Tíminn - 29.06.1989, Page 5
Fimmtudagur 29. júní 1989
Tíminn 5
Hið árlega Tommamót knatt-
spymufélagsins Týs var sett f gær-
kvöldi með skrúðgöngu, knatt-
spymuleik á milli stjörnuliðs Ómars
Ragnarssonar og slökkviliðs Vest-
mannaeyja í fullum skrúða, ræðu-
höldum og flugeldasýningu. Auk
þess sýndi Bjöm Thoroddssen list-
flug og dreifði karamellum yfir svæð-
ið og heimsmeistarinn í að halda
bolta á lofti lék listir sínar.
Undirbúningur hefur staðið síðan
í febrúar. Samtals var búist við að
um þúsund manns, keppendur,
þjálfarar, foreldrar og aðrir, mættu
á svæðið. Allur fjöldinn er hýstur í
tveimur skólum og var að sögn eins
Týsmanna mikið fjör á þeim bæjum.
Tommamótið í ár er það sjöunda
sem Týr stendur fyrir. Spilaðir
verða, á fjórum völlum og innan-
húss, samtals 250 fótboltaleikir á
fjórum dögum. Keppendur, strákar
á aldrinum fimm til tíu ára, koma
hvaðanæva af landinu, alls 48 lið frá
24 félögum. jkb
HÆRRI ELULÍFEYRI!
Á stofnfundi Landssambands
aldraðra, sem haldinn var á Akur-
eyri fyrir skömmu, var samþykkt
ályktun um að ellilífeyrir, óskert
tekjutrygging og heimilisuppbót sem
nú nema samtals kr. 35.383 verði
hxkkað upp í kr. 45.000, og skerðing
tekjutryggingar sem nú hefst þegar
aðrar tekjur hafa náð kr. 10.665
hefjist eltki fyrr en við 25.000. Einnig
að hjón fái greiddan lífeyri sem tveir
einstaklingar.
Jafnframt taldi fundurinn nauð-
synlegt að athugað verði hvemig
almannatryggingar og greiðslur úr
lífeyrissjóðum eigi að tengjast í
framtíðinni. Fundurinn bendir í því
sambandi á niðurlagsorð í formála
að frumvarpi til laga um starfsemi
lífeyrissjóða frá 1986, en þar segir:
„Löngu er orðið tímabært að taka til
endurskoðunar samhengið milli
greiðslna ellilífeyris og tekjutrygg-
ingar frá almannatryggingum,
greiðslna eftirlauna frá lífeyrissjóð-
um og skattlagningar þessara
greiðslna." Landssamband aldraðra
beinir því til ríkisstjómarinnar að
skipuð verði nefnd til að athuga
þetta mál og fer fram á að fá fulltrúa
í þeirri nefnd.
Fundurinn taldi það ófæra leið að
spamaður í ríkisrekstri komi niður á
öldruðum og að deildum sjúkrahúsa
og stofnana sem hafa með þjónustu
við þá að gera sé lokað eða dregið
mikið úr þjónustu. „Það er ófært að
senda fólk heim, þar sem lítil eða
engin aðstaða er til að veita því þá
þjónustu sem þörf er á“, segir í
ályktuninni.
Einnig skoraði fundurinn á sveit-
arstjómir og önnur stjómvöld að
vinna ötullega að húsnæðismálum
aldraðra í samstarfi við Félög eldri
borgara á hverjum stað. - LDH
Eldhressir Valsarar á leið til Eyja að keppa við fleiri hundruð félaga sína.
Listi yfir hundrað tekjuhæstu starfsmenn ríkisins:
96 með hærri laun
en forseti íslands
Fj ármálaráðuneytið hefur tekið saman lista yfir 100
tekjuhæstu störf hjá ríkinu á síðastliðnu ári. Þar kemur
ýmislegt merkilegt í Ijós meðal annars það að 96 rflusstarfs-
menn fá hærri laun en forseti íslands. Tekjuhæstir voru 6
skrifstofustjórar, sem ekki eru skilgreindir nánar, með tæpar
300 þúsund krónur í meðalmánaðarlaun. Meðalárslaun
þessara eitt hundrað einstaklinga eru á bilinu frá rúmum 2,9
milljónum og upp í rúmlega 3,5 milljónir króna, sem
umreiknað yfir á meðalmánaðarlaun eru á bilinu rúm 240
þúsund krónur upp í tæpar 297 þúsund krónur.
