Tíminn - 20.07.1989, Page 5
Fimmtudagur 20. júlí 1989
Tíminn 5
Ungir sjálfstæðismenn ganga lengra en áður hefur þekkst í auglýsingum sínum og ætla
opinberri stjórnsýslustofnun hluti sem hún kemur ekki nálægt:
Hagstofu Isl. eignaður
áróður gegn stjórninni
„Ég tel tæpast mögulegt aö útreikningar á hlutfalli skatta
af landsframleiðslu séu komnir frá Hagstofunni, vegna þess
að Hagstofan vinnur engar tölur þar að lútandi og ég efast
um að heimildir tíl slíkra útreikninga séu til héma. Þjóðhags-
stofnun er með allar stærðir sem varða þjóðarbúið í heild,
hagstærðir og því um líkt. Það er því mjög vafasamt að þessar
tölur geti verið komnar frá Hagstofunni,“ sagði Auður
Svavarsdóttir, starfsmaður við tölfræðiútreikninga hjá Hag-
stofu íslands.
Falsaða auglýsingin í Morgunblaðinu.
t>að hlutfall skatta af vergri lands-
framleiðslu, sem ungir sjálfstæðis-
menn bera Hagstofuna fyrir sem
heimild í auglýsingum sínum í Morg-
unblaðinu, hefur vakið athygli fyrir
það hversu miklu munar á því og
hins vegar útreikningum Þjóðhags-
stofnunar og áætlun fjármálaráðu-
neytis á þessu sama hlutfalli.
Þessi munur á útreikningum virð-
ist komast allt að 10% vergrar lands-
framleiðslu. Ungir sjálfstæðismenn
bera Hagstofuna fyrir því f línuriti
sínu að skatthlutfallið sé kringum
43% vergrar landsframleiðslu, en
fjármálaráðuneytið áætlar það í
kringum 33%. Þessi munur er ekkert
smáræði þegar haft er í huga að 10%
vergrar landsframleiðslu 1989 svara
til hátt í 30 milljarða króna sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar fyrir
árið 1989 - eða sem nemur um
475.000 kr. á hverja fjögurra manna
fjölskyldu (eins og höfðað er til í
auglýsingunum í Mogga).
Árið 1988 bera sjálfstæðismenn
Hagstofuna fyrir því að hlutfall
skatta af landsframleiðslu hafi verið
í kringum 39%. í skýrslum Þjóð-
hagsstofnunar er það hins vegar
áætlað 31,4%. Þar á munar 19,3
milljörðum króna - eða „litlum"
308.000 kr. á hverja fjögurra manna
fjölskyldu í landinu.
Hafa verður í huga að þessar tölur
fyrir árin 1988 og 1989 byggjast
ennþá ááætlunum. „Endanlegar töl-
ur eru ennþá ekki til fyrir nema árið
1987 og fyrr,“ sagði Jóhann R.
Björgvinsson hjá Þjóðhagsstofnun.
Hann sagði þjóðhagsreikninga m.a.
byggða á ríkisreikningi og reikning-
um sveitarfélaga sem ekki skila sér
endanlega fyrr en síðar á þessu ári.
Að sögn Jóhanns vinnur Hagstofan
úr reikningum sveitarfélaganna í
landinu, en Þjóðhagsstofnun úr öðr-
um gögnum og síðan tölulegum
upplýsingar fyrir hið opinbera í
heild. Það geri Hagstofan hins vegar
ekki, þannig að ólíklegt verði að
telja að slíkar upplýsingar séu sóttar
til hennar.
Tölur fyrir yfirstandandi ár sagði
Jóhann svo jafnan áætlaðar af fjár-
málaráðuneytinu og þá á greiðslu-
grunni. (Greiðslugrunnur miðast við
það sem innheimtist á árinu - en
rekstrargrunnur gæti t.d. verið óinn-
heimtur söluskattur í árslok, sem
færist sem skatttekjur þótt hann sé
ógreiddur.) Þjóðhagsreikningur sé
hins vegar gerður upp á rekstrar-
grunni, á sama hátt og hjá fyrirtækj-
um.
Þær tölur sem hér um ræðir og
margar aðrar sagði Jóhann hins
vegar oft áætlaðar út frá gefnum
forsendum fyrir yfirstandandi ár.
Slíkar áætlanir taki eðlilega oft ein-
hverjum breytingum.
lana 7 Fjannul iúns «pinbt*ra 1982—1988.
M.kr. og vciölag hvcrs árs. 1) Brb. Áxilun
!Vh2 ls»h3 IVtý4 l’Jhá 1986 1987 1988
1 llullall. - • hcilJarickiu jí VI'L . 3.S.5 .13.3 32.3 3: •; 29.7 30.6 29.0 32.1 29. S 31.2 29.2 33.3
- I>cinna kkalla at VLI' — ohrinna bkalla aí VLh 8.8 7.8 7.9 7 0 24 ,U 21.9 22,8 22.0 8.1 21.4 7.3 22.0 8!(T 23.4
Hlutfall skatttekna af vergri landsframleiðslu fyrir árin 1982-1988 eins og það
kemur fram í Þjóðarbúskapnum frá því í júlí 1988. Bráðabirgðatalan 29,2%
fyrir 1987 breyttist í 29,7% í endanlegum tölum, samkvæmt upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar. Þar munar rúmlega 5% þegar borið er saman við þau
35% sem ungir sjálfstæðismenn bera Hagstofuna fyrir sem heimild.
