Tíminn - 06.09.1989, Page 4

Tíminn - 06.09.1989, Page 4
4 Tíminn Miðvikudagur 6. september 1989 4&TRIMÁ Bergsjo Trima AB Sérstakt tilboðsverð á tækjum sem pöntuð eru í september KAUPFÉLÖGIN OG ARMÚLA3 REYKJAVlK SlMI 38900 i^TRIMA Moksturstæki á allar dráttarvélar Jeppahjólbarðar Hágæðahjólbarðar HANKOOK frá Kóreu. 9,5-30-15 kr. 5.950,- 10.5- 31-15 kr. 6.950,- 12.5- 33-15 kr. 8.800.- Gerið kjarakaup Örugg og hröð þjónusta BARÐINN Skútuvogi 2, Reykjavík Símar 91-30501 og 84844 ÓKEYPIS hönnun auglýsingar þegar þú auglýsir í TÍMANUM AUGLÝSINGASÍMI 680001 t Eiginmaöur minn Finnur Klemensson Hóli, Norðurardal veröur jarösunginn frá Hvammskirkju föstudaginn 8. september kl. 14.00. Sætaferðfrá B.S.Í. kl. 11.00. Blóm otj kransar vinsamlega afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands. Fyrir hönd vandamanna Herdís Guðmundsdóttir. Velheppnuðu fjórðungsþingi Norðlendinga lokið: Brýnt að undirbúa vel framkvæmd laga um verkaskiptingu Fjórðungsþing Norðlendinga var sett í raungreinahúsi Menntaskólans á Akureyri föstudaginn 1. september. Þingið sóttu á annað hundrað manns og þótti takast mjög vel í alla staði. Flutt voru erindi þar sem spurt var hvort norðlensk byggðaþróun stefni í blindgötur. Fjallað var um sjávarút- vegsmál, verslun í dreifbýli, um menningu í dreifbýli, um iðnþróun í dreifbýli og fleira. Umræðuhópur var um heilbrigð- ismál þar sem Bjarni Þór Einarsson bæjarstjóri var umræðustjóri en Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- ráðherra flutti erindi. f hópi um skólamál var framsögumaður Gerð- ur Óskarsdóttir ráðgjafi en umræðu- stjóri var Trausti Þorsteinsson. í umræðuhóp um tekjustofna sveitar- félaga var umræðustjóri Þórður Skúlason sveitarstjóri og umræðu- stjóri Jón Pétur Líndal. Framsögu- maður um iandbúnaðarmál var Steingrímur Sigfússon ráðherra og umræðustjóri var Auður Eiríksdótt- ir. Þingið taldi að með setningu laga um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga hefði náðst nrikilvægur áfangi í samskiptum þeirra. Þingið lagði áherslu á að framkvæmd laganna verði vel undirbúin og taldi nauðsyn- legt að Samband íslenskra sveitarfé- laga annist fyrir hönd sveitarfélag- anna kostnaðaruppgjör vegna eldri framkvæmda. Jafnframt lagði þingið áherslu á að staðið verði við skuld- bindingar laganna um greiðslur vegna áfallinna skuldbindinga ríkis- sjóðs. Þingið lýsti ánægju sinni með nýsamþykkt tekjustofnalög og taldi þau bjóða upp á verulega jöfnun og samræmingu í tekjurn sveitarfélaga. Fagnað var áfanga sem unnist hefur í að jafna símakostnaði. Skor- að var á ríkisvaldið að vinna að því ásamt sveitarfélögunum að síma- kostnaður verði sá sami innan svæða líkt og nú er á Suðurlandi og á Reykjavíkursvæðinu. Einnig var skorað á ríkisvaldið að vinna að því að rafmagnskostnaður yrði sá sami hvar sem er á landinu. Þingið taldi nauðsynlegt að fram- haldsskólar á landsbyggðinni efli með sér samstarf og að skýrt verði kveðið á um kostnað við hvern framhaldsskóla. Fjórðungsþingið taidi að vinna beri að því að hætt verði greiðslu