Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 2
2 íhiinn Föstudagur 25. ágúst 1989 Ungmennasamband Dala- manna og Norður-Breiðfirðinga: Vilja brúa Gilsfjörð Stjórn Ungmennasambands Dalamanna og Norður- Breið- firðinga sendi Steingrími J. Sig- fússyni landbúnaðarráðherra ný- lega bréf þar sem skorað er á hann að hraða ákvarðanatöku um brúargerð yfir Gilsfjörð. í bréfinu segir að bættar sam- göngur yfir Gilsfjörð með brú, kæmu til með að gerbreyta allri samvinnu á milli Dalasýslu og Austur- Barðastrandarsýslu, ekki sfst á sviði æskulýðs og íþrótta- mála. Hér sé um mikið byggða- mál að ræða, og mikilvægt að ungt fólk í fámennum byggðum geti þjappað sér saman og notið þeirra tómstunda sem hverjum og einum sé nauðsynlegt. - ÁG Námsmenn eiga rétt á að greiða í lífeyrissjóð: FÆSTIR NÝTA SÉR LÍFEYRISRÉTTINN Félagar úr IFR sem fengu viðurkenningu fyrir frábæra frammistöðu í Seoul 1988. Aftari röð frá vinstri: Kristín Rós Hákonardóttir, Halldór Guðbergs- son, Ólafur Eiríksson og Haukur Gunnarsson. Fremri röð: Sóley Axelsdóttir, Sigrún Pétursdóttir og Reynir Kristófersson. Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar: Verkafólk verksmiðja Námskeið fyrir verkafólk í fiskimjölsverksmiðjum hefst eftir helgi, á vegum Starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar. Að sögn Gissurar Péturssonar starfsmanns nefndarinnar er um að ræða tilraunanámskeið þar sem sérstök námskeiðsgögn verða prófuð, með það fyrir augum að finna agnúa á efninu, ef einhverjir eru. Starfsfræðslunefndin hefur í sum- ar verið að vinna að skipulagningu þessa námskeiðs og undirbúnings námsgagna. Kallaðir voru til ýmsir sérfræðingar m.a. frá Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins, sjúkraþjálf- arar og fleiri til aðstoðar við gerð námsgagnanna. Sagði Gissur að 15 manna hópur verkamanna í fiski- mjölsverksmiðjum á Reykjavíkur- svæðinu yrðu fyrstir til að reyna þetta nýja námsefni, áður en það yrði útbúið og prentað í endanlegri mynd. Gert er ráð fyrir að þegar upp verður staðið hafi um 500 manns sótt námskeið þetta víðsvegar á landinu. Námsefnið fjallar m.a. um gerla- fræði, gæðamál, réttindi og skyldur starfsmanna, öryggismál, vinnu og heilsu og samstarf á vinnustað. Bók- legi hluti námsins er 40 klukkustund- ir, en til viðbótar er gert ráð fyrir hálfsmánaðar starfsþjálfun í verk- smiðjunum sjálfum. Með haustinu er ætlunin að hefja námskeiðahald á Austurlandi og fara síðan suðurum og til Norður- lands eftir áramót. Gert er ráð fyrir að verkafóikið sæki námskeiðin þeg- ar álagstímar eru ekki í verksmiðj- unum, þar sem þau eru haldin í vinnutímanum og að þeim loknum hækki það í launum. Fyrir þremur árum fór af stað mikið átak fyrir verkafólk í fiskiðn- fiskimjöls á námskeið aði og hafa um 6000 fastráðnir starfsmenn í fiskvinnslu sótt nám- skeið sem ná yfir nær allt starfssvið fiskvinnslunnar. Nýverið var gerð skoðanakönnun meðal forsvars- manna fiskvinnslufyrirtækja þar sem fram kom að meirihluti svarenda var ánægður með árangur af námskeið- unum og taldi nauðsyn á framhalds- námskeiðum. Á vegum nefndarinnar er þessa dagana að koma út bæklingur sem er kynning á fiskvinnslustarfinu fyrir nýliða. Þar sem fjallað er um sjávar- útveg og gildi hans, auk þess sem þar er kynning á þeim námskeiðum sem boðið er upp á. -ABÓ Gissur Pétursson, starfsmaður starfs- fræðslunefndar fiskvinnslunnar. Námsmenn þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af réttindum sínum þó að dragist að Lánasjóður ís- lenskra námsmanna skili lífeyris- sjóðsgreiðslum til Söfnunarsjóðs líf- eyrisréttinda. Fæstir námsmanna hirða um að greiða í lífeyrissjóð. Nokkuð er þó um að námsmenn greiði eftir á í