Vextimir sem era í boði til mánaðamóta, eru 6,8 til 7%, en lækka frá og með 1. júlí í 6% og 5,5%. Pétur sagðist búast við því að salan í þessari viku yrði einnig góð. -ABÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.