Tíminn - 25.08.1989, Síða 10

Tíminn - 25.08.1989, Síða 10
10 Tíminn Föstudagur 25. ágúst 1989 DAGBÓK lllllil lllllllllllllllillll Útivist, Simar 14606 og 23732. Sunnudagsganga Útivistar Landnámsgangan 18. ferö Kl. 10:30 Ulfljótsvatn-Ýrufoss-Álfta- vatn (L-18a) Þetta er ganga um fallegt vatnasvæði (1(100 kr.) Kl. 13:00 Ýrufoss-Álftavatn. Samein- ast morgungöngunni. Enn er hægt að taka þátt í ferðasyrpu í landnámi Ingólfs. (1000 kr.) Frítt erfyrirbörn meðfullorðn- um. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 26. ágúst. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. Markmið göngunnar er samvera, súr- efni og hreyfing. Rölt um bæinn í klukku- tíma í skemmtilegum félagsskap. Nýlagað molakaffi á boðstólum. Munið Púttvöll Hana nú á Rútstúni, sem er öllum opinn. Dagsferðir Ferðafélags íslands - sunnudaginn 27. ágúst Kl. 08:00 Þórsmörk - dagsferð (2000 kr.) Kl. 10:00 Rauðsgil-Búrfell í Reyk- holtsdal. Þetta er öku- og gönguferð. Gengið upp með Rauðsgili, sem er afar fagurt. (1500 kr.) Kl. 13:00 Eyrarfjall. Eyrarfjall er við sunnanverðan Hvalfjörð og verður geng- ið á fjallið að austan. (800 kr.) Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn að 15 ára aldri. Ferðafélag íslands. Frá Félagi eldri borgara Göngu-Hrólfur: Gönguferð á hverjum laugardegi kl. 10:00. Farið verður frá Nóatúni 17. Snæfellsnesferð: Þriðjudaginn 5. sept. nk. verður farin þriggja daga Snæfellsnes- ferð. Upplýsingar á skrifstofu félagsins, Nóatúni 17, sími 28812. DE n.vr\r\^a ■ « Sumartími: Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00. Framsóknarflokkurinn. Guðm. Jóhannes Sigrúnog AnnaGuðný Bjarnason Héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði verður í Miðgarði laugardaginn 26. ágúst og hefst kl. 21.00. Ræðu flytur Guðmundur Bjarnason heilbrigöis- og tryggingamálaráðherra. Meðal skemmtiatriða verður einsöngur Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, við hljóðfærið Anna Guðný Guðmundsdóttir. Jóhannes Kristjánsson verður með gamanmál. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10. september n.k. ingsnefnd Landsþingsins starfar nú af fullum krafti. Undirbún- I nefndinni eru: Guðrún Jóhannsdóttir, Margrét (varsdóttir og Unnur Stefánsdóttir. Málefnaundirbúningur er á lokastigi í öllum kjördæmum landsins. Konur látið skrá ykkur á þingið sem fyrst í síma 91-24480, milli kl. 10 og 12 og á Hvanneyri í síma 93-70000 kl. 9-12 og 1-5. Ath. Þingið er öllum konum opið. Stjórn L.F.K. Guðrún Unnur k Aðalhciöur Skarphéðinsdóttir á vinnustofu sinni. Sýning Aðalheiðar í Hafnarborg Aðalheiður Skarphéðinsdóttir opnar sýningu í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar laugardaginn 26. ágúst 1989. Á sýningunni verða 38 verk, teikningar og grafík. Aðalheiður er fædd í Hafnarfirði 1950. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1967-1971 og lauk þaðan prófi úr kennaradeild árið 1971. Sama ár fór hún til framhaldsnáms til Svíþjóðar og lærði textilhönnun við List- iðnaðarháskólann Konstfalk í Stokk- hólmi, og útskrifaðist þaðan 1980. Jafn- framt lagði hún stund á grafík við Kollekt- iva verkstæðið í Stokkhólmi á árunum 1978-1980. Aðalheiður hefur kennt myndmennt við grunnskóla Reykjavíkur, einnig við Myndlistaskóla Reykjavíkur og Mynd- lista- og handíðaskóla fslands. Aðalheiður hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima, einnig í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og nú síðast í Japan, en þar átti hún verk á Listiðnaðar- sýningunni „The Way of Life“ 1987-’88. Aðalheiður rekur eigið grafík- og tex- tilverkstæði við Suðurgötu 45 í Hafnar- firði. Sýningin í Hafnarborg stendur frá 26. ágúst til 10. september og er opin kl. 14:00-19:00 alla daga nema þriðjudaga. Listsýning Dags Sigurðarsonar Dagur Sigurðarson opnar sýningu á um þrjátíu myndverkum í Listamannahúsinu Hafnarstræti 4 í Reykjavík laugardaginn 26. ágúst kl. 15:00. Dagur hefur stundað myndlist frá því hann myndskreytti skólabíöðin í Gaggó Aust, en hann er samt þekktari sem Ijóðskáld og fyrir þýðingar á suður-amer- ískum skáldum. Þessi listverk sem Dagur sýnir nú eru máluð bæði hérlendis og erlendis undan- farin ár. Sýningin verður opin í hálfan mánuð kl. 10:00-18:00 alla daga. Dúkkukerran um Vestfirði Brúðuleikhúsið Dúkkukerran fer leik- ferð um Vestfirði dagana 26. ágúst-30.. ágúst með ævintýrið „Bangsi". Leikhúsið reka þær Ásta Þórisdóttir og Lilja Sigrún Jónsdóttir, ásamt aðstoðarmanni sínum Einari Hauki Þórissyni. Ævintýrið fjallar um vinina Bangsa og Rebba. Leikið er með bæði hand- og strengja-brúðum. Sýningin er fyrir börn á öllum aldri. Heymar- og talmeinastöð á Höfn Móttaka verður á vegum Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands í Heilsugæslu- stöðinni á Höfn dagana 8.-10. sept. 1989. Þar fer fram greining heymar- og tal- meina og úthlutun heyrnartækja. Sömu daga að lokinni móttöku Heyrn- ar- og talmeinastöðvarinnar verður al- menn lækningamóttaka sérfræðings í háls-, nef- og eyrnalækningum. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum i Heilsugæslustöðinni á Höfn. Eitt af verkunum á sýningunni „Myndlist frá Muldavíu' Myndlist frá Moldavíu KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Síminn er 21205 - opinn allan sólar- hringinn. „Myndlist frá Moldavíu” er heiti sýn- ingar, sem nú stendur yfir í HAFNAR- BORG, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar. Sýningin er hluti af Sovéskum dögum MÍR. Sýningin var opnuð 12. ágúst sl. og mun standa til 10. september. Á sýningunni eru málverk, svartlist og listmunir ýmiskonar, svo sem vefnaður og fatnaður, sem er hluti af moldavíska þjóðbúningnum. Sýningin er opin kl. 14:00-19:00 alla daga nema þriðjudaga. UMFERÐAR RÁÐ * I HÓF! ERT ÞÚ VIÐBÚIN(N) ÓVÆNTUM „GESTI“ AF AKREININNI / /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.