Tíminn - 06.09.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 6. september 1989
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráöherra leggur til aö Patreksfirði verði hjálpað í gegn um
Hlutafjársjóð og að sjóðurinn fái 200 milljónir úr ríkissjóði á næstu tveimur árum:
Stjórnin samþykkir
en Alþingi ákveður
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra lagði fram á
ríkisstjórnarfundi í gær, tillögu þess efnis að ríkissjóður legði
200 milljónir í Hlutafjársjóð á þessu ári og næsta ári. Gert er
ráð fyrir því í lögunum um sjóðinn sem samþykkt voru síðasta
vetur, að ríkinu sé heimilt að leggja fjármagn inn í ný fyrirtæki
er geti talist standa fyrir samsvarandi uppbyggingu og þau
undirstöðufyrirtæki, sem hafi orðið gjaldþrota í viðkomandi
byggðarlagi.
Samþykki ríkisstjórnarinnar viö fyrir að öllu leiti öðru en engin
tillögur sjávarútvegsráðherra liggur tiltekin fjárhæð er ákveðin til
ISLENDINGUM
SELD 31 ÞÚS.
TONN AF LODNU
Grænlendingar hafa ákveðið að
selja íslendingum heimildir til að
veiða 31.000 tonn af loðnu innan
landhelgi sinnar, en endanlegt verð
hefur ekki verið ákveðið. Hins
vegar ntá búast við því að það verði
svipað og Færeyingar greiða, en
það er nú um 72 danskar krónur
fyrir tonnið.
Þessi mál voru m.a. til umræðu
á fundi sjávarútvegsráðherra ís-
lands Halldórs Ásgrímssonar og
sjávarútvegsráðherra Grænlands
Kaj Egede, sem fram fór á ísafirði
á mánudag. Ráöherrarnir voru
sammála um að sjávarspendýr
væru auðlind sem bæri að nýta, en
ekkert hefur verið ákveðið hvenær
hvalveiðar hefjast að nýju.
Rannsóknir fiskistofna voru
einnig til umræðu hjá ráðherrunum
og voru þeir sammála um að leggja
bæri áherslu á auka rannsóknir,
m.a. með merkingum. Þá ræddu
þeir um aukið samstarf þjóðanna
vegna samninga við Evrópubanda-
lagið. -ABÓ
Tilraunastöð Háskólans í meinafræði
Keldum.
Rannsóknarmaður
óskast
Líffræðingur eða maður með hliðstæða mennun
óskast strax til rannsóknarstarfa við Tilraunastöð
Háskólans í meinafræði, Keldum.
Um er að ræða áhugaverða vinnu við riðurann-
sóknir.
Nánari upplýsingar veita Sigurður Skarphéðinsson
og Sigurður Sigurðarson, Keldum, sími 82811.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar fyrrnefndum.
fJRARIK
Bkk. A RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Ljósritunarvél til sölu
Afkastamikil Ijósritunarvél með sjálfvirkri frumrita-
innsetningu og röðun til sölu.
Rafmagnsveitur ríkisins
Innkaupadeild
Laugavegi 118
105 Reykjavík.
sjóðsins. í>að er hins vegar í höndum
Alþingis að ákveða hve mikið fé
verður lagt í Hlutafjársjóð, við af-
greiðslu fjáraukalaga, og fjárlaga
næsta árs.
Halldór sagði í samtali við Tímann
í gær að máefni Patreksfjarðar yrðu
ekki leyst með öðrum hætti en þeim
að heimamönnum yrði gert kleift að
kaupa þangað skip aftur: Gert sé ráð
fyrir því í lögum og reglugerð um
Hlutafjársjóð að ef fyrirtæki sem
skiptir sköpum fyrir atvinnulíf á
viðkomandi stað verði gjaldþrota,
geti sjóðurinn lagt frjármagn í ný
fyrirtæki sem stofnuð séu með því
markmiði að skapa viðunandi at-
vinnuástand á staðnum. f>ó að lögin
geri ráð fyrir slíkri aðstoð, hafi
aldrei verið gert ráð fyrir neinu
fjármagni til þessa. „Ég hef lagt það
til að Hlutafjársjóður fái fjármagn,
á þessu ári og því næsta, til þess að
takast á við slík verkefni, að upphæð
100 milljónir á hvoru ári. Ríkis-
stjórnin hefur fallist á að það verði
eytt fjármagni til þessara hluta, en
ekki endanlega gengið frá því hver
fjárhæðin verður, né með hvaða
hætti féð verður reytt af hendi. En,
á þessum grundvelli á Hlutafjársjóð-
ur að geta unnið í samvinnu við
Byggðarstofnun og heimamenn á
Patreksfirði", sagði sjávarútvegsráð-
herra í samtali við Tímann í gær.
Halldór kvaðst ekki geta sagt til
um hve stór hluti af þeim 200
millljónum sem hann leggur til að
ríkissjóður láti renna til Hlutafjár-
sjóðs á næstu tveimur árum, fari til
að liðka fyrir atvinnuuppbyggingu á
Patreksfirði: „Það er málefni Byggð-
arstofnunar, Hlutafjársjóðs og
heimamana á Patreksfirði að fjalla
um það með hvaða hætti á málum
verði tekið á þeim grundvelli sem nú
liggur fyrir. Ríkissjóður mun að
sjálfsögðu ekki blanda sér beint í
það hvernig atvinnurekstur verður
skipulagður á staðnum“, sagði
Halldór.
