Tíminn - 25.08.1989, Page 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhúsinu v/Tryggvogötu,
S 28822
^ ÁTTHAGAFÉLÖG,
FYRIRTÆKI OG
EINSTAKLINGAR
Glæsilegur salur tíl loigu íyrir samkvæmi
og fundarhöld ó daginn sem ó kvöldin.
«en= ===x==x=a=:
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989
Óvæntar sættir milli Reykjavíkur og Kjalarneshrepps:
Samkomulag tókst um
sorpurðun í Álfsnesi
í gær náðist samkomulag milli Reykjavíkurborgar og
Kjalarneshrepps um að urðun á sorpi borgarbúa verði í
Álfsnesi. í framhaldi af samþykki hreppsnefndarinnar var
gengið frá kaupum borgarinnar á Alfsnesinu fyrir 98
milljónir króna.
Sem kunnugt er hafði lirepps-
nefndin nýlega hafnað tilboði
Reykjavíkurborgar um urðun
sorps á þessum sama stað gegn
yfirtöku á skuldum Hitaveitu Kjal-
arness og föstu árlegu gjaldi. Hins-
vegar samþykkti nefndin að ganga
til viðræðna um urðun á svæðinu
norðan Arnarholts en Davíð Odds-
son borgarstjóri hafnaði þeim
möguleika algerlega. Jón Ólafsson
oddviti Kjalarneshrepps segir að
skiptar skoðanir hreppsbúa á mál-
inu og nýir þættir í tilboði borgar-
innar hafi leitt til þess að hrepps-
nefndin skipti um skoðun.
Jón Ólafsson oddviti og Davíð
Oddsson borgarstjóri undirrituðu í
gærmorgun samkomulag um
hvernig staðið skyldi að þessum
málum með þeim fyrirvara að
hreppsnefndin gæfi samþykki sitt.
Á fundi hreppsnefndarinnar síð-
degis í gær var hlaut samningurinn
samþykki, þrír voru meðmæltir,
einn á móti og einn sat hjá. Þegar
fyrra tilboðinu var hafnað féllu
atkvæðin aftur á móti þannig að
þrír voru á móti en tveir meðmælt-
ir.
Jón Ólafsson oddviti sagði í
samtali við Tímann síðdegis í gær
að grunnur samkomulagsins væri
svipaður og fyrra tilboðsins, það er
að Reykjavíkurborg yfirtaki hita-
veitu hreppsins og borgi fast ár-
gjald fyrir urðunina, sem reyndar
hækkaði úr 40 krónum fyrir tonnið
í 60 krónur. Helstu breytingar eru
þær að inn í samkomulagið voru
tekin inn viss atriði varðandi sam-
starf höfuðborgarinnar og Kjalar-
neshrepps, til dæmis varðandi
skipulagsmál, brunamál og sam-
göngur almenningsvagna. Pessi
atriði á þó eftir að útfæra betur. Að
auki er kveðið á um það í samn-
ingnum að hluti urðunargjaldsins
rennur upp í kaupverð landsins,
þannig að 25 árum liðnum á Kjal-
arneshreppur landið og þá mun
samningurinn verða endurskoðað-
ur. Sérstaklega munu verða tekin
til endurskoðunar þau atriði er
varða málefni hitaveitunnar.
Um ástæður þess að hrepps-
nefndin skipti um skoðun sagði
Jón: „Það voru mjög skiptar
skoðanir orðnar innan hreppsnefn-
darinnar og almennt milli íbúa
hreppsins og orðið mjótt á munun-
um. Það fór fram mikil umræða í
sveitarfélaginu í kjölfar fyrri
ákvörðunarinnar og menn mátu
það svo að það væri komið að
leiðarlokum að taka ákvörðun og
þá fór það svona. - Ég sem oddviti
og sveitarstjórinn mátum málið
þannig að það þyrfti að taka það
upp aftur.“
Jón sagði jafnframt að umræðan
hafi á sínum tíma farið út í að finna
annan urðunarstað á Kjalarnesi og
þá hafi Arnarholtið orðið ofan á.
„Það var kom hinsvegar í ljós að
Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins
hefði ekki tekið þann kost og þá
tóku menn málið upp að nýju.
barna var gefið eftir.“
- Heldurðu að meirihluti Kjal-
nesinga sé nú ánægðari en áður?
„Eigum við ekki að vona það,
við vonum það. Þetta er mjög
góður samningur að mörgu leyti.“
Peningasjónarmið
látin ráða
Inga Árnadóttir fulltrúi í hrepps-
nefnd Kjalarness greiddi atkvæði á
móti urðun í Álfsnesi.
Um skýringar á því afhverju
einn hreppsnefndarmaður skipti
svo skyndilega um skoðun sagðist
Inga ekki hafa þær á takteinum.
„Ég þori ekkert að segja um það.
Þetta er afskaplega undarlegt mál.
Ég frétti lauslega af þessu máli í
fyrrakvöld og hringdi síðan í
oddvitann í gærmorgun og þá neit-
aði hann mér um upplýsingar varð-
andi það sem hafði gerst daginn
áður, en þá höfðu þrír hrepps-
nefndarmenn undirritað plagg þess
eðlis að þeir væru samþykkir að
taka þetta mál upp að nýju. Síðan
var ég boðuð á fund með mjög
stuttum fyrirvara í gær. - Þarna
voru peningasjónarmiðin allsráð-
andi og þau rök að þessi starfsemi
spilli umhverfinu eru ekki tekin
gild og vega létt þegar peningar eru
í boði.“
Sem fyrr segir hefur verið gengið
frá því að borgin kaupi Álfsnesið
af núverandi eigendunt þess,
Valdimar Steinþórssyni og Ragnari
Guðmundssyni á 98 milljónir
króna. SamkvæmtheimildumTím-
ans hafa þeir átt landið í nokkra
rnánuði og keyptu það á sínum
tíma fyrir 84 milljónir króna.
SSH
„Islenskir
dagar“ fá
foisetann
í heimsókn
Vigdís Finnbogadóttir sótti „ís-
lenska daga“ í Miklagarði við Sund
síðdegis í gær. Var heimsóknin liður
í svokallaðri lokahátíð þessa sam-
starfsverkefnis Félags íslenskra iðn-
rekenda, Kaupstaðar, Miklagarðs
og Miðvangs. íslenskum dögum lýk-
ur næstkomandi laugardag en kynn-
ingarátakiðhefurstaðiðfrá 10. þ.m.
í fréttatilkynningu segir að árang-
ur þessa kynningarátaks hafi þegar
skilað sér í mikilli söluaukningu á
íslenskum neytendavörum og óhætt
sé að fullyrða að neytendur hafi
tekið vel undir og valið íslenskt í
auknum mæli í innkaupaferðum.
SSH
Vigdís Finnbogadóttir heimsótti í
gær „íslenska daga“ ■ Miklagarði.
Forsetanum á vinstri hönd er Þröstur
Ólafsson stjórnarformaður KRON
en á hægri hönd Guðmundur Þ.
Jónsson formaður Iðju.
Tímamynd: Árni Bjarna .