Tíminn - 20.07.1989, Side 7

Tíminn - 20.07.1989, Side 7
Fimmtudagur 20. júlí 1989 Tíminn 7 VETTVANGUR illlllllllllllllllll Sr. Jón Einarsson, Saurbæ: Hitaveita Hvalfjarðar Á árinu 1985 samþykkti hreppsnefnd Hvalfjarðarstrand- arhrepps að láta fara fram jarðhitarannsóknir í hreppnum. Hinn 16. október það ár skrifaði oddviti Jarðhitadeild Orkustofnunar um málið. Haft var samband við Kristján Sæmundsson, jarðfræðing, sem mætti á fundi hreppsnefnd- ar, veitti mikilvægar upplýsingar og ráðgjöf og hafði veg og vanda af þeim rannsóknum, er síðar fóru fram. Vorið 1986 fóru fram umfangs- miklar rannsóknir í hreppnum bæði í Svínadal og á Hvalfjarðar- strönd. Á vegum hreppsins og Fiskeldisfélagsins Strandar voru boraðar nokkrar hitastigulsholur á Bjarteyjarsandi, Hrafnabjörgum og Ferstiklu. Þessar rannsóknar- boranir leiddu í ljós, að jarðhita væri að vænta á Hrafnabjörgum og Ferstiklu og þá einna helst við Hrafnagil, sem er á landamörkum jarðanna. II í framhaldi af þessum jarðhita- rannsóknum var ákveðið að bora eftir heitu vatni við Hrafnagil í landi Hrafnabjarga. Kristján Sæm- undsson, jarðfræðingur, valdi bor- staðinn og hafði með höndum alla faglega og vísindalega ráðgjöf í málinu. Leitað var tilboða í borun- ina og síðan samið við Jarðboranir ríkisins, er tóku verkið að sér. Borun holunnar hófst 9. apríl 1987 og lauk 22. maí. Jarðborinn Glaumur var að verki. Þegar boraðir höfðu verið 600 metrar, voru ýmsir orðnir vondauf- ir um árangur, enda lítið vatn þá komið, en hiti nægur. Var þá brugðið á það ráð að heita á Hallgrímskirkju í Saurbæ. Á stjórnarfundi í Fiskeldisfélaginu Strönd var samþykkt einróma, að kirkjan skyldi fá ókeypis hita, ef árangur yrði af boruninni. Nokkr- um dögum síðar var komið niður á mikla og heita vatnsæð og varð árangur af boruninni svo mikill og góður að til eindæma má telja. Hin mikla heita æð er á 795 metra dýpi. Samkvæmt mælingum gefur bor- holan 28,3 1/sek. af 83,8 °C heitu vatni. Þrýstingur er 1,23 kg. Vídd holunnar er 6,5", en fóðruð niður á 70 metra með 10%"fóðringu. Innihald vatnsins er talið gott, en nokkuð fluorríkt, sem stafar af miklu líparíti. Heildarkostnaður við holuna var um 3,5 milljónir. III Eftir að hinn góði árangur bor- holunnar var kominn í ljós, hófust viðræður milli hreppsnefndar og Fiskeldisfélagsins Strandar um virkjun holunnar og nýtingu jarð- varmans. Hinn 19. júní 1987 sam- þykkti hreppsnefnd einróma stefnumörkun í jarðhitamálinu og segir þar meðal annars: „Hrepps- nefndin leggur á það áherslu, að heita vatnið verði lagt á eins mörg heimili í hreppnum og nokkur kostur er og verði þá tekið tillit til tæknilegra atriða, arðsemi og kostnaðar. - Auk upphitunar íbúð- arhúsa, atvinnuhúsnæðis, félags- heimilis og kirkju mun hrepps- nefndin beita sér fyrir því, að jarðvarminn verði notaður til at- vinnuppbyggingar í hreppnum, þar á meðal til ylræktar, iðnaðar og átaks í ferðamannaþjónustu. - Til atvinnuuppbyggingar í iðnaði og ylrækt samþykkir hreppsnefndin að bjóða einstaklingum og/eða fyrir- tækjum að hefja slfka atvinnustarf- semi í hreppnum og fá til þess jarðvarma á vægu verði.