Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. ágúst 1989 Tíminn 3 Óli Þ. Guðbjartsson þingmaður Borgaraflokks segir flokkinn fara í harða stjórnarandstöðu semjist ekki við stjórnina, þrátt fyrir meirihluta í nefndum verði mál hennar felld á jöfnu í neðri deild: Þurfum ekki að semja við Sjálfstæðisflokk Eins og kunnugt er hefur forsætisráðherra lýst því yfír að lokatilraun til samninga við Borgaraflokkinn muni væntan- lega Ijúka á næstu dögum. Óli Þ. Guðbjartsson þingmaður Borgaraflokksins segir þá fara í harða stjórnarandstöðu semjist ekki nú. Því hefur Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir lýst yfir líka. Óli Þ. segir að þetta ástand þýði ekki að Borgaraflokkurinn þurfí að spyrða sig saman við sjálfstæðis- menn. Þó að stjórnin hljóti meirihluta í öllum nefndum, vegna þess að stjórnarandstaðan bjóði ekki sameiginlega fram á móti henni, dugi það henni ekki til að vera starfhæf næsta vetur. Til þess þurfí hún meirihluta í báðum deildum þingsins. „Við bara bíðum rólegir það hefur ekkert komið á okkar borð ennþá og kannski kemur ekkert. Mér heyrist nú á því sem Jón Sigurðsson lætur eftir sér hafa í fjölmiðlum að hann telji það algerlega ónauðsynlegt að fá okkur til samstarfs og þá fær hann væntanlega sínar kosningar", sagði Óli. Aðspurður vildi hann ekki meina að Borgaraflokkurinn lenti í þeirri stöðu að vera líkt og á milli steins og sleggju, færi flokkurinn ekki í ríkis- stjórn og væri jafnframt hafnað af stærsta stjórnarandstöðuflokkinum, Sjálfstæðisflokknum. „Já ætli við eigum ekki að sverja þeim sjálfstæð- ismönnum trúnaðareiða til þess að fá að setjast á þingið", sagði Óli Hann sagði það ekki rétt að einblína á þingnefndirnar einar sér og benti á að staðan á Alþingi núna yrði ná- kvæmlega sú sama og hún var í fyrrahaust, atkvæðavægi stjórnar og stjórnarandstöðu væri það sama í neðri deild. Hvernig færi með kjör í nefndir í deildinni skipti ekki svo miklu máli og vitnaði Óli þar til þess að stjórnin hafði meirihluta í öllum nefndum á síðasta þingi. „Það er augljóst að þessari stjórn er ógerlegt Samvinna í strand- flutningum aukin Samkomulag hefur verið undirrit- að milli Eimskipafélags íslands, Skipadeildar Sambandsins og Skipaútgerðar ríkisins um aukna samvinnu í strandflutningum. I samkomulaginu felst að unnið verði að gerð samnings milli þessarar aðila til allt að 5 ára um samvinnu í strandflutningum, með það að mark- miði að auka hagkvæmni þessara flutninga og draga úr kostnaði við þá. Jafnframt er stefnt að því að þjónusta við staði utan Reykjavíkur verði ekki minni en verið hefur. Að því er stefnt að samsiglingarkerfi verði tekið upp í síðasta lagi um nk. áramót. Jafnframt er gert ráð fyrir að unnið verði að endurskipulagningu á þjónustu á landi með það að leiðarljósi að gera vöruafgreiðslu fyrir strandflutninga hagkvæmari og ódýrari. Samkomulagið var undirritað af Steingrími J. Sigfússyni, samgöngu- ráðherra, Guðjóni B. Ólafssyni, for- stjóra og Herði Sigurgestssyni, for- stjóra. - ABÓ Kjúklingabændur ræða verðlækkun Samdráttur í sölu á kjúklingum og leiðir til að lækka verð á þeim var helsta umræðuefni á aðalfundi Fé- lags kjúklingabænda sem var haldinn á Hótel Selfossi síðast liðinn mið- vikudag. Bjarni Ásgeir Jónsson úr Mosfellsbæ var kosinn formaður fé- lagsins. „Okkur finnst það skjóta nokkuð skökku við að á sama tíma og menn eins og Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurðsson eru að tala um að það þurfi að leifa innflutning á kjúklingum af því að innlendir kjúkl- ingar séu svo dýrir, þá skuli þeir standa að því