Tíminn - 20.07.1989, Qupperneq 20
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
^o.'B-LAsr0
ÞRDSTUR
68 50 60
VANIR MENN
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
9
Tímiiin
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989
Viögerð stendur yfir á sæstrengnum tii Vestmannaeyja:
Rafmagn um streng-
inn á laugardaginn
Viðgerð stendur nú yfir á yngri rafmagnssæstrengnum sem
liggur á milli lands og Eyja, og búist er við að Eyjamenn fái
rafmagn úr honum seinni partinn á laugardag.
Tveir sæstrengir liggja til Vestmannaeyja, annar var lagður
árið 1962 en hinn 1978. Sá strengur liggur upp á svonefnt
Þrælaeyði, en sá gamli liggur inn í höfnina. Var þetta gert til
að auka öryggið ef annar þeirra myndi hugsanlega skemmast
vegna staðsetningar sinnar, en gamli strengurinn fór í sundur
í eldgosinu 1973.
Yngri strengurinn bilaði í fárviðri
í vetur, en Steinar Friðgeirsson,
framkvæmdastjóri tæknideildar Raf-
magnsveitunnar sagði að reynslan
hefði sýnt að staðsetning hans hefði
verið varasöm því hann liggur á
svæði þar sem mikið er um sterka
strauma og ljóst að hann hefði farið
illa á því.
Við rannsókn í vetur kom í ljós að
strengurinn var mikið skemmdur á
sex kílómetra kafla og þurfti Raf-
magnsveitan að láta framleiða svo
langan streng í staðinn í Danmörku.
Þetta tók allt sinn tíma, en síðastlið-
inn sunnudag kom skip frá Dan-
mörku með strenginn og var þá
hafinn undirbúningur að viðgerð-
inni. í gærmorgun var sæstrengurinn
tekinn upp og búist er við að viðgerð
Ijúki seinni partinn á föstudag eða
snemma á laugardaginn, svo hann
ætti að vera kominn í fulla notkun á
laugardagseftirmiðdegi, en Eyja-
menn hafa þurft að treysta á þann
gamla síðan í janúar.
Steinar sagði að færa eigi streng-
inn þannig að hann liggi inn í
höfnina við Skansinn, eins og sá
gamli, þar sem ljóst væri að fyrri
staðsetning hefði farið illa með
hann. -LDH
Skaftár-
hlaupið
í rénun
Hlaupið í Skaftá náði hámarki
um hádegisbilið í gær, og um
svipað leyti rauf áin símasam-
band inn að bæjunum í Skaftár-
dal.
Samkvæmt upplýsingum frá
Orkustofnun er hlaupið meira nú
en árið 1986, en vart eins mikið
og 1984. Skemmdir af völdum
árinnar eru töluverðar, en vegur-
inn inn i Skaftárdal er rofinn og
vatn flæðir yfir veginn inn í
Svínadal.
Hiaupið er nú í rénun, en vart
má búast við að rennsli verði
komið í eðlilegt horf fyrr en eftir
tvo til þrjá sólarhringa.
Fjallabaksleið nyrðri er lokuð
vegna hlaupsins. -LDH
Ráðhúsi
hraðað
Borgarstjórnarmeirihlutinn
leggur nú alla áherslu á að Ráðhús-
ið við Tjörnina rísi með miklum
hraða. Á þriðjudag samþykkti
borgarráð tiliögu Davíðs Oddsson-
ar borgarstjóra um 45 milljóna
króna aukafjárveitingu til bygging-
ar ráðhússins. Fjárveitingin verður
dregin af fjárveitingu næsta árs, en
næsta vor verða sem kunnugt er
sveitarstjórnarkosningar. Af gefnu
tilefni skal þess getið hér vegna
fréttar í blaðinu í gær af samþykkt-
um borgarráðs um að fjarlægja ætti
blómabeð í Austurstræti, að það
þýðir ekki að umferð verði hleypt
á Austurstrætið. Einnig varðandi
sömu frétt er rétt að taka fram að
erindi Kringlunnar um jólaskreyt-
ingar var hafnað. SSH/BG
Ráðhússbyggingin ris óðum enda
mikill kraftur í framkvæmdum. Nú
hefur veríð ákveðið að verja 45
milljónum króna í að flýta fram-
kvæmdum í ár, en það framlag
mun tekið af framlögum næsta árs
þannig að framkvæmdum seinkar
væntanlega eitthvað þegar líður á
kosningaáríð 1990, enda ráðgert
að ráðhúsið verði þá tilbúið að
Utan. Tímamynd: Pjetur
Sextugasta og áttunda
langreyðin komin á land:
Veiðum lokið
Síðasta langreyðin sem veidd
verður hér við land í a.m.k. tvö ár,
kemur að landi snemma í dag. Þar
með er vísindaveiðum íslendinga
lokið að sinni, eins og greint var frá
í Tímanum í gær.
t gærmorgun kom hvalbátur að
landi með tvo hvali, þegar sá þriðji
veiddist í gær, var búið að veiða allar
þær 68 langreyðar sem heimild var
fyrir að drepa. Hvalveiðarnar hafa
gengið fljótar fyrir sig en búist var
við, en slæmt skyggni og þoka hefur
verið á miðunum það sem af er
veiðitímabilinu.
-ÁG
| Jarðskjálfti vekur íbúa á Austurlandi af værum svefni:
4 i 5st a sl jál ■ i
Nokkrir íbúar á Austur-
landi vöknuöu snemma í
gærmorgun við titring og
þungar drunur úr jörðinni.
Páll Halldórsson hjá
Yeðurstofunni sagði í sam-
tali við Tímann að skjálfti
hafi komið fram á mælum
þeirra klukkan háif-sex um
morguninn og virtist sem
upptök hans væru um
hundrað kílómetra austur
af Gerpi og stærð hans væri
um 4,5 á Richter. Páll sagði
að vitað væri að skjálftinn
hefði fundist frá Vopnafírði
og suður að Stöðvarfírði,
en verið er að kanna hvort
hans hafí orðið vart víðar.
Einna sterkastur varð hann í
Neskaupstað og þar í kring, en
Ásthildur Lárusdóttir, bæjar-
stjórafrú, sagði í samtali við Tím-
ann að þau hjónin hefðu verið í
fasta svefni og að hún vissi um fáa
sem hefðu vaknað svo sncmma á
Nesinu.
Jarðskjálftar eru fátíðir á þessu
landsvæði, en síðast fannst skjálfti
þar í maí 1987 og mældist hann 3,2
á Richter. Páll sagði að ástæða
hræringanna væri sú að spenna
myndaðist í jörðinni vegna hreyf-
inga í jarðskorpunni og þegar hún
væri komin á ákveðið stig héldi
jörðin ekki lengur og spennan
brvtist fram í formi jarðskjálfta.
-LDH
Hagvirki:
Vikufrestur
Forsvarsmönnum Hagvirkis hf.
barst í gær innheimtubréf frá sýslu-
manninum í Rangárvallasýslu þar
sem krafist er greiðslu á meintri
söluskattsskuld fyrirtækisins að upp-
hæð 108,1 milljón króna, að öðrum
kosti verði gripið til ráðstafana til að
fá skuldina greidda.
Aðalsteinn Hallgrímsson fram-
kvæmdastjóri Hagvirkis sagði í sam-
tali við Tímann að fyrirtækið hefði
frest til 25. þessa mánaðar til að
greiða skuldina. Aðspurður sagði
Aðalsteinn ekki geta svarað því hver
viðbrögð Hagvirkis yrðu, en sagðist
eiga von á að það yrði unnið að
þessum málum í kyrrþey á næstu
dögum. SSH