“ I framhaldi af þessari samþykkt var leitað til Fjarhitunar h.f. um ráðgjöf vegna virkjunar og nýting- ar jarðvarmans. Fjarhitun samdi þá um sumarið skýrslu og áætlanir um hitaveitu í hreppnum, er kynnt- ar voru á almennum hreppsfundi og sendar á öll heimili í sveitinni. Fjarhitun var síðan falið að hanna hitaveitu, og hefur Einar Arnórs- son, verkfræðingur, einkum haft það starf með höndum. í lok júnímánaðar 1988 lagði Fjarhitun fram nýja áætlun og valkosti vegna hitaveitunnar. Eftir það var hafist handa um að leita tilboða í efni stofnæðar hitaveit- unnar. Þá var ákveðið að stofna hitaveitufélag í hreppnum, og var stofnfundur haldinn í Félagsheim- ilinu Hlöðum 23. ágúst 1988. Aðil- ar 15 heimila gerðust stofnendur á fundinum. Hreppsnefnd Hvalfjarðar- strandarhrepps ákvað, að hreppur- inn ætti 40% í hitaveitufélaginu, en kostaði jafnframt að öllu leyti á móti Fiskeldisfélaginu Strönd virkjun holunnar, dæluhús við holu og stofnæð frá borholu og út að fiskeldisstöð við Saurbæ. Hita- veitufélagið tekur á sig 60% af öðrum kostnaði. Þeim kostnaði verður deilt jafnt niður og verður sá sami fyrir alla aðila hitaveitufé- lagsins, hvort sem þeir búa rétt við borholuna eða fjarri henni. IV Haustið 1988 var hafist handa við lögn aðveituæðar hitaveitunnar og dæluhús byggð. Vegna óhag- stæðs tíðarfars var ekki hægt að ljúka stofnlögn og frágangi að fullu fyrr en í vor. Hinn 15. júní var vatni hleypt á stofnlögnina og hún prófuð. Nú hafa fyrstu heimilin verið tengd við hitaveituna og fleiri bætast við næstu daga. Miðað við áætlanir, sem gerðar hafa verið, munu um 30 heimili í hreppnum geta notið hitaveitunnar. Þar á meðal er byggðakjarninn í Hlíðar- bæ. Þar lét hreppurinn skipuleggja byggðahverfi árið 1983 og stóð að byggingu fjögurra verkamannabú- staða, sem flutt var í 1983 og 1986. Á s.l. ári hóf hreppurinn byggingu raðhúss með þremur litlum íbúð- um. Var ein þeirra seld fokheld og hefur fjölskyldan þegar flutt í hana. Fleiri íbúðir verða væntan- lega byggðar við Hlíðarbæ á næstu árum. Auk upphitunar íbúða og ann- arrar nýtingar á heimilum og bæjum verður hitaveitan lögð í Hallgríms- kirkju í Saurbæ, Félagsheimilið að Hlöðum, Veitingaskálann á Fer- stilku og e.t.v. einhverja sumar- bústaði. Þá er áætlað að byggja sundlaug við félagsheimilið og verð- ur þar hin ákjósanlegasta aðstaða til heilsuræktar. 1 félagsheimilinu eru mjög góðir búningsklefar, saunabað og ljósabekkur. Þá standa vonir til, að hægt verði að nota jarðvarmann til atvinnuupp- byggingar í hreppnum, svo sem áður er að vikið. Áætlaður kostnaður við lögn hita- veitunnar er 38-40 milljónir auk kostnaðar Fiskeldisfélagsins Strandar h.f., sem mun vera rúmar sjö milljónir. Af kostnaði byggðar- innar greiðir Hvalfjarðarstrandar- hreppur rúman helming, og hefur hreppurinn fengið lán hjá Lána- sjóði sveitarfélaga að upphæð kr. átta milljónir. Áætlað er, að kostn- aður hitaveitufélagsins og annarra, sem hitaveituna taka og greiða heimæðargjöld, verði um 18,2 milljónir. Stofnlánadeild landbún- aðarins lánar kr. 500.000 út á hverja jörð eða lögbýli vegna hita- veitunnar. Stofnkostnaður Hitaveitu Hval- fjarðar er vissulega hár, enda er byggðin í hreppnum dreifð bæði á Strönd og í Svínadal. En bjartsýni og stórhugur ríkja í sambandi við framgang þessa mikla nauðsynja- máls. V Hitaveitan er tvímælalaust eitt merkasta framfaramál, sem unnið hefur verið að í Hvalfjarðarstrand- arhreppi um langan aldur. Slíkar framkvæmdir boða nýja sókn til betra mannlífs, bjartari framtíðar og bættra lffshátta fólksins, sem sveitina byggir. Hitaveita Hval- fjarðar markar tímamót og merkan áfanga í sögu þessarar fögru og búsældarlegu sveitar og mun lyfta hag hennar og hamingju lengra fram á leið. Til að fagna opnun hitaveitunnar og þessara merku tímamóta í sögu sveitarinnar hafði hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandarhrepps opið hús í Félagsheimilinu Hlöðum laugardaginn 8. júlí kl. 