Tíminn - 01.09.1989, Síða 10
10 Tíminn
Föstudagur 1. september 1989
lllllllllllllllllll DAGBÓK lllllliiillllllllllllllllllllllilllill
Vikuleg laugardagsganga
Hin vikulega laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður á morgun, laugar-
daginn 2. september. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10:00.
Markmið göngunnar er: Samvera, súr-
efni og hreyfing. Verið með í bæjarröltinu
í skemmtilcgum félagsskap. 'Nýlagað
molakaffi. Munið Púttvöll Hana nú á
Rútstúni, segir í fréttatilkynningu frá
Frístundahópnum Hana nú í Kópavogi.
Helgarferðir F.í. 1.-3. sept.
ÓVISSUFERÐ
Nú liggur leiðin aö hluta um áður
ókannaðarslóðir. Gist í svefnpokaplássi.
Þórsmörk. Gönguferðir við allra hæfi.
Frábær gistiaðstaða í Skagfjörðsskála í
Langadal.
Landmannalaugar - Eldgjá.
Á laugardegi er ekið til Eldgjár og gengið
að Ófærufossi. Gist í sæluhúsi Ferðafé-
lagsins í Landmannalaugum.
Ferðafélag íslands.
r « Mrtr
ÓlafurÞ.
Þórðarson
GuðmundurG.
Þórarinsson
Pétur
Bjarnason
Tálknfirðingar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Bjarnason
mæta á almennum stjórnmálafundi á Tálknafirði þriðjudaginn 5.
september kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Patreksfirðingar og
nágrannar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Bjarnason
mæta á almennum stjórnmálafundi á Patreksfirði miðvikudaginn 6.
september kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Dýrfirðingar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Bjarnason
mæta á almennum stjórnmálafundi á Þingeyri fimmtudaginn 7.
september kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Konur Suðurlandi
Landsþing LFK verður haldið að
Hvanneyri dagana 8.-10. sept-
ember n.k.
Félag framsóknarkvenna í Árnes-
sýslu gengst fyrir rútuferð á þingið
frá Eyrarvegi 15, Selfossi kl. 17.00
föstudaginn 8. september og til
baka að loknu þingi.
Þær konur sem vilja vera með,
tilkynni þátttöku í síma 63388,
sem fyrst.
Ath. þingið er opið öllum konum.
Fjölmennum.
Félag framsóknarkvenna
í Árnessýslu.
LFK
\
\.
ÓlafurÞ.
Þórðarson
GuðmundurG.
Þórarinsson
Bíldælingar athugið
Ólafur Þ. Þórðarson og Guðmundur G. Þórarinsson mæta á
almennum stjórnmálafundi á Bíldudal mánudaginn 4. september kl
21.00.
Allir velkomnir.
uu
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið í
Félagsheimili Patreksfjarðar þann 15. september n.k. og hefst kl. 17.
Dagskrá samkvæmt samþykktum. Nánar auglýst síðar.
Stjórn K.F.V.
Mlf
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
Frá Félagi eldri borgara
Göngu-Hrólfur: Hittumst að Nótatúni
17 laugardaginn 2. sept. kl. 10:00.
Krístín G. Magnús í Light Nights, sem
Feröaleikhúsiö sýnir í Tjarnarbíói.
„LIGHT NIGHTS“ í 20 ár:
Síðasta sýningarvikan í sumar
Sýningar Ferðaleikhússins á „Light
Nights“ eru í Tjarnarbíói við Tjörnina í
Reykjavík (Tjarnargötu 10E). Sýningar
verða í kvöld, föstud. 1. sept, og laugard.
2. og síðasta sýning sunnudagskvöldið 3.
sept. kl. 21:00-23:00 öll kvöldin.
Sunnudagssýningin er 44. sýningin í
sumar.
Light Nights-sýningarnar eru sérstak-
lega til skemmtunar og fróðleiks fyrir
enskumælandi ferðamenn, en úrdráttur
leikskrár á frönsku og þýsku er fáanlegur
í miðasölu leikhússins.
Þetta er 20. sumarið sem Ferðaleikhús-
ið stendur fyrir sýningum á Light Nights
í Reykjavík. Stofnendur og eigendur eru
Halldór Snorrason, Kristín G. Magnús
og Magnús S. Halldórsson.
Portrctt frá París eftir Hörö Ágústsson.
Hörður Ágústsson
sýnir í Nýhöfn
Laugardaginn 2. september opnar
Hörður Ágústsson sýningu í listasalnum
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, kl. 14:00-16:00.
Á sýningunni eru portrett frá Part's,
teikningar unnar á árunum 1947-’49.
Hörður stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands að afloknu stúd-
entsprófi og var þar í tvö ár. Strax eftir
stríð fór hann utan til náms og dvaldist
lengst af í París, en auk þess í Kaup-
mannahöfn, London og á Italíu. í París
varð Hörður fyrir miklum áhrifum þeirra
hræringa sem þar áttu sér stað á árunum
eftir stríð. Hann sneri aftur til íslands
1952.
Hörður Ágústsson er m.a. þekktur
fyrir rannsóknir sínar á húsagerðarlist.
Þar hefur hann bjargað frá glötun og
dregið fram ómældan fróðleik. Einnig
hefur hann unnið að bókagerð, auglýs-
ingateiknun ogbókahönnun. Hörðurhef-
ur lengi stundað kennslu og haft mótandi
áhrif á stóran hluta þeirra listamanna sem
nú eru starfandi.