Endanlegt hlutfall fyrir 1988 Iiggur enn ekki fyrir.
Verðhækkun á áfengi og tóbaki í gær:
Léttu vínin
hækka minna
Flugvél ensku krúnunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær til eldsneytistöku. Hún staldraði stutt við, eða í
klukkutíma. Enginn tiginborinn farþegi mun hafa verið um borð að þessu sinni. Tímamynd: Pjetur gs
Selastofninn hér við land leggur sér til munns veruleg verðmæti á ári hverju:
Selir éta um 36 þús.
tonn af nytjaf iski
Verð á áfengi og tóbaki hækkaði
í gær. Meðaltalshækkun á tóbaki er
um 11%, en er nokkuð breytileg
eftir tegundum. Sem dæmi má nefna
að pakkinn af Winston sígarettum
hækkar um 18 kr., úr 170 kr. í 188
kr. Nokkur munur er einnig á hinum
ýmsu tegundum áfengis en gróft
reiknað hækka sterk vín um helm-
ingi hærri prósentutölu en létt, eða
á bilinu 8%-10% að meðaltali, en
hækkun á léttvíni er í flestum tilfell-
um á bilinu 3%-5%.
Bjór hækkar að jafnaði um 5%.
Sem dæmi má nefna að sex dósir af
Tuborg hækka úr 670 kr. í 700 kr.,
eða um 4,5%. Rauðvín hækkar að
meðaltali um tæp 7%, en hvítvín
heldur minna, eða um tæp 5% að
jafnaði. íslenskt brennivín hækkar
um 100 krónur flaskan, úr 1.300 kr.
í 1.400 kr., Smirnoff vodki hækkar
um rúm 9%, úr 1.630 kr. í 1.780 kr.
flaskan. Flaskan af Camus koníaki
hækkar í 2.170, en kostaði fyrir
hækkun 1.970 kr. og heilflaska af
White Horse viskíi hækkaði úr 1.940
í 2.100 krónur.
Minni hækkun á léttum vínum og
bjór stafar af þeirri stefnubreytingu
sem tekin var í verðlagningu á áfengi'
og tóbaki í febrúar s.l. ,-og miðar að
því að draga úr neyslu á sterkum
drykkjum og tóbaki með því að gera
þær vörum hlutfallslega dýrari.
Ástæðan fyrir hækkun á áfengi og
tóbaki er meðal annars breyting á
kostnaðarverði áfengis og tóbaks í
kjölfar gengisbreytinga að undan-
förnu, en áfengi og tóbak hefur ekki
hækkað frá því í febrúar á þessu ári.
Hækkunin nú er leiðrétting sem
miðar að því að þeir sex milljarðar,
sem gert er ráð fyrir á fjárlögum að
ÁTVR skili ríkinu á árinu, náist.
- ÁG
Selir hér við land éta um 36
þúsund tonn af nytjufiski og um 11
þúsund tdnn af annarri fæðu. Megn-
ið af þeim nytjafiski sem selimir éta
er þorskur og ufsi. Árlega éta selir
um 112 milljónir þorska og er þar
mest um að ræða fiska á bilinu 0-4
ára. Væra selimir ekki til staðar má
gera ráð fyrir að auka mætti þorsk-
veiðar um 127 þúsund tonn.
Erlingur Hauksson sjávarlíffræð-
ingur hefur kannað neyslu sela-
stofnsins á fiskistofnum hér við land
og birtir niðurstöður athuganna
sinna í nýjasta hefti tímaritsins Ægis.
Þar kemst hann að þeirri niðurstöðu
að ef selum hér við land yrði fækkað
um helming mætti auka þorskafla
um 65 þúsund tonn og veiðar á ufsa
um annað eins. Verðmæti 65 þúsund
tonna af þorski upp úr sjó er eitt og
sér rúmlega 2,5 milljarðar. Þá er
gert ráð fyrir að kílóið af þorski upp
úr sjó sé verðlagt á 40 krónur. Fyrsti
flokkur af ufsa selst á 19,5 kr. kílóið
við skipshlið og væri reiknað með að
um 70% af ufsanum fari í fyrsta
flokk má fá út að 65 þúsund tonn séu
að verðmæti tæplega einn milljarð-
ur. Samanlagt mætti því auka afla á
þorski og ufsa um að verðmæti 3,5
milljarða.
Selir éta meira af lúðu og þorski
sé miðað við afla á árinu 1987 og
samanlagt hverfur ofan í þá rúmlega
30% steinbítsaflans, og um 6%
skarkolaaflans. - ÁG
Sendiherraskipti
Ákveðið hefur verið að Páll Hjálmar V. Hannesson sendiherra
Ásgeir Tryggvason, sem gegnt hef- taka við starfi hans í Bonn.
ur embætti sendiherra í Bonn í Þessar tilfærslur í utanríkisþjón-
Þýskalandi, komi heim til starfa í ustunni miðast við 1. september
utanríkisráðuneytinu og mun næst komandi. - ÁG