15-18 og komu þangað 75 manns. Boðið var upp á kaffisopa og sérbakaða „hita- veitutertu“. Jafnframt gafst fólki kostur á að fara að borholunni, kynna sér framkvæmdir og fá upp- lýsingar um borholuna og gang mála. Guðmundur G. Þórarinsson: Stefnumörkun í efnahagsmálum Framsóknarflokkurinn hefur nú verið nær samfellt í ríkisstjórn síðan 1971 eða 18 ár. Segja má að enginn stjórnmálaflokkur hafl haft önnur eins áhrif á stjórn landsins síðustu tvo áratugi. Framsóknarflokkurinn getur því talið sér til tekna það sem vel hefur farið, en ber jafnframt mikla ábyrgð á því sem miður fer. I stjórnarflokki þarf að fara fram stöðug vinna að stefnumörkun á hinum ýmsu sviðum þjóðmála. Ekki er það síst áríðandi í flokki eins og Framsóknarflokknum sem svo gífurleg áhrif hefur á gang þjóðmála. Nefnd Á fundi þingflokksins fyrir nokkru urðu sem oftar miklar um- ræður um atvinnu-, byggða- og efnahagsmál. Á fundinum lagði Páll Péturs- son, formaður þingflokksins, til að þingflokkurinn skipaði nefnd til stefnumörkunar í þessum mála- flokkum. Taldi hann það mjög mikilvægt í þeirri erfiðu stöðu sem upp er komin. Að tillögu Páls voru skipaðir í nefndina Stefán Guð- mundsson, Alexander Stefánsson, Ólafur Þ. Þórðarson og Guðm. G. Þórarinsson. Nefndin kaus síðan Stefán Guðmundsson sem formann. Nefndin hefur þegar haldið nokkra fundi, dregið saman upplýsingar og kallað ýmsa aðila á sinn fund til viðræðna. Gert var ráð fyrir að ráðherrar flokksins ynnu með nefndinni en ólíklegt er að þeim gefist til þess mikill tími vegna stjórnarstarfa og annarra sumarverka. Hins vegar væri ekki ólíklegt að formaður þingflokksins geti komið að þessu starfi, sjái hann sér það fært frá öðrum önnum. Hann er enda áhugamaður mikill og frum- kvöðull að nefndarstarfinu. Ég bind vonir við að þessi nefnd þingflokksins geti lagt fram tillögur sínar í septembermánuði og flokk- urinn þá í framhaldi af því kynnt þær í ríkisstjórn og á þingi ef þurfa þykir. Sjálfur lít ég á þessa nefndar- skipan sem tímamót að því leyti að þingflokkurinn gerir sér grein fyrir nauðsyn stefnubreytingar. Stefnu- mörkun fram í framtíðina núna er mikil nauðsyn. Jafnframt er það athyglisvert að í nefndina eru valdir þeir menn sem á síðustu tveim árum hafa lýst mestum efasemdum um ríkjandi efnahagsstefnu. Segirþað auðvitað nokkuð um hvers er vænst og til hvers ætlast. Starfið Á fundum nefndarinnar hafa atvinnu- og efnahagsmál verið rædd frá ýmsum hliðum. Gengismálin hafa tekið mikinn tíma. Olafur Þ. Þórðarson flutti á sínum tíma frumvarp um aðlögun að markaðsgengi. í því sambandi ræðir nefndin breytta skipan gengismála. í lögum nr. 36/1986 segir: „Seðlabankinn ákveður að fengnu samþykki ríkisstjórnarinn- ar verðgildi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldeyri." Atkvæðagreiðsla ráðherra um gengið er næsta vafasöm aðgerð. Einn meginþáttur tillagna nefndar- innar verður hið efnahagslega um- hverfi og skipan gengismála. Umræður hafa og snúist mjög um fiskveiðistefnuna og framtíð frystiiðnaðarins, fiskvinnslustefnu. Þeir Alexander, Stefán og Ólafur gjörþekkja þetta málasvið og ann- marka núverandi skipanar mála. Mótun iðnaðarstefnu hefur og verið rædd en um það flutti Stefán þingmál á síðasta þingi. Fjármagnsmarkaðurinn hefur tekið mikinn tíma í nefndinni og þannig mætti lengi telja. Frá þingflokknum fylgja þær óskir að starfinu verði hraðað. Á því hefur nefndin og fullan hug, en viðfangsefnið er viðamikið og hraðinn má ekki koma niður á gæðunum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.