Nýir umboðsmenn Tímans: Akureyri: Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18, sími 96-24275 Neskaupstað: Birkir Stefánsson Miðgarði 11, sími 97-71841 Vík, Mýrdal: Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9, sími 98-71122.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 45228
Kopavogur Linda Jónsdóttir Holtagerði 28 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 45228
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerðl Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu25 93-81410
Óiafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon HnífsdalsvegilO 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri SigríðurSigursteinsdóttir Drafnargötu 17 94-7643
Þatreksfjörður RagnheiðurGísladóttir Sigtúni 12 94-1149
Bíldudalur HelgaGísladóttir TjarnarbrautlO 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Halldór Ingi Asgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275
Svalbarðseyri ÞrösturKolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Freyjalngólfsdóttir Mararbraut 23 96-41939
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir FjarðarbakkalO 97-21467
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Esklfjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guöbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður Svava G. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur Jón Björnsson Borgarlandi21 97-88962
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerðl Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn HalldórBenjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jón ína og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vík Ingi MárBjörnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192
Langt er síðan Hörður hefur haldið
einkasýningu, en það var árið 1976 á
Kjarvalsstöðum, en haustið 1983 hélt
Listasafn íslands yfirlitssýningu á verkum
hans, sem spannaði yfir rúmlega 30 ára
tímabil.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
skrifar um listamanninn í sýningarskrá,
einkum Parísarárin.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og um helgar
kl. 14:00-18:00. Henni lýkur 13. septem-
ber.
„Tvær konur“, svarthvít mynd frá árinu
1979 cftir Alfreð Flóka, er meðal verka
sem boðin verða upp á Hótel Borg á
sunnudaginn.
Listmunauppboð á Hótel Borg
21. lislmunauppboð Gallerí Borgar i
samvinnu við Listmunauppboð Sigurðar
Benediktssonar h/f verður haldið sunnud.
3. sept. að Hótel Borg kl. 16:30.
Að þessu sinni verða boðin upp 76
verk, flest vatnslita- og oltumyndir. Með-
al verka sem boöin verða upp eru fjórar
Kjarvals-myndir, stórt olíumálverk eftir
Júlíönu Sveinsdóttur, vatnslitamynd eftir
Ásgrím Jónsson, gömul vatnslitamynd
frá París eftir Þorvald Skúlason, þrjár
myndir eftir Alfreð Flóka, gömul ab-
straktmynd eftir Eirík Smith, Heklumynd
frá 1934 eftir Gretu Björnsson, gvass-
mynd eftir Karl Kvaran, nokkrar myndir
eftir Eyjólf J. Eyfells, Ólaf Túbals og
Svein Þórarinsson.
Uppboðsmyndirnar verða sýndar í
Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, fimmtudag
og föstudag kl. 10:00-18:00 og laugardag
kl. 14:00-18:00.
Michael Kunert sýnir
í FÍM-salnum
Michael Kunert frá Austur-Þýskalandi
sýnir málverk og grafík í FÍM-salnum við
Garðastræti dagana 19. ágúst - 5. sept-
ember.
Michael Kunert er fæddur 1954 í
Leipzig og þar hefur hann búið og
starfað. Hann nam málaralist og grafík
við Listaháskólann í Leipzig 1979-’83,
aðallega undir handleiðslu Hartwigs
Ebersbach. Verk Kunerts hafa vakið
áhuga og athygli, bæði í Austur- og
Vestur-Evrópu, ekki síst sl. 3 ár, eftir
fyrstu ferð Kunerts til „Vestúrstns“, þ.e.
til Islands í júní 1987 þegar hann tók þátt
í Graphica Atlantica tvíárinu í Reykj-
avík.
Hann var annar tveggja fulltrúa Aust-
ur-Þýskalands á sýningunni og segir, að
vikudvöl hans hér hafi valdið þáttaskilum
í lífi hans og list. „íslands-myndir“ hans,
sem nú eru á sýningunni í FlM-salnum
hafa verið sýndar víða vestan tjalds á
einkasýningum sem samsýningum, m.a í
V- Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og
Austurríki. Nú síðast í júní voru þær
sýndar á Kúbu.
FÍM-salurinn, Garðastræti 6 er opinn
virka daga kl. 13:00-18:00 og um helgar
kl. 14:00-18:00.
HAFNARBORG
Hafnarborg í Hafnarfirði:
Sýning Aðalheiðar og
Myndlist frá Moldavíu
I Hafnarborg, menningar-oglistastofn-
un Hafnarfjarðar, Strandgötu 34 í Hafn-
arfirði sýnir Aðalheiður Skarphéðinsdótt-
ir teikningar og grafík. Sýningin er opin
alla daga - nema þriðjudaga - kl. 14:00-
19:00. Sýninginstendurtil 10. september.
Myndlist frá Moldaviu er einnig sýnd í
Hafnarborg um þessar mundir. Þar er
sýning á málverkum, svartlist, vefnaði og
þjóðlegum búningum frá Moldavíu. Sýn-
ingin er á vegum MÍR í tengslum við
„Sovéska daga 1989“. Sýningin er opin
alla daga - nema þriðjudaga - kl. 14:00-
19:00. Sýningin stendurtil 10. september.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hrínginn.