Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
FöstucJfigur 25. ágúst 1989
FRÉTTAYFIRLIT
JERÚSALEM - ísraelskir
hermenn notuöu þyrlur tll aö
leita aö Gyöingi sem rænt var
á Vesturbakkanum. Þá hefur
hæstiréttur staöfest aö brott-
vísun fjögurra leiötoga Palest-
ínumanna á hernumdu svæö-
unum úr landi væri lögmæt.
TOKYO - Þá er enn eitt
hneykslismálið komið af staö í
japönskum stjórnmálum og nú
er það næst æðsti maður rikis-
stjórarinnar sem hangir í
hneykslisgálganum vegna-
kynlífshegðunar sinnar. Þaö
er Tokuo Yamashita sem hefur
viöurkennt aö hafa greitt fyrr-
um ástkonu sinni þrjar milljónir
jena fyrir greiðasemi allskonar.
Tokua hefur ekki ákveðið hvort
hann muni segja af sér eöur ei.
LISSABON - UNITA
skæruliðahreyfingin í Angóla
hefur lýst því yfir að vopnahlé
það sem í gildi hefur verið
undanfarna tvo mánuði sé ekki
lengur í gildi og hyggja Unita-
menn á mannvíg næstu daga.
Unita segir að ríkisstjórnin í
Angóla hafi ekkert komið til
móts við skæruliðahreyfinguna
og því sé ekkert annað að gera
en taka upp fyrri iöju og reyna
að fella stjórnina með hervaldi.
BONN - Rúmlega hundrað
austurþýskir flóttamenn komu
til Vestur-Þýskalands eftir að
stjórnvöld í Bonn höföi skipu-
lagt örugga ferð frá vestur-
þýska sendiráðinu i Búdapest
þar sem Austur-Þjóðverjarnir
hafa dvalið í ellefu daga. Utan-
ríkisráðuneytið i Vestur-
Þýskalandi segir að ungversk
stjórnvöld hafi leyft hópnum að
fara af mannúðarástæðum.
BEIRÚT - Sovétríkin hafa
sent háttsetta sendinefnd til
Beirút þar sem hún á að freista
þess að koma á friði. Á sama
tíma drógu Frakkar aðeins úr
flotastyrk sínum á austanverðu
Miðjarðarhafi til að slá á spenn-
una.
BANKOK - Víetnamar og
bandamenn þeirra í Kambodíu
höfnuðu algerlega hugmynd-
um um að hinir illræmdu
Rauðu Khmerar tækju þátt í
síðustu lotu viðræðna um frið í
Kambódíu sem fram fara í
næstu viku. Á sama tíma berj-
ast hinar mismunandi skæru-
liðasveitir á landamærum Tæ-
lands og Kambódíu.
Illllllllllllll ÚTLÖND
Stjórnvöld í Kólumbíu eiga erfiöa tíma framundan eftir aöförina aö hinum voldugu eiturlyfjahringum:
Eiturlyfjabarónamir
í allsherjarstyrjöld
Eiturlyfjabarónarnir í Kól-
umbíu hafa sagt stjórnvöld-
um stríð á hendur og hyggjast
ráðast á allt og alla sem ekki
beygja sig undir vilja þeirra.
Yfírlýsing þessa efnis var
send til dagblaða í Kólumbíu
eftir að Bandaríkjastjórn
hafði farið fram á það við
Virgilio Barco forseta Kól-
umbíu að tólf kólumbískir
eiturlyf jabarónar verði hand-
teknir og þeir framseldir til
Bandaríkjanna þar sem þeir
eru eftirlýstir.
í yfirlýsingu eiturlyfjabarónanna
segir að þeir muni hefja allsherjar-
styrjöld gegn stjórnvöldum í Kól-
umbíu auk þess sem þeir hóta blaða-
mönnum, dómurum, viðskiptajöfr-
um og alla þá sem unnið hafa gegn
þeim í gegnum tíðina.
- Við munum ekki virða fjölskyld-
ur þeirra sem ekki hafa virt fjölskyld-
ur okkar. Við munum brenna og
eyðileggja iðnað fámennisstjórnar-
innar, eignir þeirra og heimili, sagði
í yfirlýsingu eiturlyfjabarónanna.
Nú er liðin vika frá því að Virgilio
Barcos lýsti yfir neyðarástandi til
þess að berjast gegn eiturlyfjasmygli
og eitulyfjaframleiðslu í landinu.
Hann lét heldur ekki standa við
orðin tóm heldur voru ellefuþúsund
manns handteknir í herferð lögreglu
og hersins um síðustu helgi, eignir
Eiturlyfjabarónarnir í Kólumbíu hafa nú sagt stjómvöldum stríð á hendur eftir aðför stjórnvalda að hinum voldugu
eiturlyfjahringum í landinu. Hér gætir vopnaður vörður verkamanna á kókaínekru.
eiturlyfjasmyglara að verðmæti mill-
jóna dollara voru gerðar upptækar
svo og fjöldi flugvéla sem, notaðar
hafa verið til eiturlyfjasmyglsins.
Enginn hinna tólf eiturlyfjabaróna
sem Bandaríkjamenn vilja fá fram-
selda var þó handtekinn.