lífeyrissjóðinn til að gera sig lánshæfa hjá Húsnæðismála- stofnun. Lántakendur hjá LÍN geta óskað eftir því að greiða í lífeyrissjóð. Tekin eru 4% af lánsupphæðinni en LÍN leggur á móti til 6% líkt og atvinnurekendur gera. Þegar núver- andi húsnæðiskerfi var komið á fót var í fyrstu ekki ætlunin að náms- menn hefðu neinn lánsrétt en komið var í veg fyrir það og námsmönnum boðið að greiða af námsláni sínu. Frekar fáir námsmenn hafa nýtt sér þennan möguleika. Nokkuð er þó um að námsmenn komi þegar þeir hafa lokið námi og inni þá þessar greiðslur af hendi. Þá eru þeir að fara að kaupa sér íbúð en vakna upp við það að þeir hafa ekki lánsrétt. Námsmaður kom að máli við Tím- ann og sagði farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Lánasjóð ís- lenskra námsmanna. Hann tók námslán á síðasta vetri og óskaði eftir því að greitt yrði af láninu í lífeyrissjóð. Þegar námsmaðurinn ætlaði síðan að fá vottorð um að hann hefði greitt í sjóðinn kom í ljós að LÍN hafði ekki skilað greiðslun- um til sjóðsins. Hjá LÍN fengust þau svör að það kæmi fyrir að drægist að skila lífeyrissjóðsgreiðslum en það væri aðeins vegna veikinda starfs- manna eða tæknilegra orsaka. Greiðslurnar sjálfar fara inn á sér- staka reikninga þangað til þær eru sendar til lífeyrissjóðsins. Engin hætta væri á að námsmaðurinn tap- aði sínum réttindum vegna þessa. -EÓ Maður og kona Á vegum Lista og menningar- sjóðs Seltjarnarness var í sumar sett upp verk Hallsteins Sigurðs- sonar „Maður og kona“ í brekk- unni við Norðurströnd á Seltjarn- arnesi. Listaverkið „Maður og kona“ er um 2,6 metrar á hæð og stendur það á þriggja metra háum stöpli. Lista og menningarsjóður Sel- tjarnarness hefur nú starfað í um 15 ár og á þeim tíma gert verulegt átak í lista og menningarlífi á Seltjarnarnesi, segir í tilkynningu frá bæjarstjórninni. Sjóðurinn hefur keypt um 90 málverk, keypt og látið stækka tvö útilistaverk svo og styrkt ýmsa menningarstarfsemi í bænum. -ABÓ 1 íþróttafélag fatlaöra: Viðurkenning veitt fyrir frammistöðu Á aðalfundi íþróttafélags fatlaðra Reykjavík sem haldinn var nýlega fengu nokkrir félagar ÍFR viður- kenningu fyrir góða frammistöðu á Ólympíuleikum fatlaðra í Seoul 1988. Viðurkenningin er stytta, sem vonandi verður þeim hvatning til áframhaldandi dáða, segir í fréttatil- kynningu frá íþróttafélagi fatlaðra, Reykjavík sem er 15 ára á þessu ári. Lagt hefur verið kapp á að halda æfingum gangandi og að koma íþróttahúsi félagsins við Hátún 12 upp. Nú er verið að steypa upp 2. áfanga hússins og er reiknað með að þeim áfanga verði lokið í desember á þessu ári. í tilkynningunni segir að enn vanti mikið fé til að hægt sé að Ijúka byggingunni og er þess vænst að almenningur og opinberir aðilar sýni málinu skilning með fj árframlögum. -ABÓ Utanríkisráðherra: . Pólverjum miðlað af nægtaborðinu Að tillögu Jóns Baldvins Hanni- balssonar hafa stjórnvöld samþykkt að veita Pólverjum þróunaraðstoð að verðmæti 10-20 milljónir króna. Aðstoð þessi mun verða í formi matvælasendinga og hyggst ríkis- stjórnin fara þess á leit við matvæla- framleiðendur og útflutningsfyrir- tæki að þessir aðilar leggi sitt af mörkum til að fylla rausnarkvóta ráðherrans. JBG. Fulbright-stofnunin: Sextán styrkþegar Fulbright-stofnunin hefur veitt 16 íslenskum námsmönnum styrki til náms í Bandaríkjunum í ár. Þar af hljóta 12 fullan styrk en 4 ferða- styrki. Framlag stofnunarinnar nem- ur að þessu sinni $40.000, eða jafn- virði 2.4 milljóna króna á núgengi, en einnig veita bandarískir háskólar sem svarar 4.2 milljónum til styrk- þeganna, þannig að námsaðstoðin nemur alls um 6.6 milljónum króna. JBG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.