Tíminn - 29.06.1989, Síða 18

Tíminn - 29.06.1989, Síða 18
'18 Tí'rfiinn Fimmtudág'ur 29. júní 1989 ÍÞRÓTTIR t leik með júgóslavneska landslið- inu. Vlade Divac í baráttu við einn leikmanna Sovétmanna. NBA-deildin: Fer Petrovic til Portland Trail Blazers? Þrír af leikmönnum júgósla vneska landsliðsins í körfuknattleik, sem varð Evrópumeistari á sunnudaginn, eru nú staddir í Bandaríkjunum til viðræðna við lið í bandarísku NBA- atvinnumannadeildinni. Þeir Vlade Divac, sem valinn var af Los Angeles Lakers í háskólaval- inu og Dino Radja, sem valinn var af Boston Celtics, eru nú staddir vestra til viðræðna við liðin. Radja, sem er leikmaður með Jugoplastika, er ekki með samning lausan við lið sitt og að sögn forráðamanna liðsins eru þeir ekkert áfjáðir í að láta hann frá sér. Talsmenn liðsins sögðu í gær að ef Radja vildi fara urðu Jugoplast- ica og Boston Celtics að ná sam- komulagi um greiðslur. Vlade Divec er hins vegar með lausan samning við Partizan Bel- grade. Drazen Petrovic, er einnig staddur í Bandaríkjunum til við- ræðna við Portland Trail Blazers um hugsanlegan samning. Petrovic er talinn vera besti körfuknattleiks- maður heims, utan NBA-deildarinn- ar, en hann leikur með Real Madrid á Spáni. Hann gerði 4 ára samning við liðið í fyrra. BL NBA-körfuknattleikur: Vlade Divac í stað Kareem Abdul-Jabbars Los Angeles Lakers fara ótroðnar slóðir til að finna eftirmann Jabbars Los Angeles Lakers brutu blað í sögu háskólavals NB A- liðanna á þriðjudag, er þeir urðu fyrsta liðið til að velja erlendan leikmann í fyrstu umferð, sem ekki hefur leik- ið í bandarískum háskóla. Það var í 26. vali í fyrstu umferð valsins sem Lakers gerðu drauma Vlade Divac, 2,11 m miðherja júgó- slavneska landsliðsins að veruleika. „Ég trúi þessu ekki, draumar mínir eru orðnir að veruleika,“ sagði Divac eftir að honum voru færðar fréttirnar. „Magic Johnson er dá- samlegur og það verður stórkostlegt að leika með honum.“ Divac, sem er aðeins 21 árs gamall, varð á sunnudaginn Evrópu- meistari er júgóslavneska landsliðið gjörsigraði það gríska í úrslitaleik Evrópukeppninnar í Zagreb. Þá var hann einnig í landsliðinu á Ólympíu- leikunum þegar júgóslavneska landsliðið hlaut silfur verðlaunin. Divac skoraði að meðaltali 11,7 stig í Seoul og hirti 6,5 fráköst. Hann á, þrátt fyrir ungan aldur, mikla reynslu að baki í alþjóðlegum körfu- knattleik. Hann leiddi Júgóslava til sigurs á heimsleikum stúdenta í Japan 1985 og bronsliði Júgóslava í heimsmeistarakeppninni 1986. „Ég hafði ekki hugmynd um að Lakers hefðu svona mikinn áhuga á mér. Síðastliðin vika hefur verið frábær hjá mér, ég gekk í hjónaband og var valinn í NBA-deildina, ég er á leiðinni til lands kvikmyndastjarn- anna,“ sagði Divac. Með þessu vali á Vlado Divac, fara forráðamenn Los Angeles La- kers nýja og óvænta leið til þess að reyna að fylla það skarð sem Kareem Abdul-Jabbar skildi eftir sig, þegar hann lagði skóna á hilluna, 42 ára gamall, í lok síðasta keppnistíma- bils. Liðið varð þá að sætta sig við 2. sætið í deildinni, en liðið varð meist- ari 1987 og 1988. Lakers liðið hefur sem kunnugt er boðið Pétri Guðmundssyni að leika með liðinu í sumar, en hann lék sem kunnugt