Sjávarútvegsráðherra sagðist eiga
von á því að endanleg ákvörðun um
fjárframlag ríkissjóðs til Hlutafjár-
sjóðs yrði tekin af Alþingi við af-
greiðslu fjáraukalaga í haust og
fjárlaga fyrir næsta ár. Alþingi hefði
á sínum tíma samþykkt lögin um
Hlutafjársjóðinn og gert væri ráð
fyrir því að til slíkra fjárframlaga
gæti komið. „Aðal atriðið er það að
ríkisstjórnin hefur samþykkt það að
unnið verði að málinu með þessum
hætti og ég vænti þess að hún geti
skapað meirihluta um fyrir því með-
al sinna stuðningsmanna. Ég held að
það sé hægt að ganga út frá því að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafi
þann stuðning sem til þarf.“ - ÁG
Skálmöldin við héraðsskólann að Reykjanesi við ísafjarð-
ardjúp á enda. Menntamálaráðherra hjó á hnútinn í gær:
Lausnin fundin
allir fari frá
„Þetta viðkvæma og erfiða mál er
nú leyst þannig að bæði skólanefnd
og skólastjóri víkja til hliðar, skipað
verður í nýja skólanefnd og skóla-
stjórastaðan verður auglýst laus til
umsóknar. Það voru allir, bæði
skólanefndin, skólastjórinn og
menntamálaráðuneytið, sammála
um að það ástand sem skapast hafði
við skólann yrði að taka enda svo að
bjarga mætti skólahaldi við
skólann." sagði Svavar Gestsson
menntamálaráðherra í gær um deilur
þær er staðið hafa um alllangt skeið
meðal stjórnenda héraðsskólans að
Reykjanesi við Isafjarðardjúp.
Fyrir síðustu helgi hafði mennta-
málaráðherra óskað þess við skóla-
stjóra Reykjanesskóla við ísafjarð-
ardjúp, Skarphéðin Ólafsson, að
hann færi í ársleyfi frá störfum en
gerði hann það ekki, yrði honum
vikið úr starfi.
Verulegt ósamkomulag og vand-
ræði hafa undanfarin ár sett mark
sitt á skólastarf að Reykjanesi og
hafa skólastjórinn og formaður
skólanefndar sem skipaður er af
Menntamálaráðuneytinu einkum
eldað grátt silfur saman. Þá hefur
bryti skólans undanfarin tvö ár
einnig komið við sögu og hafa stirð
samskipti hans og Skarphéðins
skólastjóra verið talsvert í fjölmiðl-
um og ekki er langt síðan að skarst
í odda með þeim tveim vegna þess
að brytinn, sem rekið hefur sumar-
hótel í skólanum í sumar, hafði skipt
um lás að eldhúsdyrum í skólahús-
inu.
Brytanum var sagt upp starfi við
skólann s. 1. vor og hefur verið ráðinn
nýr bryti fyrir næsta skójaár. „Mér
var lofað gulli og grænum skógum ef
ég flytti hér inn í Reykjanes fyrir
tveim árum síðan. Ég hef ekki átt í
neinum deilum við skólastjórann
þessi tvö ár, hef raunar lítið talað við
hann enda talar hann ekki við sína
undirmenn," sagði Heiðar Guð-
brandsson bryti við skólann.
„Atvinnumöguleikar hér í sýsl-
unni eru litlir og ég hafði samband
við menntamálaráðherra í fyrradag
og tjáði honum að ég ætti mjög bágt
með að fara úr íbúð þeirri sem ég hef
búið í hér fyrr en að ég sæi hvert ég
ætlaði,“ sagði Heiðar. Hann sagði
það rangt sem fram kom í fréttum
útvarpsins í gær að til stæði að bera
hann út.
Að sögn kunnugra er forsaga
deilna við Reykjanesskóla sú að
kennarar sem við hann kenndu fyrir
nokkrum árum höfðu kært skóla-
stjóra fyrir formanni skólanefndar-
innar og hafði þá nefndin látið málin
til sín taka og hefðu þau síðan þróast
í allsherjar togstreitu og í raun væru
nú allir búnir að missa sjónar og
jafnvel gleyma upphaflegum deilu-
efnum en mál farin að snúast um
persónulegan fjandskap milli manna
og ríki nú orðið skálmöld eða því
sem næst að Reykjanesi.
Tíminn spurði í gær Skarphéðin
Ólafsson skólastjóra um þessar deil-
ur og sagði hann að upphaf þeirra
hefði verið vegna endurskoðunar
reikninga mötuneytis skólans vegna
kæru um ólöglega viðskiptahætti, en
Skarphéðinn annaðist þá bókhald
þess.
Rannsóknin hefði ekki leitt neitt
athugavert í ljós við bókhaldið en
hins vegar hefði í kjölfar þessa verið
reynt að flæma hann úr stöðu skóla-
stjóra. Að því hefði síðan verið róið
í allt sumar bæði með blaðaskrifum
og símhringingum. „Þetta hafa gert
bæði ýmsir skólanefndarmenn og
þessi bryti sem var hjá mér í vetur er
leið og er var hér hótelstjóri í
sumar," sagði Skarphéðinn. Hann
sagði síðan:
„Ég er að melta það með mér í
samráði við m.a. lögfræðing minn
hvort ég láti þetta boð ráðherra um
árs leyfi núna duga eða hvort ég láti
hann víkja mér frá og leiti réttar
míns fyrir dómstólum.“
-sá