að hækka skatta á kjúklinga," sagði Bjarni Ásgeir Jónsson nýkjörinn formaður Félags kjúklingabænda. „Það er auðvelt fyrir þá að gagnrýna okkur fyrir hátt verð þegar þeir sjálfir hafa staðið að því að hækka það. Við gerum okkur sjálfir fulla grein fyrir að það er bráðnauðsynlegt að lækka verð á kjúklingum. Við erum að reyna að kynbæta kjúklingastofninn og auka vaxtarhraða. En þetta er erfitt því við megum ekki flytja inn betri stofna og við megum ekki gefa fuglunum lyf sem vinna á sjúkdóm- um og hraða vextj. Þessi lyf eru gefin kjúklingum víða erlendis." Einhver óeining er meðal kjúkl- ingabænda sem birtist meðal annars í því að Jónas Halldórsson frá Svein- bjarnargerði var felldur úr stjórninni eftir að hafa verið formaður félagsins í 18 ár. „Átök innan félagsins stafa fyrst og fremst af því að þegar kvóti var settu á var verið að skipta köku sem var 1800-1900 tonn. Þegarhenni var skipt en í fyrra var hún komin niður í 1100-1200 tonn. Það eru allir óánægðir með sínar sneiðar í dag. Menn þyrftu að geta framleitt meira,“ sagði Bjarni Ásgeir að lokum. -EÓ NÝTT SÉRK0RT FRÁ MÝVATNI Landmælingar íslands hafa gefið Kortaverslun Landmælinga Is- út nýtt sérkort af svæðinu um lands flutti nýlega um set í rýmra Húsavík og Mývatn. Kortið er í og betra húsnæði að Laugavegi útgáfuröð sérkorta Landmælinga ]78. Auk korta eru þar einnig íslands. Sérkortin eru nú alls orðin seldar ýmis konar ferðavörur, s.s. níu talsins og þekkjast á grænum áttavitar, kortamælar, göngumælar kápum sem notaðar eru fyrir sér- 0g kortatöskur. -ABÓ kort stofnunarinnar. að vinna verði öll hennar mál stopp- uð í annarri þingdeildinni. Þá stefnir bara í kosningar. En mér finnst það aum frammistaða hjá stjórninni ef þeir geta ekki komið sér saman um einhver svör til okkar úr því að þeir eru búnir að vera tala um þetta allan þennan tíma“, sagði Óli. En er stjórnin þá ekki á vetur setjandi hlaupi ekki Borgaraflokkur eða aðrir flokkar sem standa utan við hana undir bagga með henni? Óli Þ. Guðbjartsson segir að reynslan frá því í fyrravetur sýni að stuðningur þeirra við ýmis þingmál hafi verið nauðsynlegur fyrir stjórn- ina. „Þeir hefðu ekki getað komið einu og öðru í verk sem gert hefur verið, ef okkar hefði ekki notið við“. Hann benti í þessu sambandi á tvö stór mál er hann kvaðst telja að væru verk Borgaraflokksins. Annars veg- ar samþykkt bráðabirgðalaganna og sú aðstoð sem atvinnulífinu var veitt í gegnum ákvæði þeirra. „Ég hef ferðast um landið og séð það með eigin augum hvaða áhrif það hefur haft að koma atvinnulífinu á þann rekspöl sem það er þó á í dag“, sagði Óli. Hin staðreyndin væri sú að fjármálaráðherra hefði lagt fram þá tillögu í ríkisstjórninni að tvö þrep skuli vera í virðisaukaskattinum, sem þýði minnkun skattlagningar á matvæli. „Þetta er baráttumál okkar frá upphafi og við erum búnir að standa á þessu eins og hundar á roði allan tímann. Nú sér fyrir endann á matarskatti þeirra sjálfstæðismanna og það er fyrst og fremst fyrir baráttu okkar, ég er ekki í vafa um það.“ - ÁG Viltusopa? í gær léttist heldur betur brúnin f dag er búist við svipuðu veðri á sóldýrkendum á Suð-vesturhorn- 0g eru horfur á að léttskýjað verði inu eftir sólarlitla og þungbúna um mest allt land í dag og á sumarmánuði. Margir nýttu tæki- morgun en Veðurstofan gerir ráð færið til að fá lit á kroppinn eins og fynr að það þykkni upp á sunnu- þessar tvær vinkonur sem ljós- daginn, fyrst á vestanverðu land- myndari Tímans hitti í Laugardals- inu. SH/Tímamynd Pjetur lauginni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.