Mikið hefur verið rætt um launa-
kjör lækna og á listanum kemur í
ljós að fulltrúar læknastéttarinnar
skipa 20-53 sætið hvað launagreiðsl-
ur varðar. í gögnum frá ráðuneytinu
er sérstaklega gerð grein fyrir launa-
greiðslum til læknanna og tekið fram
að greiðslur Tryggingastofnunar
ríkisins eru reiknaðar sem 50% laun
og 50% kostnaður.
Af þeim sjö yfirlæknum sem einn-
ig eru prófessorar fengu fjórir af
þeim greiðslur frá Tryggingastofn-
uninni frá 190 þúsund krónum og
allt að 1,42 milljónum. Meðaltalið
er um 750 þúsund krónur.
Af tíu yfirlæknum fengu fjórir
greiðslur frá Tryggingastofnuninni,
frá 190 þúsund krónum og allt að 2,7
milljónum. Meðaltalið er um 1,3
milljónir.
Af sextán sjúkrahúslæknum fengu
níu greiðslur frá Tryggingastofnun-
inni, frá 30 þúsund krónum og allt
að 900 þúsund krónum.
Til samanburðar þá eru hæstu
mánaðarlaun samkvæmt taxta
BHMR rétt rúmar 126 þúsund krón-
ur og er það eftir að viðkomandi
hefur náð 21 árs starfsaldri. Lægstu
laun aftur á móti samkvæmt sama
taxta eru rétt um 45 þúsund krónur
eða nærri sjö sinnum lægri en hjá
þeim sem mest bera úr býtum hjá
ríkinu. Svipaða sögu er að segja um
hæstu og lægstu laun miðað við
launataxta KI
Hjá BSRB eru lægstu mánaðar-
launin samkvæmt launataxta rétt um
35 þúsund krónur en hæstu laun um
116 þúsund og er þá miðað við 18 ára
starfsaldur.
Á meðfylgjandi töflu er að finna
meðalárslaun þessara eitt hundrað
einstaklinga, í sviganum eru með-
almánaðarlaunin. Inni í þessum töl-
um eru allar launagreiðslur sem
þessir einstaklingar hafa þegið frá
ríkinu. SSH
Fjöldi Starfsheiti Meðalárslaun pr. mánuð
6 skrifstofustjórar 3.563.157 (296.930)
1 framhaldsskólakennari 3.467.956 (288.996)
2 sendiherrar 3.440.075 (286.673)
7 ráðuneytisstjórar 3.399.945 (283.329)
1 þáverandiefiiahagsráðgjafi
ríkisstj órnarinnar 3.316.604 (276.384)
2 prófessorar 3.300.613 (275.051)
7 yfirlæknar sem einnig
eru prófessorar 3.283.665 (273.638)
10 yfirlæknar 3.216.782 (268.065)
16 sjúkrahúslæknar 3.194.851 (266.237)
20 yfirmenn ríkisstofnana 3.186.442 (265.537)
15 flugumferðarstjórar,
flugstjórar og flugvirkjar 3.140.335 (261.695)
4 yfirverkfræðingar/tæknifræðingar 3.096.739 (258.061)
5 yfirmenn löggæslu og dómarar 3.089.401 (257.450)
1 forseti íslands 2.996.736 (249.736)
1 þáverandi forsætisráðherra 2.955.770 (246.314)
1 alþingismaður
líka háskólakennari) 2.931.177 (244.465)
1 aðstoðarskólameistari 2.903.658 (241.971)
Tommamót knatt-
spyrnufélagsins Týs:
manns
leikir
í Eyjum