staðarbóta til ríkisstarfsmanna. Þingið taldi að landbúnaðurinn eigi áfram að gegna lykilhlutverki í viðhaldi byggðar í hinum dreifðu byggðum og bendir sérstaklega á hvaða afleiðingar samdráttur í sauð- fjárrækt hefur haft á jaðarbyggð í fjórðungnum. Þingið telur að ekki megi draga lengur að koma lagi á rekstrargrundvöll loðdýraræktarinn- ar. Þingið vill að þau sveitarfélög sem kaupa orku sína af RARIK myndi samtök um hagsmuni sína. Næsta fjórðungsþing verður á Sauðárkróki. Formaður Fjórðungs- sambands Norðlendinga er Björn Sigurbjörnsson frá Sauðárkróki. - EÓ Mj j> >, M 1 ®! 9 ÍL jHKj Hópurinn ásamt farastjórum. Vel heppnuð hópferð að Vestmannsvatni inni ennþá, það best er vitað. Einn úr hópi hagyrðinga, Her- mundur Þorsteinsson, bóndi, Egils- staðakoti í Villingaholtshreppi, bætti þessum Ijóðlínum í safnið - tileinkað ferða- og farskjótastjórum, við leiðarlok: „Bogga og Stebbi oss stjórnaðhafa og staðið vaktir. Raunar okkar ráðið högum rausnarlega á níu dögum.“ Stjas. þann 16. ágúst sl. og lauk 24. sama mánaðar. Fyrstu nóttina var gist á Sauðárkróki. Dvalið var 7 nætur í sumarbúðum þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn í fögru og friðsælu umhverfi. Þaðan var ekið alla dagana vítt um hérað og urðu ferðafélagar í mörgu fróðari um menn og málefni, fræga og fallega staði, félagsmálaþróun og m.fl. Kvöldin liðu í leik og starfi við spil og spjall, söng og serlega ánægjulegar helgistundir er hús- ráðendur, Bjarni Karlsson og hans ágæta kona, Jóna Bolladóttir frá Laufási stjórnuðu. Vika hársins ’89 Félagsmenn í Sambandi hárgreiðslu- og hárskerameistara standa þessa dagana, 2.-9. september, fyrirsvokallaðri „Viku hársins 1989“. Þessa viku munu hársnyrtistofur vera með sértilboð og ráðleggingar fyrir viðskiptavini um val á hársnyrtivörum. Einnig munu margar hársnyrtistofur vera með sértilboð á þjónustu sinni og ókeypis hárþvott og meðferð á illa förnu hári. Viku hársins lýkur með stórri hársnyrtisýningu á Hótel íslandi þar sem helstu hársnyrtimeistarar sýna það helsta í hársnyrtingu. Einnig mun landslið íslands sem keppir á Norðurlandamóti koma þar fram og sýna listir sínar. Félag eldri borgara á Selfossi var stofnað 25. september 1980. Hefur starfsemi félagsins frá upphafi verið þróttmikil og fjölþætt og hafa eldri borgarar í Árnessýslu notið þar góðs af hin síðari árin. Einkum eru það hópferðir félags- ins, innan lands og utan, sem eldra fólk í Árnesþingi hefur kunnað vel að meta. Ein af mörgum ferðum félagsins á þessu ári var farin að Vestmanns- vatni í Suður-Þineeviarsvslu er hófst Fararstjóri í þessari velheppnuðu fræðslu- og skemmtiferð var Vilborg (Bogga) Magnúsdóttir húsfreyja á Selfossi. Bifreiðarstjórinn sem ók okkur í hópferðabíl frá Guðmundi Tyrfingssyni á Selfossi var Stefán Stefánsson, strætisvangastjóri í Kópavogi. Ljóðskáldin í ferðinni létu ekki sitt eftir liggja að lífga uppá tilveruna þegar það átti við og skiluðu miklum „afurðum" að ferðalokum - enda engin framleiðslutakmörk í grein-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.