Kveikjan að herferð Virgilios Bar-
cos voru tvö morð sem framin voru
á föstudag. Annars vegar var um að
ræða háttsettan dómara og hins
vegar einn vinsælasta stjórnmála-
mann landsins, Luis Carlos Galan
sem talinn var líklegastur eftirmaður
Barcosarí forsetastóli.
Pólska þingiö staðfestir
tímamót í Austur-Evrópu:
Mazowiecki kosinn
forsætisráðherra
Sovétmenn líta á Samstöðumann-
inn Tadeusz Mazowiecki sem í gær
var kjörinn forsætisráðherra Pól-
lands sem félaga þó hann sé ekki
kommúnisti og hyggjast sovésk
stjórnvöld bíða og sjá hvernig
stefnuskrá ríkisstjórnar hans mun
líta út og þróast. Kjör Mazowieckis
brýtur blað í sögu Austur-Evrópu
því hann er fyrsti forsætisráðherrann
fyrir austan járntjald sem ekki er
félagi í kommúnistaflokknum.
Talsmaður sovésku ríkisstjórnar-
innar hafði áður lýst áhyggjum sín-
um ineð þróun mála í Póllandi ef
kommúnistaflokkurinn verði ekki
áhrifamikill í ríkisstjórn Tadeuzar.
Tadeuz Mazowiecki hlaut 378 at-
kvæði í kosningu forsætisráðherra,
41 þingmaður sat hjá og fjórir þing-
menn greiddu atkvæði gegn honum.
Allir stjórnmálaflokkar munu verða
með í ríkisstjórn hans, Samstaða,
Sameinaði bændaflokkurinn og
Lýðræðisflokkurinn munu fara með
öll mál nema varnarmál og innanrík-
isráðuneytið sent kommúnistar
munu stjórna.
Tadeuz Mazowiecki hefur verið
einn helsti ráðgjafi Lech Walesa
leiðtoga Samstöðu. Hann er ritstjóri
dagblaðs Samstöðu og hefur setið í
fangelsi fyrir afskipti sín af stjórn-
málum.
Tadeusz Mazowiecki forsætisráð-
herra Póllands. Hann er fyrsti fors-
ætisráðherrann í Austur-Iivrópu
sem er ekki kommúnisti.
1600 ástralskir flugstjórar segja upp starfi sínu:
Innanlandsflug
í Ástralíu
leggst í rúst
Öngþveiti er fyrirsjáanlegt í ástr-
ölsku innanlandsflugi þar sem allir
þeir sextánhundruð flugstjórar sem
meðlimir eru í Samtökum ástr-
alskra flugstjórar sögðu upp störf-
um sínum eftir að flugfélög í Ástra-
líu hófu að segja upp einstökum
flugmönnum,
Uppsagnir þessar koma flugfé-
lögum í Ástralíu á kaldan klaka
þar sem margir flugstjóranna eiga
rétt á að fá greidda sem samsvarar
allt frá tveimur milljónum upp í
fjórar milljónir króna í lífeyri og
sérstakar greiðslur sem flugstjórar
ávinna sér eftir langa þjónustu hjá
sama flugfélagi. Bætast erfiðleikar
þessir við önnur fjárhagsvandræði
flugfélaganna sem hafa átt í mikl-
um fjárhagsvandræðum að undan-
förnu.
Ástralía er víðfeðmt land og eru
flugsamgöngur þar mjög mikilvæg-
ar og hafa flugstjórar nýtt sér það
í samningaviðræðum eins og títt er
að gerist annars staðar í heiminum.
Þrjú stærstu innanlandsflugfélögin
í Ástralíu höfnuðu fyrir nokkru
kaupkröfum flugstjóra sem vilja
30% launahækkun. Gripu flugfé-
lögin á það ráð að segja upp
nokkrum flugstjórum sem ollið
hafa vísvitandi töfum og sektað
aðra. Þetta varð til þess að flug-
stjórarnir sextánhundruð sögðu
upp störfum.
Ríkisstjórn BobHawkeser mjög
uggandi vegna þessa máls því hún
óttast að ef flugstjórar fái þá launa-
hækkun sem þeir fara fram á muni
skriða launahækkana fylgja á eftir
með þeim afleiðingum sem íslend-
ingar þekkja svo vel, hærri verð-
bólgu.
Sovéskir sveppir geislavirkir
Sovéskir sveppir í skógunum kring
um Leníngrad eru svo illilega geisla-
virkir að stjórnvöld hafa varað íbúa
svæðisins við að halda í sínar árlegu
svepptínsluferðir, en villtir sveppir
eru nauðsynlegir á borð Rússa í
ágústlok og byrjun september. Hef-
ur svo verið um aldir.
Sovésk stjórnvöld vara almenning
við að éta hina gómsætu sveppi á
svæði sem eru 50 km langt og 10 km
breitt vegna þess hve geislavirknin
mikil. Ástæða geislavirkninnar er að
sjálfsögðu slysið í Tsjernóbíl sem er
að setja Hvíta-Rússland á hausinn
og hefur lagt hefðbundið líf Sama í
norðurhluta Skandínavíu í rúst. Þar
eru berin, sveppirnir, fiskurinn og
hreindýrin álíka geislavirk og svepp-
irnir við Leníngrad.