er með Lakers fyrir nokkr- um árum. Með tilkomu Divac í liði Lakers minnka líkurnar á því að Pétur fái samning við Lakers næsta vetur, en Pétur er jú mun hærri en Júgóslavinn og liðið þarf á mjög hávöxnum vamarmanni að halda. Liðið er betur sett með 2-3 mið- herja, en 3-4 minni leikmenn á varamannabekknum. Leikmaður á hæð við Pétur er ekki á lausu í Bandaríkjunum um þessar mundir. Marty Blake, starfsmaður NBA- deildarinnar, sagði að Lakers hefði gert rétt með því að velja Divac. „Hann er frábær skotmaður í stutt- um og meðal löngum skoturn, góður í fráköstum, fljótur á velli og góður í vörn.“ BL Vlade Divac lengst til hægri á varamannabekk júgóslavneska Iandsliðsins, hann mun leika með Los Angeles Lakers næsta vetur. Næstur honum situr Dino Radja, en Boston Celtics valdi hann. Drazen Petrovic situr í miðjunni á bekknum, en við hlið hans er bróðir hans Alexander. íþróttir fatlaðra: ' 29 íþróttamenn til Svíþjóðar og Færeyja á heimsleika þroskaheftra og norrænt barna- og unglingamót SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900 Vörulyftaradekk Margar gerðir Gott verð Nú á næstu dögum verður mikið um að vera hjá fötluðum íþrótta- mönnum í keppni á erlendum vett- vangi því í lok þessarar viku og í þeirri næstu munu íslenskir íþrótta- menn taka þátt í tveimur mótum erlendis. Heimsleikar þroskaheftra Dagana 2.-6. júlí n.k. fara fram í Hemösand í Svíþjóð fyrstu Heims- leikar þroskaheftra í sundi og frjáls- um íþróttum. Alls munu 12 íslenskir íþróttamenn taka þátt í leikunum.. Þeir eru: Sund Sigrún H. Hrafnsdóttir, Ösp. Bára B. Erlingsdóttir, ösp. Guðrún Ólafsdóttir, Ösp. Bjömey Sigurlaugsdóttir, Ösp. Hrafn Logason, Ösp. Sigurður Pétursson, Ösp. Gunnar Örn Erlingsson, Ösp. Gunnar Þ. Gunnarsson, Selfossi. Frjálsar íþróttir Aðalsteinn Friðjónsson, Eik, Akur- eyri. Kristófer Ástvaldsson, Viljanum, Seyðisfirði. Jón G. Hafsteinsson, Ösp. Kristján Guðbrandsson, Ösp. íslensku keppendurnir hafa undir- búið sig mjög vel fyrir leikana og spennandi verður að fylgjast með árangri þeirra. Sá árangur sem ís- lensku keppendumir náðu á Norður- landameistaramóti fatlaðra í sundi í Vestmannaeyjum 2.-4. júní sl. gefur í þessu móti tilefni til bjartsýni. Norrænt barna- og unglingamót Dagana 30. júní-1. júlí fer 6. Norræna bama- og unglingamótið fram í Færeyjum. Mót þetta, sem haldið er annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum, er fyrir böm og unglinga á aldrinum 12-16 ára. Á mótinu verður keppt í sundi, frjáls- um íþróttum, borðtennis og boccia. Alls munu 17 keppendur frá íslandi taka þátt f mótinu að þessu sinni. Þeir em: Katrín Sigurðardóttir, Selfossi. Sigurður Kristjánsson, Álftanesi. Þóra Magnúsdóttir, Vestmannaeyj- um. Finnbogi Gunnarsson, Vestmanna- eyjum. Jón H. Jónsson, Kópavogi. Ivar Öm Guðmundsson, Kópavogi. Óskar Bergmann, Hafnarfirði. Karen Friðriksdóttir, Hveragerði. Birkir R. Gunnarsson, Garðabæ. Karl H. Jónsson, Grindavík. Sigurður V. Valsson, Reykjavík. Steindór Jónsson, Reykjavík. Valgeir Ólafsson, Reykjavík. Sólveig Bessadóttir, Reykjavík. Sigrún Bessadóttir, Reykjavík. Elma Finnbogadóttir, Reykjavík. Ólafur Tómasson, Reykjavík.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.